Fréttablaðið - 28.07.2006, Page 25

Fréttablaðið - 28.07.2006, Page 25
 Heimild: Almanak Háskólans Smáauglýsingasími 550 5000 Auglýsingasími Allt 550 5880 Þú getur pantað smáauglýsingar á visir.is FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL. Hreindýrahamborgarar slá í gegn hjá landanum þessa dagana. Búllan á Egilsstöðum státar af því að vera eini stað- urinn á landinu sem selur slíka borgara. Hreindýraborgararnir eru ekki ósvipaðir venjulegum hamborgurum. Þeir eru bornir fram í brauði en með pipar- sósu, lauki, lollo rosso-salati og tveimur tegundum af osti. Drangey veitir 15 prósenta kynningarafslátt af Titan ferða- töskum. Ferðatöskurnar sem um ræðir eru fisléttar, harðar og mjög sterkar. Kynningaraf- slátturinn gildir til 6. ágúst. Babalú kaffihúsið á Skóla- vörðustíg hefur nú fengið vín- veitinga- leyfi fastagestum staðarins til nokk- urrar gleði. Sögur herma að gestir staðarins séu orðnir þreyttir á kaffidrykkjunni einni saman og skála nú fegnir í léttvíni og öli. ALLT HITT [MATUR TILBOÐ] Guðný Helga Herbertsdóttir, dagskrárgerðarkona á NFS, er mikill matgæðingur. Hún gefur lesendum uppskrift að satay-kjúklingi sem er vinsæll á hennar heimili og í matarboðum. „Þetta er einn af uppáhaldsréttunum mínum og mér finnst kjörið að elda þennan mat þegar ég býð einhverjum í mat,“ segir Guðný Helga. „Það er reyndar skilyrði að fólkið borði hnetur því það er rosalega mikið af hnetum í þessum rétti. Hneturnar gefa mjög sérstakt bragð en það er alveg fer- lega gott og næstum því ávanabindandi.“ Uppskriftin að réttinum kemur frá Sigga Hall og er ein- föld þó það taki svolítinn tíma að matreiða hann. „Það ættu allir að geta eldað þennan rétt með góðum vilja. Allt hráefni í honum er ferskt og það finnst mér svo æðislegt við þennan rétt,“ segir Guðný Helga, sem er ekki mikið fyrir hefðbund- inn mat heldur vill krydda hann aðeins öðruvísi og nota fer- skar kryddjurtir. Það skiptir hana líka miklu máli að matur- inn sé góður og fallegur, hvort sem hún eldar fyrir sig og strákinn sinn eða heldur matarboð. „Mér finnst gaman að gleðja fólk með því að gefa því gott að borða og maturinn verður líka betri ef hann er skemmtilega settur saman og lítur fallega út,“ segir Guðný Helga að lokum. Uppskriftina að satay-kjúklingaréttinum er að finna á bls. 2. erlabjorg@frettabladid.is Gleður fólk með mat Guðný Helga, dagskrárgerðarkona á NFS, vill að maturinn sé fallegur og borinn smekklega á borð. GÓÐAN DAG! Í dag er föstudagurinn 28. júlí, 209. dagur ársins 2006. Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík 4.21 13.34 22.45 Akureyri 3.46 13.19 22.49 ÓDÝRT AÐ TAKA SLÁTUR Össur Skarphéðinsson er ekki manna duglegastur að spara en lumar þó á ýmsum ráðum. TILBOÐ 5 KEPPTI VIÐ ÞÁ BESTU Elísabet Alba Valdimarsdóttir tók þátt í virtri vínþjóna- keppni. MATUR 2 Fetasneiðar – ómissandi í matargerðNýjung Þrjár bragðtegundir H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA - 69 11 Girnilegar uppskriftir í lokinu veistu hvers ég myndi óska mér ... reyndu að giska á ... hvers eðlis þessi ósk mín er ...Ef ég ætti eina ósk ... Skyr.is-drykkurinn er fljótleg og holl næring fyrir þá sem vilja styrkja líkamann og lifa heilbrigðu lífi.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.