Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.07.2006, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 28.07.2006, Qupperneq 24
 28. júlí 2006 FÖSTUDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS AUGL†SINGASÍMI 550 5000 FYLGIR FRÉTTABLA‹INU ALLA MI‹VIKUDAGA Sögurnar, tölurnar, fólki›. ÚTGÁFUFÉLAG: 365 RITSTJÓRAR: Kári Jónasson og Þorsteinn Pálsson AÐSTOÐARRITSTJÓRAR: Jón Kaldal og Steinunn Stefánsdóttir FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir, Sigríður Björg Tómasdóttir og Trausti Hafliðason FULLTRÚI RITSTJÓRA: Björgvin Guðmundsson RITSTJÓRN OG AUGLÝSINGAR: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is UMBROT: 365 PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. DREIFING: Pósthúsið ehf. dreifing@posthusid.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871 Morgunblaðið birti á dögunum frétt um, að aðilar skráðir erlend- is ættu nú eignir í íslensku atvinnu- lífi að verðmæti 252 milljarða króna. Aðilar í Belgíu og Lúxem- borg ættu hér eignir að verðmæti 90 milljarða, en aðilar í Guernsey 41 milljarð. Flestir þessir aðilar eru íslenskir, en kjósa að skrá félög sín í öðrum löndum. Í viðtali við blaðið talaði Indriði Þorláksson ríkisskattstjóri um skattsvik og kvað nauðsynlegt að setja lög um, að skattleggja mætti menn í öðrum löndum en þeim, sem þeir skrá félög sín í. Morgun- blaðið tók undir það í leiðara, að huga þyrfti að slíkum lögum. Skattar ættu að vera lágir, en eng- inn mætti skjóta sér undan að greiða þá. Sjónarhorn ríkisskattstjóra er skrýtið. Í fyrsta lagi ber að gera skýran greinarmun á skattvikum (e. tax avoidance) og skattsvikum (e. tax evasion). Það er ekkert að því að víkja sér undan skatti, þótt vissulega sé ámælisvert að svíkja undan skatti. Menn sýna eðlilega fyrirhyggju með því að haga starf- semi sinni á þann hátt, að skattar af henni verði sem lægstir. Maður, sem stofnar til dæmis einkahluta- félag um starfsemi sína, svo að hann þurfi ekki greiða tekjuskatt af henni sem einstaklingur, er skynsamur. Í öðru lagi er sú regla hæpin, að skattleggja eigi menn, þar sem þeir búa, en ekki þar sem eignir þeirra verða til. Hugsum okkur mann, sem býr á Spáni, en á frysti- hús á Íslandi. Auðvitað á hann að greiða opinber gjöld af frystihús- inu á Íslandi, þar sem það er skráð og rekið, en ekki á Spáni. Á sama hátt á fjárfestingarfélag, sem hefur aðsetur á Guernsey, að greiða þangað opinber gjöld. Þar á arðurinn heima. Þar á fjárfesting- in sér stað, þótt hún kunni að vera í fyrirtækjum, sem rekin eru í öðrum löndum. Í þriðja lagi spyr ríkisskatt- stjóri ekki réttu spurningarinnar: Hvað getum við Íslendingar gert til þess, að landar okkar sjái sér hag í að skrá eignir sínar á Íslandi, en ekki Guernsey? Svarið er ein- falt. Við eigum að lækka tekju- skatt á fyrirtæki niður í það, sem þeir eru í Guernsey, 10%, og tryggja einnig góðan trúnað fjár- málafyrirtækja við viðskiptavini sína. Þetta er ekki erfitt, enda höfum við þegar lækkað tekju- skatt á fyrirtæki úr 50% niður í 18% með þeim árangri, að skatt- tekjur af fyrirtækjum hafa aukist, því að lítil sneið af stórri köku getur verið stærri en stór sneið af lítilli köku. Við þurfum ekki lög, sem auð- velda skattyfirvöldum að afla upplýsinga um eignir Íslendinga erlendis eða sem heimila þeim að skattleggja slíkar eignir hér á landi, heldur lög um ríkan trúnað fjármálafyrirtækja við viðskipta- vini sína. Ísland getur orðið alþjóð- leg fjármálamiðstöð alveg eins og