Fréttablaðið - 10.06.2006, Page 38
[ ]
Í tilefni heimsóknar alþjóð-
legra blaðamanna á vegum
GM og Íslenskrar NýOrku.
Í síðasta mánuði komu hingað til
lands erlendir blaðamenn á
vegum General Motors og
Íslenskrar NýOrku. Tilgangur
ferðarinnar var að kynnast þeim
möguleikum sem bjóðast til
vetnisvinnslu á mismunandi
stöðum í heiminum. Frumkvæði
Íslendinga í tilraunum til vetnis-
nýtingar í almenningssamgöng-
um hefur án efa átt stærstan
þátt í að beina athygli GM hing-
að til lands.
Auk fyrirlestra um þróun á
sviði vetnisvæðingar bauðst
blaðamönnum að reynslukeyra
Opel Zafira sem knúinn er með
vetni. Stefnt er að því að bíllinn
verði kominn í fjöldaframleiðslu
árið 2010.
Bifreiðin sem kom hingað til
lands er ein örfárra frumgerða
sem GM hefur smíðað í þróunar-
ferlinu og fulltrúi bílaframleið-
andans fór hvergi leynt með þá
staðreynd að bíllinn væri ekki
fullkláraður. Aðvörunarljós og
aukahljóð komu því ekki á óvart.
Blaðamanni brá hins vegar
þegar stigið var á inngjöfina.
Bíllinn er furðu lipur og togar
vel, sérstaklega ef tekið er tillit
til þess að hann er knúinn áfram
með 100 hestafla rafmótor.
Í stað venjulegra hljóða frá
sprengihreyfli heyrist ekkert
nema lágvært ýl í rafmótornum
og hviss í loftpressunni sem sér
efnarafalnum fyrir súrefni.
Innan hans eiga sér stað efna-
hvörf, fyrir tilstuðlan vetnis og
súrefnis, sem framleiða rafmagn
sem svo aftur fæðir mótorinn.
Í dag er drægni bílsins um
450 kílómetra fyrir hverja fyll-
ingu. Vetnið er geymt undir
þrýstingi og hefur geymslu-
tækni farið mikið fram á síðustu
árum, sem og nýtni efnarafala,
en hún er nú fjórtánföld á við
það sem hún var fyrir sjö árum.
Samkvæmt fulltrúa GM eru
enn nokkur atriði sem þarf að
breyta áður en fjöldaframleiðsla
vetnisbíla verður að veruleika.
Til dæmis þarf að auka enn
drægni þeirra, mótorarnir þurfa
að vera stærri, sérstaklega fyrir
Ameríkumarkað, og enn sem
komið er getur efnarafallinn
verið tregur í gang í frosti.
einareli@frettabladid.is
Vetnisbíll General
Motors sýndur á Íslandi
Að innan er bíllinn frekar hefðbundinn, ef frá er talin drifstýringin, fjórir rofar á milli fram-
sæta, þar sem gírstöng væri venjulega.
Á fullkomnum tölvuskjá má til dæmis
fylgjast með starfsemi efnarafalsins.
Zafira-vetnisbíllinn við einu vetnisstöðina á Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Þegar keyrt er með tjaldvagn þarf að sjá
til þess að útsýni baksýnisspegla sé ekki skert. Vel
getur hugsast að það þurfi að bæta við speglum.
23
29
/
T
ak
tik
n
r.
3
Akureyri • Egilsstöðum • Hafnarfirði • Höfn • Keflavík • Kópavogi •Reykjavík •Selfossi
VERKFÆRI
fyrir fagmenn
Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is
SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR
BIFREIÐAVERKSTÆÐI
Þegar sumarið loksins gengur í garð er um að gera að vera klár í
að halda á vit ævintýranna á glæsilegum jeppa. Þess vegna
efnum við nú til Jeppadaga á Bílaþingi Heklu og bjóðum mikið
úrval á frábærum kjörum.
Komdu og skoðaðu úrvalið á Bílaþingi Heklu.