Fréttablaðið - 28.07.2006, Page 50
■■■■ { ferðahelgin } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■18
Fyrirtaks áningar-
staðir um allt land
Marga góða veitingastaði er að finna nálægt þjóðvegum
landsins.
RÁIN Í KEFLAVÍK
Ráin er talinn vera með
betri veitingastöðum Kefla-
víkur. Í hádeginu er hægt
að velja um breskan morg-
unmat, súpu eða fjóra aðal-
rétti. Á kvöldin er stílað
inn á a la carte-matseðil.
Staðurinn er rómaður fyrir
humarhala og lambalæri,
sem er borið fram fyrir tvo.
Þá þykir sjávarréttagratín
hússins einstaklega gott.
HÓTEL HEKLA
Hótel Hekla er skemmtilegt
sveitahótel sem stendur á Skeið-
um með gott útsýni til allra átta.
Á hótelinu eru 37 herbergi búin
öllum helstu nútímaþægindum,
svo sem baðherbergi, sjónvarpi
og þráðlausu internetsambandi
fyrir þá sem vilja. Í veitinga-
sal hótelsins er hægt að panta
ýmsa ljúffenga rétti og rúmgóðir
fundarsalir með góðum tækja-
búnaði standa hópum til boða.
Sjá nánar www.hotelhekla.is.
RAUÐA HÚSIÐ Á EYRARBAKKA
Veitingastaðurinn Rauða húsið
er á Búðarstíg 4 á Eyrarbakka,
skammt frá kirkjunni og byggða-
safninu Húsinu. Hann hefur
verið starfræktur í fimm ár og
nýtur sífelldra vinsælda.
Rauða húsið er á þremur hæðum.
Miðhæðin er kölluð Guðmundu-
búð í höfuðið á Guðmundu Niel-
sen tónskáldi og verslunarkonu,
sem byggði húsið árið 1919. Á
þeirri hæð er eiginlegur veit-
ingastaður hússins. Á þriðju
hæðinni eru suðursalur, með
útsýni yfir hafið, og norðursalur,
með útsýni alveg upp í Gríms-
nes. Í kjallara hússins er góð
fundaraðstaða og bar.
Aðalsmerki Rauða hússins er
sjávarréttasúpa, uppfull af alls
kyns fiski, humri og fersku nið-
urskornu grænmeti. Nýbakað
brauð og heimatilbúinn humm-
us eru ávallt borin fram með
súpunni. Af öðru lostæti má
nefna saltfisk, fiskitvennu og
nýjan humar.
INGÓLFSSKÁLI Í EFSTALANDI
Ef þú vilt upplifa sannkallaða
víkingastemningu þá er Ingólfs-
skáli í Efstalandi í Ölfusi málið.
Skálinn er í víkingastíl og matur
að hætti landnemanna. Reykt
hangikjöt, silung, síld, harð-
fisk og rúgbrauð má fá í for-
rétt, lambasteik eða kjúkling í
aðalrétt, en skyr og bláber eru
vinsæll eftirréttur. Hægt er að
panta bjór og hornasnafs með
matnum.
NARFEYRARSTOFA Í STYKKISHÓLMI
Á Narfeyrarstofu við Aðalgötu 3
í Stykkishólmi (í miðbænum við
hlið gömlu kirkjunnar) er boðið
upp á ferskan afla úr Breiðafirði,
svo sem humar, rauðsprettu og
skötusel. Af eftirsóttum rétt-
um má nefna hörpuskel, þorsk,
reyktan svartfugl, léttsoðið egg
í brauðbollu með salati og fiski-
súpu, byggða á soði af humar-
skeljum, trjónukrabba og fiski,
sem hefur notið samfelldra
vinsælda frá upphafi. Ekki nóg
með að Narfeyrarstofa bjóði upp
á ljúffengan mat heldur standa
eigendur staðarins nú fyrir hest-
vagnaferðum um bæinn.
FJÖRUBORÐIÐ Á STOKKSEYRI
Fjöruborðið á Stokkseyri er
margrómaður fyrir ljúffengan,
grillaðan humar með hvítlauk og
smjöri, borinn fram með góðu
brauði og salati. Aðeins er unnið
með ferskt hráefni enda stend-
ur staðurinn við fjöruna. Þá
þykir humarsúpan vera einstök.
