Fréttablaðið - 02.06.2006, Blaðsíða 68
2. júní 2006 FÖSTUDAGUR36
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkis-
atburði, stórafmæli, andlát og
jarðarfarir í smáletursdálkinn
hér að ofan má senda
á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Okkar elskaði
Páll Jónsson
Hóli, Hvítársíðu,
lést mánudaginn 29. maí.
Edda Magnúsdóttir
Jón Magnús Pálsson Hrafnhildur Hróarsdóttir
Finnbogi Pálsson Hrönn Vigfúsdóttir
Páll Bjarki Pálsson Eyrún Anna Sigurðardóttir
Erlendur Pálsson Guðrún Harpa Bjarnadóttir
Þorbjörg Pálsdóttir Ragnar Bjarnason
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn,
stjúpfaðir og afi,
Magnús S. Jósepsson
bóndi, Fremri-Hrafnabjörgum, Hörðudal,
Dalasýslu,
sem andaðist 24. maí sl. á Hjúkrunarheimilinu Skjóli,
verður borinn til grafar frá Snóksdalskirkju laugardag-
inn 3. júní kl. 11.00 árdegis.
Ólafía K. Hjartardóttir
Hinrik Hinriksson Ólafía H. Bjargmundsdóttir
Ólafía M. Hinriksdóttir
Halldóra G. Hinriksdóttir Páll L. Sigurðsson
Bjargey Una Hinriksdóttir Róbert E. Jensson
Hinrik Ingi Hinriksson
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengda-
faðir, afi, langafi og bróðir,
Jóhann Eggert Jóhannsson
vélstjóri og pípulagningameistari,
Lerkihlíð 9, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Háteigskirkju í dag, 2. júní,
kl. 13:00.
Unnur Guðmundsdóttir
Guðjón Jóhannsson Auður Inga Ingvarsdóttir
Margrét Jóhannsdóttir Jón Þór Sigurðsson
Ægir Jóhannsson Gróa Másdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Valdimar Jóhannsson Jóhanna Þ. Aðalsteinsdóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Gunnar Þorvarðarson
skipstjóri, Kleppsvegi 62, Reykjavík,
sem lést á Landspítalanum Fossvogi 29. maí, verður jarðsung-
inn frá Bústaðakirkju í dag, föstudaginn 2. júní, kl. 13.00.
Helga Jónsdóttir
Aðalbjörg S. Gunnarsdóttir
Björg Gunnarsdóttir Finnbogi Sigurðsson
Ágústa Gunnarsdóttir
Þorvarður Gunnarsson Þórlaug Ragnarsdóttir
Jón Gunnarsson Sigríður G. Sverrisdóttir
Helga Gunnarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
Ragna Grönvold Ragnars
lést að morgni mánudagsins 29. maí. Jarðsungið verður
frá Dómkirkjunni föstudaginn 2. júní kl. 13.00. Blóm og
kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeir sem vilja
minnast hennar eru beðnir að láta Hjartavernd njóta þess.
Guðrún Grönvold Preben P. Petersen
Ragnar Grönvold Linda Káradóttir
Gústaf Grönvold
Magnús Grönvold
og barnabörn.
ANDLÁT
Bergur Magnús Guðbjörnsson,
Reynigrund 47, Akranesi, varð
bráðkvaddur sunnudaginn 28.
maí.
Einar Nikulásson, forstjóri,
Breiðagerði 25, Reykjavík, lést á
Landspítalanum við Hringbraut
sunnudaginn 28. maí.
Fanney Daníelsdóttir, Túngötu
4, Húsavík, lést á heimili sínu
mánudaginn 29. maí.
Hafþór Sigurgeirsson, til heimilis
á Holtateigi 2, Akureyri, lést af
slysförum laugardaginn 27. maí.
Helga Þóra Kjartansdóttir, Hvera-
lind 4, Kópavogi, lést á Landspít-
alanum í Fossvogi mánudaginn
29. maí.
Páll Jónsson, Hóli, Hvítársíðu, lést
mánudaginn 29. maí.
Steingrímur Sigvaldason lést á
hjúkrunarheimilinu Grund þriðju-
daginn 30. maí.
