Fréttablaðið - 28.06.2006, Síða 42
MARKAÐURINN
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 – prentmiðlar RITSTJÓRI: Hafliði Helgason RITSTJÓRN: Eggert Þór Aðalsteinsson, Hólmfríður Helga Sigurðardóttir, Jón Aðalsteinn Bergsveinsson, Jón Skaftason, Óli
Kristján Ármannsson AUGLÝSINGASTJÓRI: Anna Elinborg Gunnarsdóttir RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF: 550 5006 NETFÖNG:
ritstjorn@markadurinn.is og auglysingar@markadurinn.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 – prentmiðlar PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf.
dreifing@posthusid.is Markaðinum er dreift ókeypis með Fréttablaðinu á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á lands-
byggðinni. Markaðurinn áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
eggert@markadurinn.is l haflidi@markadurinn.is l holmfridur@markadurinn.is l
jonab@markadurinn.is l jsk@markaðurinn.is l olikr@markadurinn.is
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
28. JÚNÍ 2006 MIÐVIKUDAGUR12
S K O Ð U N
U M V Í Ð A V E R Ö L D
Einbýlishús verður að kaffikönnu
Fortune | Fortune fjallar um ástand mála í
Afríkuríkinu Simbabve. Landið sé handhafi hinn-
ar vafasömu heimsmeistaratignar í verðbólgu,
sem hafi verið 1.043 prósent í apríl. Árið 1996
hafi milljón simbabvedalir nægt til kaupa á ein-
býlishúsi. Nú fáist ekki einu sinni kanna af kaffi
fyrir þá upphæð. Nýlega hafi prentun hafist á
hundrað þúsund simbabvedalaseðlum, sem jafn-
gildi tæplega einum bandarískum. Blaðið segir
nýja seðilinn þó lítils virði fyrir hinn almenna íbúa
landsins. „Maður fær ekki einu sinni brauðhleif
fyrir mánaðarlaunin. Ég hef unnið allt mitt líf, og
uppsker ekkert að lokum,“ er haft eftir tæplega
áttræðum manni með sjötíu þúsund simbabvedala
mánaðarlaun. Fortune segir enga lausn á vanda
Simbabve í sjónmáli; opinberir starfsmenn eigi
von á þrjú hundruð prósenta launahækkun frá
Robert Mugabe forseta. „Og hvernig skal borga
brúsann? Jú, auðvitað með því að prenta meiri
peninga,“ segir í Fortune.
Kínverjar í Afríku
BBC | Vefsíða breska ríkisútvarpsins, www.bbc.
co.uk, fjallar um aukin ítök Kínverja í Afríku.
Wen Jiabao forsætisráðherra
hafi nýverið heimsótt sjö
Afríkulönd og lagt áherslu á
aukin viðskipti milli Kína og Afríku. Þá lof-
aði hann aukinni þróunaraðstoð Kínverja við
Afríkuríki. Viðskipti Kínverja við Afríku hafa
margfaldast frá því árið 2000, einungis í fyrra
varð fjörutíu prósenta aukning milli ára. Þá hefur
útflutningur á afrískum varningi til Kína aukist
um rúm fimmtíu prósent á ári undanfarin misseri.
Gagnrýnendur segja þó Kínverja fremur stjórn-
ast af eiginhagsmunum en manngæsku; olíuþörfin
ein knýi þá áfram. Kínverjar vísa þeim ásökunum
á bug og benda á að þeir hafi afskrifað skuldir
rúmlega þrjátíu Afríkuríkja, auk þess að hafa
byggt skóla í Tansaníu, lagt járnbraut í Angóla
og aðstoðað yfirvöld í Úganda við að byggja upp
ferðamannaiðnað.
Senn líður að því að Seðlabankinn
taki ákvörðun um breytingu
stýrivaxta, en næsta vaxta-
ákvörðun mun líta dagsins ljós
þann 6. júlí. Allt útlit er fyrir að
bankinn hækki enn vexti, jafn-
vel þó reynslan sýni að áhrifin
séu harla lítil.
