Fréttablaðið - 02.06.2006, Qupperneq 66
2. júní 2006 FÖSTUDAGUR
Í Fréttablaðinu 10. maí sl. birtist
grein undir fyrirsögninni Mennt-
un sjúkraliða stórlega vanmetin,
þar sem formaður Sjúkraliðafé-
lagsins fjallar m.a. um sjúkraliða-
menntun á Íslandi og í Danmörku.
Formaðurinn telur menntun
sjúkraliða á Íslandi ívið meiri en
Dananna. Hér tel ég ranglega
vegið að danskri sjúkraliða-
menntun.
Danir telja nám í vikum, anna-
skipti er ekki að finna í danska
náminu. Ég breyti önnum í íslensk-
um skóla yfir í vikur til að fá sam-
bærilegan samanburð.
Danska sjúkraliðamenntunin
Í Danmörku fer nemandi í 20
vikna nám sem undirbúning að
félagsliða-, sjúkraliða- eða
almennu námi. Þetta er grunnnám
sem Danir kalla Grundforløb og
fögin sem kennd eru, eru m.a.
danska, enska, efnafræði, náttúru-
fræði og sálfræði. Starfskynning-
ar innan félags- og heilbrigðis-
geirans eru í náminu en störf og
starfssvið stéttanna eru kynnt.
Hafi nemandi undanfarann slepp-
ir hann grundforløbs-náminu.
Social- og sundhedshjælperudd
annelsen, eða SSH-námið, tekur
við af grunnmenntuninni og er 54
vikur, 24 vikur á skólabekk, 30
kennslustundir á viku og 30 vikna
verknám, 37 vinnustundir. Náms-
greinarnar eru almennt nám, sér-
greinafög, auk valfaga. Valfögin
endurspegla það sem nemandi
hyggst starfa við. Hér getur nem-
andi valið að hætta, þá sem Social-
og sundhedshjælper (SSH), sem
er félagsliði, eða haldið áfram í
sjúkraliðanám.
Nemandi hefur nám með SSH-
menntunina eða sambærilega
menntun úr öðrum skóla. SOSU-
námið tekur 78 vikur, bóklegt og
verklegt nám. Bóknámið tekur 32
vikur, 30 kennslustundir á viku, og
verknámið er 46 vikur, 37 vinnu-
stundir. Námgreinarnar eru
almennar greinar, valgreinar og
faggreinar sem skipa stærri sess í
náminu. Þegar nemandi hefur
lokið menntuninni er hann Social-
og sundhedsassisent (SOSU) og
jafngildir menntunin sjúkraliða
með sérmenntun, þó talað sé um
sjúkraliða hér á landi.
Skólarnir í Danmörku útvega
verknámspláss en hér á landi
þurfa nemarnir að útvega sér
starfsþjálfunarpláss. Hér getur
nemandi valið að hætta, þá sem
Social- og sundhedsassistent
(SOSU), eða haldið áfram námi og
farið t.d. í hjúkrunarfræði.
Það eru fimmtán ár síðan Danir
breyttu námsskrá sjúkraliða-
menntunarinnar og hefur eldri
sjúkraliðum verið gefinn kostur á
að bæta við sig námi til að mæta
þeim menntunarkröfum sem gerð-
ar eru til SOSU, en það tekur eitt
ár. Inngangskröfurnar eru að
sjúkraliðinn hafi sygehjælper-
námið, hafi starfað sem sjúkraliði
í 3 ár á undanförnum fimm árum.
Íslenska sjúkraliðamenntunin
Einstaklingur getur hafið nám
strax eftir grunnskólann. Námið
spannar þrjú ár og er 86 kennslu-
vikur, 32 kennslustundir. Náms-
greinarnar eru almennt bóknám,
sérnám í heilbrigðisgeiranum og
sérgreinar sjúkraliðabrautar auk
valgreina og verklegrar þjálfunar.
Starfsþjálfun tekur við í 16 vikur
sem nemandi þarf sjálfur að
útvega þegar hann hefur lokið
bóklegu námi.