JARÐARFARIR
11.00 Aðalbjörg Jóakimsdóttir,
frá Hnífsdal, Drápuhlíð
27, verður jarðsungin frá
Háteigskirkju.
11.00 Margrét Friðriksdóttir,
ljósmóðir, Grettisgötu 46,
Reykjavík, verður jarðsungin
frá Fossvogskapellu.
11.00 Þórey Ólafsdóttir, Háagerði
51, Reykjavík, verður jarð-
sungin frá Fossvogskirkju.
13.00 Gunnar Þorvarðarson,
skipstjóri, Kleppsvegi 62,
Reykjavík, verður jarðsung-
inn frá Bústaðakirkju.
13.00 Guðjóna Guðnadóttir,
Hrauntungu 119, Kópavogi,
verður jarðsungin frá Foss-
vogskirkju.
13.00 Jóhann Eggert Jóhanns-
son, vélstjóri og pípulagn-
ingameistari, Lerkihlíð 9,
Reykjavík, verður jarðsung-
inn frá Háteigskirkju.
13.00 Ragna Grönvold Ragnars
verður jarðsungin frá Dóm-
kirkjunni.
13.30 María Jónsdóttir, Víðilundi
20, Akureyri, verður jarð-
sungin frá Akureyrarkirkju.
14.00 Kjartan J. Hallgrímsson,
Tjörnum, Skagafirði, verður
jarðsunginn frá Hofsós-
kirkju.
14.00 Tryggvi Jónsson, Einbúa,
Bárðardal, verður jarðsung-
inn frá Þorgeirskirkju að
Ljósavatni.
14.00 Þorkell Bjarnason verður
jarðsunginn frá Skálholts-
kirkju.
15.00 Þorgerður Gunnarsdóttir,
fyrrverandi bankastarfs-
maður, til heimilis í
Hörðalandi 10, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Foss-
vogskirkju.
Guðrún Agnarsdóttir, forstjóri Krabba-
meinsfélagsins, á 65 ára afmæli í dag.
Hún ætlar að sýna danskri fjölskyldu
sinni lömbin og snjóinn í Svarfaðar-
dalnum í dag og kannski gefa þeim gott
að borða í tilefni dagsins.
„Það var nú bara algjör tilviljun að
það hittist þannig á að þau koma á
afmælinu,“ segir Guðrún. Frænka
hennar er systkinabarn við hana og
hefur alist upp í Danmörku og kemur
með alla fjölskylduna, eiginmann sinn,
son, tengdadóttur og barnabörn ásamt
bróðurdóttur og kærasta hennar. „Þetta
er hópur sem hefur lengi langað að
koma hingað til Íslands. Við ætlum að
fara norður í Svarfaðardal þar sem við
eigum jörð og sýna þeim litlu lömbin
sem eru að fæðast þessa dagana, fal-
legu fjöllin og náttúruna.“
Guðrún segist hafa verið minnug á
afmælin sín, sérstaklega á sínum fyrri
árum. „Ég er frekar mikið fyrir að hitta
fólk og eiga góðar stundir en afmæli
eru oft tilvalin tilefni til þess. Kannski
var ég meira afmælisbarn framan af
ævinni því mér finnst ég gleyma því
frekar núna að ég eigi afmæli,“ segir
hún og furðar sig á gleymskunni í sér.
„Kannski er þetta einhver varnarháttur
í mér, eins og ég vilji ekki fylgjast með
því þegar ég eldist. En mér finnst ég
samt ekki vera að eldast heldur vera
alltaf á allra besta aldri. Mér finnst
hvert ár sem ég lifi vera mikill ávinn-
ingur og er mjög þakklát fyrir það.“
Aðspurð minnist Guðrún þess sér-
staklega að hafa átt skemmtilegt sex-
tugsafmæli. „Þá gengum við hjónin á
Hvannadalshnúk ásamt vinafólki okkar
og fleirum. Ég ætlaði þá að halda upp á
afmælið en svo vildi til að það bar upp á
hvítasunnu og margir búnir að ákveða
eitthvað annað. Ég fékk þá boð um að
fara með á Hvannadalshnúk þannig við
slógum til enda fannst mér það
skemmtileg leið til að halda upp á
afmælið.“ Guðrún segist hafa staðið á
tindinum á sjálfum afmælisdeginum
sem hafi verið góð tilfinning þrátt fyrir
hríðina sem geisaði á hnúknum og
blindaði allt útsýni. „Svo reyndi ég aftur
við Hvannadalshnúk en þá var svo
hvasst að ekki var stætt á toppnum. Ég
á því eftir að reyna í þriðja sinn og fá
gott útsýni.“ Aðspurð um hvort sjötugs-
afmælið sé ekki tilvalinn dagur fyrir
þriðju gönguna segir Guðrún að ekkert
sé útilokað í þeim efnum. „Kannski
verður það líka fyrr,“ bætir hún svo
við.