Við tvær síðustu vaxtahækk-
anir hefur það gerst daginn
eftir að íslenska krónan hefur
veikst, þó eitt af aðalmarkmið-
unum með vaxtahækkun sé að
styrkja krónuna og reyna að
hægja á verðbólgunni. Það kom
í ljós við síðustu verðbólgumæl-
ingu þegar neysluverðsvísi-
talan hækkaði í júní um 1,16
prósent að veiking krónunnar
kemur mjög hratt inn í allar
verðhækkanir á mat- og drykkj-
arvörum. Mun hraðar en grein-
ingardeildir gerðu ráð fyrir. En
Seðlabankanum er vorkunn því
þetta er eitt af örfáum stýri-
tækjum sem hann hefur til hag-
stjórnar.
Vextir hér á landi eru nú nán-
ast komnir út í hafsauga miðað
við hvað þeir eru í nágranna-
löndum okkar. Þessir háu vextir
bitna fyrst og fremst á einstakl-
ingum og minni fyrirtækjum.
Stærri fyrirtækin fjármagna
sig að langstærstum hluta með
erlendum lánum.
Það er nöturleg staðreynd
hvað við búum við háa vexti, en
það virðist eins og Íslendingar
hafi mikla aðlögunarhæfni
þegar kemur að háum vöxtum.
Erlendis kveður við ramakvein
í þegar bankar hækka vexti úr
2,75 í 3,00 prósent samanber
nýlegt dæmi frá Svíþjóð.
Vaxtamunur við útlönd helst
áfram mjög hár. Þetta virkar
sem mikið aðdráttarafl á erlent
fjármagn sem leitar hárrar
ávöxtunar sem vonandi leiðir
síðan til styrkingar krónunnar
og lækkandi verðbólgu. Flestir
erlendu fjárfestarnir eru að
upplifa íslenska efnahagssveiflu
í fyrsta skipti, hvernig þeir mun
hegða sér á markaðnum skiptir
miklu fyrir framhaldið.
Það eru engar smá upphæðir
hjá erlendum skuldabréfasjóð-
um í íslenskum skuldabréfum.
Ekki er ólíklegt að stýrivextir
Seðlabankans verði komnir í 13,5
prósent í september, en eftir það
ættu þeir að fara lækkandi og
bankinn að vera óhræddur við
að lækka vexti hratt.
Sveigjanleiki íslensks efna-
hagslífs er mikill sem tryggir
skjóta aðlögun að breyttu vaxta-
stigi.
Háir vextir til lengri tíma
draga úr áhuga innlendra aðila
á að fjárfesta á Íslandi, rekstr-
arumhverfi fyrirtækja, sér-
staklega þeirra smærri, verður
ójafnara. Samkeppnisaðstæður
einfaldlega skekkjast.
Það er mjög mikilvægt eftir
þær hröðu vaxtahækkanir sem
dunið hafa yfir síðustu miss-
eri að Seðlabankinn og innlend
fjármálafyrirtæki verði skjót til
að lækka vexti þegar hámarki
stýrivaxta er náð í haust í kring-
um göngur og réttir.
Hvenær lækka vextir?
Jafet S.
Ólafsson,
Framkvæmda-
stjóri VBS.
O R Ð Í B E L G
Háir vextir til lengri
tíma draga úr áhuga inn-
lendra aðila á að fjár-
festa á Íslandi, rekstrar-
umhverfi fyrirtækja,
sérstaklega þeirra
smærri, verður ójafnara.
Samkeppnisaðstæður
einfaldlega skekkjast.
Samkomulag Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambandsins var
mikilvægt framlag þessara samtaka til að koma böndum á verð-
bólguna. Ríkisstjórnin gerði það sem gera þurfti til að tryggja að
þetta samkomulag næðist.
Ef einhverjir skyldu nú halda að útspil ríkisstjórnarinnar
hafi verið hagstjórnaraðgerð, þá er það mikill misskilningur.
Ríkisstjórning tók einfaldlega upp tékkheftið og skrifaði stóra ávís-
un. Hún stílaði hana svolítið öðruvísi en boðað hafði verið. Í stað
tveggja prósenta skattalækkunar kom hækkun persónuafsláttar og
eitt prósent skattalækkun. Það var allt og sumt.
Sú skattalækkun sem vonir manna stóðu til að yrði frestað
kemur til framkvæmda eins og boðað
hafði verið. Þessir fjármunir fara því
út í hagkerfið ef ekki er gripið til ann-
arra ráðstafana og kynda undir frekari
þenslu og verðbólgu. Áhrifin eru því
öfug miðað við það sem ætla mætti að
væri vilji ríkisstjórnar sem vill stöð-
ugleika í hagkerfinu.
