Fréttablaðið - 28.07.2006, Blaðsíða 6
6 28. júlí 2006 FÖSTUDAGUR
Laugardaginn 29. júlí kl. 10:00 efnir
Orkuveita Reykjavíkur til fræðslugöngu
frá Minjasafninu í Elliðaárdal, upp dalinn
að Gvendarbrunnum.
Meðal annars verður hugað að ánni, örnefnum, jarðfræði,
gróðri og dýralífi. Fjölmargir fræðimenn koma til leiðsagnar.
Gengnir verða um 12 km en boðið
verður upp á akstur til baka um kl. 16:00.
Frekari upplýsingar á www.or.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
R
K
3
35
55
07
/2
00
6
Fræðsluganga um Elliðaárdal
og upp að Gvendarbrunnum
KJÖRKASSINN
Á að stöðva flutning eldsneytis um
Hvalfjarðargöng vegna slysahættu?
Já 86%
Nei 14%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Ert þú fylgjandi eyðingu máva?
Segðu skoðun þína á Vísi.is
FJÁRMÁL Samkvæmt upplýsingum
frá fjármálaráðuneytinu fá tíu þús-
und færri einstaklingar vaxtabæt-
ur þetta árið. Greiðslur vaxtabóta
lækka jafnframt um sjö hundruð
milljónir vegna tekna árið 2005.
Þessa skerðingu má meðal annars
rekja til hækkunar á fasteignamati
um 35 prósent á milli ára.
„Það er óeðlilegt að mínu viti að
hækkun á fasteignamati leiði til
þess að vaxtabætur skerðist,“ segir
Jóhanna Sigurðardóttir, þingmað-
ur Samfylkingar. „Það hefur ekk-
ert breyst í hugum þessa fólks frá
því að það fékk
vaxtabætur í fyrra
nema að fasteigna-
matið hefur verið
að hækka.“
Jóhanna segir
að mörgum muni
bregða í brún
þegar þeir sjá
skerðinguna svart á
hvítu á álagningar-
seðlunum sem berast munu lands-
mönnum á næstu dögum. „Fólk er
búið að reikna með vaxtabótun-
um í sínum útgjöldum fyrir árið
og gerði sér ekki grein fyrir
hversu mikil skerðingin yrði,“
segir Jóhanna.
Í samkomulagi á milli Alþýðu-
sambands Íslands og ríkisstjórn-
arinnar frá því í júní er kveðið á
um að ákvæði laga um vaxtabætur
verði endurskoðuð ef í ljós komi
að hækkun fasteignaverðs verði
til skerðingar á vaxtabótum.
„Fjármálaráðherra verður að
vinda sér í þessa leiðréttingu svo
að fólk fái það sem það reiknaði
með ef ekkert hefur breyst í kjör-
um þess,“ segir Jóhanna. - æþe
Hækkun fasteignamats leiðir til töluverðrar skerðingar á vaxtabótum:
Tíu þúsund fá engar bætur
JÓHANNA
SIGURÐARDÓTTIR
SKIPULAGSMÁL Esso fær takmarkað
byggingarleyfi fyrir bensínstöð
við Hringbraut, en fundargerð frá
byggingarfulltrúa varðandi þetta
var staðfest á borgarráðsfundi í
gær.
„Essó má hefja undirbúning en
ef borgin tekur einhverjar aðrar
ákvarðanir má blása framkvæmd-
ina af hvenær sem er,“ segir Gísli
Marteinn Baldursson borgarfull-
trúi. „Upphaflega átti leyfið fyrir
bensínstöðinni að vera til fjörutíu
ára en nú gildir það aðeins til tíu
ára. Þá mun Landspítali krefjast
lóðarinnar og flytja þyrfti bensín-
stöðina aftur, ef hún verður
reist.“
Gísli Marteinn segir einnig und-
arlegt að ekki hafi verið haft sam-
ráð við umhverfissvið áður en
ákvörðunin um bensínstöðina var
tekin. „Ef þessi bensínstöð rís er
hún fyrst og fremst rauður og sjálf-
lýsandi minnisvarði um skamm-
sýni R-listans í skipulagsmálum.
