Fréttablaðið - 28.07.2006, Síða 4

Fréttablaðið - 28.07.2006, Síða 4
4 28. júlí 2006 FÖSTUDAGUR ���������������������������������� ������������� ������� ���� �������� �� ��������� ������ ����� ��������� ��������������� ������ �������� �������� ������� ���� ������� �� �������������� �������� �������� ������������� ������������� ������������� ��������������� ����������� ��������������� ����������� ��������������� ��������������� ��������������� ��������������� ��������������� �������������� ����� �������� ����������� ������������������� ����������� ���� ��� �� ������������������� ����� ��������� ���� ��������� ������ ��������� ������������ �������� ���������������������� ���������������������� ����������� ��������� ������ ������ ��� ��� ������ ������������� ����� ��� ���������� ������� � � � � ����������� ���� ������������������������ ����� ��������� ���� ��� ���������������� �� � ������� ��������������� ������ ����������� ����������� �������������� ��� ����������� ������������ ����� �������������� ��������������� ��� ��������� �� ������ �� ���������� ������� �� ��� �� �� �� �� �� �� �� �� �� �� �� � � � � � � � � � � � �� �� �� �� �� �� �� �� �� �� GENGIÐ GENGI GJALDMIÐLA 27.7.2006 Bandaríkjadalur 71,77 72,11 Sterlingspund 133,69 134,33 Evra 91,42 91,94 Dönsk króna 12,253 12,325 Norsk króna 11,538 11,606 Sænsk króna 9,877 9,935 Japanskt jen 0,6207 0,6243 SDR 106,29 106,93 HEIMILD: Seðlabanki Íslands KAUP SALA 126,4215 Gengisvísitala krónunnar ����������������������������������������� ������������ ������������� ������������ ��������������������� ������������������������������������������������������������������� ������ ������� ���� ���� ������ � ������ ����� ��� ��� �� �������������� ��� �������������� ����� AÐSTOÐ Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra hefur ákveðið að íslenska ríkið veiti tíu milljónum króna til mannúðar- og neyðarað- stoðar í Líbanon og sex milljónum til Sameinuðu þjóðanna. Þá verður fjórum milljónum veitt til Hjálparstarfs kirkjunnar og Rauða kross Íslands og skiptist sú upphæð jafnt á milli samtak- anna. Er þeim fjármunum ætlað að efla starf þessara samtaka á átakasvæðunum í Líbanon. - öhö Árásir á Líbanon: Ísland styrkir neyðaraðstoð OSLÓ, AP Atvinnuleysi í Noregi mældist 2,8 prósent í júlí og hækk- aði örlítið milli mánaða, úr 2,6 prósentum í júnímánuði. Töluverð lækkun hefur þó orðið síðan í fyrra, en þá mældist 3,7 prósenta atvinnu- leysi í júlí. Hækkunin síðan í júní er skýrð með sumarleyfum námsfólks, sem streymir í auknum mæli út á vinnu- markaðinn. Í því samhengi hefur raunlækkun atvinnuleysis ekki verið meiri síðan 1998. Á hinum Norðurlöndunum er ástandið einnig þokkalegt. Íslend- ingar eru lægstir með 1,3 prósent, samkvæmt tölum Vinnumálastofn- unar, eða 2,4 prósent samkvæmt Hagstofu Íslands. Næstir koma Færeyingar og Norðmenn með 2,8 prósenta atvinnuleysi. Hæstir eru Finnar með 8,1 prósents atvinnu- leysi. - kóþ Minna atvinnuleysi í Noregi: Mesta raun- lækkun í átta ár ATVINNULEYSI Á NORÐURLÖNDUM LEIT Michal Piecychna, pólskur karlmaður sem hefur verið saknað frá 20. júlí síðastliðinn, er kominn í leitirnar. Hann fannst á hótel- herbergi í Reykjavík í fyrrinótt, heill á húfi. Eiginkona mannsins lýsti eftir honum þegar hann skilaði sér ekki heim og sást síðast til mannsins, sem er liðlega þrítugur, á vappi í Skeifunni klæddur í ljósar buxur, bol og sandala. Maðurinn kom í leitirnar eftir að lögreglunni í Reykjavík barst ábending frá starfsmanni hótelsins. - æþe Pólverjinn kominn í leitirnar: Fannst á hótelherbergi FRAMKVÆMDIR „Á Eyjabökkum er verið að reisa Ufsarstíflu, sem sam- kvæmt umhverfismati á að vera 32 metrar á hæð en er í raun fimm metrum hærri,“ segir Bjarki Bragason, einn tals- manna samtakanna Íslandsvina. Fyrir vikið verði uppi- stöðulónið mun stærra að flatar- máli en greint hefur verið frá. Þessu hafnar Sigurður Arnalds, talsmaður Landsvirkjunar fyrir Kárahnjúkavirkjun. „Við undir- búning framkvæmdanna var áætlað hve þykkt væri á fast en þetta hafði þá lítið verið rannsakað. Svo kom í ljós að lægsti punktur berg- grunnsins er lægri en við töldum. Stíflan er enn jafn marga metra yfir sjávarmáli og miðlunarlónið því óbreytt.“ Bjarki segir einnig að fossaraðir í Jökulsá á Fljótsdal muni þurrkast upp, en nokkrir tilkomumiklir fossar eru í fljótinu. „Það er verið að stífla ána og stöðva framgang hennar í sínum farvegi.