Fréttablaðið - 10.06.2006, Qupperneq 41
LAUGARDAGUR 10. júní 2006
HVAÐ ER... EFNARAFALL?
Efnarafall er búnaður sem sér um
að framleiða rafmagn úr gasteg-
undum. Þetta hljómar svolítið
undarlega í fyrstu, ekki síst þegar
hugsað er til þess að hægt er að
framleiða nægilegt rafmagn með
þessum hætti til að knýja öflugan
rafmótor.
Hægt er að nota nokkur efni til
að knýja efnarafal. Við skulum
líta aðeins nánar á það kerfi sem í
dag lítur út fyrir að vera líklegast
til að ná í fjöldaframleiðslu; rafal
sem gengur fyrir vetnisgasi og
súrefni.
Rafallinn samanstendur vana-
lega af fleiri en einni „sellu“. Við
getum ímyndað okkur selluna eins
og samloku með smjöri og hangi-
kjöti, þó hún sé auðvitað búin til úr
málmum og efnum sem framkalla
efnahvörf hjá eldsneytinu. Inn í
brauðsneið eitt er vetninu dælt
undir þrýstingi. Þegar það kemst í
snertingu við smjörið (sem er í
raun eins konar platínudufthimna)
klofnar hver vetnissameind í tvær
vetnisjónir og tvær rafeindir.
Rafeindirnar eru leiddar til
baka í gegnum brauðsneið eitt og
fara þaðan í rafrásirnar og knýja
það sem knýja þarf. Á meðan
hefur súrefni verið dælt inn í
brauðsneið tvö. Þegar það kemst í
snertingu við smjörið klofnar það
í tvö súrefnisatóm. Þær hafa nei-
kvæða hleðslu sem draga að sér
vetnisjónirnar, alla leið úr brauð-
sneið eitt, í gegnum smjörið,
hangikjötið, meira smjör og inn í
brauðsneið tvö.
Um leið og vetnisjónirnar
koma yfir í brauðsneið tvö hitta
þær fyrir súrefnisatómin og raf-
eindirnar sem þær sögðu skilið
við í brauðsneið eitt. Rafeindirnar
þurftu að ferðast lengri leiðina,
eftir raflögn, yfir í brauðsneið tvö
og það er í raun það ferðalag sem
býr til rafstrauminn. Við þessa
endurfundi, að viðbættu súrefn-
inu, verður til kunnuglegt efna-
samband, H2O eða vatn. Það er
því vatnsframleiðsla úr vetni og
súrefni sem býr til strauminn sem
efnarafallinn gefur frá sér.
Útblásturinn er svo afurðin, eða
hreint vatn.
Hver sella gefur frá sér 0,7
Volt þannig að tæplega tuttugu
sellu rafal þarf til að knýja bíl. Það
er heilmikið af „brauði“.
Við fyrstu sýn er efnarafall ekki ósvipaður nýlegri bílvél. Samlíkingunni sleppir þó um
leið og skyggnst er undir yfirborðið. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Yfir hálf milljón seld
TOYOTA PRIUS Í SÓKN Á NÍUNDA
AFMÆLISÁRINU.
Toyota Motor Corporation greindi frá
því í vikunni að sala á Toyota Prius
er komin yfir hálfa milljón eintaka á
þessu ári en í lok apríl höfðu 507.700
eintök verði færð eigendum sínum um
allan heim.
Toyota Prius var fyrst kynntur í Japan
árið 1997 en sala í Norður-Ameríku og
Evrópu hófst árið 2000. Önnur kyn-
slóð Prius var svo kynnt til sögunnar
árið 2003 og þá með hinu byltingar-
kennda Toyota Hybryd System II þar
sem áhersla er lögð á umhverfisvernd
með minni notkun jarðefnaeldsneytis
og minni útblæstri í bland við góða
aksturseiginleika.
Í desember 2005 hófst framleiðsla á
Prius í fyrsta sinn utan Japans með
framleiðslu í Kína fyrir hinn ört stækk-
andi kínverska markað.
Toyota lítur á hybryd-tæknina sem
lykiltækni í framþróun bílvéla næstu
áratugi og stefnt er að því að bjóða
þessar vélar í fleiri
tegundum
Toyota
og
Lexus.
Eins dauði er annars
verðhækkun
DAUÐI ZARQAWI HEFUR
ÁHRIF Á OLÍUVERÐ.
Hráolíuverðið tifar í takt
við fréttir af ástandinu
í Mið-Austurlöndum.
Fréttin um dauða Abu
Musab al-Zarqawi,
leiðtoga al-Qaeda í
Írak, hafði strax áhrif á
heimsmarkaðsverð á
hráolíu. Á Brent-mark-
aðnum lækkaði olíutunnan um 0,81
Bandaríkjadal niður í 68,38 sem er
það lægsta í þrjár vikur. www.fib.is
sölutölur }
Bifreiðastillingin ehf. • Smiðjuvegi 40d • Sími 557 6400
Vissir þú að 90% af sjálfskiptingum
bila vegna hitavandamála?
Láttu skipta um olíu og síu á sjálfskiptingunni.
Sjálfskiptingar, stillingar og alhliða viðgerðir.
í fólksbíla, jeppa, vörubíla,
vinnuvélar og bátavélar.
Á lager og hraðsendingar.
Yfir 40 ára reynsla.
ALTERNATORAR OG STARTARAR
Auðbrekku 20 s.564 0400
UMBOÐIÐ
GRENSÁSVEGI 14 / 108 REYKJAVÍK / 566 6820
NÝ SENDING Á
GAMLA GENGINU!
ATH!!!