Guernsey. Skattyfirvöld um allan heim reyna nú eftir megni að koma í veg fyrir alþjóðlega skattasam- keppni. En slík samkeppni er til góðs, eins og Nóbelsverðlaunahaf- arnir Milton Friedman og James M. Buchanan og um 200 aðrir hag- fræðingar bentu á í opnu bréfi til Bandaríkjaforseta vorið 2001. Hún heldur ríkisvaldinu í skefj- um, jafnframt því sem frjáls flutn- ingur fjármagns milli landa eykur hagkvæmni, svo að allir græða að lokum. Ef menn fá ekki að flytja fjármagn sitt til útlanda, þá er einnig hætt við því, að þeir flýi með það í neðanjarðarhagkerfið. Tekjuskatturinn hefur gert fleiri menn að ósannindamönnum en hjúskaparbrot. Næstu átján mánuði er rétti tíminn til myndarlegra skatta- lækkana. Áhrifa þeirra tekur ekki að gæta, fyrr en eftir að núver- andi þensluskeiði lýkur, en fjár- hagur ríkisins er blómlegur um þessar mundir og skuldir þess óverulegar. Tekjuskattur einstakl- inga og fyrirtækja þarf að lækka í 10% og fella niður öll vörugjöld og tolla, svo að innfluttar nauðsynja- vörur, þar á meðal matvæli, lækki í verði. Þannig heldur góðærið áfram, en breytist ekki í kreppu. Skattsvik annað en skattsvik Í DAG SKATTAR HANNES HÓLMSTEINN GISSURARSON Við þurfum ekki lög, sem auð- velda skattyfirvöldum að afla upplýsinga um eignir Íslend- inga erlendis eða sem heimila þeim að skattleggja slíkar eignir hér á landi, heldur lög um ríkan trúnað fjármálafyrir- tækja við viðskiptavini sína. Við höldum með þér! Komdu v ið á næs tu Olís-s töð og fáðu stimpil í Ævintýr akortið – og æv intýragl aðning í leiðinni . Vertu m eð í allt sumar! Frábær ferðaleikur fyrir alla fjölskylduna Árni í símann Ljóst er að Þorgerður Katrín Gunnars- dóttir, menntamálaráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, mun sækjast eftir fyrsta sæti í prófkjöri flokksins í suðvesturkjördæmi fyrir næstu alþingiskosningar. Fyrir nær fjór- um árum var hún í fjórða sæti en vildi hærra. Árni M. Mathiesen leiddi listann þá. Gunnar Birgisson var í öðru sæti en hefur afsalað sér þingmennsku. Í þriðja sæti var svo Sigríður Anna Þórðardóttir, fyrrver- andi umhverfisráðherra. Lengi hefur verið talað um að Árni ætli að færa sig í Suðurkjördæmi. Hefur hann hvorki játað því né neitað. Nú mun hann vera far- inn að huga að þessu af fullri alvöru. Hafa áhrifamenn í kjördæminu fengið hringingu frá ráðherranum sem undirbýr jarð- veginn. Mun það vafalaust styrkja flokkinn í kjördæminu þó kjarnakonan Drífa Hjartardóttir hafi leitt listann af myndarbrag. Eitt mál tilgreint „Óhjákvæmilegt er að víkja nokkr- um orðum að opinberri rannsókn á almenningshlutafélaginu Baugi hf. sem hófst í ágústmánuði árið 2002 með kæru um ætluð auðgunarbrot forstjóra og aðstoðarforstjóra,“ segir í ársskýrslu embættis ríkislögreglustjóra sem kom út í gær. Sagt er að rannsóknin sé án efa sú umfangsmesta og flóknasta sem fram hafi farið hér á landi. Hún snerti grundvallarréttindi almennra hluthafa. Ákæra hafi verið unnin og sett fram með hefðbundnum hætti eins og tíðkist. Hins vegar hafi Hæstiréttur vísað 32 ákæruliðum af 40 frá dómi. Lítið annað er tilgreint og kostnaður skattgreiðenda á rannsókninni enn á huldu. Lögreglan til tunglsins Eins og Stefán Eiríksson, nýr lögreglu- stjóri höfuðborgarsvæðisins, hefur bent á er sýnileiki lögreglu mikilvægur. Því keyra lögreglumenn um götur borgar og bæja allan sólarhringinn – ávallt reiðubúnir. Heildarakstur ökutækja lögreglunnar á síðasta ári var 5,5 milljónir kílómetra. Jafngildir það sjö ferðum til tunglsins og til baka. Eða 137 sinnum umhverfis jörðina. Spurning hvort Stefán sendi þá oftar til tunglsins á næsta ári. bjorgvin@frettabladid.is Í frétt í Fréttablaðinu í gær kom fram að aldur stúlkna sem fara í megrun virðist stöðugt færast neðar. Dæmi eru jafnvel um að stúlkur allt niður í sjö ára aldur séu afar uppteknar af því að fara í megrun. Sömuleiðis hefur í íslenskri rannsókn á heilsu og lífskjörum skólabarna verið sýnt fram á að hlutfall þeirra barna sem telja sig þurfa að léttast sé ekki í samræmi við umfang offitu- vandamáls. Of feitum börnum fjölgar hins vegar einnig og í ann- arri íslenskri rannsókn hefur verið sýnt fram á að of feitum börn- um gangi lakar í námi en börnum í kjörþyngd. Fyrir fáum áratugum hreyfðu bæði börn og fullorðnir sig marg- falt meira en í dag. Dagleg störf fullorðinna tóku mun meira á lík- amlega. Veröld barnanna var í samræmi við þetta þannig að leikir fóru meira fram úti við og reyndu iðulega bæði á krafta og þol. Samfélagið allt situr nú kyrrt stóran hluta dags. Leikir barna reyna margir á hugann, samanber ýmsa tölvuleiki, en líkamleg áreynsla er lítil nema helst á þumalfingur, sem oft gegna lykilhlutverki. Í dag virðist meira að segja nánast aflagt að börn fari út og spyrji eftir félögum sínum, það fer fram í gegnum síma, SMS eða MSN. Á sama tíma og stórlega hefur dregið úr hreyfingu stendur ofg- nótt matar til boða frá morgni til kvölds og samsetning fæðunnar hefur breyst á þann hátt að fólk virðist fá mun meiri orku úr fæð- unni en það hefur þörf fyrir. Menningin í tengslum við máltíðir hefur einnig breyst. Fastir matmálstímar virðast víkja fyrir mun „afslappaðri“ afstöðu til máltíða og matar. Til dæmis virðist hjá yngra fólki koma til greina að fá sér skyndibita á hvaða tíma dags sem er, einnig á tímum sem margir eldri hefðu alls ekki lyst á þung- um og brösuðum mat. Við þetta bætist svo gríðarleg sykurneysla, ekki bara í gosdrykkjum og sælgæti heldur einnig ýmsum matvör- um sem markaðssettar eru sem hollar og njóta vinsælda meðal barna, eins og mjólkurvörur ýmsar. Mergurinn málsins er að hver og einn sé heilbrigður og hafi góða orku til að takast á við dagleg verkefni. Nútímafólk er því ekki endilega svangt þegar að hefðbundnum matartíma kemur. Þegar þetta bætist við annir fjölskyldunnar, þar sem til dæmis íþróttaæfingar unglinga eru allt eins settar niður á hefðbundnum matartímum, er niðurstaðan sú að hinar hefðbundnu máltíðir gegna ekki lengur sama hlutverki og áður. Meðvitund um mataræði og hreyfingu í þessu breytta samfélagi er mikilvæg en umræðan hefur snúist of mikið um holdafar og útlit. Mergurinn málsins er að hver og einn sé heilbrigður og hafi góða orku til að takast á við dagleg verkefni. Vissulega er hvorki gott að vera allt of feitur né allt of mjór. Hins vegar eru staðal- myndir um holdafar afar skaðlegar, ekki síst þegar þær eru farnar að ná til ungra barna. Engum er mikilvægara að borða hollan mat en börnum sem eru að vaxa, ekki bara til þess að þau dafni vel heldur einnig vegna þess að í æsku mótast bæði smekkur á mat og matarmenning. Ábyrgð foreldra er því mikil í þessum efnum. Þeirra hlutverk er næra börn sín vel og skynsamlega. Þá þurfa skólar að bjóða börnum girnileg- an og um leið hollan mat en til þess að þau hafi smekk fyrir honum þurfa þau þjálfun að heiman. SJÓNARMIÐ STEINUNN STEFÁNSDÓTTIR Börn eiga ekki að þurfa að hafa áhyggjur af holdafari sínu. Næring á ábyrgð foreldra
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.