Fréttablaðið - 10.06.2006, Side 83
LAUGARDAGUR 10. júní 2006 59
BÆJARL IND 12 - S : 544 4420
WWW.EGODEKOR. IS
GLÆSILEG GARÐHÚSGÖGN
ÚR GEGNHEILU TEKKI
Opið: mán-fös 10:00-18:00 - lau 10:00-16:00
LOKAÐ Á SUNNUDÖGUM
Stækkanlegt borð 120(+60)x120 og 6 stk. klappstólar m/arm
*Borð einnig fáanlegt í 180(+60)x120
Allt settið án sessu -10%
Tilboðsverð: 62.100,-
Átthyrnt borð
120cm og 4 klappstólar
m/arm -10%
Tilboðsverð: 35.910,-
IBIZA
legubekkur -10%
Tilboðsverð: 21.600,-
Staflanlegur stóll
-10%
Tilboðsverð: 6.120,-
Stórt stækkanlegt borð
180(+60)x120 og 6 staflan-
legir stólar -10%:
Tilboðsverð: 79.920,-
SKAPARI ACNE JEANS Jonny Johansson
er ungur sænskur strákur sem hefur náð
að koma Acne Jeans-merkinu ágætlega á
kortið.
Sænska fatamerkið Acne Jeans
hefur tröllriðið íslenskum mark-
aði með flottum herra- og dömu-
fatnaði og þá sérstaklega með vel
heppnuðum gallabuxnasniðum. En
Acne er miklu meira en bara fatn-
aður. Fyrirtækinu er skipt í fjögur
ólík svið en auk fatamerkisins er
til framleiðslufyrirtækið Acne
Film, Acne Creative sem er aug-
lýsinga- og hönnunarumboðsskrif-
stofa og loks Acne Characters sem
vinnur við að
skapa persónur í
teiknimyndir og
auglýsingar.
Fyrirtækið
hefur verið í mikl-
um uppgangi síð-
ustu ár en það
hefur verið starf-
rækt síðan 1996.
Fatamerkið hóf
göngu sína tveim-
ur árum síðar og
þá voru eingöngu
gerðar 100 galla-
buxur sem ætlað-
ar voru viðskiptavinum og fjöl-
skyldumeðlimum. Buxurnar slógu
í gegn og var heil fatalína búin til
vegna mikillar eftirspurnar. Acne
er nú á topplistum yfir vinsælustu
gallabuxnamerkin úti um allan
heim og hefur unnið til margra
hönnunarverðlauna. Skapari
merkisins heitir Jonny Johansson
og snýst merkið um klæðileg snið
og vönduð efni. Acne Jeans fæst í
verslunum Gallerí sautján og
Centrum hér á landi. - áp
Stílhreint og
klæðilegt
SKEMMTILEG
BLANDA AF GRÁU
OG BRÚNU
Herrafatnaðurinn
frá Acne Jeans er
vandaður og einkar
klæðilegur.
VINSÆLL MEÐAL KVENÞJÓÐARINNAR
Hér er Ford á forsíðu Vantity Fair tímaritsins
umkringdur leikkonunum Keiru Knightley
og Scarlett Johansson.
Tom Ford er einn sá þekktasti í
hönnunarheiminum. Sem fyrrver-
andi listrænn leiðtogi innan her-
búða Gucci og YSL hefur hann
getið sér gott orð á sviði tískunn-
ar. Hann er með mörg járn í eldin-
um og hannaði nýverið sólgler-
augnalínu undir eigin nafni og
gerði herrasnyrtivörur fyrir Estée
Lauder. Ford er því tíður gestur á
rauða dreglinum og alltaf smart í
tauinu eins og við er að búast. Stíll
hans einkennist af hefðbundnum
jakkafötum eða góðri blöndu af
jakka og gallabuxum. Hann er
oftar en ekki í hvítri skyrtu og
svörtum jakka og á það til að
bregða sér í smóking með öllu til-
heyrandi.
- áp
Sá svalasti í tískuheiminum
„ON THE CATWALK...“ Ford stillir sér hér
upp í lok sýningar sinnar fyrir YSL. Hvers-
dagslega klæddur í dökkbláum blazer og
gallabuxum.
KÓNGURINN Hægt er að kalla Tom Ford
konung tískuheimsins enda er hann vanur
að leggja línurnar fyrir aðra hönnuði og
vera þeim fyrirmynd.
ÚR SMIÐJU TOM FORD Tom þykir bera af
hvað varðar kvenmannshönnun og er þessi
fallegi silfurlitaði kjóll gott dæmi um þá
staðreynd.
EINN MEÐ ÖLLU
Ford er hér klæddur
í klassískan smóking
á rauða dreglinum.
Ekkert virðist fara
þessum manni illa.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Ný búð var opnuð í Smáralind í
byrjun mánaðarins og er um að
ræða skartgripa- og fylgihlutabúð.
Búðin nefnist Tous og er þetta
þekkt verslunarkeðja frá Spáni.
Búðin selur fallega hannaða skart-
gripi úr 18 karata gulli, hvítagulli
og silfri og fer verðlagið eftir því.
Einnig fást ekta leðurtöskur, sól-
gleraugu og bindi í búðinni en allt
er þetta frá sama merki.
Merkið var stofnað árið 1920 af
úrsmiðinum Salvador Tous og nú
stjórna sonur hans og fjölskylda
fyrirtækinu. Rótgróið fjölskyldu-
fyrirtæki með glæsileika í fyrir-
rúmi. Búðin á Íslandi er númer
189 í röðinni en Tous búðirnar má
finna úti um allan heim.
Skartgripir
frá Spáni