Fréttablaðið - 10.06.2006, Qupperneq 10
10 10. júní 2006 LAUGARDAGUR
PÓSTAFGREIÐSLA Samkomulag hefur
náðst á milli Íslandspósts og Kaup-
áss um að hætta rekstri póst-
afgreiðslna í verslunum Nóatúns á
höfuðborgarsvæðinu. Breyting-
arnar verða innleiddar í áföngum
til 15. október næstkomandi. og
munu þýða flutning fimm
afgreiðslna yfir í ný húsnæði.
Að sögn Harðar Jónssonar,
framkvæmdastjóra pósthúsa-
sviðs, eru breytingarnar hluti af
endurskoðun Íslandspósts á póst-
netinu. Samstarfið við Nóatún
þjónaði ekki framtíðarhagsmun-
um fyrirtækjanna og vonast hann
eftir betri þjónustu í kjölfar flutn-
inga og ráðningar nýs starfsfólks.
Samningar um póstafgreiðslur
í verslunum Hagkaupa og Nettó
standa enn og stefnan er að koma
á þéttriðnu neti póstafgreiðslna á
höfuðborgarsvæðinu. - sgj
Glæsileg opnunartilboð
Hlíðarsmári 17 • S. 555 6688
(Áður Krakkafjör)
Við flytjum í Hlíðarsmára 17
Opnum nýja verslun í dag
STJÓRNMÁL Halldór Ásgrímsson,
fráfarandi formaður Framsóknar-
flokksins, hefur gegnt embættinu
síðan 1994, í tólf ár. Tveir af tólf
formönnum flokksins frá stofnun
hans 1916 sátu lengur en Halldór;
feðgarnir Hermann Jónasson og
Steingrímur Hermannsson. Her-
mann varð formaður árið 1944 og
sat í átján ár, til 1962, en Steingrím-
ur tók við embættinu 1979 og sat til
1994 eða í fimmtán ár.
Sex af þessum tólf formönnum
voru forsætisráðherrar um lengri
eða skemmri tíma og tveir til við-
bótar gegndu öðrum ráðherra-
embættum. Tryggvi Þórhallsson
varð forsætisráðherra ári áður en
hann varð formaður og Ásgeir
Ásgeirsson var áfram forsætis-
ráðherra eftir að hann hafði látið
af flokksformennsku. Þá varð
Hermann forsætisráðherra í for-
mennskutíð Jónasar Jónssonar.
Hvorki Jónas né Eysteinn Jónsson
urðu forsætisráðherrar. - bþs
Nýr formaður Framsóknar verður þrettándi formaður frá stofnun flokksins:
Tveir voru lengur formenn en Halldór
STRANDGATA 24 Tímabundið húsnæði
póstafgreiðslu Hafnarfjarðar er við
Strandgötu, en í haust flytur afgreiðslan í
Fjörðinn. MYND/JÓN HJÖRTUR HJARTARSON
HERMANN JÓNASSON
Formaður í átján ár.
HALLDÓR ÁSGRÍMSSON
Formaður í tólf ár.
FORMENN
FRAMSÓKNARFLOKKSINS
1916-1920 Ólafur Briem
1920-1922 Sveinn Ólafsson
1922-1928 Þorleifur Jónsson
1928-1932 Tryggvi Þórhallsson
1932-1933 Ásgeir Ásgeirsson
1933-1934 Sigurður Kristinsson
1934-1944 Jónas Jónsson
1944-1962 Hermann Jónasson
1962-1968 Eysteinn Jónsson
1968-1979 Ólafur Jóhannesson
1979-1994 Steingrímur Hermannsson
1994-2006 Halldór Ásgrímsson
Staðsetningar póstafgreiðslustöðva endurskoðaðar:
Íslandspóstur út úr
Nóatúnsverslunum
SMITANDI ÍÞRÓTTAANDI Þessar vændis-
konur í Halle í Þýskalandi stilltu sér upp
fyrir ljósmyndara á dögunum. Vændishús
í Þýskalandi búa sig undir blómleg við-
skipti næstu vikur vegna heimsmeistara-
mótsins í knattspyrnu.
NORDICPHOTOS/AFPN
RÚSSLAND, AP Yfirmaður lögreglu í
Ingúsetíuhéraði var skotinn á færi
í gær ásamt börnum sínum þrem-
ur, en hið elsta var sex ára gamalt.
Einnig voru vegnir tveir aðstoðar-
menn hans; lífvörður og bílstjóri
sem var að keyra lögregluforingj-
ann til vinnu og börnin á leik-
skóla.
Morðin voru framin í bænum
Karabúlak í þessu róstusama hér-
aði í Suður-Rússlandi. Þar, og víðar
í nágrenni Tsjetsjeníu, eru tíðar
skærur milli sjálfstæðissinnaðra
múslima og útsendara ríkisstjórn-
arinnar.
