Fréttablaðið - 02.06.2006, Page 76
2. júní 2006 FÖSTUDAGUR44
NÝR
TVÖFALDUR G
EISLADISKUR
KR. 1.999,
-
Dans á Rósum
frá Vestmannaeyjum
í kvöld
Alveg brilljant
skilnaður
Einleikur
Eddu Björgvinsdóttur
um allt land.
Kirkjubæjarklaustur
3. júní.
Miðasala í síma 487-4840 til
kl. 13:00 síðan í 897-1987
Viðskiptavinir
Landsbankans fá
500 króna afslátt
af miðaverði
NEMENDUR ÚR LISTAHÁSKÓLA ÍSLANDS SÝNA ÚTILISTAVERK Á BJÖRTUM DÖGUM Í HAFN-
ARFIRÐI. Eva Ísleifsdóttir, Katrín Inga, Logi Bjarnason, Svala Ragnarsdóttir og Una Björk
Sigurðardóttir sýna vita við strandstíginn.
Hafnfirðingar og nágrannar gera
sér glaðan dag um þessar mundir
en í gær hófst hafnfirska menn-
ingarhátíðin Bjartir dagar. Að
vanda verður boðið upp á fjöl-
breytta dagskrá fyrir alla aldurs-
hópa.
Meðal dagskrárliða á Björtum
dögum að þessu sinni eru fjölmarg-
ir tónlistarviðburðir, í dag verður
til dæmis barnaóperan Bastien og
Bastienne eftir Mozart flutt í
Hafnarfjarðarleikhúsinu. Um
helgina verður líka söngvakeppn-
in Cantare haldin í samvinnu við
Alþjóðahúsið en í þeirri keppni má
hvorki syngja á eigin móðurmáli
né á ensku og mikið er lagt upp úr
skemmtilegri sviðsframkomu.
Á sunnudagskvöldið verður
boðið upp á óvenjulega tónleika í
Hafnarborg þar sem vínaróperan
Nótt í Feneyjum eftir Jóhann
Strauss verður flutt af sex söng-
vurum úr Óperustúdíói Íslensku
óperunnar en skipuleggjandi tón-
leikanna er Antonía Hevesi. „Þessi
ópera var flutt í Íslensku óperunni
í vor og þá var ég æfingastjóri.
Svo kom upp þessi hugmynd að
flytja óperuna einu sinni enn svo
við ákváðum að gera það núna, en
með aðeins öðru sniði. Það verður
ekki kór né hljómsveit heldur mun
ég leika undir og kynna atriði.
Söngvararnir verða í búningum og
munu leika eins og kostur er. Við
hlökkum öll til, ég held að allir ætli
að sleppa sér dálítið.“ Óperan er að
sögn Antóníu mjög létt og aðgengi-
leg. „Þetta er svona tónlist sem
maður fær alveg á heilann en
sagan er líka skemmtileg – ást og
svik og brúðkaup og allt þar á
milli.“
Tónleikarnir eru samvinnu-
verkefni Íslensku óperunnar,
Hafnarborgar og Hafnarfjarðar-
bæjar og fara fram í Hafnarborg á
sunnudagskvöldið og hefjast tón-
leikarnri kl. 20, boðið verður upp á
kaffi og konfekt í hléinu.
Frekari upplýsingar um dag-
skrá Bjartra daga má nálgast á
heimasíðu Hafnarfjarðarbæjar,
hafnarfjordur.is. -khh
Sífellt bjartari dagar
��������������������������������� �����������������������������������������������������
�� ����������������������������������������� ���������� ������������������������������
������������ �������������� �� �����������
�������������� �������� ��������
����������������������������������
������������������
������ �������������
����������������������������������� ��������
��������������� �������� ������������������
������������� �������� ���������
������������� �������� ���������
������������������������ ���������
�������������� �������� ���������
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
JÚNÍ
30 31 1 2 3 4 5
Föstudagur
■ ■ TÓNLEIKAR
00.00 Jagúar spilar á Nasa.
Hljómsveitin Nortón vermir skarann.
22.00 Hljómsveitin Quiritatio frá
Noregi leikur á Dillon. Húsið opnar
kl. 22 en hljómsveitin mætir klukku-
tíma síðar. 20 ára aldurstakmark.
Hljómsveitin Sólstafir loka kvöldinu.
■ ■ LEIKLIST
20.00 Þuríður og Kambsránið,
athyglisverðasta áhugaleiksýning
leikársins 2005-2006 verður sýnd í
Kassanum í Þjóðleikhúsinu. Leikstjóri
Jón St. Kristjánsson.
