Fréttablaðið - 28.07.2006, Síða 2

Fréttablaðið - 28.07.2006, Síða 2
2 28. júlí 2006 FÖSTUDAGUR SKRIFSTOFUVÖRUR ODDI SKRIFSTOFUVÖRUR ER UMBOÐS- OG ÞJÓNUSTUAÐILI Á ÍSLANDI Borgartúni 29 • Sími 515 5170 • Opið virka daga kl. 8 - 18 • laugardaga kl. 11 - 16 Höfðabakka 3 • Sími 515 5105 • Opið virka daga kl. 8 - 18 • Pantanasími 515 5100 H Ö N N U N O D D I V O B 4 1 6 3 SLYS Maðurinn sem slasaðist þegar hann ók flutningabíl með brota- járnsfarm fram af veginum efst á Bessastaðafjalli í Fljótsdal í fyrra- dag hefur verið útskrifaður af Heilsugæslunni á Egilsstöðum. Maðurinn, sem er hollenskur en ekki pólskur eins og misfórst í Fréttablaðinu í gær, slapp ótrú- lega vel og hlaut aðeins minnihátt- ar meiðsl. Hann rifbeinsbrotnaði, hlaut skurð á höfuð og marðist vegna bílbelta. Að sögn Sveins Ásgeirssonar, annars eiganda Hringrásar, vill maðurinn ólmur komast undir stýri aftur. - æþe Bílslysið í Fljótsdal: Ökumaðurinn útskrifaður STJÓRNMÁL Steinunn Valdís Ósk- arsdóttir, borgarfulltrúi Samfylk- ingarinnar og fyrrverandi borgar- stjóri í Reykjavík, sest á skólabekk í Háskóla Íslands í haust. „Ég ætla í meistaranám í opin- berri stjórnsýslu,“ sagði Stein- unn Valdís Hún tekur námið samhliða vinnu sinni í borgar- stjórn en hún situr í borgar- ráði og fram- kvæmdaráði fyrir flokk sinn. Þá situr hún í stjórn Lands- virkjunar. Steinunn Valdís hefur verið orðuð við þing- framboð í vor en segist ekkert hafa ákveðið í þeim efnum. „Ég er oft spurð út í þetta og ætla að velta málinu fyrir mér á skólabekk í vetur,“ segir hún og bætir við að hún telji hollt fyrir fólk að fara í skóla og endurnýja sjálft sig. - bþs Steinunn Valdís Óskarsdóttir: Íhugar þing- framboð STEINUNN VALDÍS ÓSKARSDÓTTIR HEILBRIGÐISMÁL Nú er ljóst að ný áhætturannsóknarstofa við til- raunastöð Háskóla Íslands í meina- fræði að Keldum verður ekki til- búin 1. febrúar næstkomandi, eins og stefnt hafði verið að. Ástæðan er stöðvun sem stjórnvöld settu á útboð allra opinberra fram- kvæmda fyrir um það bil mánuði, að sögn Helga Helgasonar fram- kvæmdastjóra tilraunastöðvar- innar. Fyrri áfangi framkvæmd- anna er nú tilbúinn til útboðs. „Við reynum að gera okkar besta til að vinna upp þann tíma sem tapast hefur ef við fáum grænt ljós frá stjórnvöldum,“ segir Helgi. „Þarna er fyrirhuguð rannsóknarstofa til að greina fugla vegna fuglaflensu og önnur dýr vegna sjúkdóma. Þar verður krufn- ingastofa fyrir sérstakar aðstæður svo og áhættugreiningastofa. Við stefnum að því að rífa gamalt hús sem er úr sér gengið og byggja þetta á þeim grunni. Þá þarf sér- staka loftræstingu til að vernda starfsfólkið sem vinnur við rann- sóknirnar þannig að það smitist ekki af þeim dýrum sem það er að vinna með hverju sinni.“ Helgi undirstrikar að mikil- vægt sé að málinu verði hraðað vegna hugsanlegrar hættu á fuglaflensu og dýrasjúkdómum hér á landi. Ríkisstjórnin hafði samþykkt að heimila níutíu milljónir króna til uppbyggingar rannsóknar- og krufningaaðstöðu á Keldum, þegar umræðan um hættu á að farfuglar myndu bera hingað fuglaflensu í vor var í hámarki. Að sögn Helga er hönnun fyrri hluta verksins lokið og sá hluti bíður nú útboðs. Hann kveðst hafa sent beiðni um undanþágu frá útboðsbanni til menntamálaráðuneytisins en ekk- ert svar hafi borist enn. „Við fengum leyfi til að hefja hönnunarvinnuna en nú er málið í bið,“ segir hann. „Það er afar áríð- andi að verkinu ljúki áður en hætta á fuglaflensusmiti hér á landi eykst á nýjan leik næsta vetur, þegar farfuglarnir fara að koma aftur til landsins. Útboðið hefur þegar tafist í um það bil mánuð, sem er afar bagalegt.