Fréttablaðið - 02.06.2006, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 02.06.2006, Blaðsíða 52
 2. júní 2006 FÖSTUDAGUR12 ■ ÞJÁLFARI: Raymond Domenech (f. 24. jan. 1952) Var áður þjálfari u-21 árs landsliðs Frakka en tók við af Jacques Santini eftir von- brigðin á EM 2004. Hefur oft verið gagn- rýndur fyrir val sitt á liðinu, bæði vegna þess að hann hefur sleppt því að velja menn sem kannski áttu það skilið og vegna þess að hann hefur valið leikmenn án þess að hafa nokkuð fyrir sér í því. Í Þýskalandi þarf hann að láta verkin á vellinum tala sínu máli. ■ KOMST Á HM – með því að hafna í fyrsta sæti í undan- riðli 4 í Evrópu. G - RIÐILL Leikmannahópurinn 1. Mickael Landreau, 27 ára, Nantes 2. J. Boumsong, 27 ára, Newcastle 3. Eric Abidal, 27 ára, Lyon 4. Patrick Vieira, 30 ára, Juventus 5. William Gallas, 29 ára, Chelsea 6. Claude Makelele, 33 ára, Chelsea 7. Florent Malouda, 26 ára, Lyon 8. V. Dhorasoo, 33 ára, Paris St. Germain 9. Djibril Cisse, 25 ára, Liverpool 10. Zinedine Zidane, 34 ára, Real Madrid 11. Sylvain Wiltord, 32 ára, Lyon 12. Thierry Henry, 29 ára, Arsenal 13. Mikael Silvestre, 29 ára, Man. Utd. 14. Louis Saha, 28 ára, Man. United 15. Lilian Thuram, 34 ára, Juventus 16. Fabien Barthez, 35 ára, Marseille 17. Gael Givet, 25 ára, Monaco 18. Alou Diarra, 25 ára, Lens 19. Willy Sagnol, 29 ára, Bayern Munchen 20. David Trezeguet, 29 ára, Juventus 21. Pascal Chimbonda, 27 ára, Wigan 22. Frank Ribery, 23 ára, Marseille 23. Gregory Coupet, 34 ára, Lyon Leikmannahópurinn 1. Woon Jae Lee, 33 ára, Suwon Bluewings 2. Y. Kim, 30 ára, Seongnam Ilhwa Chunma 3. Dong Jin Kim, 24 ára, FC Seoul 4. Jin Cheul Choi, 35 ára, Chonbuk Hyundai Motors 5. Nam Il Kim, 29 ára, Suwon Bluewings 6. Jin Kyu Kim, 21 árs, Jubilo Iwata 7. Ji Sung Park, 25 ára, Manchester United 8. Do Heon Kim, 24 ára, Seongnam Ilhwa Chunma 9. Jung Hwan Ahn, 30 ára, MSV Duisburg 10. Chu Young Park, 21 árs, FC Seoul 11. Ki Hyeon Seol, 27 ára, Wolves 12. Young Pyo Lee, 29 ára, Tottenham 13. Eul Yong Lee, 31 árs, Trabzonspor 14. Chun Soo Lee, 25 ára, Ulsan Hyundai 15. Ji Hoon Baek, 21 árs, FC Seoul 16. K. Ho Chung, 26 ára, Gwangju Sangmu 17. Ho Lee, 22 ára, Ulsan Hyundai 18. S. Kim, 30 ára, Seongnam Ilhwa Chunma 19. Jae Jin Cho, 25 ára, Shimizu S-Pulse 20. Y. Kim, 27 ára, Seongnam Ilhwa Chunma 21. Young Kwang Kim, 23 ára, Chunnam Dragons 22. Chong Gug Song, 27 ára, Suwon Bluewings 23. Won Hee Cho, 23 ára, Suwon Bluewings Leikmannahópurinn 1. Pascal Zuberbühler, 35 ára, Basel 2. Johan Djourou, 19 ára, Arsenal 3. Ludovic Magnin, 27 ára, VfB Stuttgart 4. Philippe Senderos, 21 árs, Arsenal 5. Xavier Margairaz, 22 ára, FC Zürich 