21.00 Sokkabandið sýnir verkið
Ritskoðarinn eftir Anthony Neilson í
sal Sjóminjasafnins við Grandagarð
8. Leikstjóri er Jón Páll Eyjólfsson.
■ ■ OPNANIR
17.00 Erla Þórarinsdóttir opnar
myndlistarsýningu í Galleríi Animu í
Ingólfsstræti 8.
Bergljót Svanhildur Sveinsdóttir
sýnir vatnslitamyndir í Byggðasafni
Garðskaga. Safnið er opið frá kl.
13.00 alla daga, sýningin stendur til
14. júní.
■ ■ FYRIRLESTRAR
12.10 Peter Hennessy flytur fyrir-
lestur á vegum Sagnfræðingafélags
Íslands á Þjóðminjasafni Íslands.
Fyrirlesturinn ber heitið Frá leyniríki
kalda stríðsins til nýs varnarríkis.
■ ■ SÍÐUSTU FORVÖÐ
Tékkneski listamaðurinn Zdenek
Patak opnar sýningu í Galleríi
Gyllinhæð að Laugavegi 23. Sýningin
stendur í sólarhring.
■ ■ LISTAHÁTÍÐ
09.00 Skyn(sam)leg rými - rými,
list og umhverfi. Ráðstefna í Öskju,
Náttúrufræðahúsi HÍ um hugmyndir
um rými og hvernig það er skynjað og
upplifað bæði í borg og byggð sem og
í náttúru.
17.00 Listamaðurinn Paul Hurley
flytur gjörninginn Becoming Snail í
Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi.
Sýningin er liður í alþjóðalistverkefninu
Site Ations - Sense in Place.
20.00 Óperan Galdraskyttan
eftir Weber í Þjóðleikhúsinu.
Frumflutningur með efnilegustu
söngvurum yngri kynslóðarinnar.
21.00 Tríó Anders Widmark leik-
ur Carmen eftir Bizet í óvenjulegri
útsetningu. Tónleikarnir fara fram á
Nasa við Austurvöll.
■ ■ BJARTIR DAGAR
10.00 Börn úr 4. bekk grunnskól-
anna í Hafnarfirði ganga fylgtu liði
niður á Thorsplan og syngja nokkur
lög.
12.00 Bastien og Bastienne í
Hafnarfjarðarleikhúsinu. Í sam-
vinnu við barnaóperuna Piccolino
frá Vínarborg munu þrír hafnfirskir
söngvarar, Þóra Björnsdóttir, Örvar
Már Kristinsson og Ívar Helgason,
sýna barnaóperu eftir W.A. Mozart.
Sýningar Kl. 12.00 og 13.30 Aðgangur
ókeypis.
17.00 Brynja Árnadóttir skólaliði
opnar sýningu á verkum sínum og list-
fenginna barna í gamla Lækjaskóla.
19.00 Hljómsveitakeppni í Gamla
bókasafninu og hljómsveitin
Mogadon leikur á A. Hansen.
20.00 Agnes High Quality leiksýn-
ing í Jaðarleikhúsinu Miðvangi 41.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu. SÖNGNEMENDUR Í ÓPERUSTÚDÍÓI ÍSLENSKU ÓPERUNNAR FLYTJA NÓTT Í FENEYJUM
Halda tónleika á Björtum dögum í Hafnarfirði á sunnudagskvöld.
Listamaðurinn Guðmundur Ein-
arsson frá Miðdal er þjóðkunnur
fyrir framlag sitt til íslenskrar
myndlistar og þá einkum leir-
munagerðar en hann vann jöfn-
um höndum sem listmálari og
myndhöggvari. Nú er komið út
yfirlitsrit yfir rúmlega 170 stytt-
ur, líkneski, listgripi og nytja-
hluti úr hans fórum ásamt sam-
antekt um sögu leirmunagerðar
hans í Listvinahúsi frá 1930 til
1956.
Höfundar texta eru Eiríkur
Þorláksson listfræðingur og Ari
Trausti Guðmundsson rithöfund-
ur og jarðeðlisfræðingur sem rit-
stýrði einnig verkinu. Myndgerð
annaðist Ragnar Th. Sigurðsson.
Upplag bókarinnar er aðeins 800
eintök.
Margir leirmunanna eru nú til
sýnis á yfirlitssýningu á verkum
Guðmundar í Listasafni Kópa-
vogs, Gerðarsafni, og í Náttúru-
stofu Kópavogs, sem opin er til 2.
júlí. -khh
Úr Listvinahúsi
GUÐMUNDUR FRÁ MIÐDAL.