Fréttablaðið - 10.06.2006, Qupperneq 30
10. júní 2006 LAUGARDAGUR30
Á nýafstaðinn leiðtoga-
fund Eystrasaltsráðsins í
Reykjavík mættu níu rík-
isstjórnaleiðtogar og tveir
utanríkisráðherrar og kváðu
aldrei eins margir forsætis-
ráðherrar hafa verið saman
komnir á Íslandi fyrr.
En hvað er þetta Eystrasaltsráð og
hvers vegna er Ísland aðili að því?
Það kann jú að koma mörgum
spánskt fyrir sjónir, strendur
eyríkisins Íslands eru í vel yfir
1000 kílómetra fjarlægð frá strönd-
um Eystrasaltsins.
Í samantekt á vef utanríkisráðu-
neytisins á tilurð og starfsemi
Eystrasaltsráðsins segir:
„Eftir lok kalda stríðsins vökn-
uðu ríkin við Eystrasaltið til nýrr-
ar vitundar um sameiginlega arf-
leifð á sviði stjórnmála, viðskipta,
mennta og menningar. Sú vitund
skerptist enn með sjálfstæði
Eystrasaltsríkjanna þriggja, Eist-
lands, Lettlands og Litháens.
Eystrasaltið var um aldir mið-
punktur margvíslegra samskipta
þessara ríkja. Mörg lutu þau á tíma
Kalmarsambandsins sömu stjórn
eða þróuðu um aldir með sér við-
skipti innan sambands Hansa-
borga. Á þessum sögulega grunni
og í ljósi þeirrar staðreyndar að
hrun kommúnismans í Evrópu fól í
sér margvíslega uppstokkun á
sviði stjórnmála og viðskipta í álf-
unni, buðu utanríkisráðherrar Dan-
merkur og Þýskalands starfs-
bræðrum sínum í ríkjum er liggja
að Eystrasalti, þ.e. í Eistlandi, Lett-
landi, Litháen, Finnlandi, Svíþjóð,
Rússlandi og Póllandi, að Noregi
og framkvæmdastjórn Evrópu-
sambandsins viðbættum, til fundar
í Kaupmannahöfn 5.-6. mars 1992.
Á þessum fundi var Eystrasalts-
ráðið stofnað. Fyrirmynd að skipu-
lagi og starfsemi ráðsins var að
verulegu leyti sótt til hefðbundins
samstarfs Norðurlandanna.“
Lýðræði og mannréttindi
Stofnskrá Eystrasaltsráðsins
endurspeglar það meginhlutverk
ráðsins að stuðla að stjórnmálaleg-
um og efnahagslegum stöðugleika
í norðausturhluta Evrópu. Í því
felst að leitast er við að treysta
mannréttindi og aðstoð við þróun
og uppbyggingu lýðræðis og rétt-
arríkis í þeim aðildarríkjum er
áður bjuggu við kommúnisma og
að efla samkennd með nýfrjálsum
íbúum þessara ríkja. Markmið
samstarfs á sviði efnahags- og við-
skiptamála er að bæta viðskipta-
umhverfi til eflingar fjálsum við-
skiptum. Með því er ætlunin að ýta
undir hagvöxt og bæta efnahags-
leg velferð íbúanna.
Á vettvangi ráðsins fer einnig
fram margvíslegt annað samstarf,
til dæmis á sviði samgangna og
fjarskipta, umhverfismála, orku-
mála, heilbrigðismála, réttarfars
og upplýsinga- og ferðamála. Engin
umfjöllun er um hefðbundin varn-
ar- og öryggismál á vettvangi
Eystrasaltsráðsins.
Á Eystrasaltssvæðinu eru nú
um fimmtíu milljónir íbúa - og eru
þá aðeins taldir íbúar strandhéraða
fjölmennustu landanna, Rússlands,
Póllands og Þýskalands.
Aðild Íslands að ráðinu
Á grundvelli sögulegra tengsla
og nýrra áherslna Norðurlanda um
grannsvæðasamstarf lögðu íslensk
stjórnvöld áherslu á aðild Íslands
að Eystrasaltsráðinu á árunum
1994-1995. Ísland var eitt stofn-
ríkja Barentsráðsins árið 1993 og
hefur tekið fullan þátt í samstarfi
ríkja um málefni norðurslóða.
Kaflaskil urðu í því samstarfi með
stofnun Norðurskautsráðsins í
september 1996.
Ísland fékk aðild að Eystrasalts-
ráðinu á utanríkisráðherrafundi
þess í maí 1995. Með aðild að
Eystrasaltsráðinu vildu íslensk
stjórnvöld leggja sitt af mörkum
til að stuðla að stjórnmálalegum og
efnahagslegum stöðugleika í Evr-
ópu og efla samskipti við Eistland,
Lettland, Litháen, Pólland og Rúss-
land. Í því sambandi er vert að
minnast sögulegra tengsla Íslands
og Eystrasaltsríkjanna þriggja er
hlutu sjálfstæði árið 1918, sama ár
og Ísland. Einnig var áhugi á því af
Íslands hálfu að fylgja eftir sókn-
arfærum í útflutningsviðskiptum
en viðskipti Íslands við Eystra-
saltsríki hafa aukist verulega síðan
þau endurheimtu sjálfstæðið.