Við munum tala við Esso-menn um
einhverja lausn á málinu, en það
getur vel verið að við þurfum að
lokum að hafa bensínstöðina þarna,
þar sem búið var að semja um það,“
segir Gísli Marteinn. - sgj
Enn óvíst hvort bensínstöð Essó fær að rísa á byggingareitnum við Umferðarmiðstöðina:
Heimilt að blása framkvæmdina af
REITUR BENSÍNSTÖÐVARINNAR Meiri-
hlutinn í borgarstjórn vill finna bensín-
stöðinni nýjan stað í sátt við Esso.
HEILBRIGÐISMÁL „Í sjálfu sér er
ekkert athugavert við að senda
unga krakka í einkaþjálfun ef um
fagmenntað starfsfólk er að ræða
en sé það gert á öðrum forsendum
en til að styrkja heilbrigði þá er
það vandamál,“ segir Pálmar
Hreinsson, einkaþjálfari og verk-
efnisstjóri hjá Íþróttasambandi
Íslands.
Heimildir Fréttablaðsins herma
að ungmenni allt niður í átta ára
gömul fari reglulega til einka-
þjálfara, mörg hver vegna offitu-
vandamála, en einnig séu dæmi
um að börnin séu þangað send á
öðrum forsendum. Kemur það
fagfólki í stéttinni ekki á óvart en
margir þeir sem titla sig einka-
þjálfara hafa enga formlega
menntun og taka á móti hverjum
sem til þeirra sækir. Er vitað um
minnst eitt dæmi þess að mjög
ung stúlka sem
æfði undir stjórn
eins slíks fékk
afhenta stóra
skammta af svo-
kölluðu Ripped
Fuel, fæðubótar-
efninu sem fjöl-
margir nota þrátt
fyrir sala þess sé
ólögleg hér á
landi.
Björn Leifsson, eigandi World
Class, segir strangar reglur gilda
um einkaþjálfun og ekki að
ástæðulausu. Almenn sé miðað við
sextán ára aldurstakmark en gefið
sé leyfi niður að fjórtán ára aldri
óski foreldrar þess sérstaklega.
Sé um yngra fólk að ræða sé gerð
krafa um að foreldrar séu sjálfir
viðstaddir. „Meðalaldur þeirra
sem leita til einkaþjálfara fer
hægt og bítandi lækkandi en það
er ekki algengt að krakkar mikið
undir fjórtán ára aldri sæki slíkt
og ég verð ekki mikið var við að
foreldar séu sérstaklega að senda
svo unga krakka í slíka þjálfun.“
Magni Fannberg, faglærður
einkaþjálfari í Sporthúsinu, tekur
undir og segir ekki algengt að
ungir krakkar sæki slíka tíma en
vissulega þekkist þess dæmi.
„Foreldrar margir hverjir gera
óraunhæfar kröfur og ég hef verið
beðinn um að taka að mér unga
krakka og koma þeim í form á sem
skemmstum tíma. Það eru engar
kraftaverkalausnir í þessu eins og
margir virðast halda og það sama
gildir um yngra fólkið og það full-
orðna að það þarf að hafa fyrir
hlutunum og hafa fyrir því að
komast í gott form.“
albert@frettabladid.is
Á ÆFINGU Í LAUGUM Björn Leifsson, eigandi World Class, segist ekki verða sérstaklega var við að foreldrar séu að senda mjög ung börn í
einkaþjálfun hjá einkaþjálfurum sem starfi í líkamsræktarstöðvum World Class. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Átta ára börn send
til einkaþjálfara
Dæmi eru um að foreldrar sendi átta ára börn í einkaþjálfun. Einkaþjálfari segir
foreldra oft gera óraunhæfar kröfur. Eigandi World Class segir strangar reglur
gilda um einkaþjálfun. Almennt sé miðað við sextán ára aldur.
BJÖRN LEIFSSON
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/PJETU
R
Sa
m
kv
. d
ag
bó
ka
rk
ön
nu
n
G
al
lu
p
ap
rí
l 2
00
6.
Auglýsingasími: 550 5000