Fréttablaðið - 10.06.2006, Page 63
Sigurjón Sighvatsson kvik-myndaframleiðandi hefur náð
langt í Hollywood og framleitt
margar verðlauna- og stórmyndir.
Ekki er óhugsandi að Þórir Snær,
sonur hans, verði föðurbetrungur
en hann framleiddi meðal annars
stuttmyndina Síðasti bærinn, sem
var tilnefnd til Óskarsverðlauna í
ár.
„Ég var búinn að reyna við-
skiptafræðina við Háskóla Íslands
og klára bókmenntafræði, en fann
mig ekki alveg,“ segir Sigurjón.
„Kvikmyndaframleiðsla samein-
aði hins vegar þetta tvennt og
fleiri listgreinar, svo sem ljós-
myndun og leiklist og árið 1979
ákvað ég að þetta skyldi ég leggja
fyrir mig.“
Þórir Snær ætlaði sér aldrei út
í kvikmyndagerð, enda hafi lang-
ar vinnustundir föður hans lengi
vel gert hann frábitinn starfinu
þótt síðar hafi hann skipt um
skoðun. „Hefði ég ráðið væri
Þórir eflaust ekki í þessu starfi í
dag, enda er það afskaplega krefj-
andi og því fylgir mikil sam-
keppni,“ segir Sigurjón. „Hins
vegar skiptir auðvitað öllu að
sonur minn geri það sem hann
hefur ástríðu fyrir og finni sig á
þeim vettvangi,“ bætir hann við.
„Það er ekki síður gleðilegt að
hann og félagar hans í ZikZak
kvikmyndagerð, hafa náð góðum
árangri. Í dag er meira að segja
hægt að fá Óskarstilnefningu
fyrir stuttmynd frá Íslandi.“
Þórir segir vissulega ganga vel
núna en þetta sé hörkuvinna. „Ég
hef lært ýmislegt af reynslu pabba
í bransanum. Eitt það mikilvæg-
asta er að það tekur þrjú til fimm
ár að framleiða kvikmynd, þannig
að maður þarf að vera ansi viss á
því að verkefnið sé þess virði að
leggja svo mikinn tíma og ástríðu
í það. Það fór jafnmikill tími, og
ástríða kannski líka, í að fram-
leiða Battlefield Earth og það fór í
að gera Guðföðurinn. Dæmi hver
fyrir sig um útkomuna,“ segir
Þórir og hlær.
Þeir feðgar unnu saman að
framleiðslu myndarinnar
Gargandi snilld og segja að það
hafi gengið vel. „Þórir er miklu
mýkri maður en ég en hins vegar
sækir hann hvatvísina til mín,“
segir Sigurjón. Þórir tekur undir
orð föður síns um samstarfið.
„Þetta gekk í alla staði prýðilega
og við vorum mjög ánægðir með
útkomuna. Verst er að þetta bitn-
aði aðallega á mömmu og systur
minni. Eina sem við ræddum, dag-
inn út og daginn inn var myndin.
Reyndar hefur þetta verið þannig
í tíu ár; við ræðum fátt annað en
kvikmyndir og kvikmyndagerð.
Mamma lýsti þessu best fyrir
nokkrum árum þegar hún fórnaði
höndum og sagði. „Ó, nei, nú þarf
maður að hlusta á tvo kvikmynda-
framleiðendur!“
ELÍN OG SIGURBORG
Líta á kennslustarfið
sem köllun. FRÉTTABLAÐ-
IÐ/HÖRÐUR SVEINSSON
Tilboðið gildir til 30. júní eða á meðan birgðir endast.
��������������
3 töskur á hjólum með dráttarhandfangi.
�����������������
�������������� ���
�������������
Verð áður: 18.285 kr.
������������
���������
�������������
faldlega að beita ólíkum kennslu-
aðferðum til draga það besta fram
í öllum. Þannig vildi hún leggja
áherslu á annað og meira en hefð-
bundið bóknám.“
Sigurborg segir foreldra sína
hafa verið mikið hugsjónafólk og
húmanista, enda hafi þau tekið að
sér börn sem rekin höfðu verið úr
skóla og kennt þeim á heimili
sínu. „Það er alveg ljóst að marg-
ir hefðu aldrei komist í gegnum
gagnfræðanám nema fyrir til-
stilli mömmu og pabba. Sjálfri
mér kenndu þau fyrst og fremst
að það er ekki endilega mikilvæg-
ara að vera góður á bókina en að
vera skapandi, listrænn eða
hagur.“
Ó, nei, tveir kvik-
myndaframleiðendur
ÞÓRIR SNÆR SIGURJÓNSSON, SIGRÍÐUR ÞÓRISDÓTTIR OG ÞÓRIR SNÆR SIGUR-
JÓNSSON Hæfileikaríkir kvikmyndagerðarmenn.