Fréttablaðið - 02.06.2006, Síða 28
2. júní 2006 FÖSTUDAGUR28
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS* [Hlutabréf]
ICEX-15 5.737 +0,49% Fjöldi viðskipta: 114
Velta: 637 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 65,90 +0,00% ... Alfesca
3,97 +1,28%... Atorka 5,75 -0,86% ... Bakkavör 49,50 +0,20%
... Dagsbrún 6,13 +2,17% ... FL Group 19,40 -0,51% ... Flaga 4,18
+0,97% ... Glitnir 18,10 +0,56% ... KB banki 785,00 +0,90% ...
Landsbankinn 22,10 +0,91% ... Marel 69,90 +0,00% ... Mosaic
Fashions 16,50 +0,00% ... Straumur-Burðarás 17,20 +0,00% ...
Össur 110,00 +0,00%
MESTA HÆKKUN
Tryggingamiðst. +2,76%
Dagsbrún +2,17%
Alfesca +1,28%
MESTA LÆKKUN
Atorka -0,86%
Avion -0,55%
FL Group -0,51%
MARKAÐSPUNKTAR...
Heimsmarkaðsverð á olíu lækkaði
annan daginn í röð í gær í kjölfar þess
að Bandaríkjastjórn lýsti sig viljuga til
beinna samningaviðræðna við Írans-
stjórn vegna kjarnorkuáætlunar hennar.
Seðlabanki Noregs hækkaði stýrivexti
sína um 25 punkta á þriðjudag og
standa þeir nú í 2,75 prósentum. Grein-
ingardeild Glitnis segir hækkunina hafa
komið mörgum á óvart enda hafi flestir
búist við óbreyttum stýrivöxtum.
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins
spáir methagvexti innan sambandsins
á árinu. Hagvöxtur mældist 0,6 prósent
á fyrsta ársfjórðungi og er búist við að
hann verði 0,7 prósent út árið. Viðvar-
andi hagvöxtur hefur ekki verið jafn
mikill síðan í júní árið 2000.
Samskip veitti í gær
tveim nýjum kaupskipum
móttöku og lagði horn-
stein að nýjum höfuð-
stöðvum í Rotterdam.
Öll flutningastarfsemi Samskipa
verður sameinuð undir nafni
Samskipa í haust. Hingað til
hefur starfsemi flutningafyrir-
tækjanna Van Dieren Maritime,
Seawheel og Geest, sem öll eru í
eigu Samskipa, verið rekin undir
nafni Geest.
Þetta var tilkynnt í Rotter-
dam í gær en þar tóku Samskip
við tveimur nýjum kaupskipum
sem sérsmíðuð eru fyrir félagið
til gámaflutninga til Evrópu.
Skipin hlutu nöfnin Samskip
Pioneer og Samskip Courier.
Gámafloti Samskipa telur nú
um þrettán þúsund gáma og eru
tuttugu og sjö gámaskip í föstum
áætlanasiglingum á vegum
félagsins milli Íslands, Bret-
lands, Írlands, Spánar, Skandin-
avíu, Eystrasaltslandanna, Rúss-
lands og meginlands Evrópu.
Skrifstofur Samskipa eru nú
fimmtíu og níu talsins í tuttugu
og þremur löndum og starfs-
menn um fjórtán hundruð.
Rotterdam-höfn er þunga-
miðja starfsemi Samskipa og
lagði Michael F. Hassing for-
stjóri hornstein að nýjum höfuð-
stöðvum Samskipa á gamla hafn-
arsvæðinu í Rotterdam í gær.
- jsk
Starfsemi Samskipa undir
einu nafni með haustinu
KÁTIR SAMSKIPAMENN Samskip hleyptu af
stokkunum tveimur nýjum skipum.
