Fréttablaðið - 10.06.2006, Page 6
6 10. júní 2006 LAUGARDAGUR
Kl. 11:00 „Það kringlótta á hornóttu – að skora mörk, rífa niður
veggi og hindranir.” Maraþon kvikmyndahátíð í tilefni af HM
í Gamla bókasafninu.
Kl. 12:00 Hansamót í knattspyrnu á Ásvöllum hjá 5.flokki karla og
kvenna. Þýskubíllinn verður á svæðinu.
Kl. 12:00 „Uppáhaldslagið hans langafa, Stefáns Íslandi“
Hádegistónleikar í Hafnarborg. Stefán Helgi Stefánsson tenór
flytur aríur og ljóð við undirleik Antoníu Hevesi píanóleikara.
Kl. 12:30 Dagur lúðrasveitanna
Lúðrasveitir leika á ýmsum stöðum í bænum og hefst skrúðganga
þeirra frá Gamla Lækjarskóla kl. 14.00*
Kl. 15:00 Stuðtónleikar á Thorsplani. Lúðrasveitir, Lada sport,
Morðingjarnir, Jakobínarína og Sign. Kynnir Úlfar Linnet.*
Kl. 20:00 FRUMSÝNING Panic production á NO, HE WAS WHITE
og Rauðar liljur í Hafnarfjarðarleikhúsinu.
������������� ������������������������
� �������������������������������
*Ath. breyttur tími frá áður auglýstri dagskrá í dagskrárriti.
Allar nánari upplýsingar í Þjónustuveri Hafnarfjarðar, Strandgötu 6
Sími 585 5500 - www.hafnarfjordur.is
���������������� - Rativ - Tungur í leikhúsi - Míkróveröld og morgunstemningar
Ljóð í lauginni - Leikskólalist - Sumarlestur - Brynja og börnin
Aðgangur ókeypis á viðburði nema annað sé tekið fram
��
��
��
��
�
��
��
��
�
���
����� 1.-10. júní 200610. júní
Lista- og menningarhátíð Hafnarfjarðar
� � �
Hansahátíð, HM
lúðrasveitir og skrúðganga
KJÖRKASSINN
Þjáist þú af frjóofnæmi?
Já 28%
Nei 72%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Á ASÍ að segja upp kjarasamn-
ingum næsta haust?
Segðu skoðun þína á visir.is
SJÓRÆNINGJAVEIÐAR Eftirlitsflug-
vél Landhelgisgæslunnar, Syn,
gómaði flutningaskipið Polestar
um 190 sjómílur utan við íslenska
lögsögu, þar sem það veitti sjó-
ræningjaskipinu Carmen þjón-
ustu. Polestar er skráð í Panama
sem frystiskip.
Landhelgisgæslan sendir
skýrslu um málið til sjávar-
útvegsráðuneytisins, sem tilkynn-
ir skipið til Norðuratlantshafs-
bandalagsins. Það gengur úr
skugga um hvort flutningaskipið
hafi brotið af sér. Reynist svo
vera lendir skipið á svörtum lista
og fær ekki afgreiðslu um
nokkurn hlut í löndum bandalags-
ins, en auk Íslands eiga lönd Evr-
ópusambandsins, Eistland og
Rússland aðild að því.
Dagmar Sigurðsson, upplýs-
ingafulltrúi Landhelgisgæslunn-
ar, segir að áhöfnin á Fokker-vél
gæslunnar hafi talað við skip-
stjórann á flutningaskipinu. Hann
hafi sagt að aðeins væri verið að
afhenda skipinu umbúðir. Eftir-
litsmennirnir telji hins vegar að
skipverjar hafi verið að lesta úr
skipinu.