Sjálfstæðisbarátta Tsjetsjena
hefur nú staðið yfir í tólf ár og
hefur alda ofbeldis breiðst út um
öll Norður-Kákasusfjöllin. Mikil
fátækt, spilling og trúaröfga-
hyggja standa mannlífi á þessu
svæði fyrir þrifum. - kóþ
Engum eirt í Ingúsetíu:
Börnin myrt líka
ÁTÖK Í RÚSSLANDI Margir eiga um sárt að
binda í Tsjetsjeníu og nánasta nágrenni.
NORDICPHOTOS/AFP
NÁTTÚRAN Umhverfisráðherra
kynnti í gær nýtt vegakort ásamt
fulltrúum frá Umhverfisstofnun
og Landmælingum Íslands. Kortið
er hluti af baráttunni gegn utan-
vegaakstri og sýnir vegi á mið-
hálendinu. Kortið verður aðgengi-
legt á vefnum en einnig stendur til
að hengja það upp víðs vegar um
landið.
Ráðuneytið hefur einnig gefið
út nýtt tölublað af vefriti sínu en
þar er meðal annars fjallað um
loftlagsbreytingar, ferðamensku
og náttúruvernd. - gþg
Umhverfisráðuneytið:
Nýtt vegakort
UMHVERFISRÁÐHERRA Kynnti ný vegakort í
gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
STEINGRÍMUR HERMANNS-
SON Formaður í fimmtán ár.
DÓMSMÁL Gestur Jónsson, verj-
andi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar,
og Jakob R. Möller, verjandi
Tryggva Jónssonar, kröfðust þess
fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í
gær að Sigurður Tómas Magnús-
son, settur ríkissaksóknari í mál-
inu, og Helgi I. Jónsson, dómstjóri
Héraðsdóms Reykjavíkur, bæru
vitni í málinu.
Héldu þeir því fram að nauð-
synlegt væri að taka af allan vafa
um það að settur ríkissaksóknari
hefði, með samskiptum sínum við
dómstjóra, ekki haft áhrif á það
hver hefði verið skipaður dómari í
málinu, í aðdraganda þess að gefin
var út endurákæra vegna ákæru-
liða sem vísað var frá dómi.
Pétur Guðgeirsson var dómari í
fyrri hluta Baugsmálsins en eftir
að Sigurður Tómas hafði bent
dómstjóra á fjölskyldutengsl Pét-
urs og eitt vitnanna sem hann
hugðist kalla fyrir var Arngrímur
Ísberg skipaður dómari.
Gestur Jónsson sagði Sigurð
Tómas hafa, með samskiptum
sínum við dómstjóra, haft afskipti
að því hver hefði verið skipaður
dómari í málinu. Dómstjórinn
hefði verið búinn að ákveða að
Pétur yrði dómari í málinu, eins
og hann var í fyrra málinu.
Sigurður Tómas mótmælti því
að hann hefði haft afskipti af því
hver yrði skipaður dómari í mál-
inu. Hann sagðist aðeins hafa bent
dómstjóra á tengsl Péturs við eitt
vitnanna sem gætu leitt til van-
hæfis.
Sigurður sagðist hafa átt sam-
skipti við dómstjóra meðal annars
til þess að undirbúa flutning á
mikilvægum gögnum til dómsins.
Sigður Tómas sagði gögnin vera
viðkvæm og að hann hefði viljað
koma í veg fyrir að fjölmiðlar
kæmust yfir gögnin, áður en
ákærðu fréttu af því.
Gestur Jónsson sagði nauðsyn-
legt að fá skýr svör við tveimur
spurningum. „Hvernig má það
vera að settur ríkissaksóknari hafi
haft samskipti um skipan dómara
áður en ákæra var gefin út? Og
hvers vegna voru verjendur í mál-
inu ekki hafðir með í ráðum?“
Sigurður Tómas mótmælti því
að hafa haft samskipti við dóm-
stjóra um skipan dómara í málinu.
Hann sagðist einungis hafa bent
dómstjóra á fjölskyldutengsl Pét-
urs Guðgeirssonar við eitt vitn-
anna í málinu. Ásakanir um allt
annað væru úr lausu lofti gripnar.
Úrskurðað verður um það hvort
Sigurður Tómas og Helgi verði
kallaðir í vitnastúku á mánudag-
inn. magnush@frettabladid.is
Segist hafa
bent á tengsl
Verjendur í Baugsmálinu gera kröfu um að settur
saksóknari og dómstjóri verði kallaðir fyrir sem
vitni í Baugsmálinu. Sigurður Tómas Magnússon
segist hafa bent á fjölskyldutengsl dómara.
SIGURÐUR TÓMAS MAGNÚSSON Mótmælti
því harðlega að hafa haft óeðlileg afskipti
af skipan dómara í málinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA