Fréttablaðið - 28.07.2006, Síða 12

Fréttablaðið - 28.07.2006, Síða 12
12 28. júlí 2006 FÖSTUDAGUR ÍSRAEL Á dögunum barst Frétta- blaðinu frétt frá alþjóðlegu fréttastofunni Associated Press um bardaga Ísraelsmanna og Hizbollah-liða við Bint Jbail. Fréttin var vandlega merkt sem „endurskoðuð af ritskoðanda ísraelska hersins“ og hafði verið stytt frá fyrri útgáfu. Embætti sérstaks ritskoðanda stríðsfrétta hjá Ísraelsher hefur „forkunnarmikil völd“ að sögn Sima Vaknin, sem gegnir þeirri stöðu nú um stundir. Í viðtali við AP segist Vaknin geta látið loka dagblöðum og sjónvarpsstöðum og sett á allsherjar stríðsfrétta- bann. Einnig er haft eftir henni að hún geti látið varpa blaðamönnum í fangelsi. „Ég get næstum allt,“ segir ritskoðandinn. Allir blaðamenn sem fylgjast beint með átökunum í Suður-Líba- non þurfa að undirrita samstarfs- samning sem kveður meðal ann- ars á um að ísraelski herinn megi ritskoða fréttaflutning þeirra. Talsmaður hersins segir að rit- skoðunin snúi einkum að fréttum sem gætu skaðað öryggi borgara og hagsmuni hersins. Til að mynda sé bannað að segja frá því hvar eldflaugar Hizbollah lenda, í því sjónarmiði að auðvelda andstæð- ingnum ekki að miða betur. And- stæðingar ritskoðunarinnar segja þetta „fyrirslátt“ og að virkt kerfi opinberrar ritskoðunar sé til marks um ólýðræðislegt stjórnar- far landsins; reglurnar séu reynd- ar ekki óeðlilegar sem slíkar, hið óeðlilega sé að þeim sé fram- fylgt. Fleiri þjóðir eru með svipaðar reglur á stríðstímum, þeirra á meðal Bandaríkin vegna frétta- flutnings frá Írak. Það mun þó vera tiltölulega fátítt að þeim sé framfylgt í slíkum mæli að frétta- stofur eins og AP sjái ástæðu til að minnast á það sérstaklega, nema vegna myndbirtinga, til dæmis af líkkistum bandarískra hermanna. - kóþ SKATTAMÁL Á hverju ári senda skattstjórar út lista til fjölmiðla yfir hæstu gjaldendur í sínu skatt- umdæmi. Samkvæmt skattalögum ber skattstjórum að leggja fram álagn- ingarskrár almenningi til sýnis í hverju sveitarfélagi, þar sem skattar á hvern gjaldanda eru til- greindir. En hvergi er kveðið á um í lögum að taka skuli saman lista yfir hæstu gjaldendur til birting- ar. Ingvar J. Rögnvaldsson vara- ríkisskattstjóri segir að um gamla framkvæmdavenju sé að ræða. „Skattstjórar hafa gert þetta um áratugaskeið en það hefur vissu- lega verið rætt um það innan emb- ættis ríkisskattstjóra hvort leggja skuli af þessa framkvæmda- venju.“ Listinn yfir hæstu gjaldendur er sendur fjölmiðlum þegar tryggt er að allir hafa fengið álagningar- seðlana í hendurnar, að sögn Ingv- ars. Listinn er mislangur eftir sveitarfélögum. Ingvar treysti sér ekki til að gefa skoðun embættisins á því hvort æskilegt sé að slíkur listi sé gefinn út með tilliti til persónu- verndar. „Þetta eru opinberar upp- lýsingar sem allir geta nálgast í álagningarskrám. Það að við tökum þær saman í lista er ein- ungis hugsað til hægðarauka og þeirri venju verður haldið við að öllu óbreyttu.“ - sdg Framkvæmdavenja er hjá skattstjórum að birta lista yfir hæstu gjaldendur: Engin lagastoð fyrir birtingu BIÐRÖÐ Á SKATTSTOFUNNI Í REYKJAVÍK Listi yfir hæstu gjaldendur verður sendur út til fjölmiðla á föstudaginn. ELDFLAUG HIZBOLLAH TEKST Á LOFT Samkvæmt ísraelskum lögum er frétta- mönnum bannað að fjalla um hvar þessi eldflaug lenti, nema með samþykki ísra- elska hersins. NORDICPHOTOS/AFP VERSLUNARMANNAHELGI „Við erum ekki með neinar sérstakar aðgerðir til að koma í veg fyrir unglingadrykkju,“ segir Páll Scheving, framkvæmdastjóri ÍBV, sem stendur að þjóðhátíð í Eyjum. Hann segir að sértækar aðgerðir eins og áfengisleit á öllum unglingum séu erfiðar í framkvæmd. Lögreglan sjái um að allt fari vel fram og sinni því hlutverki vel. Á Akureyri er reynt að setja unglingum stólinn fyrir dyrnar á hátíðinni „Ein með öllu“ með því að hafa átján ára aldurstakmark á tjaldstæðunum. Ekkert aldurstakmark er á tjaldsvæðinu í Neskaupstað þar sem hátíðin Neistaflug verður haldin um verslunarmannahelg- ina. „Hér hefur alltaf verið fylgst vel með hlutunum og lögregla látin taka vín af börnunum ef þau eru að drekka,“ segir Þorvaldur Einarsson, sem stendur að Neista- flugi. Engin sérstök lög eru til um hátíðir eins og þær sem haldnar eru um verslunarmannahelgi. Aftur á móti gilda þar almennar reglur um útivistartíma og ungl- ingadrykkju. „Menn meta hvaða verkefni eru mikilvægust og auð- vitað höfum við ekki mannskap til að sinna öllu sem getur komið upp,“ segir Björn Jósef Arnviðs- son, lögreglustjóri á Akureyri. Björn Jósef segir það ekki vera hlutverk lögreglunnar að ala börn upp og ábyrgðarleysi af foreldr- um ef þeir leyfa börnum sínum að fara einum á hátíðir og ætla lögreglunni að gæta útivistartím- ans. Björn Þór Rögnvaldsson, full- trúi sýslumannsins á Eskifirði, tekur í sama streng og segir að lögregla og björgunarsveit verði viðbúin að framfylgja lögum. „Margt annað þarf að fara í for- gang. Lögreglumenn geta ekki verið að spyrja hvern einasta mann um skilríki,“ segir Björn Jósef. Engin aldurstakmörk eru inn á þjóðhátíð í Eyjum en lögreglan þar reynir þó að hafa hemil á ungl- ingum eftir því sem heimildir þeirra leyfa. „Við megum hafa afskipti af börnum undir sextán ára eftir að útivistartíma lýkur og við nýtum okkur það,“ segir Karl Gauti Hjaltason, lögreglustjóri í Vestmannaeyjum. Einnig segir Karl að ef höfð séu afskipti af unglingum undir átján ára sé hægt að kalla eftir því hvort þeir hafi heimild foreldra til að vera á hátíðinni. „Einstaka sinnum hefur komið fyrir að við höfum sent börn til Reykjavíkur, en þeim tilfellum fer fækkandi,“ segir Karl Gauti. annat@frettabladid.is Segir að uppeldi sé ekki í verkahring lögreglunnar Erfitt er að sporna gegn straumi unglinga á útihátíðir. Á sumum stöðum er aldurstakmark á tjaldstæði og treyst á eftirlit lögreglu. Ekki hlutverk lögreglunnar að ala upp börn, segir lögreglustjórinn á Akureyri. HÁTÍÐIR UM VERSLUNARMANNAHELGI DRAGA AÐ UNGLINGA Almennar reglur um útivistar- tíma og áfengisdrykkju gilda á hátíðum um verslunarmannahelgi eins og annars staðar. Lögreglan notar þær heimildir til að taka á vandamálum sem fylgja eftirlitslausum ungling- um þó önnur verkefni séu oft meira aðkallandi. FRÉTTABLAÐIÐ/BILLI Nafn rósarinnar edda.is Loksins fáanleg í kilju Ein þekktasta skáldsaga allra tíma og margföld metsölubók um heim allan. Nafn rósarinnar breytti bókmenntasögunni með því að flétta saman æsispennandi atburðarás og margslungið efni sem byggist á merki- legum og dularfullum atburðum liðinnar sögu. „Snjallasta og um leið skemmtilegasta bók síðustu áratuga.“ Der Spiegel UMHVERFISMÁL Umhverfissvið Reykjavíkurborgar tók nýlega á leigu átta Kia Picanto bifreiðar sem allar eru knúnar dísilelds- neyti og teljast sparneytnar. Ástæða þess er sú að umhverfis- svið vill vera til fyrirmyndar í vistvænum rekstri, að sögn Ellýar Katrínar Guðmundsdótt- ur, sviðsstjóra umhverfissviðs. Ákveðið var að notast við skil- greiningu sænsku vegagerðar- innar á visthæfum bílum og leigja bíla sem fullnægðu þeim kröfum. Í fyrravetur voru keypt reiðhjól fyrir starfsmenn umhverfissviðs en í lengri ferðir þarf að fara á bílum og til að hafa sem minnst áhrif á umhverfið voru spar- neytnir bílar valdir. - hs Umhverfissvið fær dísilbíla: Vistvænir bílar í ráðhúsinu KIA PICANTO Átta slíkir eru nú í notkun í ráðhúsinu. Blaðamönnum ekki frjálst að segja frá hverju sem er: Ísraelski herinn ritskoðaði fréttir HEILBRIGÐISMÁL Engir þeirra sem verða starfs síns vegna fyrir geislun hér á landi eru nálægt heilsuspillandi mörkum. Meiri- hluti þeirra starfar annað hvort innan heilbrigðisþjónustunnar eða í tengslum við hana. Þetta sýna mælingar Geisla- varna ríkisins sem árlega aflar upplýsinga um geislaálag starfs- fólks er vinnur við jónandi geislun á ýmsum stofnunum og fyrirtækj- um. Um er að ræða fólk er starfar á rannsóknastofum, við röntgen- greiningar og almennar geisla- lækningar. Allir þeir sem mældir voru á síðasta ári voru langt undir leyfilegu geislaálagi. - aöe Geislaálag starfsfólks: Allir vel undir mörkunum Kviknaði í hjólhýsi Lögreglu var tilkynnt um eld í hjólhýsi í Þjórsárdal um hálf þrjúleytið aðfaranótt miðvikudags. Einn maður var í hjólhýsinu og náði hann að komast út. LÖGREGLUFRÉTTIR FRÆGASTI BARMUR HEIMS Heimurinn fékk barið annað þessara brjósta augum í beinni útsendingu um árið. Þetta er barm- ur Janetar Jackson og er myndin þáttur í auglýsingaherferð fyrir nýja plötu hennar. NORDICPHOTOS/AFP
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.