Landhelgisgæslan stendur að
eftirlitinu vegna skyldu sinnar
sem aðildarríki að Norðuratlants-
hafsbandalaginu. Alls eru sextán
skip á bannlistanum. - gag
Flutningaskipið Polestar sást taka við afla úr togara á ólöglegum veiðum á Reykjaneshrygg í gær:
Líklega sett á lista sjóræningjaskipa
Á ÓLÖGLEGUM ÚTHAFSVEIÐUM Sjóræningjaskipið Carmen fékk þjónustu frá flutningaskip-
inu Polestar í gær. Það getur þýtt að flutningaskipið lendi á bannlista Atlantshafsbanda-
lagsins. MYND/HAFSTEINN HEIÐARSSON
FRAKKLAND, AP Á sama tíma og
Jacques Chirac Frakklandsforseti
segir ómögulegt að alþjóða-
samfélagið samþykki kjarnorku-
áætlun Írans bindast Bretar og
Frakkar samningum um að rann-
saka möguleikana á nánari sam-
vinnu á sviði kjarnorumála.
Chirac og Tony Blair, forsætis-
ráðherra Breta, lýstu því yfir eftir
fund sinn í París í gær að þeir
hefðu ákveðið að setja á stofn við-
ræðuhóp sem kanna myndi mögu-
leika á að samnýta þekkingu,
kunnáttu og rannsóknir landanna
tveggja, að sögn Chiracs.
Leiðtogafundurinn snerist aðal-
lega um orkumál, en Chirac og
Blair ræddu jafnframt loftlags-
breytingar, varnarmál og ástandið
í Mið-Austurlöndum.
Nýverið tóku Bretar uppá-
stungu Blairs um að byggja nýja
kynslóð kjarnorkuvera með mikl-
um fyrirvara, enda hafa Bretar
ekki útkljáð hvað gera skuli við
kjarnorkuúrgang þann sem fyrir
er í landinu. Frönsk yfirvöld styðja
áætlun Blairs. Frakkar eru sú þjóð
heims sem mest reiðir sig á kjarn-
orku, og þar í landi framleiða 59
kjarnakljúfar áttatíu prósent alls
rafmagns sem notað er í landinu.
Á blaðamannfundi eftir fund
þeirra Blairs sagði Chirac að
alþjóðasamfélagið „gæti ekki sam-
þykkt“ kjarnorkuáætlun Írana,
því hún gæti leitt til framleiðslu á
kjarnorkuvopnum.
Chirac sagðist hafa áhyggjur af
því að eitthvert eitt ríki gæti hafið
framleiðslu kjarnorkuvopna og
bætti við að „nú þegar er nóg
framleiðsla“. Þó sagði hann að
enginn drægi í efa rétt Írans til að
nýta kjarnorkuna í friðsamlegum
tilgangi, eins og Íranar halda stað-
fastlega fram að þeir ætli sér.
Blair tók undir orð Chiracs og
bætti við að hann vonaðist enn til
að hægt væri að komast að frið-
samlegri niðurstöðu um kjarn-
orkuáætlun Írana, sem fullnægja
myndi kröfum alþjóðasamfélags-
ins og jafnframt virða rétt Írana.
Á þriðjudag afhenti Javier Sol-
ana, utanríkismálastjóri Evrópu-
sambandsins, Írönum tilboð sex
stórvelda heims um margvíslegan
efnahagslegan ávinning fyrir
Írana gegn því að þeir hætti auðg-
un úrans. Chirac hitti Solana á
fimmtudag.
Frakkland og Bretland eru
meðal fimm þjóða í heiminum sem
viðurkenna opinberlega að eiga
kjarnorkuvopn, en hinar eru
Bandaríkin, Rússland og Kína.
Einnig þykir ljóst að Pakistan og
Indland eigi kjarnorkuvopn, og
grunur leikur á að Ísrael og
Norður-Kórea geri það einnig.
smk@frettabladid.is
Bretar og Frakkar í
kjarnorkusamvinnu
Bretar og Frakkar ætla að kanna samvinnu um kjarnorkuframleiðslu, kom
fram á fundi Jacques Chirac og Tony Blair í gær. Jafnframt sagði Frakklandsfor-
seti að alþjóðasamfélagið myndi ekki samþykkja kjarnorkuáætlun Írana.
