Fréttablaðið - 28.06.2006, Page 75
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
JÚNÍ
25 26 27 28 29 30 1
Fimmtudagur
■ ■ LEIKIR
19.15 Keflavík og Breiðablik
mætast í Landsbankadeild karla.
19.15 ÍA og Víkingur mætast í
Landsbankadeild karla.
19.15 FH og Grindavík mætast í
Landsbankadeild karla.
20.00 Fylkir og ÍBV mætast í
Landsbankadeild karla.
20.00 Fjölnir og Fram mætast í 1.
deild karla.
20.00 Þróttur og Leiknir mætast í
1. deild karla.
■ ■ SJÓNVARP
16.45 Landsmót hestamanna
á Rúv. Endursýndur þáttur frá því í
gær með samantekt þriðjudagsins.
Það er Samúel Örn Erlingsson sem
tekur saman, en hann er staddur í
Skagafirði á Landsmótinu.
19.50 Fylkir og ÍBV á Sýn.
Bein útsending frá leik liðanna í
Árbænum.
21.40 Landsmót hestamanna
á Rúv. Samantekt dagsins með
Samúel Erni Erlingssyni.
22.00 Landsbankamörkin á Sýn.
Öll mörk og tilþrif 9. umferðar.
22.20 Íþróttakvöld á Rúv.
FÓTBOLTI Brasilíski framherjinn
Ronaldo skráði nafn sitt með
gylltu letri á spjöld knattspyrnu-
sögunnar í gær þegar hann skoraði
eitt marka Brasilíu í 3-0 sigri á
Ghana í sextán liða úrslitum HM.
Ronaldo hefur þar með skorað
fimmtán mörk á HM en það hefur
engum öðrum leikmanni tekist.
Gerd Muller átti metið en þrjú
mörk Ronaldos í keppninni til
þessa hafa lyft honum yfir
Þjóðverjann skotfasta.
„Ég er mjög ánægður með
úrslitin og að hafa bætt metið,“
sagði Ronaldo en Adriano og Ze
Roberto skoruðu hin mörkin í
leiknum en mark Adriano var
mjög umdeilt en hann virtist vera
rangstæður. Ghanamenn kvörtuðu
síðan yfir því að dómarinn hefði
dregið taum Brasilíumanna í
leiknum og höfðu nokkuð til síns
máls. - hbg
Braslía í átta liða úrslit á HM eftir 3-0 sigur á Gana:
Ronaldo sló marka-
met Gerds Mullers
MÖRKIN FIMMTÁN Ronaldo sést hér fagna öllum mörkunum fimmtán. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
FÓTBOLTI Harry Kewell gat ekki
leikið með Áströlum gegn Ítalíu í
fyrradag þar sem hann var með
þvagsýrugigt. Þetta upplýsti Scott
Chipperfield, liðsfélagi hans.
Þvagsýrugigt er afar sársauka-
fullur sjúkdómur sem leggst á
smáliði í útlimum, oftast stóru tá.
Þvagsýrukristallar, sem líkaminn
losar sig venjulega við í þvaginu,
berast í þessu tilviki með blóðinu
út í liðina með þeim afleiðingum
að minnsta hreyfing verður mjög
sársaukafull.
„Hann getur ekki gengið og
verður að styðjast við hækjur.
Honum líður hræðilega illa,“ sagði
Chipperfield. - esá
Harry Kewell:
Er með þvag-
sýrugigt
HARRY KEWELL Kom Áströlum í 16-liða
úrslit en þvagsýrugigt varð kappanum að
falli. NORDIC PHOTOS/AFP
FÓTBOLTI „Þetta er líklega erfiðasti
leikur sem ég hef dæmt á ferlinum
hvað varðar grófleika leikmanna,“
sagði rússneski dómarinn Valentin
Ivanov, sem dæmdi leik Hollands
og Portúgals í 16-liða úrslitum
HM. Portúgal vann leikinn, 1-0, en
Ivanov lyfti gula spjaldinu sextán
sinnum í leiknum og því rauða
fjórum sinnum. Það er met í
heimsmeistarakeppninni og hefur
Ivanov mátt þola mikla gagnrýna
fyrir. - esá
Valentin Ivanov dómari:
Erfiðasti leikur
ferilsins
16-liða úrslit:
BRASILÍA-GHANA 3-0
1-0 Ronaldo (5.), 2-0 Adriano (45.), 3-0 Ze
Roberto (84.).
SPÁNN-FRAKKLAND X-X
1-0 David Villa (28.), 1-1 Frank Ribery (41.), 1-2
Patrick Vieira (83.), 1-3 Zinedine Zidane (90.).
HM 2006
ÚRSLIT GÆRDAGSINS
FÓTBOLTI Hið dapra lið Frakka á
HM rankaði við sér í gær og sló út
sprækt lið Spánverja í sextán liða
úrslitum HM. Frakkar höfðu lítið
getað í keppninni fram að þessu
en Spánverjar fóru að sama skapi
á kostum í riðlakeppninni. Að því
er ekki spurt í útsláttarkeppninni
og reynsla Frakka vó þungt í gær.
Frakkar höfðu yfirhöndina
þegar Lilian Thuram braut klaufa-
lega á Pablo á 28. mínútu. David
Villa tók vítið og skoraði örugg-
lega, 1-0 fyrir Spán. Frakkar létu
ekki bugast og Frank Ribery
jafnaði fyrir þá fjórum mínútum
fyrir leikhlé þegar hann fékk góða
stungusendingu frá Patrick Vieira,
hljóp fram hjá Casillas í markinu
og lagði boltann í tómt markið.
Staðan 1-1 og loksins mark hjá
Ribery sem hefur fengið fjölda
færa á mótinu.
Luis Aragones, þjálfari Spán-
verja, tefldi djarft í síðari hálfleik
og setti Joaquin og Luis Garcia inn
á völlinn á 54. mínútu. Við það tóku
Spánverjar aftur völdin en gekk
samt illa að brjóta niður frönsku
vörnina. Leikurinn var á leið í
framlengingu þegar Spánverjar
gleymdu Patrick Vieira í teignum
á 83. mínútu og hann skallaði auka-
spyrnu Henrys í netið.
Spánverjar reyndu hvað þeir
gátu að jafna undir lokin án
árangurs. Um leið opnaðist vörn
þeirra og Zinedine Zidane fékk
uppreisn æru þegar hann skoraði
þriðja markið í uppbótartíma.
Langbesti leikur Frakka í keppn-
inni er staðreynd og þeir verða til
alls líklegir gegn Brasilíu, spili
þeir svona áfram.
Sorgarsaga Spánverja heldur
aftur á móti áfram og niðurstaða
mótsins eru þeim klárlega mikil
vonbrigði. henry@frettabladid.is
Frakkar vöknuðu til lífsins
Dapurt gengi Spánverja á stórmótum hélt áfram í gær þegar Spánverjar töpuðu
fyrir Frökkum í sextán liða úrslitum HM, 3-1. Frakkar mæta næst liði Brasilíu.
FRANSKUR FÖGNUÐUR Frakkar sýndu nýja taka gegn Spáni í gær og komust áfram. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
MIÐVIKUDAGUR 28. júní 2006 19