Fréttablaðið - 10.06.2006, Page 16

Fréttablaðið - 10.06.2006, Page 16
 10. júní 2006 LAUGARDAGUR16 Umsjón: nánar á visir.is KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf] ICEX-15 5.652 +0,28% Fjöldi viðskipta: 237 Velta: 1.340 milljónir HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Actavis 64,90 +0,93% ... Alfesca 3,83 -1,54%... Atorka 5,80 +0,00% ... Bakkavör 47,80 -0,42% ... Dagsbrún 5,93 -0,50% ... FL Group 18,90 -1,56% ... Flaga 4,03 -0,74% ... Glitnir 18,10 +0,56% ... KB banki 761,00 +0,93% ... Landsbankinn 21,60 +0,47% ... Marel 69,50 -0,57% ... Mosaic Fashions 15,80 -0,63% ... Straumur-Burðarás 17,90 -1,11% ... Össur 111,50 +0,00% MESTA HÆKKUN Actavis 0,93% KB banki 0,93% Glitnir 0,56% MESTA LÆKKUN FL Group 1,56% Alfesca 1,54% Straumur 1,11% Stjórn House of Fraser (HOF) hefur samþykkt um 48 milljarða yfirtilboð frá Baugi Group og hópi fjárfesta í vöruhúsakeðjuna, að sögn Daily Telegraph. Blaðið telur að bæði KB banki og FL Group komi að tilboði Baugs auk skoska fjárfestisins Sir Tom Hunter, sem hefur tekið þátt í mörgum verk- efnum í samvinnu við Baug. Sam- kvæmt heimildum Fréttablaðsins hefur þó ekki verið gengið frá end- anlegum fjárfestahópi en nær full- víst er að FL Group komi að yfir- tökunni. Stjórn HOF staðfesti í gær að hún ætti í viðræðum við Baug Group um yfirtöku á félaginu. Við- ræður hafa farið fram um að Baug- ur bjóði 148 pens í hvern hlut, sem er yfir 20 pensa álag miðað við lokagengi HOF á fimmtudaginn. Gengi HOF hækkaði yfir fimm prósent í Kauphöllinni í Lundún- um í gær og fór yfir 136 pens. Baugur hefur fengið aðgang að bókum HOF og er því áreiðan- leikakönnun hafin. Reiknað er með að formlegt til- boð liggi fyrir í ágúst en líklegt er að flestir hluthafar HOF sætti sig við þetta verð þótt sumir telji félagið jafnvel meira virði. House of Fraser rekur verslun- arhús vítt og breitt um Bretlands- eyjar. Baugur sér tækifæri í því að velja smásala inn í húsin en félag- ið sjálft á fjölmargar tískukeðjur, til dæmis Mosaic Fashions sem rekur Karen Millen, Oasis og fleiri merki. Baugur myndi einnig vilja endurbæta sumar verslanir sem komnar eru til ára sinna. Baugur, sem fer með tæplega tíu prósenta eignarhlut í HOF, hefur áður komið að hugsanlegri yfirtöku á HOF en þá var það Tom Hunter sem leiddi þær viðræur. Það var árið 2002 og þá var rætt um að bjóða 85 pens fyrir hvern hlut í vöruhúsakeðjunni. eggert@frettabladid.is BAUGUR HEFUR GERT 48 MILLJARÐA YFIRTÖKUTILBOÐ Í HOUSE OF FRASER Baugur Group mun ásamt hópi fjárfesta taka yfir House of Fraser. Formlegt yfirtökutilboð verður að öllum líkindum lagt fram í ágúst. HOF tekur boði Baugs FL Group mun koma að yfirtöku á House of Fraser og jafnvel KB banki og Sir Tom Hunter. Baugur sér tækifæri í því að taka eigin merki inn í vöruhúsin. Flugfélagið Star Europe, sem er dótturfélag Avion Group, hefur gert samning um leigu á farþega- vél til stærstu ferðaskrifstofu Þýskalands, TUI. Samningurinn gildir í fimm mánuði og hefjast flugferðir nú í júní. Flogið verður frá Frankfurt og til áfangastaða TUI, svo sem Palma, Ródos og Lanzarote. Heildarvirði samningsins er 1,1 milljarður íslenskra króna. „Við erum mjög ánægð með að Star Europe hafi náð samningum við stærsta ferðaþjónustuaðila Þýskalands, einungis mánuði eftir að félagið hóf flug undir eigin merkjum“, sagði Magnús Þor- steinsson starfandi stjórnarfor- maður og stærsti eigandi Avion Group. -jsk Star Europe gerir stórsamning MAGNÚS ÞORSTEINSSON Dótturfélag Avion Group hefur gert samning upp á 1,1 milljarð króna. Ellefu milljarða vöruskiptahalli var í maímánuði