Fyrir þá sem ekki borða humar
má velja á milli lambafillets og
nauta carpaccio sem er hvort
tveggja með góðu meðlæti. Sér-
stakur barnamatseðill er á staðn-
um. Sjá www.fjorubordid.is.
KRISTJÁN X Á HELLU
Kristján X er veitingahús og bar
á Hellu á Rangárvöllum. Húsið
sem nú hýsir Kristján X á um
margt merkilega sögu. Það var
reist á Þingvöllum fyrir alþing-
ishátíðina 1930 og notað sem
matsalur fyrir hirð Kristjáns X
Danakonungs, en þaðan kemur
einmitt nafn staðarins. Árið
1938 var húsið svo flutt á Hellu
og í því starfrækt pakkhús. Í
apríl 1999 var hafist handa við
að gera húsið upp og lauk því í
nóvember sama ár þegar staður-
inn var opnaður.
Á veggjum veitingahússins má
finna nokkrar myndir af Kristj-
áni X konungi og meðal annars
má þar sjá veiðistöng sem kon-
ungurinn veiddi með í heimsókn
sinni til landsins árið 1930. Á
Kristjáni X má meðal annars fá
fisk og steikur, meðal annars
hrossafillet og hrefnusteik. Einn-
ig er hægt að fá súpur, spaghetti,
hamborgara og pitsur svo fátt
eitt sé nefnt. Kristján X er nota-
legur veitingastaður í sveitasæl-
unni en alveg við þjóðveginn.
(D) Einu sinni á (A) ágúst(D)kvöldi (D7)
(G) austur í (A) Þingvalla(D)sveit (D7)
(G) gerðist í (A) dulitlu (D) dragi (Bm)
(m) dulítið, sem (A) enginn (D) veit,
(Em) nema við og (A) nokkrir (D) þrestir
(Bm)
og (Em) kjarrið græna (A) inn í (D)
Bolabás
og (Am) Ármannsfellið (D7) fagurblátt
og (G) fannir Skjaldbreið(Em)ar
og (Bm) hraunið fyrir (E7) sunnan
Eyktar(Em)ás. (A)
(Em) Þó að ævi(A)árin (D) hverfi (Bm)
(Em) út á tímans (A) gráa (D) rökkur-veg,
við (Am) saman munum (D7) geyma
þetta (G) ljúfa leyndar(Em)mál
landið okkar góða, (A) þú og (D) ég.
Lag: Jón Múli Árnason
Texti: Jónas Árnason
Ferða-lög
Einu sinni á ágústkvöldi
HÓTEL HÖFÐABREKKA
Vinalegt sveitahótel sem stað-
sett er um fimm kílómetrum frá
Vík í Mýrdal. Á hótelinu eru 62
tveggja manna herbergi sem öll
hafa sérbaðherbergi og sjón-
varp, að auki eru heitir pottar
fyrir utan hótelið og eru drykk-
ir þjónustaðir í pottana sé þess
óskað.
Veislusalurinn tekur yfir tvö-
hundruð manns í sæti og getur
staðurinn boðið upp á hvort sem
er veisluhlaðborð eða þriggja
rétta kvöldverð. Á svæðinu
við Hótel Höfðabrekku er mikil
afþreying í boði. Sem dæmi má
nefna veiðivötn við hótelið, fjór-
hjólaferðir í fjörunni og jeppa-
ferðir upp á afrétt. Í grenndinni
er glæsilegur 9 holu golfvöllur
auk þess sem mikið er um fal-
legar gönguleiðir. Frá hótelinu er
mjög stutt að fara í göngu- og
sleðaferðir upp á Mýrdalsjökul.
Höfðabrekka er tilvalinn stað-
ur til þess að gefa sér tíma á og
njóta náttúrunnar.
FRIÐRIK V BRASSIERE Á AKUREYRI
Friðrik V Brassiere er ósvikinn
eyfirskur veitingastaður, við
Strandgötu 7 á Akureyri, þar
sem áhersla er lögð á íslenska og
evrópska matargerð eins og hún
gerist best. Unnið er úr vönd-
uðu og fersku íslensku og evr-
ópsku hráefni en lostæti eins og
kræklingur, laxahrogn, hangi-
kjöt, þorskur, saltfiskur og skyr
eru meðal annars á boðstólum.