GUÐRÚN AGNARSDÓTTIR: 65 ÁRA Í DAG
Alltaf á allra besta aldri
GUÐRÚN AGNARSDÓTTIR FORSTJÓRI KRABBAMEINSFÉLAGSINS Á sextugsafmæli sínu kleif Guðrún
Hvannadalshnúk sem hún segir skemmtilega leið til að halda upp á afmæli. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
MERKISATBURÐIR
1707 Stóra bóla berst til landsins.
Hún geisaði í tvö ár og
þriðjungur Íslendinga lést
úr henni. Þetta var mann-
skæðasta sótt síðan „svarti
dauði” herjaði á landann
þremur öldum áður.
1865 Borgarastyrjöldinni í Banda-
ríkjunum lýkur.
1924 Indjánum í Bandaríkjunum
er veittur ríkisborgararéttur.
1934 Dalvíkurskjálftinn eyðilegg-
ur 22 hús á Dalvík og á
annað hundrað skemmast í
nágrannabyggðum.
1957 Hrafnista DAS í Reykjavík er
tekin í notkun.
1979 Jóhannes Páll páfi annar
heimsækir heimaland sitt,
Pólland.
RAY COMBS (1956-1996) LÉST
ÞENNAN DAG.
„Aldrei lenda í rifrildi við
manneskju með geðklofa og
segja: Hver heldur þú
eiginlega að þú sért?“
Bandaríski brandarakarlinn Ray
Combs framdi sjálfsmorð inni á
geðspítala aðeins fertugur að aldri.
Þennan dag árið 1953 var
Elísabet önnur Bretadrottning
krýnd þjóðhöfðingi yfir Stóra-
Bretlandi í íburðarmikilli athöfn.
Þúsundir gesta voru viðstaddar
krýninguna í Westminster
Abbey í Lundúnum. Tugir
milljóna hlustuðu á athöfnina
sem var útvarpað um allan
heim eða fylgdust með þegar
krýningin var sýnd í beinni
útsendingu í sjónvarpi.
Milljónir gegnumblautra áhorfenda hylltu hina 27
ára drottningu og eiginmann hennar, hinn þrítuga
Filippus prins, þegar þau keyrðu um borgina eftir
athöfnina í gylltum hestvagni.
Elísabet fæddist árið 1926, dóttir Georgs prins sem
var annar sonur Georgs V konungs. Sá dó árið 1936
og tók elsti sonurinn Játvarður
III við konungstigninni. Hann
afsalaði sér þó titilinum til að
giftast Wallis Simpson sem var
bandarísk og fráskilin. Því varð
það svo að faðir Elísabetar varð
Georg VI Bretakonungur.
Elísabet var í Kenía þegar faðir
hennar dó í febrúar 1952. Hún
tók þá strax við þjóðhöfðingja-
tigninni en var ekki krýnd fyrr
en rúmlega ári síðar.
Vinsældir Elísabetar hafa varla dvínað á þeim fimm
áratugum sem hún hefur setið á valdastóli. Hún
hefur ferðast meira en nokkur annar þjóðhöfðingi
Breta og var sú fyrsta sem heimsótti Suður-Ameríku
og löndin við Persaflóa. Hún á fjögur börn, þau Karl,
Önnu, Andrés og Játvarð.
ÞETTA GERÐIST: 2. JÚNÍ 1953
Elísabet önnur krýnd drottning