Fréttablaðið - 28.07.2006, Síða 8
8 28. júlí 2006 FÖSTUDAGUR
���������������������
�������������������
�������������������������������������������������������������������� �����������������
���� �������������������������������������������������������� ���������������������
�
����������������� ��������� ��������� �������������������������������������
����������������������������������������������������������������� ������������
�����������������������
������������������������� ����������������������� �������������������������� ��������������������� ������������������������
���������������������
FERÐAÞJÓNUSTA Flugfélag Íslands
mun að líkindum missa spón úr
aski sínum á næsta ári þegar
Grænlandsflug mun hefja reglu-
bundin áætlunarflug milli Græn-
lands og Bandaríkjanna.
Hingað til hafa áhugasamir
þurft að fljúga frá Íslandi eða
Danmörku til að komast til lands-
ins en með þessu vonast græn-
lensk stjórnvöld til þess að auka
ferðamannastraum til þessarar
stærstu eyju heims. Inga Birna
Ragnarsdóttir, sölu og markaðs-
stjóri Flugfélags Íslands, sagði
ekki ólíklegt að beinar ferðir
Grænlandsflugs hefðu áhrif en
of snemmt væri að spá fyrir um
hversu mikil áhrifin yrðu.
„Grænlandsflug er þekkt fyrir
að vera nokkuð dýrt og við verð-
um allavega vel samkeppnisfær
þegar að þessu kemur.“
- aöe
Grænlandsflug í samkeppni við Flugfélag Íslands:
Fljúga beint til
Bandaríkjanna
SAMGÖNGUR Bæjaryfirvöld í Vest-
mannaeyjum hafa lagt fram tillög-
ur að úrbótum í samgöngumálum.
Fyrsta tillagan snýst um að
þrjár ferðir verði farnar á Herj-
ólfi á sólarhring, þrisvar í viku
yfir sumarið. Í öðru lagi verði flug
milli lands og Eyja boðið út. Þriðja
tillagan er að stærra og nýrra skip
verði leigt eða keypt í stað núver-
andi Herjólfs. Fjórða tillagan er
að tryggt verði að fullnægjandi
skip leysi Herjólf af meðan á
slipptöku stendur. Seinasta til-
lagan er að framkvæmdir vegna
ferjulægis í Bakkafjöru hefjist á
vormánuðum 2007 og þeim verði
lokið árið 2010. - sdg
Tillögur bæjarstjórnar:
Samgöngur til
Vestmannaeyja
UMHVERFI Þingflokkur Vinstri-
hreyfingarinnar – græns framboðs
lýsir yfir þungum áhyggjum af
þróun mála í rannsóknar- og nýt-
ingarleyfum til virkjana í vatns-
afli og jarðvarma. Þetta kemur
fram í yfirlýsingu frá flokknum
sem blaðinu barst í gær.
Svandís Svavarsdóttir, sem
skrifar undir yfirlýsinguna sem
framkvæmdastjóri flokksins, segir
að mönnum bregði í brún þegar
stórfellt jarðrask sé hafið á við-
kvæmum landsvæðum án þess að
næg umræða hafi farið fram um
áhrif rannsóknaborana. Hún segir
flokkinn vilja að mat á umhverfis-
áhrifum hefjist fyrr en nú sé áskil-
ið, þannig að allt ferlið verði
matsskylt, líka rannsóknarstigið. Í
Fréttablaðinu í gær var fjallað um
rannsóknarboranir Landsvirkjun-
ar í Suður-Þingeyjarsýslu.
Bjarni Pálsson, verkfræðingur
Landsvirkjunar, segir jarðrask af
völdum könnunarborana við Þeista-
reyki nánast ekkert og reynt sé
eftir fremsta megni að afmá
ummerki um rannsóknarboranir
þegar svæðið sé yfirgefið.
Bjarni segir svæðið á Þeista-
reykjum ekki hafa verið matsskylt,
en á boranasvæðinu við Kröflu hafi
farið fram ítarlegt umhverfismat
áður en rannsóknarboranir hófust.
- sþs
Vinstri græn mótmæla rannsóknarborunum Landsvirkjunar:
Vilja umhverfismat mun fyrr
ÞEISTAREYKIR Þingflokkur Vinstri grænna
mótmælir stórfelldu jarðraski á viðkvæm-
um landsvæðum vegna rannsóknarborana
án þess að næg umræða hafi farið fram
um áhrif þeirra.
