Fréttablaðið - 02.06.2006, Síða 39
[ ]
Á löngum laugardegi þessa
helgi verður hinn árlegi blóma-
dagur haldinn á Skólavörðustíg
ásamt öðrum uppákomum.
Hinn árlegi blómadagur Skóla-
vörðustígsins verður haldinn á
laugardaginn og er þetta í þriðja
sinn sem þessi dagur er haldinn.
Á blómadeginum er sumarið
boðið velkomið, verslanir setja
blómaskreytingar í glugga og íbúar
Skólavörðustígsins skreyta líka
á viðeigandi hátt. Gestir og gang-
andi fá skemmtilegar blómagjafir
og börnin fá ávexti og grænmeti
en öllu því er dreift til gesta úr sér-
stökum hjólbörum.
Þema dagsins í ár er náttúru-
legt umhverfi sem er vel við hæfi
enda er Yggdrasill að halda upp á
20 ára afmæli sitt og býður því til
veglegrar veislu.
Meðal þeirra sem leggja hönd
á plóginn með ýmiss konar uppá-
komum verða börn frá Waldorf-
skólanum með föndur og leiki,
gjörningur Hins hússins, Afró-
dans frá Kramhúsinu og ýmislegt
fleira skemmtilegt.
Verslunin KVK á Laugavegi
ætlar ekki að láta sitt eftir liggja
á löngum laugardegi og verður
með útsölumarkað í portinu hjá
sér en þangað ætla stelpurnar úr
Gyllta kettinum að mæta líka með
flíkur til sölu. Klukkan 15 verða
svo tónleikar með hljómsveitinni
Sometime og léttar veitingar verða
í boði. - jóa
Blómlegur laugardagur
Hinn árlegi blómadagur Skólavörðustígsins
er haldinn á morgun.
Verslunin Fatboy opnaði
nýlega á Laugaveginum en
verslunin selur nútíma útgáfu
af gömlu grjónapokunum.
Danfríður Árnadóttir, verslunar-
stjóri Fatboy, kann frekari skil á
Fatboy-stólunum. „Þetta er end-
anlega útgáfan af gömlu grjóna-
pokunum, einungis af stærri gerð.
Pokarnir eru gerðir úr mjög slit-
sterku, blettavörðu og vatnsheldu
nælonefni og síðan mótar maður
hann eftir vild.“ Aðalsmerki versl-
unarinnar er því þessir pokar en
þar eru einnig fáanlegir stólar og
minni eyjur.
Nýju stólarnir, eða grjóna-
pokarnir, eru mun þægilegri og
betri en fyrirmyndir sínar og
aðlagast betur líkama hvers og
eins. „Í pokanum er mikið loft og
pokinn aðlagast vel þínum stell-
ingum, til dæmis ef þú hallar þér
aftur þá færðu vissan stuðning.
Um leið og þú leggst í pokann þá
ferðu ekki neitt eða sígur eins og
þú gerðir í gamla grjónapokan-
um. Hann er einnig vel stöðugur
og þú þarft ekki að vera upp við
vegg eða annað slíkt,“ útskýrir
Danfríður.
Pokarnir sjálfir eru eins og
áður segir frá Fatboy en einnig er
hægt að fá poka með Marimekko
mynstri. Pokarnir voru hannaðir
af finnskum hönnuði en þeir eru
þó framleiddir í Hollandi. „Þeir
voru fyrst búnir til árið 2000.
Finnski hönnuðurinn segir að
hann hafi hannað þá inn í 21. öld-
inu og að þeir séu endanleg lausn
á grjónapokunum.“
Danfríður er ánægð með við-
brögðin það sem af er og segir
að það sé búið að vera brjálað
að gera. Hún gerir ráð fyrir að
eitthvað eigi eftir að bætast við
vöruúrvalið á næstunni og meðal
annars séu væntanleg hengirúm.
Í tilefni af löngum laugardegi
mun Fatboy síðan reyna að poppa
aðeins upp verslunina og mun
plötusnúður þeyta skífum yfir
daginn. Hægt er að nálgast frek-
ari upplýsingar um pokana, til
dæmis um gerð þeirra og annað, á
heimasíðunni www.fatboy.is
steinthor@frettabladid.is
Grjónapokar 21. aldar
Grjónapúði með Marimekkomynstri er feikivinsæll í Fatboy.
Danfríður Árnadóttir verslunarstjóri lætur sér líða vel í nýstárlegum grjónapúða.
FRÉTTABLAÐIÐ/JÓN HJÖRTUR
Litadýrðin ræður ríkjum í Fatboy.
Kolaportið er fínn endapunktur á
góðum göngutúr niður Laugaveginn.
Verið er að breyta húsinu og ekki er
víst hversu lengi gamli sjarminn helst.
Opið mán-fös frá 10-18 og lau. 10-16
Laugaveg 53 • S: 552 3737
Tilboð föstudag og laugardag
20% afsl. Af skóm og sumarjökkum
Diza Laugavegi 44
s: 561 4000
opið virka daga frá 10-18
laugardaga 10-16
sunnudaga 13-17
J Ú N Í T I L B O Ð
Diza
Bútasaumsbækur
valdir titlar á 990-1490 kr.
Mjúúúkar
bómullarnáttbuxur 1990 kr.
Peysur, 3 gerðir á 3.900 kr
Viðskiptavinir athugið!
Full búð af nýjum vörum
og opið um helgar í sumar.
brúðkaup