“ Vilhjálmur Lúðvíksson, skrif- stofustjóri í menntamálaráðuneyt- inu, segir að málið sé nú í vinnslu á borði stjórnvalda. Ráðast muni á næstu dögum hvort undanþága verði veitt þannig að útboð geti farið fram. jss@frettabladid.is RANNSÓKNARSTOFA Byggja á upp aðstöðu fyrir áhætturannsóknir á Keldum, sem felast meðal annars í því að kryfja dauða fugla. Tafir á aðstöðu fyrir áhætturannsóknir Aðstaða fyir áhætturannsóknir sem byggja átti upp á Keldum fyrir 1. febrúar verður ekki tilbúin í tæka tíð. Ástæðan er stöðvun sem stjórnvöld settu á útboð allra opinberra framkvæmda, að sögn Helga Helgasonar framkvæmdastjóra. GRÆNLAND Jonathan Motzfeldt, for- maður grænlenska landsþingsins, er kominn til meðvitundar og hefur verið fluttur af gjörgæsludeild Landspítalans, þar sem hann hefur legið meðvitundar- laus í öndunarvél undanfarna daga. Motzfeldt var greindur með lungnabólgu og nýrnabilun vegna bakteríusýkingar. Alma Möller, yfirlæknir á gjörgæsludeild, segir Motzfeldt hafa verið tekinn úr önd- unarvél á þriðjudag og útskrifaðan af gjörgæslu í gær. Alma segir Motzfeldt nú liggja á nýrnadeild Landspítalans og að líðan hans sé eftir atvikum góð. - shá Jonathan Motzfeldt: Kominn til meðvitundar JONATHAN MOTZ- FELDT SPURNING DAGSINS Arthur, á að gefa veiðileyfi á skemmtibátaeigendur? „Tvímælalaust. Veiðileyfið verði háð „veiða/sleppa“ aðferðinni og gildi frá 13.30 til hálf tvö.“ Eigendur skemmtibáta fengu úthlutað kvóta í þorski fyrir skemmstu. Landsamband smá- bátaeigenda hefur gagnrýnt þetta þar sem aðrir fá minna úr að moða. Arthur Bogason er formaður sambandsins. ELDHÆTTA Gríðarlega erfitt yrði að forða fólki úr Hvalfjarðargöngum ef kviknaði í olíuflutningabíl inni í þeim, að sögn slökkviliðsstjóra í Borgarnesi. „Enginn hættir sér inn í göngin ef þar brenna þrjátíu þúsund lítrar af bensíni, bíllinn yrði látinn brenna,“ segir Bjarni Kristinn Þorsteinsson, slökkviliðsstjóri í Borgarnesi. „Það er ólíklegt að aðrir bílar gætu forðað sér, þarna yrði mannskaði. Reykurinn færi á tveggja metra hraða á sekúndu um göngin, bílar virkuðu ekki og allt yrði súrefnislaust. Við mund- um ekki fórna fleiri mannslífum fyrir færri.“ Í viðbragðsáætlun Hvalfjarðar- ganga segir að nær útilokað sé fyrir slökkviliðið að slökkva eld í venjulegum vöruflutningabíl. Ef um eldsneytisflutningabíl er að ræða gæti bruninn valdið hrun- hættu úr bergi vegna mikils hita. Bjarni segir einnig marga vöru- bílstjóra ekki hafa hugmynd um hvað þeir eru að flytja í bílunum. „Þeir gætu verið að flytja klór eða rafgeyma, en þetta er aldrei skoð- að,“ segir Bjarni. „Hér fara í gegn hjá okkur að jafnaði um tveir stór- ir bílar með flugvélaeldsneyti til Akureyrar í hverri viku og það er einungis Guði og lukkunni fyrir að þakka að ekki hefur farið illa.