Það var því mikilvægt að ríkis-
stjórnin sendi loksins út skilaboð um
að bregðast þyrfti við stöðunni í efna-
hagsmálum. Þar er stigið skref til
baka með lánshlutfall og hámarkslán
Íbúðalánasjóðs og útboðum á vegum
ríkisins frestað.
Þá er ekki síður mikilvægt að rík-
isstjórnin hyggst hefja viðræður við
sveitarfélögin með það að markmiði að
dregið verði úr fjárfestingum þeirra.
Sveitarfélögin hafa ekki axlað þá
ábyrgð sem nauðsynleg er á slíkum
þenslutímum. Yfirlýsingar í kjölfar
kosninga hafa heldur ekki bent til þess
að hjá stærstu sveitarfélögunum væri sérstök meðvitund um þann
efnahagsveruleika sem við búum við um þessar mundir.
Við búum í þeim hluta heimsins þar sem ofgnótt verður okkur
að fjörtjóni, en ekki skortur. Sama gildir um stöðu efnahagsmála.
Líkt og með líkama okkar getur sá ofvöxtur sem við glímum við
í efnahagslífinu valdið okkur varanlegu tjóni. Það er því mikill
ábyrgðarhluti að taka ekki þátt í þeirri megrun sem enn á að geta
verið átakalítil. Afleiðing þess að skorast undan getur kallað á
alvarleg inngrip síðar.
Sveitarfélögunum ber því að taka þessari ábyrgð af fullri alvöru
og slá af framkvæmdir um sinn. Ríkið þarf líka að gera meira en
boðað er í núverandi aðgerðum. Það eru fjömargir hagræðingar-
möguleikar í ríkiskerfinu og þenslutímar eru rétti tíminn til að gera
kerfisbreytingar sem valda takmörkuðum sársauka þegar atvinnu-
stig er jafn hátt og raun ber vitni.
Stærri verkefni í einföldun skatta- og tollaumhverfis bíða
líka handan við hornið. Í fjármálakerfinu blasa við úrelt þing í
Íbúðalánasjóði og sparisjóðakerfinu sem tímabært er að taka á.
Grunnbygging hagkerfisins og fjármálakerfisins er traust. En jafn-
vel hraustustu líkamar frá náttúrunnar hendi geta orðið veikburða
ef ekki er um þá hirt.
Útspil ríkisstjórnarinnar til að hemja verðbólgu
dugir ekki eitt og sér:
Megrun krefst
þátttöku fleiri
Hafliði Helgason
„Sveitarfélögin hafa
ekki axlað þá ábyrgð
sem nauðsynleg er á
slíkum þenslutímum.
Yfirlýsingar í kjölfar
kosninga hafa heldur
ekki bent til þess að
hjá stærstu sveitarfé-
lögunum væri sérstök
meðvitund um þann
efnahagsveruleika
sem við búum við um
þessar mundir.“
VR og fleiri stéttarfélög styrkja þátttöku félagsmanna sinna á námskeiðinu.
“...hvergi áður náð jafn hárri ávöxtun á
tímasparnað ...”
Fylkir Sævarsson, 39 ára Iðnfræðingur.
“Í þessu er fólginn mikill tímasparnaður.”
Ester Ýr Jónsdóttir, kennari
“Hreinn tímaþjófur að láta það fram hjá sér fara.”
Rut Skúladóttir, 20 ára nemi.
Meiri tími – Aukið forskot – Sterkari sérstaða
Hvað segja nemendur okkar um námskeiðið:
Frábært, markvisst, hnitmiðað, krefjandi, mikil aðstoð, árangursríkt, góð þjónusta.
...næsta 6 vikna námskeið hefst 4. júlí
...næsta 3 vikna hraðnámskeið 20. júlí
Náðu árangri með okkur í sumar og skráðu þig á
sumarnámskeið Hraðlestrarskólans.
Skráning hafin á www.h.is og í síma 586-9400.
Gerum föst verðtilboð í fyrirtækjanámskeið
Betri leið til
að vinna á
tímaskorti