samkvæmt bráða- birgðatölum Hagstofu Íslands. Flutt var inn fyrir 35 milljarða króna en út fyrir 24 milljarða. Fram kemur í vefriti fjármála- ráðuneytisins að vöxtur innflutn- ings sé að stærstum hluta drifinn áfram af fjárfestingar- og rekstr- arvörum. Aftur á móti dragi jafnt og þétt úr vexti innflutnings neysluvara. Til að mynda virðist hafa orðið samdráttur á innflutn- ingi bifreiða eftir mikla aukningu á síðasta ári. Greiningardeild Glitnis telur þessa þróun eðlilega í ljósi veik- ingar á gengi krónunnar. - jsk Samdráttur í inn- flutningi neysluvara BÍLAFLOTI Landsmenn virðast flytja inn minna af bifreiðum en áður. Útlit er fyrir að starfsemi í norsk- um fjármálafyrirtækjum lamist næsta mánudag um ófyrirséðan tíma með verkbanni sem næði til um 24.000 starfs- manna fjármálafyrirtækja og tryggingafélaga. Á mánudag hafa á annað þúsund starfsmenn spari- sjóða boðað verkfall og bætast þá í hóp 6.000 starfs- manna tryggingafélaga sem verið hafa í verkfalli frá 2. júní. Atvinnurekendur hafa á móti boðað allsherjar verkbann á alla starfsmenn fjármálafyrirtækja komi til verkfallsins. Í tilkynningu Finansforbundet, stéttarfélags starfsmanna fjár- málafyrirtækja og tryggingafélaga í Noregi, er ábyrgðinni alfarið varpað á atvinnurekendur enda hafi félagið þegar lagt fram tilboð í deilunni sem hafi verið hafnað. „Þeir velja sjálfir að loka spari- sjóðum, bönkum og trygg- ingafélögum,“ segir Jorunn Berland, formaður félags- ins. Deilan snýst um að félag- ið vill að samið verði um greiðslur í lífeyrissjóði í stað þess að fyrir- tækin ákveði einhliða hvort og þá hve mikið sé í þá greitt, segir í til- kynningu Finansforbundet. - óká JORUNN BERLAND Verkfall lamar Noreg Í síðasta mánuði flugu um 54 þús- und farþegar með sænska lág- gjaldaflugfélaginu FlyMe. Það er 34 prósenta fjölgun farþega frá sama tímabili í fyrra. Sætanýting var 68,7 prósent samanborið við 55,8 prósent í maí 2005. Fredrik Skanskelid, forstjóri FlyMe, er ánægður með árangur- inn og segir að vel hafi tekist til bæði á innanlandsmarkaði sem og á nýjum flugleiðum í Evrópu. - eþa Fleiri fljúga með FlyMe Stjórn Sjóklæðagerðarinnar, 66° Norður, segir Marinó Guðmunds- son forstjóra hafa borið það upp við stjórnina að hann hefði hug á að skipta um starf. Vegna þess hafi verið gert samkomulag um starfslok hans, sem full sátt sé um með stjórninni og forstjóran- um. Í frétt Markaðarins frá því á miðvikudag var haft eftir heim- ildum að frumkvæðið hefði verið stjórnarinnar. Þessu mótmælir stjórn Sjóklæðagerðarinnar. - jsk Segja sátt um starfslok Í lok síðasta árs höfðu skuldir heimila landsins aukist um 33 prósent frá júní 2004, samkvæmt tölum greiningardeild- ar Landsbanka Íslands. Greiðslubyrði heimil- anna lækkar engu að síður. Seðlabankinn fer yfir tölurnar með birt- ingu í huga. Um síðustu áramót námu skuldir heimilanna 1.082 milljörðum króna og höfðu þá aukist um 33 prósent frá því í júní 2004, sam- kvæmt nýjum tölum greiningar- deildar Landsbankans. Meðalláns- tími hafði lengst um fimm ár á tímabilinu og greiðslubyrði því hækkað mun minna en skuldirnar. „Sem hlutfall af ráðstöfunar- tekjum heimilanna hefur greiðslu- byrði lækkað úr 20,5 prósentum í 19,5 prósent. Í dag fer því lægra hlutfall af ráðstöfunartekjum til að greiða af lánum en áður,“ segir bankinn og telur mikilsvert með tilliti til fjármálastöðug- leika. Edda Rós Karlsdóttir, for- stöðumaður greiningardeild- ar Landsbankans, segir bank- ann fyrstan til að taka upplýsingarnar saman með þessum hætti. Á tímabilinu sem horft er til urðu grundvallarbreytingar á fyrirkomulagi fasteignaveðlána þannig að lánamöguleikum fjölg- aði, veðhlutföll hækkuðu, lánsþök voru afnumin og lánstími var lengdur. Edda Rós segir stórmerkilegt að greiðslubyrði sem hlutfall af tekjum hafi lækkað hjá heimilum landsins um leið og skuldirnar hafi aukist þetta mikið. „Útlend- ingar hafa enda ályktað sem svo að við værum í vandræðum vegna þess að greiðsubyrði hefði aukist með auknum skuldum. Þetta hefur því gríðarlega þýðingu.