“ Samgönguráðuneytið hefur ósk- að eftir því við Umferðarstofu að athugun fari fram á hættu við að flytja eldsneyti um Hvalfjarðar- göng. Búist er við niðurstöðum úr þeirri vinnu í haust. - sgj Ef kviknar í olíuflutningabíl í Hvalfjarðargöngunum mun slökkvilið lítið geta gert: Mannskaði ef eldur brýst út STÓRFLUTNINGAR UM HVALFJARÐARGÖNG Eldsneytisflutningabílar mega einungis fara gegnum göngin á ákveðnum tímum dags, en slökkviliðsstjóri telur það mikla mildi að ekki hafi orðið slys. LÍBANON, AP Ayman al-Zawahri, Egyptinn sem sagður er standa næst Osama bin Laden að völdum í al-Kaída, hótaði í árásum um heim allan í ávarpi á myndbandi, sem sýnt var í gær. „Við getum ekki bara horft á þessar sprengjur þegar þær brenna bræður okkar á Gaza og í Líbanon og setið hjá aðgerðar- lausir og auðmýktir,“ sagði hann og hvatti alla múslima til þess að grípa til vopna. „Þetta er heilagt stríð í þágu guðs og það mun geisa þar til trú okkar ríkir allt frá Spáni til Íraks,“ sagði hann. „Við munum gera árásir alls staðar.“ Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, sagði aftur á móti á ríkis- stjórnarfundi í gær að markmið árásanna á Líbanon væru að nást og Amir Peretz varnarmálaráð- herra sagði að Hizbollah-samtökin yrðu ekki svipur hjá sjón í fram- tíðinni. Ísraelsstjórn sagðist í gær hafa tekið þá ákvörðun að árásirn- ar yrðu ekki hertar frá því sem verið hefur, en að minnsta kosti 30 þúsund Ísraelar hafa verið kallað- ir í herinn og eru að hefja þjálfun. Lítill árangur varð á alþjóða- ráðstefnunni um Líbanon, sem haldin var í Róm á miðvikudag. Þar var þó ákveðið að senda alþjóð- legt friðargæslulið til Líbanons, en alls óvíst er hvernig það gæslu- lið verður samansett eða hvenær það fer. - gb Í RÚSTUM HEIMILIS Þessi maður í Líbanon notaði kodda til þess að slökkva eld eftir að flugskeyti féll á hús í bænum Zifta. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Næstæðsti ráðamaður al-Kaída bregst við árásum Ísraela á Líbanon og Gaza: Al-Kaída boðar árásir JERÚSALEM, AP Í gær sagði Haim Ramon, dómsmálaráðherra Ísraels, að þar sem engin niðurstaða fékkst á alþjóðaráðstefnunni um Líbanon, sem haldin var í Róm á miðviku- dag, þá hljóti Ísraelar að líta svo á að þeir hafi fengið „grænt ljós“ til þess að halda áfram árásum sínum „þangað til Hizbollah hefur verið hrakið frá Líbanon og afvopnað“. Erkki Tuomioja, utanríkisráð- herra Finnlands, sagði þessa túlkun Ísraela á niðurstöðu ráð- stefnunnar vera alranga. Hann talaði þar fyrir hönd Evrópusam- bandsins, þar sem Finnland fer nú með formennsku í framkvæmda- stjórn þess. - gb Evrópusambandið: Ísraelar fengu ekki grænt ljós Helga hættir Helga Jónsdóttir óskaði skriflega eftir lausn frá störfum sem sviðsstjóri stjórnsýslu- og starfsmanna- sviðs Reykjavíkurborgar á borgarráðs- fundi í gær. Staðan verður auglýst á næstu dögum, en Helga sest í bæjar- stjórastól í Fjarðabyggð í haust. SVEITARSTJÓRNARMÁL Maðurinn sem lést í vinnuslysinu við Hellisheiðarvirkjun á þriðjudag hét Frédéric Robert Negro. Hann var fæddur 2. janúar 1957 og var franskur. Fréderic lést þegar jarðveg- ur undir lyft- ara seig og lyftarinn valt. Fréderic stóð á göfflum lyft- arans í sjö til tíu metra hæð. Rannsókn á slysinu stend- ur yfir hjá lögreglunni á Selfossi. Hellisheiðarvirkjun: Lést í vinnuslysi FRÉDÉRIC ROBERT NEGRO FR ÉTTA B LA Ð IÐ /PJETU R
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.