6. Johann Vogel, 29 ára, AC Milan 7. Ricardo Cabanas, 27 ára, FC Cologne 8. Raphael Wicky, 29 ára, Hamburger SV 9. Alexander Frei, 27 ára, Rennes 10. Daniel Gygax, 25 ára, Lille 11. Marco Streller, 25 ára, FC Cologne 12. D. Benaglio, 23 ára, Nacional Madeira 13. Stephane Grichting, 27 ára, Auxerre 14. David Degen, 23 ára, Basel 15. Blerim Dzemaili, 20 ára, FC Zürich 16. T. Barnetta, 21 árs, Bayer Leverk. 17. C. Spycher, 28 ára, Eintracht Frankfurt 18. Mauro Lustrinelli, 30 ára, Sparta Prag 19. Valon Behrami, 21 árs, Lazio 20. Patrick Müller, 30 ára, Lyon 21. Fabio Coltorti, 26 ára, Grasshopper 22. Johan Vonlanthen, 20 ára, NAC Breda 23. P. Degen, 23 ára, Borussia Dortmund Leikmannahópurinn 1. Ouro-nimini Tchagnirou, 29 ára, Djoliba 2. Dare Nibombe, 26 ára, Mons 3. Jean-paul Abalo, 31 árs, Apoel Nicosia 4. Emmanuel Adebayor, 22 ára, Arsenal 5. M. Tchangai, 28 ára, Benevento 6. Yao Aziawonou, 28 ára, Young Boys 7. Moustapha Salifou, 23 ára, Stade Brest 8. Kuami Agboh, 29 ára, Beveren 9. Thomas Dossevi, 27 ára, Valenciennes 10. Cherif Toure Mamam, 23 ára, Metz 11. Robert Malm, 33 ára, Stade Brest 12. Eric Akoto, 26 ára, Admira 13. R. Forson, 26 ára, JA Poire sur Vie 14. A. Olufade, 26 ára, Al Sailiya 15. A. Romao, 22 ára, Louhans-Cuiseaux 16. Kossi Agassa, 28 ára, Metz 17. Kader Mohamed, 27 ára, Guingamp 18. Yao Junior Senaya, 22 ára, YF Juventus 19. L. Assemoassa, 26 ára, Ciudad Murcia 20. Affo Erassa, 23 ára, Moulins 21. Karim Guede, 21 árs, Hamburger SV 22. Kodjovi Obilale, 22 ára, Etoile Filante 23. T. Assimiou, 18 ára, Bayer Leverkusen © GRAPHIC NEWS Fabien Barthez Lilian Thuram William GallasWilly Sagnol Sylvain Wiltord Claude Makelele Mikael Silvestre Zinedine ZidanePatrick Vieira Thierry Henry David Trezeguet LÍKLEGT BYRJUNARLIÐ 4-4-2 FRAKKLAND HEIMSÁLFA: Evrópa ÍBÚAFJÖLDI: 60,2 milljónir SÆTI Á HEIMSLISTA: 8. ÁÐUR TEKIÐ ÞÁTT Á HM: 1930, 1934, 1938, 1954, 1958, 1966, 1978, 1982, 1986, 1998, 2002 ■ LYKILMAÐUR: Thierry Henry Þrátt fyrir að allir séu sammála um að Henry sé einn sá allra besti í heimi hefur hann einhvern veg- inn aldrei náð að sýna sitt rétta andlit með landsliðinu á undan- förnum árum. Henry þarf að spila með Frakklandi eins og hann gerir með Arsenal, ef svo fer mun liðið fara langt í keppninni. ■ FYLGSTU MEÐ: Zinedine Zidane Orðinn 33 ára og frekar lúinn mun Zidane spila sína síðustu fót- boltaleiki á ferlinum í Þýskalandi. Hann mun án efa gefa allt sitt í leikina, enda þráir hann ekkert meira en að enda ferilinn með stærsta titli fótboltans. Ef örlögin fengju að ráða yrði HM í Þýska- landi keppnin hans Zidane. ■ VISSIR ÞÚ.... Að Frakkar eru áberandi þegar rýnt er í sögubækur