Fréttablaðið - 28.07.2006, Side 52
■■■■ { ferðahelgin } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Þegar pakkað er ofan í matarkörf-
una fyrir ferðalagið er mikilvægt að
hugsa fyrir hráefni sem hentar vel
til nestisgerðar. Með góðum und-
irbúningi áður en lagt er af stað í
ferðalagið er auðvelt að töfra fram
dýrindisrétti í miðri náttúrunni.
Marentza Poulsen, eigandi Café
Flóru í Grasagarðinum, setti saman
fimm uppskriftir að skemmtilegum
samlokum og réttum sem auðvelt
er að bera fram í útilegunni. Alla
réttina er gott að undirbúa áður en
lagt er af stað en uppskriftirnar eru
einfaldar og fljótlegar. Gott er að
hafa með einnota grill sem notað er
til að grilla brauðsneiðarnar létt eða
til að hita upp eplakökuna.
Svo er bara að leggja uppskrift-
irnar hennar Marentzu á minnið og
slá í gegn sem smurbrauðsmeistari í
ferðalaginu.
Með nesti og nýja skó
Fyrir útilegur og ferðalög er nauðsynlegt að pakka niður ljúffengu og gómsætu nesti
til að næra líkama og sál.
20
Útilegubúnaður Íslendinga er óðum að breytast úr einföldum og hógvær-
um tjaldbúnaði í færanleg lúxus hótel og hefur allur útilegubúnaður tekið
stórstígum framförum. Gasgrillin hafa ekki farið varhuga af þessari þróun
frekar en nokkuð annað. Hægt er að kaupa ýmiss konar tegundir af ferða-
gasgrillum í öllum stærstu verslunum frá fimm þúsund krónum og upp í
rúmlega fimmtán þúsund krónur. Flest grillin koma með þrýstijafnara og
slöngu sem er allt sem þarf til þess að tengja við gaskút. Matgæðingar geta
því auðveldlega haldið sama staðlinum við grillið þegar þeir bregða sér í
útilegu.
Grillað á gasi
í útilegunni
Flestar verslanir sem selja gasgrill eru einnig með ferða-
gasgrill til þess að taka með í útileguna. Við skoðuðum
úrvalið af ferðagasgrillum í Ellingsen, Byko og Húsa-
smiðjunni.
Outback gasgrill frá
Byko. Með grillinu fylgir
þrýstijafnari og kostar
það 5.990 krónur.
Ferðagasgrill
frá Byko,
hægt er að
kippa fót-
unum undan
því svo að það
passi betur í bílinn.
Verð 15.885 krónur.
Em C B Em C B
(Em) Fjöllin hafa vakað, í (C) þúsund (B) ár.
Ef þú (Em) rýnir inn í bergið, sérðu (C) glitra (B) tár.
(Em) Orð þín kristaltær
(C) drógu mig nær og (B) nær.
Ég (A) reyndi að kalla á ástina, sem úr (C) dvala reis í (D) gær. (B)
Em C B Em C B
Þú (Em) sagðir mér frá skrítnu landi, (C) fyrir okkur (B) ein.
Þar yxu (Em) rósir á hvítum sandi, og (C) von um betri (B) heim.
Ég (Em) hló, þú horfðir á,
(C) augu þín svört af (B) þrá.
Ég (A) teygði mig í himininn, í (C) tunglið reyndi að (D) ná. (B)
(Em) Sá er talinn heimskur, sem (C) opnar sína (B) sál.
Ef hann (Em) kann ekki að ljúga, hvað (C) verður um hann (B) þá.
Undir (Em) hælinn verður troðinn, líkt og (C) laufblöðin (B) smá.
Við (A) hræðumst hjarta hans og augun (C) blá. (D) (B)
Em C B Em C B
(Em) Fjöllin hafa vakað, í (C) þúsund (B) ár.
Ef þú (Em) rýnir inn í bergið, sérðu (C) glitra (B) tár.
(Em) Orð þín kristaltær
(C) drógu mig nær og (B) nær.
Ég (A) reyndi að kalla á ástina, sem úr (C) dvala reis í (D) gær. (B)
(Em) Sá er talinn heimskur, sem (C) opnar sína (B) sál.
