Fréttablaðið - 02.06.2006, Síða 91
FÖSTUDAGUR 2. júní 2006
FÓTBOLTI Andriy Shevchenko er
formlega orðinn leikmaður enska
úrvalsdeildarliðsins Chelsea en
hann skrifaði undir fjögurra ára
samning við félagið á miðviku-
dagskvöld. „Ég lít á þetta sem
mikla áskorun og hlakka til að
reyna að sanna mig í þessari
deild,“ sagði Shevchenko sem er
dýrasti leikmaður í sögu Chelsea,
keyptur á um 30 milljónir punda
frá ítalska liðinu AC Milan. Hann
er einnig sá dýrasti í sögu ensku
úrvalsdeildarinnar.
„Ég fer frá einu stórliði til ann-
ars og er kominn í hóp með meist-
urum. Ég held að ég sé kominn
hingað á réttum tíma. Það er raun-
hæft markmið að sigra í meistara-
deildinni á næsta tímabili en það
er margt annað sem skiptir máli.
Félagið stefnir á að vinna enska
meistaratitilinn þriðja árið í röð
og mér líkar vel við það að í
Chelsea er stefnt á sigur í öllum
leikjum,“ sagði Shevchenko sem
er 29 ára.
Shevchenko er frá Úkraínu og
hefur sannað sig sem einn allra
fremsti markaskorari samtímans.
Hann hlaut gullknött Evrópu 2004
fyrir að vera valinn besti knatt-
spyrnumaður Evrópu. Hann er
markahæsti leikmaður meistara-
deildarinnar frá upphafi og er svo
sannarlega martröð varnarmanns-
ins, er alltaf í toppformi og margir
vilja meina að hann sé hættuleg-
astur á lokamínútunum.
„Ef ég hefði hugsað um pening-
ana þá hefði ég ekki komið hingað
heldur verið áfram hjá Milan. Það
er mér mikið gleðiefni að mál mín
eru frágengin fyrir heimsmeist-
aramótið, nú get ég farið til Þýska-
lands sem stoltur leikmaður
Chelsea,“ sagði Shevchenko sem
hóf feril sinn hjá Dynamo í Kænu-
garði. Hann er þriðji leikmaður-
inn sem Chelsea hefur keypt síðan
tímabilinu lauk, fylgir Michael
Ballack og Salomon Kalou. Þá
ætlar Jose Mourinho að krækja í
brasilíska bakvörðinn Roberto
Carlos frá Real Madrid og
portúgalska markvörðinn Hilario.
- egm
Úkraínski sóknarmaðurinn Andriy Shevchenko er genginn í raðir Chelsea:
Dýrastur í sögu enska boltans
TIL CHELSEA Shevchenko er hér í leik með AC Milan gegn Chelsea árið 1999 en hann er
nú kominn í búning Chelsea. NORDICPHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Miklar líkur eru taldar á
því að Fabio Capello snúi baki við
vandræðum Juventus og taki við
Real Madrid. Capello fór á fund
með forráðamönnum Juventus í
gær, en ekkert hefur verið gefið
upp hvað gerðist þar.
Capello sást á fundi með Ramon
Calderon í vikunni en hann er í
framboði til forseta Madrídarliðs-
ins. Sá síðarnefndi hefur lofað því
að ef hann verði kjörinn, muni
hann ráða Capello til sín. Þjálfar-
inn viðurkenndi að hafa setið fund-
inn, en neitaði að greina nánar frá
málum.
Real Madrid hefur enn ekki
ráðið nýjan knattspyrnustjóra en
eftir yfirvofandi forsetakosningar
hjá klúbbnum, ætti málið að skýr-
ast á næstu vikum.
- hþh
Fabio Capello:
Á leiðinni til
Real Madrid?
CAPELLO Hefði án efa áhuga á því að fara
til Spánar ef hann færi frá Juventus.
NORDICPHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Suður-Afríski landsliðs-
maðurinn Quinton Fortune á í við-
ræðum við skosku meistarana í
Glasgow Celtic. Þessi 29 ára leik-
maður var látinn á frjálsa sölu hjá
Manchester United en honum
tókst ekki að vinna sér inn fast
sæti hjá liðinu vegna meiðsla í
hné.
Fortune getur spilað á miðjunni
eða sem vinstri bakvörður en Bolt-
on Wanderers og Manchester City
hafa einnig áhuga á að fá hann.
„Ég vil fara að spila reglulega á ný
og er nokkuð spenntur fyrir Celt-
ic. Roy Keane hefur lagt inn gott
orð en ég mun líka skoða aðra
möguleika,“ sagði Fortune.
- egm
Fortune á leið frá United:
Fortune ræðir
við Celtic