Sjúkraliði sem hefur starfað í
fjögur ár og hefur undanfara í lyf-
hrifafræði kemst í þetta nám sem
tekur 10 mánuði. Í sérnáminu eru
28 kennsluvikur og eru einingarn-
ar 27. Verknám fer fram í maí og
júní, alls 8 vikur og vegur 16 ein-
ingar í náminu, námið í heild er 43
einingar.
Menntun danskra sjúkraliða er
í engu minni en þeirra íslensku en
nám þeirra dönsku svarar til náms
sjúkraliða hér á landi með sér-
menntun í öldrun.
Sjúkraliðanám eftir grunnskóla
í Danmörku er 152 vikur og þá
hefur viðkomandi SOSU-mennt-
unina. Á Íslandi er sjúkraliða-
menntunin 101 vika. Íslenski
sjúkraliðinn hefur möguleika eftir
fjögur ár í starfi að ná sér í viðbót-
armenntun sem tekur 40 vikur.
Af þessu má sjá að Danir standi
okkur Íslendingum framar þegar
kemur að menntun sjúkraliða og
meiri samfellu er að finna í námi
sjúkraliðanna, þar sem sérnámið í
öldrun fellur inn í hið almenna
sjúkraliðanám í Danmörku.
Sjúkraliði með sérnám á Íslandi er
sambærilegur við SOSU-mennt-
unina í Danmörku.
Starfssvið
Formaður Sjúkraliðafélagsins
kom inn á starfssvið sjúkraliða
hér á landi og get ég tekið undir
orð hans, hæfni þeirra er vannýtt
inni á mörgum stofnunum. Starfs-
svið danskra sjúkraliða er ívið
meira en sjúkraliða á Íslandi.
Danir voru forsjálir fyrir
fimmtán árum. Skortur á hjúkrun-
arfræðingum gerði vart við sig og
grípa þurfti inn í áður en ófremd-
arástand skapaðist. SOSU-mennt-
unin var svar við þeirri vöntun og
sjúkraliðar gátu tekið við hluta af
þeim störfum sem áður heyrðu
undir hjúkrunarfræðinga. Því
miður eigum við Íslendingar ekki
því láni að fagna að hafa lausn í
sjónmáli og virðist allt stefna i
óefni þegar litið er til heilbrigðis-
stétta sem sinna hjúkrun og
umönnun, allt of seint er gripið í
taumana.
Vanmetin sjúkraliðamenntun
UMRÆÐAN
SJÚKRALIÐA-
MENNTUN
HELGA DÖGG SVERRISDÓTTIR
KENNARI OG SJÚKRALIÐI
Danir voru forsjálir fyrir
fimmtán árum. Skortur á
hjúkrunarfræðingum gerði
vart við sig og grípa þurfti
inní áður en ófremdarástand
skapaðist. SOSU menntunin
var svar við þeirri vöntun
og sjúkraliðar gátu tekið
við hluta af þeim störfum
sem áður heyrði undir
hjúkrunarfræðing.
Ég hef boðskap til þín sem ert and-
lega leitandi, og þekkir ekki Jesúm
Krist, nema af afspurn. Boðskap
sem varðar sáluhjálp þína og
mína, en mætir stöðugum og mikl-
um fordómum og neikvæðni á
Íslandi og víða um heim.
Hefur þú einhverntímann af
fullri alvöru og einlægni gefið þér
tíma til að biðja Guð að tala til þín
og upplýsa þig um hinn eiginlega
boðskap kristinnar trúar og leitað
svara við spurningum eins og:
Hvers vegna kom Jesús Kristur?
Afhverju þurfti Guð að senda
okkur son sinn, Jesúm Krist?
Hver var kjarninn í boðskap Jesú
Krists, sem var svo mikilvægur
að Hann gaf líf sitt fyrir hann? Og
af hverju þurfti Jesús að líða
óheyrilegar þjáningar og deyja á
krossi á Golgatahæð? Er Biblían
Guðs orð til mannanna og Hans
verk eða er hún hugsmíð manna?
Hafa svörin við þessum spurning-
um einhverja þýðingu fyrir mig
og þig í dag?
