Fréttablaðið - 17.07.2006, Blaðsíða 6
6 17. júlí 2006 MÁNUDAGUR
HÚSVERND Lóðareigandi Ellingsen-
reitarins getur líklega krafist
skaðabóta ef fallið verður frá nið-
urrifi Alliance-hússins svokallaða.
Samkvæmt
heimildum
Fréttablaðsins
getur hann hugs-
anlega farið fram
á hundruð millj-
óna króna í
bætur.
Deiliskipulag
fyrir Ellingsen-
reitinn var sam-
þykkt árið 2005 í
borgarráði Reykjavíkur eftir að
hafa verið kynnt borgarbúum. Þar
er gert ráð fyrir að hús sem nú
standa á reitnum verði rifin.
Í aðdraganda deiliskipulagsins
var það fyrst kynnt almenningi
árið 2003 og var þar gert ráð fyrir
að hið svokallað Alliancehús, sem
stendur á umræddum reit, fengi
að standa áfram.
Magnús Skúlason, forstöðumað-
ur Húsafriðunarnefndar Ríkisins,
segir að við frekari vinnslu deili-
skipulagsins hafi pressa frá hags-
munaaðilum orðið til þess að fallið
var frá fyrirætlunum um varð-
veislu hússins. Þar sem húsið er
ekki byggt fyrir 1918, er ekki skylt
að leita álits Húsafriðunarnefndar
og því fór þessi breyting framhjá
nefndinni, að sögn Magnúsar.
Borgarminjavörður gerði húsa-
könnun á Alliance-húsinu, fór yfir
það og kannaði árið 2003 og gerði
engar athugasemdir við að húsið
yrði rifið. Deiliskipulag fyrir
svæðið, sem gerði ráð fyrir niður-
rifi hússins, var svo auglýst og
samþykkt, án þess að athugasemd-
ir bærust varðandi það.
Magnús segir það mistök af
hálfu borgarminjavarðar að hafa
ekki lagst gegn eyðileggingu húss-
ins, en Húsafriðunarnefnd þurfi
líka að axla ábyrgð. „Auðvitað
hefðum við átt að vera á verði
þegar deiliskipulagið var auglýst
árið 2005 og sjá að ekki var gert
ráð fyrir húsinu lengur,“ segir
Magnús. „En við getum ekki fylgst
með öllu sem er að gerast á land-
inu, í öllum sveitarfélögum.“
Ekki náðist í Guðnýju Gerði
Gunnarsdóttur borgarminjavörð,
vegna sumarleyfa, en Gerður
Róbertsdóttir hjá Minjasafni
Reykjavíkur segir að í dag myndi
húsið fá aðra meðferð. „Tímarnir
breytast svo fljótt, það eru allt
aðrir tímar í dag og önnur við-
horf gagnvart húsum þessarar
tegundar,“ segir Gerður. „Þegar
húsið var metið, var fyrst og
fremst verið að meta húsið út frá
byggingalist og byggingasögu en
ekki eins mikið verið að hugsa
heildarmyndina er varðar
atvinnusögu.“ aegir@frettabladid.is
Minjavörður gerði engar
athugasemdir við niðurrif
Ef fallið verður frá niðurrifi Alliance-hússins gæti það kostað Reykjavíkurborg hundruð milljóna. Borgar-
minjavörður skoðaði húsið áður en deiliskipulagið var samþykkt og lagði ekki til að það yrði varðveitt.
ALLIANCE-HÚSIÐ VIÐ MÝRARGÖTU Búast má við skaðabótakröfu upp á milljónir króna ef
fallið verður frá niðurrifi hússins. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
MAGNÚS SKÚLA-
SON
SUÐURLAND Eigendur Ytri-Sól-
heimajarða unnu mál gegn
íslenska ríkinu fyrir Héraðsdómi
Suðurlands. Felldur var niður
úrskurður óbyggðanefndar frá
því í desember 2004 um að landið
Hvítmaga í Mýrdalshreppi teld-
ist þjóðlenda.
Óbyggðanefnd komst að þeirri
niðurstöðu að svæðið væri ekki
eignarland samkvæmt heimild-
um og fordæmum heldur þjóð-
lenda. Eigendur Ytri-Sólheima-
jarða mótmæltu þessum úrskurði
og vísuðu meðal annars í land-
nám Loðmundar gamla eins og
því er lýst í Landnámu. - ap
Þjóðlendumál í héraðsdómi:
Úrskurður
felldur úr gildi
RÚSSLAND, AP Mikhaíl Gorbatsjev,
fyrrverandi forseti Sovétríkjanna
sálugu, hefur varað við því að
samband Rúss-
lands og Banda-
ríkjanna sé
komið á suðu-
punkt. Hann
kennir Banda-
ríkjunum um
þessa þróun og
segir stjórnvöld
hafa misnotað
aðstöðu sína
sem mesta stór-
veldi heims í kjölfar falls Sovét-
ríkjanna.