LEIÐTOGAFUNDUR Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, t.v., hlustar á Jacques Chirac
Frakklandsforseta á blaðamannafundi í París í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LANDHELGISGÆSLAN Tvær leigu-
þyrlur koma til landsins í sept-
ember næstkomandi og eru þær
sömu tegundar og þyrlurnar sem
fyrir eru í þjónustu Landhelgis-
gæslunnar. Samningur um leigu
Super Puma-þyrlu, sem er sömu
tegundar og TF-LÍF, við fyrirtæk-
ið Air Lift var undirritaður í gær
og samningur um leigu Dauphin-
þyrlu, sömu tegundar og TF-SIF,
verður gerður seinna í þessum
mánuði. Þyrlurnar koma báðar til
landsins í september.
Björn Bjarnason, dóms- og
kirkjumálaráðherra, sagði við
undirritun samningsins í gær að
um ársleigu væri að ræða. „Á þeim
tíma sem leigusamningurinn er í
gildi munum við vinna að síðari
áfanganum, sem er að kaupa tvær
Super Puma-þyrlur til viðbótar við
þann þyrlukost sem Landhelgis-
gæslan á í dag.“ Í ræðu sinni tók
Björn það fram að í lok júní yrði
boðin út ný flugvél sem ætti að
leysa TF-SÝN af hólmi og minnti á
að nýtt varðskip væri á útboðs-
stigi.
Björn sagði í viðtali við Frétta-
blaðið að kostnaðurinn við leigu
stærri þyrlunnar með áhöfn, tveim-
ur flugmönnum og flugvirkja
væri um 210 milljónir króna á ári.
Benóný Ásgrímsson, yfirflug-
stjóri hjá Landhelgisgæslunni,
metur samninginn sem stærsta við-
burð í sögu þyrlusveitarinnar frá
upphafi. „Þetta er fyrsta skrefið til
að tvöfalda getu sveitarinnar og
framtíðin er björt og spennandi.“
Minni þyrlunni verður flogið af
íslenskri áhöfn og þegar hafa
verið ráðnir fjórir flugmenn á
nýju þyrlurnar. Eins gengur vel
með ráðningu annarra starfs-
manna, að sögn Benónýs. - shá
Dómsmálaráðherra undirritaði samning við fyrirtækið Air Lift um leigu á þyrlu:
Leiguþyrlurnar koma í haust
FRÁ UNDIRRITUN Frá vinstri: Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, Björn Bjarna-
son, dóms- og kirkjumálaráðherra, og Bjarne Slapgard, framkvæmdastjóri Air Lift.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SJÓNVARP Áskrifendum Sýnar
hefur fjölgað gríðarlega síðustu
daga vegna beinna útsendinga
frá Heimsmeistaramótinu í
knattspyrnu. Mótið hófst í Þýska-
landi í gær og lögðu heimamenn
Kosta Ríka að velli í upphafsleik
með fjórum mörkum gegn tveim-
ur.
„Símalínurnar hafa verið
rauðglóandi síðustu daga,“ segir
Hermann Hermannsson, aðstoð-
arframkvæmdastjóri 365 miðla.
Til marks um ásóknina má nefna
að símkerfi Sýnar annar fimm-
tíu símtölum í einu en í gær og
síðustu daga brann við að álag-
inu var ekki annað.
Hermann býst við að áskrif-
endum Sýnar muni fjölga um
þúsundir vegna heimsmeistara-
mótsins.
- bþs
HM í Þýskalandi hófst í gær:
Mikil ásókn í
áskrift að Sýn
JAPAN, AP Akihito, keisari Japans,
hvatti til þess í ræðu á þriðjudag
að Japanar minntust afleiðinga
hernaðarstefnu sinnar á sjálfa sig
og nágranna sína.
Keisarinn lýsti áhyggjum
sínum af því að þær kynslóðir sem
uxu úr grasi eftir lok seinni heims-
styrjaldar hefðu ef til vill ekki
tamið sér tilhlýðilega virðingu
fyrir velferð og menningu ann-
arra þjóða.
Hann minntist þess einnig að í
því ástandi sem ríkti á fjórða ára-
tugnum í Japan, þegar fasismi
náði þar fótfestu, hefðu embættis-
menn átt erfitt um vik með að tjá
sig um stjórnarfarið og margir
óttast um líf sitt og limi af þessum
sökum.
Í Japan stendur til að sam-
þykkja lög sem eiga að innræta
þjóðerniskennd. - kóþ
Japanskeisari áminnir:
Læri af synd-
um fortíðar