Biblían segir okkur á skýran
hátt að maðurinn þarf að frelsast
til að eignast eilíft líf. Það er mik-
ilvægast í lífinu öllu að skilja
þetta. Þetta er kjarninn í boðskap
Biblíunnar, í því sem að okkur
snýr í dag og kallar á viðbrögð
okkar sem viljum meðtaka þennan
boðskap. Þú og ég eigum val. Við
þurfum að gera það sem Biblían
býður okkur að gera og fresta því
ekki. Þú veist ekki hvort þú hafir
tækifæri til þess á morgun. Þó að
við skildum aðeins þetta af öllu
því sem skrifað er í Biblíunni, þá
höfum við skilið það sem er mikil-
vægast fyrir okkur sem einstakl-
ingar.
Í Rómverjabréfinu 10:8-10 og
Jóhannesarguðspjalli 1:9-12 er
sagt frá því hvernig við getum
frelsast, eins í 1. Korintubréfi
15:1-7 og víðar í Biblíunni. Guðs
orð segir m.a. í Jesaja 59: 1-2: „Sjá
hönd Drottins er eigi svo stutt að
Hann geti ekki hjálpað, og eyra
Hans er ekki svo þykkt að Hann
heyri ekki. Það eru misgjörðir
yðar sem skilnað hafa gjört milli
yðar og Guðs yðar, og syndir yðar
sem byrgt hafa auglit Hans fyrir
yður svo að Hann heyrir ekki.“ En
orð Guðs segir okkur líka, hver
lausn Guðs var á þessu: „Því að
svo elskaði Guð heiminn/okkur, að
Hann gaf son sinn eingetinn til að
hver sem á Hann trúir, glatist ekki
heldur hafi eilíft líf,“ Jóhannesar-
guðspjall 3:16.
Fagnaðarerindið er að Jesús
Kristur kom í heiminn til að frelsa
synduga menn. Biblían segir
okkur að „syndin er að þið trúðuð
ekki á mig/Jesús“ og boðskap
hans. Jesús segir við þig í dag:
Gjör iðrun og trúðu fagnaðar-
erindinu. Það er gæska Guðs sem
vill leiða mennina til iðrunar, og
vilji Hans að allir verði hólpnir.
Vilt þú þiggja stærstu og mestu
kærleiksgjöf sögunnar, hjálpræð-
ið í Jesú Kristi, og eignast um leið,
þá fullvissu að vera hólpinn? Millj-
ónir manna, kvenna og barna um
heim allan, sem fylgja Jesú heils-
hugar, geta vitnað um þá gleði og
lífsfyllingu, lækningu og lausn
sem þau hafa upplifað gegnum trú
sína á Jesúm Krist.
Biblían segir okkur í Postula-
sögunni 4:12 Ekki er hjálpræðið í
neinum öðrum. Og ekkert annað
nafn er mönnum gefið um víða
veröld sem getur frelsað oss.
Jesús sagði: Hvern þann sem
kemur til mín mun ég alls eigi
burtu reka. Leitaðu til Hans í
dag.
Hvers vegna kom Jesús Kristur?
ÖRN LEÓ GUÐMUNDSSON
MARKAÐSMAÐUR SKRIFAR UM BIBLÍUNA
Þetta er kjarninn í boðskap
Biblíunnar, í því sem að okkur
snýr í dag og kallar á viðbrögð
okkar sem viljum meðtaka
þennan boðskap. Þú og ég
eigum val. Við þurfum að gera
það sem Biblían býður okkur
að gera og fresta því ekki.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
um helgina
��������
����� �����
��
�����
�
����������
���� ���� ��
����
��
���
��
�
� ����������
������������
������� ���
������������
�����������
�������������
�����
�����������
������������
�����������
������������
������������
�������� ��
������������
������������
�������������
�����������
�����
������������
�����������
������������
��������� ���
������������
������������
�����������
�����������
����������
�
���� �����
����
�� ������
������
��������
���������
������������
����
������������
�����
�� ������
��������
������
����
�����������
������� ���
�
����������
����������
�
�
�������
�������
�������
�������
�������
� �����
�������������������������� ������������� ������������������������
������������� ������ �������� �� ������
������
���� �����
��������������
������� �� �� ����� ���������
��� ���
����������������
����������������