„Við erum ekki litli bróðir
þeirra,“ segir Gorbatsjev um
Bandaríkin. „Þeir reyndu að
byggja upp stórveldi og vildu
stjórna og ráða yfir öðrum. Það
gekk ekki hjá þeim.“ Hann lét
ummælin falla fyrir fund G-8 ríkj-
anna, átta stærstu iðnvelda heims,
í Pétursborg. - sgj
Gorbatsjev harðorður:
Segir Banda-
ríkin ráðrík
MIKHAÍL GORBATSJEV
INNBROT Nýlega var brotist inn í
kjallara á einbýlishúsi að Laufás-
vegi í Reykjavík, skáhallt á móti
bandaríska sendiráðinu, og verk-
færum stolið að andvirði 250.000
krónur. Sigrún Steina Valdimars-
dóttir, annar húsráðenda, finnst
málið skrítið og gagnrýnir stjórn-
völd fyrir að upplýsa almenning
ekki betur um skipulagða glæpi.
„Maður hefði ekki trúað því að
þjófarnir létu til skarar skríða
vegna öryggisgæslunnar við banda-
ríska sendráðið, auk þess sem lög-
reglubíll fer í reglulegar eftirlits-
ferðir um hverfið,“ segir Sigrún.
„Svo eru verkfærin níðþung þannig
að þjófarnir neyddust til að flytja
þau burt með trillu, sem við áttum í
garðinum. Þeir hefðu átt að draga
einhverja athygli að sér við þessar
kringumstæður.“
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Sigrún verður fyrir því að brotist
er inn til hennar. Í janúar á síðasta
ári var innbrot framið á heimili for-
eldra Sigrúnar í Seljahverfi, á
meðan hún og eiginmaður hennar
bjuggu þar tímabundið. Tölvu, staf-
rænni myndavél, tveimur farsím-
um og skartgripum var stolið í það
sinn.
Sigrúnu finnst lögregla ekki
hafa staðið sem skyldi í þessum
tilvikum. „Í fyrra skiptið fylgdi
hún málinu ekkert eftir og ég er
vonlítil um að lausn fáist í þetta
sinn.“ - rve
Bíræfnir þjófar brutust inn í íbúð við Laufásveg:
Stálu níðþungum verkfærum
INNBROT Aðfaranótt sunnudags varð
rithöfundurinn og blaðamaðurinn
Þorgrímur Gestsson fyrir því óláni
að brotist var inn heima hjá honum
að Austurgötu 17 í Hafnarfirði og
tveimur tölvum ásamt ADSL-teng-
ingu stolið. Í annarri tölvunni eru
drög að bók sem Þorgrímur er vinna
að og átti að koma út í haust.
„Efnið byggir á 13,5 klukku-
stunda löngum samtölum við Guð-
rúnu Halldórsdóttur, skólastjóra
Námsflokkanna,“ segir Þorgrímur
og bætir við að tjónið sé ómetanlegt
vegna innihaldsins, sem engin afrit
eru til af.
Glæpurinn er enn óhugnanlegri
fyrir þá staðreynd að Þorgrímur
svaf á efri hæð hússins á meðan
þjófarnir gerðu sér lítið fyrir og
létu greipar sópa á þeirri neðri.
„Þeir beittu ótrúlegri leikni við að
fara inn um dyr niðri og sóttu bast-
körfu inn í þvottahús til að nota
undir þýfið áður en þeir hurfu á
brott,“ segir Þorgrímur.
„Tölvurnar eru raunverulega
aukatriði í þessu máli. Efnið skiptir
mestu máli og ég yrði þjófunum
óendanlega þakklátur ef þeir sýndu
þann manndóm að skila því á tölvu-
pósti til mín.
Efnið er geymt í möppu undir
heitinu gudrunhalldorsdottir og
netfangið mitt er thorg@vortex.
is.“ - rve
Rithöfundur svaf meðan þjófar brutust inn í íbúð hans og stálu tölvum:
Drögum að handriti stolið
VETTVANGUR GLÆPSINS Sigrún sýnir hérna hvernig þjófarnir komust inn um kjallaraglugga
hússins. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
ÞORGRÍMUR GESTSSON Vonast til að
þjófarnir skili drögunum að handritinu.
KJÖRKASSINN
Finnst þér dagskrárgerð í
íslensku sjónvarpi vönduð?
Já 23%
Nei 77%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Á að hækka bílprófsaldurinn
í 18 ár?
Segðu skoðun þína á Vísi.is