Fréttablaðið - 17.07.2006, Blaðsíða 10
17. júlí 2006 MÁNUDAGUR
SMÁRALIND SÍMI 545 1550 GLÆSIBÆ SÍMI 545 1500 KRINGLUNNI SÍMI 545 1580
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
TI
3
30
64
06
/2
00
6
Flugustangasett
Tilboð 21.490kr.
Verð áður 24.990 kr.
Lífstíðarábyrgð.
Önnur sett frá 14.700 kr.
Slate vöðlujakki
Tilboð 19.990kr.
Slate öndunarvöðlur
Tilboð 29.900kr.
Verð áður 37.990 kr.
Vangen mittisvöðlur
Tilboð 10.990kr.
Verð áður 14.990 kr.
Verð áður 24.990 kr.
1.390.000,- Bílumst!
Nýr, fallegri og miklu
betri Opel.
��� �����������������������������������������������������������������
��� ��������������������������������������������������������
�������������������������� ���������
����������������������������� ��� �����
������ �����������������
����������������� ������������������������ ���������
����������������� ���������� �
����� ����������� ����������������������
SVÍÞJÓÐ Tvær vændiskonur með
HIV hafa verið handteknar í
Gautaborg grunaðar um mök við
hundruð karla án þess að láta þá
vita af því að þær væru HIV-
jákvæðar. Báðar handtökurnar
hafa vakið mikinn ótta í Gauta-
borg. Karlarnir hafa verið kallaðir
í kynsjúkdómapróf.
Yngri vændiskonan var hand-
tekin í byrjun júlí. Talið er að hún
tengist mansali og hafi gert út
vændiskonur í vændishverfi í
Gautaborg. Hún tók einnig á móti
viðskiptavinum heima hjá sér, að
sögn vefútgáfu Aftonbladet.
Rannsókn lögreglunnar sýnir
að konan hafi komið til landsins
með fótboltaliði frá Tansaníu árið
2003. Kvöldið áður en liðið átti að
fljúga heim hurfu tvær stúlkur.
Árið eftir kom liðið aftur til Sví-
þjóðar og þá varð James Waore,
lífvörður liðsins, var við aðra
stúlkuna.
Vændiskonan virtist hafa alist
upp sem götubarn, að sögn
Expressen, og notað tækifærið til
að flýja það líf. „Hún bjó með
sænskum, aðeins eldri karlmanni
og bauð nokkrum úr liðinu heim,“
segir hann. „Hún var glöð og marg-
ir í liðinu voru öfundsjúkir. Þeim
fannst flott að umgangast hana.“
Ekki kemur fram hvort eldri
vændiskonan, sem hefur verið
handtekin, sé hin stúlkan sem
hvarf eða einhver önnur. - ghs
Tvær vændiskonur með HIV handteknar í Gautaborg:
Hundruð karla
í kynsjúkdómapróf
DANMÖRK Danir fara oftar út að
borða nú en nokkurn tímann áður,
og sannast það í þeirri staðreynd
að velta veitingastaða í Danmörku
jókst um tæpa tvo milljarða
danskra króna á síðasta ári. Þetta
kemur fram á fréttasíðu danska
blaðsins Politiken.
Þetta þýðir að danska þjóðin
fór níu milljón sinnum oftar út að
borða í fyrra en árið þar á undan,
sem er gríðarmikil aukning því
lítil hreyfing hefur verið á veit-
ingahúsamarkaðinum undanfarin
ár. Samt sem áður er fjórða hverj-
um veitingastað í Kaupmannahöfn
lokað aftur áður en ár er liðið frá
opnun hans.
Greiningin tók til veitinga-
staða, kaffihúsa, ölkráa og skyndi-
bitastaða. - smk
Danskir matarsiðir:
Fleiri Danir
fara út að borða
MATARINS NOTIÐ Fleiri Danir fara út að
borða nú en nokkurn tímann áður.
NORDICPHOTOS/AFP
ÍRAK, AP Íraskar öryggissveitir
tóku fyrir helgi við öryggisgæslu í
einu af héruðum Íraks, Muthanna,
sem er fyrsta héraðið í Írak sem
afhent er heimamönnum.
Tiltölulega friðsælt hefur
verið í Muthanna, en þar búa um
550 þúsund manns, flestir sjía-
múslimar. Breskir og ástralskir
hermenn hafa séð um öryggis-
gæslu í héraðinu ásamt sveit jap-
anskra hermanna.
Bresku og áströlsku hermenn-
irnir ætla að vera áfram til taks í
næstu héruðum, en japanska her-
sveitin heldur heim til sín. Japan-
ar eru þessa dagana að draga allt
herlið sitt frá Írak.
Nouri Al-Maliki, forsætisráð-
herra Íraks, hefur sagst vera
bjartsýnn á að íraskar öryggis-
sveitir gætu axlað ábyrgð á öllum
héruðum landsins innan eins og
hálfs árs. Muthanna-hérað verði
aðeins fyrsta skrefið í þá átt.
„Þið getið verið viss um að
hryðjuverkamenn vilja eyðileggja
og koma í veg fyrir að við tökum
öryggismálin í okkar hendur,“
sagði Al-Maliki þegar haldin var
afhendingarathöfn í héraðshöfuð-
borginni Samawah. „Þeir munu
einskis láta ófreistað að eyðileggja
þetta skref og tryggja að fleiri
skref verði ekki tekin í þessa átt.“
- gb
JAPANAR KVEÐJA Toshihiro Yamanaka, yfirmaður japanskrar herdeildar í héraðinu
Muthanna í Afganistan, tekur í höndina á leiðtoga eins af ættbálkum heimamanna.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Breskir og ástralskir hermenn farnir frá Muthanna:
Írakar taka við
öryggisgæslu