HM? Sjálf- ur titillinn var lengi á leiðinni, en sem kunnugt er urðu Frakkar heimsmeistarar 1998. Færri vita að það var Frakki, Jules Rimet að nafni, sem kom HM á laggirnar fyrir tæpum átta- tíu árum. Auk þess var það Frakkinn Lucien Laurent sem skoraði fyrsta markið í sögu HM. ■ STÓRA SPURNINGIN: Munu hinir sumir öldnu en mögnuðu fótboltamenn Frakklands ná aftur jafnvel saman og þeir gerðu fyrir 6-8 árum, þegar franska liðið var það besta í heimi? Ljóst er að kynslóðaskipti munu eiga sér stað í franska lið- inu eftir HM en mun núverandi kynslóð kveðja með viðeigandi hætti? SVISS HEIMSÁLFA: Evrópa ÍBÚAFJÖLDI: 7,3 milljónir SÆTI Á HEIMSLISTA: 35. ÁÐUR TEKIÐ ÞÁTT Á HM: 1934, 1938, 1950, 1954, 1962, 1966, 1994 ÞJÁLFARI: Koebi Kuhn (f. 12 okt. 1943) KOMST Á HM – með samanlögðum sigri á Tyrkjum í umspili ■ LYKILMAÐUR: ALEXANDER FREI Besti sóknarmaður liðsins og markahæsti leikmaður Sviss í undankeppninni. Frei er mjög fljótur og sterkur framherji og sá fyrsti sem getur talist verðugur arftaki Stephane Chapuisat í sókn Svisslendinga. Hefur skorað 23 mörk í 42 leikjum. ■ VISSIR ÞÚ... að áður en Sviss tapaði fyrir Tyrkalandi í síð- ari leik liðanna í umspili fyrir HM hafði liðið leikið 14 leiki á heilu ári án þess að tapa, sem er til marks um þá uppbygginu og framför sem hefur átt sér stað? Landsliðið í dag er að nokkru leyti byggt á leikmönnum sem urðu Evrópumeistarar u-17 ára liða 2002. ■ STÓRA SPURNINGIN: Þjálfarinn Kuhn lýsti því yfir á síðasta ári að ástæðan fyrir velgengni Sviss væri „fjöl- skylduandinn“ sem ríkti innan liðsins. Flestir muna hins vegar eftir ofbeldinu sem leikmenn liðsins sýndu í umspil- inu gegn Tyrkjum í slagsmálunum eftir síðari leikinn. Mun það óorð verða til þess að sundra „fjölskylduandanum“? S-KÓREA HEIMSÁLFA: Asía ÍBÚAFJÖLDI: 48,3 milljónir SÆTI Á HEIMSLISTA: 29. ÁÐUR TEKIÐ ÞÁTT Á HM: 1954, 1986, 1990, 1994, 1998, 2002 ÞJÁLFARI: Dick Advocaat (f. 27. sept. 1947) KOMST Á HM – með því að hafna í öðru sæti í einum af lokariðlunum í undankeppni Asíu. ■ LYKILMAÐUR: PARK JI-SUNG Hefur sannað sig hjá Manchester United í vetur sem mjög frambærilegur vængmaður sem getur komist framhjá velflestum bakvörðum heims. Óhemju snöggur og teknískur vængmaður sem skorar mörk með reglulegu millibili. ■ VISSIR ÞÚ... að Suður-Kórea er sigursælasta þjóðin frá Asíu á HM frá upphafi? Liðið hefur nú verið með í öllum lokakeppnum HM frá árinu 1986 og í síðustu keppni vann liðið eftirminnilega sigra á ekki minni þjóðum en Ítalíu og Spáni en tapaði síðan fyrir Þýskalandi í sextán liða úrslitum. ■ STÓRA SPURNINGIN: Forkálfar knattspyrnusam- bandsins hafa greinilega mikla trú á hollenskum þjálfurum