Þá eru gamlir íslenskir réttir
á borð við saltkjöt með rófum
og kjötsúpu framreiddir með
nýstárlegum hætti. Ofnbakaður
lambavöðvi með mysuosti og
pistasíu-skorpu er mjög vinsæll.
KJÖT & KÚNST Í HVERAGERÐI
Kjöt & Kúnst er girnileg sælkera-
búð sem býður meðal annars upp
á sveitakaffihlaðborð og ýmiss
konar tilbúna rétti. Kjöt & Kúnst
sérhæfir sig í ljúffengu svínalæri
sem eldað er með hveraorku sem
leidd er inn í húsið.
SYSTRAKAFFI Á KIRKJUBÆJARKLAUSTRI
Á Kirkjubæjarklaustri er að finna veitingastaðinn Systrakaffi sem er til-
valinn áningarstaðar fyrir ferðalanga sem orðnir eru leiðir á hefðbundnu
sjoppufæði. Matseðill staðarins er afar fjölbreyttur og freistandi og má
þar nefna Klaustursbleikjuna sem er fyrir löngu orðin goðsagnakennd á
Klaustri. Hlýlegur og þægilegur veitingastaður.
„Ég var staddur í bíl með félaga
mínum á föstudeginum fyrir versl-
unarmannahelgina, árið 2002 minnir
mig. Vinur minn var að vinna á blaði
sem átti að fjalla um hóp sem hafði
unnið ferð á Þjóðhátíð í Eyjum. Hann
átti að redda ljósmyndara til að fara
með hópnum en það fékkst enginn í
verkið. Að lokum var ég settur í verk-
ið á síðustu stundu án þess að hafa
nokkra reynslu af ljósmyndun,“ segir
Þorvaldur Davíð. Það gekk þó eitt-
hvað erfiðlega fyrir hópinn að kom-
ast á leiðarenda.
„Það átti að fara með þyrlu til
Eyja en við komumst bara hálfa leið
vegna veðurs. Þá vorum við bara
keyrðir í limmósíu á Bakka og þaðan
flugum við til Vestmannaeyja. Ég var
ekki með neitt dót með mér og vissi
ekkert hvar ég ætti að gista en að
lokum gisti ég bara á hótelinu með
hópnum. Ég hafði aldrei hitt þessa
gaura áður en okkur kom vel saman
og skemmtum okkur konunglega.“
Eins og margir vita þá eru ótal
hefðir hafðar í hávegum á Þjóðhá-
tíð í Eyjum. Þorvaldur Davíð kynnt-
ist því af eigin raun. „Ég hitti einn
heimamann og hann dró mig út um
allt þannig að ég fékk heimastemn-
inguna beint í æð. Ég fór til dæmis í
kjötsúpupartí hjá einni fjölskyldunni.
Þar var borðuð dýrindis kjötsúpa og
hlustað á lifandi tónlist. Síðan fór
ég í partí í hvítu tjöldunum, fékk
lunda og ótrúlega góðar móttökur.
Eyjamenn eru upp til hópa ótrúlega
gestrisnir.“
Þorvaldur Davíð býst alveg eins
við því að fara á Þjóðhátíð nú í ár en
félagar hans hafa leigt heilt félags-
heimili þannig að það ætti ekki að
fara illa um hann. „Ég hef einu sinni
gist í tjaldi en mér finnst miklu þægi-
legra að vera í húsi og þurfa ekki að
hafa áhyggjur af dótinu mínu og
svona. Það skiptir svo sem ekki máli
hvar maður er – það er alltaf rífandi
stemning í dalnum,“ segir Þorvaldur
Davíð að lokum.
erlabjorg@frettabladid.is
Fór óvænt á Þjóðhátíð
Leiklistarneminn Þorvaldur Davíð Kristjánsson hefur nokkrum sinnum farið á Þjóðhá-
tíð í Eyjum en einu sinni fór hann án nokkurs fyrirvara í hlutverki ljósmyndara.
Þorvaldur Davíð