Fréttablaðið - 17.07.2006, Blaðsíða 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
������������������������������
������������������������������
��������������
�������
����������
����
������������
�������������� �
����������
�������������������
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
2
4
9
5
Sævarhöfða 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opið: Mánudaga – föstudaga kl. 9.00 - 18.00 og laugardaga kl. 12.00 - 16.00
Vegna góðs stuðnings frá Nissan getum við nú í takmörkuðu magni
boðið enn þá betra verð á Nissan X-Trail. Nissan X-Trail hefur hlotið
ótal verðlaun og viðurkenningar og þú einfaldlega finnur ekki betri
kaup í dag á jeppa í sama stærðarflokki.
Önnur tilboð frá Nissan gilda ekki með þessu tilboði.
17" álfelgur, 4x4, litað gler, 6 diska geislaspilari, 3 drifstillingar,
loftkæling, sjálfskipting, útvarpsfjarstýring í stýri, sóllúga.
Borgaðu minna fyrir meiri lúxus!
Ríkulegur staðalbúnaður
SUMARTILBOÐ NISSAN
SPARAÐU
HÁLFA MILLJÓN
KOMDU OG REYNSLUAKTU
Umboðsmenn
um land allt
Njarðvík
421 8808
Akranesi
431 1376
Höfn í Hornafirði
478 1990
Reyðarfirði
474 1453
Akureyri
461 2960
TAKMARKAÐ MAGN!
Verð áður 3.490.000 kr.
Nissan X-Trail Sport
Verð aðeins 2.990.000 kr.
NISSAN X-TRAIL
Stærsta vandamál sem steðjar nú að íslensku þjóðinni er sú
linkind sem almenningi hefur
verið sýnd mörg undanfarin ár. Í
því sambandi má benda á þá
fáránlegu ákvörðun að Íbúðalána-
sjóður skyldi gera auralausu fólki
kleift að eignast húsnæði. Meðan
bankarnir voru í ríkiseigu gátu
stjórnmálamenn komið í veg fyrir
aðgengi almennings að pening-
um, enda er það ljóst að peningar
í höndum þeirra sem kunna ekki
með þá að fara eru eins og hnífar
og skæri í höndum óvita.
ÍSLENSKIR athafnamenn sem
eru í rauninni gangandi líknarfé-
lög ákváðu fyrir nokkru að fara
að dæmi víkinganna, forfeðra
sinna, og láta takmarkaðar eigur
íslensks almennings í friði að en
gera þess í stað svonefnda útrás.
Því miður hafa ýktar fréttir af
hinu erlenda herfangi leitt til
þenslu í íslensku efnahagslífi.
Fólk veltir sér upp úr svimandi
háum lágmarkslaunum, og fyrir
nauðaómerkileg störf eins og
barnagæslu og aðhlynningu aldr-
aðra eru goldnar þvílíkar fjár-
fúlgur að Seðlabanki Íslands
hefur ekki undan við að prenta
peninga og hefur sett sér það tak-
mark að ná stýrivöxtum upp í 16
prósent að fyrirmynd hinnar
virtu fjármálastofnunar, Seðla-
bankans í Simbabve.
ÞETTA kann vitaskuld ekki góðri
lukku að stýra og því ber að fagna
að ríkisstjórnin hefur látið þau
boð út ganga að nýkjörnum
sveitarstjórnum sé bannað að
efna léttúðug kosningaloforð og
að draga skuli úr íbúðalánum til
að lækna auralaust fólk af þeirri
þráhyggju að vilja eignast hús-
næði. Sem betur er nokkuð síðan
forystumenn ASÍ öðluðust skiln-
ing á því að launahækkanir þjóna
engum tilgangi öðrum en að leiða
til verðhækkana sem aftur leiða
til langra og leiðinlegra samn-
ingafunda og hafa því losað aðild-
arfólk sambandsins úr vítahring
launahækkana.
ÓÞARFI er að kvíða því efna-
hagshruni sem fylgir því að
almenningur hafi peninga handa
á milli. Ríkisstjórnin hefur inn-
réttað afdrep fyrir sparnaðarsér-
fræðing sinn Alfreð Þorsteinsson
á efstu hæð Blóðbankans sem
sérstakt tákn um að héðan í frá
muni hvorki dropi af svita né
blóði almennings fara til spillis.
Sviti og blóð