því við stjórnvölinn nú er Dick Advocaat. Fyrir fjórum árum var það Guus Hiddink sem var þjálfari liðsins og náði eftirtektarverðum árangri. Nær Advocaat að toppa þann árangur forvera síns og landa? TÓGÓ HEIMSÁLFA: Afríka ÍBÚAFJÖLDI: 5,4 milljónir SÆTI Á HEIMSLISTA: 61. ÁÐUR TEKIÐ ÞÁTT Á HM: Aldrei ÞJÁLFARI: Otto Pfister (f. 24. nóv. 1937) KOMST Á HM – með því að hafna í fyrsta sæti í undanriðli 1 í Afríku, á undan Senegal. ■ LYKILMAÐUR: EMMANUEL ADEBAYOR Þessi fyrrum leikmaður Monaco var keyptur til Arsenal í upphafi árs fyrir sjö milljónir punda og fékk dýrmæta reynslu hjá enska liðinu í fjarveru Thierry Henry fyrr á tímabil- inu. Adebayor er yfirburðamaður í liði Tógó, hann var langmarkahæstur hjá liðinu í undankeppninni með 11 mörk, þar af markið ómetanlega gegn Senegal sem kom liðinu á HM. ■ VISSIR ÞÚ... að Þjóðverjinn Otto Pfister er elsti þjálf- arinn á HM í Þýskalandi í sumar? Pfister verður sjötug- ur á næsta ári og er 27 árum eldri en Marco van Basten hjá Hollandi, sem er yngsti þjálfarinn á HM. STÓRA SPURNINGIN: Eftir slakt gengi í Afríkukeppn- inni fyrr á árinu ákvað knattspyrnusamband Tógó að reka hinn nígeríska Stephen Keshi, þjálfarann sem kom liðinu á HM, úr starfi og við tók Pfister fyrir réttum þremur mánuðum. Mun sá tími vera nægur fyrir hann til þess að slípa saman nýja hugsun hjá buguðu liði? © GRAPHIC NEWS© GRAPHIC NEWS© GRAPHIC NEWS Frakkar voru í riðli með Dönum, Senegal og Úrugvæ á HM 2002. Flestir bjuggust við því að þáver- andi Evrópumeistarar ættu greiða leið í sextán liða úrslitin. Skemmst er frá því að segja að þeir skoruðu ekki mark í keppninni og fóru heim með eitt stig og skottið á milli lappanna. Það skal því eng- inn dæma G-riðilinn of snemma. „Þessi riðill verður ekki auð- veldur fyrir okkur. Við stefnum á að læra á mótinu,“ heyrist Stephen Keshi, þjálfari Tógó, segja á meðan hinn franski kollegi hans, Raymond Domenech, er kokhraustur. „Það muna allir hvað gerðist á síðasta heimsmeistaramóti. Ég er þó sann- færður um ágæti okkar liðs og fyrsti leikurinn okkar, gegn Sviss, verður algjör lykilleikur. Ef við vinnum hann ættum við að komast áfram,“ segir Domenech en nokk- uð hefur borið á óróa í herbúðum frönsku leikmannanna fyrir mótið. Tógó kemur á HM fyrst og fremst til að njóta sín og mun væntanlega ekki blanda sér í neina baráttu um sæti í sextán liða úrslitunum. Svisslendingar geta orðið örlagavaldar en þeim hefur vegnað vel gegn Frökkum. Suður- Kóreumenn komust alla leið í und- anúrslit á heimavelli á síðasta HM, hafa frábæra leikmenn og geta því vel komið á óvart. Bæta Frakkar fyrir vonbrigðin 2002?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.