Flaga Group hf. tapaði 877 þúsund
Bandaríkjadölum, jafnvirði 63
milljóna íslenskra króna, á fyrstu
þremur mánuðum ársins. Þetta er
228 þúsund dölum eða tæpum 16,4
milljónum krónum minna tap en á
sama tímabili fyrir ári. Þá nam tap
fyrirtækisins fyrir skatta rúmri
1,1 milljón dala, jafnvirði 79 millj-
óna króna, sem er 350 þúsund
dölum eða 25,1 milljón króna
minna tap en fyrir ári.
Tekjur Flögu Group námu 7,4
milljónum dala, tæpum 532 millj-
ónum íslenskra króna, sem er 10
prósenta samdráttur frá sama
tíma í fyrra. Rósa Steingrímsdótt-
ir, framkvæmdastjóri fjármála-
sviðs Flögu, segir afkomuna í takt
við væntingar. Samdráttinn megi
aðallega rekja til skipulagsbreyt-
inga hjá Medcare og SleepTech,
dótturfélögum fyrirtækisins, en
dreifing félaganna fluttist til
Bandaríkjanna. Höfuðstöðvar
fjármálasviðs og hluti tækniþjón-
ustu verða eftir sem áður á Íslandi.
Rósa segir breytingarnar hafa
gengið hratt fyrir sig en þær hóf-
ust seint á síðasta ári.
Áætlað er að viðsnúningur
náist á öðrum og þriðja ársfjórð-
ungi þegar kostnaðar vegna skipu-
lagsbreytinga gætir ekki lengur.
„Við erum mjög bjartsýn á fram-
tíðina því þetta er ört vaxandi
markaður,“ segir Rósa. - jab
FRÁ FLÖGU Búist er við að viðsnúningur
verði á afkomu Flögu á öðrum og þriðja
ársfjórðungi. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
Tap Flögu minnkar
Tap sama sem hagnaður
Tap þarf ekki alltaf að þýða tap. Eins furðulega og
þetta kann að hljóma þá varð það raunin þegar
uppgjör Hampiðjunnar var gert ljóst. Útgerðarfyr-
irtækið HB Grandi er skráð sem hlutdeildarfélag í
bókum Hampiðjunnar og þar sem Grandi tapaði
miklum fjármunum á fyrsta ársfjórðungi nam
tap Hampiðjunnar af þessum tíu
prósenta eignarhlut um 150
milljónum króna á sama tímabili.
Hins vegar hækkaði eignarhlut-
urinn um 120 milljónir króna að
markaðsvirði vegna hækkunar
á markaðsvirði HB Granda.
Hampiðjan bókfærir hlutinn á
930 milljónir króna en mark-
aðsvirði hlutarins stóð í tæpum
tveimur milljörðum króna við lok
fjórðungsins. Myndaðist því „dulinn“
hagnaður upp á 120 milljónir.
Að byrgja brunninn
Marc Faber er skarpskyggn svissneskur hagfræði-
prófessor sem talar enga tæpitungu. Hann hefur
viðurnefnið Doktor Dómsdagur, sem lýsir því
hversu bjartsýnn hann er. Hann hefur þó oft reynst
giska sannspár um það sem koma skal í hagkerfum
og á mörkuðum heimsins. Í nýjasta pistli sínum
segir hann að ef Seðlabankastjóri Bandaríkjanna
hefði verið í námi hjá sér hefði hann fellt hann
og losað heiminn við það að slíkur maður hefði
stýrt Seðlabanka Bandaríkjanna. „Ég hefði sagt
honum að prentiðn lægi betur fyrir honum en
hagfræði. Í prentsmiðju hefði hann getað prent-
að allt frá klámi til bóka um kristna bókstafstrú.“
Í stað þess segir Faber Bernanke taka við af
Greenspan í prentun peninga. Í ljósi þessara
ummæla er það kannski huggun harmi gegn
að það hefur ekki verið á færi hagfræðipróf-
essora að koma í veg fyrir hverjir yrðu höfuð
Seðlabanka Íslands.
Peningaskápurinn ...
Nú nærðu SKJÁEINUM í gegnum Digital Ísland
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
2
2
10
6
Á SKJÁEINUM í kvöld kl. 21.00
Bachelorette
* í gær klukkan 13.00