Ísland hefur með ýmsum hætti
tengst Eystrasaltssvæðinu í gegn-
um aldirnar. Ísland var til að mynda
hluti af Kalmarsambandinu og
verslunarsvæði Hansaborganna,
en Hafnarfjörður var um langan
aldur verslunarstöð Hamborgar og
Lübeck. Um Eystrasaltið liggja
einnig verslunar- og siglingaleiðir
Íslendinga, með gömlum og nýjum
mörkuðum fyrir íslenskar afurðir.
Uppbygging ráðsins
Ráðherranefnd Eystrasalts-
ráðsins er skipuð utanríkisráð-
herrum aðildarríkjanna og kemur
hún saman til fundar einu sinni á
ári í viðkomandi formennskuríki.
Leiðtogafundir eru að jafnaði
haldnir á tveggja ára fresti. Sá
næsti verður væntanlega í Lett-
landi árið 2008.
Stjórnarnefnd ráðsins, eða CSO
(„Committee of Senior Officials“),
hefur það hlutverk að samræma
starfsemi ráðsins, einkum starf
vinnuhópa, og kemur hún að jafn-
aði saman einu sinni í mánuði yfir
vetrarmánuðina. Ennfremur er
hlutverk hennar að annast sam-
skipti Eystrasaltsráðsins og ann-
arra svæðisbundinna stofnana og
samtaka á Eystrasaltssvæðinu,
sem og við aðrar alþjóðastofnanir.
Eystrasaltsráðið hefur náin sam-
skipti við Evrópusambandið, Evr-
ópuráðið, Öryggis-og samvinnu-
stofnun Evrópu og Norðurlandaráð.
Einnig er hlutverk stjórnarnefnd-
ar að fylgjast með ástandi og
þróun einstakra málefna í aðildar-
ríkjum ráðsins.
Þrír fastir vinnuhópar starfa
innan Eystrasaltsráðsins og gefa
þeir stjórnarnefndinni reglulega
yfirlit um starfsemi sína. Vinnu-
hóparnir fjalla um mannréttindi
og uppbyggingu lýðræðislegra
stofnana, efnahagssamvinnu,
kjarnorkueftirlit og geislavarnir.
Að auki eru starfandi ýmsar und-
irnefndir og sérfræðingahópar er
fjalla um margvísleg málefni.
Meðal annars starfs sem sinnt
er innan vébanda Eystrasaltsráðs-
ins má nefna hina norðlægu vídd,
sem stofnað var til innan Evrópu-
sambandsins í formennskutíð
Finna í Evrópusambandinu árið
1999. Sú stefna miðar að eflingu
svæðisbundins samstarfs, ekki síst
á sviði umhverfismála, í Norðaust-
ur-Evrópu og Eystrasaltsráðið
hefur gegnt virku hlutverki við
framfylgd hennar. Á leiðtogafund-
inum í Reykjavík lýstu leiðtogarn-
ir yfir vilja til að styðja áfram við
norðlægu víddina sem ramma utan
um þetta svæðisbundna samstarf.
Aðrir málaflokkar sem Eystra-
saltsráðið sinnir eru forvarnastarf
gegn skipulagðri glæpastarfsemi,
samstarf háskóla á Eystrasalts-
svæðinu (undir heitinu „Eurofac-
ulty“) og samstarf á sviði ferða-
þjónustu.
Í lokaályktun Reykjavíkur-
fundarins á fimmtudaginn er
komið inn á flest mál sem ráðið
hefur látið sig varða. Hún skiptist
í fjóra kafla, framtíð samstarfs
Eystrasaltslanda, hagvaxtarhvetj-
andi aðgerðir og orkumál, og loks
mál er varða „mannlega þáttinn“
og lýðræðisgildi, svo sem vernd
barna og baráttu gegn mansali og
annarri skipulagðri glæpastarf-
semi.
Eystrasaltsráðið heldur úti eigin
vef, www.cbss.org. Þar má nálgast
allar nánari upplýsingar um starf-
semi þess. audunn@frettabladid.is
Böndin treyst milli N-Evrópuþjóða
ALDREI FLEIRI RÍKISSTJÓRNALEIÐTOGAR Níu forsætisráðherrar, tveir utanríkisráðherrar og sendifulltrúi framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins stilltu sér upp til „fjölskyldumyndatöku“ á fundarstaðnum á Hótel Nordica í Reykjavík.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FJÖLMIÐLASTÓÐ Fjölmennt lið fjölmiðlamanna fylgdi leiðtogunum hvert fótmál.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
HALLDÓR Í FORSÆTI Að stýra leiðtogafundinum var meðal síðustu embættisverka Halldórs
Ásgrímssonar sem forsætisráðherra. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
TVÍHLIÐA FUNDIR Tveir gestanna, forsætisráðherrar Póllands og Rússlands, notuðu tæki-
færið til að eiga tvíhliða fundi með íslenskum starfsbróður sínum, Halldóri Ásgrímssyni. Á
myndinni t.h er hann með Pólverjanum Kazimierz Marcinkiewicz og á hinni með Rússan-
um Mikhaíl Y. Fradkov, fyrir utan Ráðherrabústaðinn í Tjarnargötu. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA/GVA