SKÁK Gestum og gangandi gefst
kostur á að spreyta sig á fjöl-
tefli við skákmeistarann Róbert
Harðarson í dag.
Fjölteflið verður
fyrir framan
verslun Bónuss í
Kringlunni milli
klukkan fjögur og
átta.
Á staðnum
munu Hróksmenn
einnig kynna
landnám skáklistarinnar á
Grænlandi, en þar hefst í næstu
viku mikil skákhátíð, fjórða árið
í röð.
Róbert Harðarson, sem er
meðal bestu skákmanna Íslands,
sigraði á III. alþjóðlega Græn-
landsmótinu - Flugfélags Íslands
mótinu 2005, sem haldið var í
Tasiilaq. - sdg
Skákáhugamenn í Kringlunni:
Fjöltefli við
skákmeistara
RÓBERT
HARÐARSON
BANDARÍKIN, AP Fulltrúadeild Banda-
ríkjaþings hefur samþykkt með
yfirgnæfandi meirihluta frumvarp
um samstarf Bandaríkjamanna og
Indverja að kjarnorkumálum. Veiti
Öldungadeild Bandaríkjaþings Ind-
verjum undanþágu frá banni um
viðskipti með kjarnorku verður
Indland í raun viðurkennt sem
kjarnorkuveldi.
Samkvæmt frumvarpinu fá
Indverjar keypt kjarnorkuelds-
neyti, tækniaðstoð og þekkingu af
Bandaríkjamönnum, gegn því að
veita alþjóðlegum eftirlitsmönnum
aðgang að fjórtán kjarnorkuver-
um á Indlandi. Indverjar eiga átta
kjarnorkuver til viðbótar en þau
eru skilgreind sem „hernaðarlega
mikilvæg“ og verða lokuð umheim-
inum eftir sem áður.
Frumvarpið var samþykkt með
359 atkvæðum gegn 69 og felur í
sér kúvendingu áratuga gamallar
stefnu Bandaríkjanna í kjarnorku-
málum, því nú verður tekið upp
kjarnorkusamstarf við ríki sem
neitar að skrifa undir NPT-samn-
inginn um bann við útbreiðslu
kjarnavopna.
Andstæðingar frumvarpsins
halda því fram að sala á banda-
rísku kjarnorkueldsneyti til Ind-
lands myndi gefa Indverjum aukið
svigrúm og færi á að hefja stór-
tæka vopnaframleiðslu og einn
þingmaður demókrata, Ed Mark-
ey, líkti því við að hella „kjarn-
orkuolíu á vopnakapphlaupseld-
inn“ milli Indlands og Pakistans.
Verið sé að verðlauna Indverja
fyrir að hafa framleitt kjarnorku í
trássi við alþjóðasamninga.
Gagnrýnendur óttast einnig að
verið sé að senda misvísandi skila-
boð til annarra ríkja sem einnig
ásælast kjarnorku og þá sérstak-
lega Írans, sem hefur lengi unnið
að því leynt og ljóst að auðga úran
til orkuframleiðslu, í óþökk kjarn-
orkuvelda heimsins. Bandaríkja-
menn hafi stigið skref í átt að
frjálsum heimsviðskiptum með
kjarnorkutækni sem Rússar eða
Kínverjar gætu einnig viljað
stíga. klemens@frettabladid.is
Kjarnorka til
Indverja
Bandaríkjaþing samþykkti sölu á kjarnorku til Ind-
verja, sem fá aukið svigrúm til vopnaframleiðslu og
skrifa ekki undir bann við útbreiðslu kjarnavopna.
Hætta á vopnakapphlaupi.
KJARNORKUELDFLAUGATILRAUNIR PAKISTANA Pakistanar eru mótfallnir sérmeðferð þeirri
sem Indverjar þykja fá hjá Bandaríkjamönnum og er viðbúið að þeir fari nú að leita ráða til
að auka við kjarnorkuvígbúnað sinn. NORDIC PHOTOS/GETTYIMAGES
VEISTU SVARIÐ?
1 Í hvaða firði er Hrafnseyri, fæðingar-staður Jóns Sigurðssonar forseta?
2 Fyrir hvaða liði tapaði FH 0-1 í 2. umferð forkeppni Meistaradeildar-
innar?
3 Í hvaða fylki Bandaríkjanna er samkynhneigðum heimilt að ganga
í hjónaband?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 46