“ segir hún og telur að tölurnar eigi að geta sýnt erlendum greiningaraðilum fram á að ekki sé aukin hætta á að lántakendur lendi í greiðsluerfið- leikum í lok þenslunnar hér. „Við höfum lagt áherslu á að fyrirtæk- in séu með erlendar tekjur og njóta góðs af veikingu krónunnar og að heimilin séu þrátt fyrir allt ekki búin að auka greiðslubyrðina og þegar verðbólguskot ríður yfir verði hún ekki meiri í raun en hún hefur verið undanfarin ár.“ Miklu skiptir fyrir bankana að koma á framfæri upplýsingum um að greiðslubyrði almennings hafi ekki aukist og segir Edda Rós verið að skoða hvort Seðlabanki Íslands birti tölur um þróunina og þá jafnvel lengra aftur í tímann. Hún segir miklu skipta að fá Seðla- bankann að kynningunni enda hafi álit hans meiri vikt en greiningar- deildarinnar einnar. „En það yrði þá líka unnið betur aftur í tím- ann.“ olikr@frettabladid.isEDDA RÓS KARLSDÓTTIR FRAMKVÆMDIR Á VATNSENDA Þrátt fyrir að skuldir landsmanna hafi stóraukist frá því um mitt ár 2004 hefur greiðslubyrðin minnkað og hallar því ekki á bankana líkt og margar greiningardeildir erlendra banka hafa ályktað. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Greiðslubyrði lána er einu prósentustigi lægri MARKAÐSPUNKTAR... Avion Group og Atlantic Petroleum koma ný inn í Úrvalsvísitöluna í stað Kögunar og Flögu og tekur breytingin gildi 1. júlí. Samsetning Úrvalsvísitölunnar er endurskoðuð tvisvar á ári. Steinþór Pálsson hefur verið skipaður í stöðu framkvæmdastjóra framleiðslusviðs Actavis í Bandaríkj- unum og mun taka sæti í fram- kvæmdastjórn Actavis. Føroya Banki P/F verður aðili að hlutabréfa- og skuldabréfamörk- uðum Kauphallarinnar frá 15. júní undir auðkenningu FOB. Bankinn er annar færeyski aðilinn til að fá heimild til viðskipta í Kauphöllinni. Það er viðskiptahalli víðar en á Íslandi. Viðskiptahallinn í Bretlandi nam 19,6 milljörðum punda á fyrsta ársfjórðungi, sem jafngildir 2.646 milljörðum íslenskra króna. Það er talsvert meiri halli en hér á Íslandi þar sem tilkynnt var um 66,3 milljarða króna viðskiptahalla ekki alls fyrir löngu. Fróðlegt er að bera saman tölur frá löndunum tveimur. Á Íslandi búa 300 þúsund manns en í Bretlandi 60,6 milljónir manna. Samkvæmt nýstárlegri mælistiku nemur því viðskipta- hallinn á Íslandi 221 þúsund krónum á hvert mannsbarn en í Bretlandi 43.663 krónum. Með slumpreikningi mætti því segja fimm sinnum meiri viðskiptahalla á Íslandi en í Bretlandi - miðað við höfðatölu að sjálf- sögðu. Flatskjáir á alla veggi Heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu hófst í gær með opnunarleik Þýskalands og Kosta Ríka. Leikurinn endaði með sigri Þjóðverja og starfsmenn Landsbank- ans misstu ekki af einu einasta marki. Eins og allir vita eru ákvarðanir í stór- fyrirtækjum teknar út frá viðskipta- legum forsendum. Forsvars- menn Landsbankans vita þetta betur en flestir og ákváðu því að setja flatskjái á alla veggi í fyrirtækinu. Starfsmenn eru hæstánægðir og þurfa í mesta lagi að snúa sér níu- tíu gráður til að sjá Michael Ballack og félaga skeiða um iðagræna knattspyrnu- velli Þýskalands. Fimmfaldur viðskiptahalli

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.