“ Því hafnar Sigurður en viðurkennir að framkvæmdirnar hafi áhrif. „Fyrri hluta sumars verður skert rennsli á fossunum en flest ár er rennslið eðlilegt síðari hluta sumars. Við skerðum því fullt rennsli á þá en það er rangtúlkun og ofsagt að við séum að þurrka upp fossa.“ „Eyjabakkar eru í hættu,“ stóð á borða mótmælenda á miðvikudag á veginum upp að Hraunaveitu, norðan Eyjabakka. Bjarki segir greinilegt að ekki hafi verið hlustað á þá 45 þúsund Íslendinga sem skrifuðu undir tillögu þess efnis að vernda bæri Eyjabakka þó almennt hald manna sé að svæðinu hafi verið þyrmt. „Umræðunni er beint frá þessum minni framkvæmdum, sem þó eru gríðarlega umfangsmiklar þegar þær eru skoðaðar.“ Sigurður Arnalds hafnar þessum ásökunum. Hann segir framkvæmt í takt við umhverfismatið frá árinu 2000 og öllum hafi mátt ljóst vera í hvað stefndi. Öll mannvirki séu talsvert langt frá Eyjabökkum og þeim og lífríkinu í engu raskað. „Vilji þeirra sem mótmæltu lóni á Eyjabökkum var virtur. Ekkert nýtt hefur komið fram og ef þetta kemur flatt upp á mótmælendur eru þeir einfaldega ekki nógu vel heima í þessu,“ segir Sigurður. bjorn@frettabladid.is Landsvirkjun sögð raska Eyjabökkum Samtökin Íslandsvinir saka Landsvirkjun um að ganga gegn umhverfismati við byggingu lóns á Eyjabökkum og þurrka að auki upp fossa í Jökulsá á Fljótsdal. Landsvirkjun vísar ásökununum á bug og segir mótmælendur illa upplýsta. SIGURÐUR ARNALDS MÓTMÆLT Á HÁLENDINU Félagar í samtökunum Íslandsvinum hafa ásamt fleirum mótmælt virkjanaframkvæmdum á hálendinu síðustu daga. GRIKKLAND, AP Fimm skólabörn á Grikklandi á aldrinum tólf og þrettán ára hafa verið ákærð fyrir morð á ellefu ára dreng, Alex Mechisvili, sem hefur verið sakn- að frá því í febrúar. Börnin fimm voru yfirheyrð í júní og framburður þeirra varð til þess að viðamikil leit hófst að drengnum, sem staðið hefur í tvo mánuði en engum árangri skilað. Eitt hinna ákærðu barna var í skóla með honum. Samkvæmt grískum lögum má hvorki halda börnunum í fangelsi meðan réttarhaldanna er beðið, né heldur mega þau afplána dóm í fangelsi. - gb Drengs saknað á Grikklandi: Börn ákærð vegna morðs 1,3% 2,8% 2,8% 4,5% 6,3% 7,2% 8,1% ÍSL AN D Fæ rey jar Fin nla nd Græ nla nd Sví þjó ð Da nm örk No reg ur (Miðað við tölur úr maí- og júnímánuði, nema Grænland, en þar er miðað við fyrsta ársfjórðung 2006). Bílvelta hjá Hólmavík Ungur öku- maður missti stjórn á bifreið sinni rétt fyrir utan Hólmavík um hálf tíu leytið í fyrrakvöld með þeim afleiðingum að hún valt. Ökumaður hefur farið of utarlega þegar hann mætti öðrum bíl og farið út í lausamöl við hlið vegarins, sem er tvíbreiður. Ökumaðurinn var einn í bílnum og sakaði ekki, en bíllinn er talinn gjörónýtur. LÖGREGLUFRÉTTIR DÓMSMÁL Tveir menn á þrítugs- aldri hafa verið ákærðir fyrir grófar líkamsárásir í apríl í fyrra. Annar mannanna er einnig ákærður fyrir tvö fíkniefnabrot. Öðrum manninum er gefið að sök að hafa veist að rúmlega þrítugum karlmanni í Borgarnesi aðfaranótt 17. apríl og sparkað í höfuð hans þar sem hann lá á jörð- inni með þeim afleiðingum að hann hlaut glóðaraugu og skurð á enni. Þá er hann sakaður um að hafa slegið annan mann í andlitið á sama stað sama kvöld þannig að hann féll í jörðina. Hinn er ákærður fyrir að hafa þá ráðist að þeim fallna og sparkað í andlit hans með þeim afleiðing- um að hann missti tvær tennur. Hann er einnig ákærður fyrir að hafa haft um tvö grömm af kókaíni og tæpan millilítra af kókaíni í fljótandi formi í vörslu sinni umrætt kvöld. Þá er hann enn fremur ákærður fyrir að hafa reynt að taka á móti tveimur grömmum af kókaíni sem falin voru í sendingu til hans þegar hann dvaldi í ríkisfangelsinu á Akureyri tveimur vikum áður. Sá sem missti tennurnar í árás mannanna fer fram á tæpar sex hundruð þúsund krónur í skaða- bætur. Ákæran var þingfest í Héraðsdómi Vesturlands í gær. - sh Tveir menn á þrítugsaldri hafa verið ákærðir fyrir líkamsárásir í apríl í fyrra: Spörkuðu í liggjandi menn BORGARNES Mennirnir eru ákærðir fyrir að hafa ráðist á tvo menn, annan í samein- ingu, fyrir utan skemmtistað í Borgarnesi. ÁLYKTUN Samtök herstöðva- andstæðinga efna til mótmæla- stöðu vegna átaka Ísraelsmanna og Líbana við sendiráð Banda- ríkjamanna klukkan 17.30 í dag. Í ályktun sem samtökin sendu frá sér í gær skora þau á ríkis- stjórn Íslands að fordæma það sem þeir kalla mannréttindabrot Ísraels í Líbanon og beita sér fyrir því að þau verði stöðvuð tafar- laust. - sh Herstöðvaandstæðingar: Efna til mót- mælastöðu
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.