Ef hann (Em) kann ekki að ljúga, hvað (C) verður um hann (B) þá.
Undir (Em) hælinn verður troðinn, líkt og (C) laufblöðin (B) smá.
Við (A) hræðumst hjarta hans og augun (C) blá. (D) (B)
Lag og texti: Bubbi Morthens
Ferða-lög
Fjöllin hafa vakað
Ferðagasgrill frá Ellingsen.
Grillið er lágþrýst og því fylgir
þrýstiminnkari og slanga.
Verð 4.807 krónur.
Til að skapa góða stemningu í útilegunni má raða samlokum og ávöxtum í fallega körfu sem allir geta seilst í þegar hungrið sverfur að.
FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN
Ítölsk samloka
Smyrjið tvær brauðsneiðar með pestói.
Raðið á sneiðarnar fersku salatblaði,
tómatsneiðum, sneiddum mozzarellaosti
og basiliku. Þessi samloka er sérlega góð
borin fram heit.
FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN
Laxasamloka
Laxasalat
3 msk. sýrður rjómi, 18 prósent
hálf lárpera
2 tsk. rauður kavíar
2 sneiðar reyktur lax
pipar
Skerið lárperuna í teninga og setjið smá
sítrónusafa yfir svo hún verði ekki svört.
Skerið laxasneiðarnar í strimla og blandið
varlega saman við sýrða rjómann ásamt
kavíarnum. Bragðbætið með pipar.
Grillið brauðsneiðarnar lítillega og setjið
salatblöðin ofan á, þrjár sneiðar af laxi, þá
kemur laxasalatið og að lokum er skreytt
með dillkvisti.
FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN
Tortilla-vafningar
Hitið tortilla-kökur lítillega á pönnu eða
á grilli til að ná pakkabragðinu úr þeim.
Kökurnar eru smurðar með hummus eða
með krydduðum rjómaosti. Á kökuna er
svo sett góð salatblanda ásamt klettasal-
ati sem gefur ferskt og gott bragð. Þessa
vafninga er einfalt að útbúa og með
því að binda utan um þá með borða er
auðvelt að grípa þá með sér á annasömum
útilegudegi.
FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN
Beikonsamloka með
eggjasalati
Eggjasalat
2 msk. sýrður rjómi
1 tsk. karrý
pínulítið af salti
3 harðsoðin egg
2 msk. sýrðar agúrkur
4 sneiðar ferskar agúrkur
Hrærið saman majónesi og sýrðum rjóma,
blandið karrý og salti saman við. Saxið
eggið og agúrkurnar og blandið saman við
majónesið. Ágætt að geyma smá majónes
til að smyrja brauðið með.
Penslið brauðsneiðarnar með góðri olíu
og steikið létt á grillinu. Ferskt lambasalat
sett ofan á brauðið og fjórar agúrkusneiðar.
Eggjsalatið kemur þar ofan á og að lokum
tvær sneiðar af þurrsteiktu beikoni ásamt
graslauk.
FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN
Eplakaka Café Flóru
250 g smjör
250 g sykur
3 egg
250 g hveiti
2 tsk. lyftiduft
3 epli
Þeytið saman sykur og smjörlíki, bætið
eggjunum saman við einu í einu og
hrærið saman. Hveitinu og lyftiduftinu er
bætt saman við. Afhýðið eplin og skerið í
sneiðar. Helmingurinn af deiginu fer fyrst í
formið og helmingnum af eplunum raðað
ofan á. Stráið smá kanil yfir. Síðan er restin
af deiginu sett yfir og restinni af eplasneið-
unum raðað ofan á. Bakið í ofni.
Þegar komið er út í náttúruna má setja
kökuna í álbakka og ofan á grillið í smá
stund. Kjörið hitastig væri þegar grillið
er að deyja út, sem er um það leyti
sem svangir ferðalangar eru tilbúnir fyrir
eftirrétt.
FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN
Kjúklingasamloka
Kjúklingasalat
hálf kjúklingabringa skorin í teninga
Þrír meðalstórir sveppir skornir í sneiðar og
léttsteiktir á pönnu með smjöri.
Spergilkál skorið í bita
Majónes bragðbætt með Dijon-sinnepi,
HP-sósu, salti og pipar.
1 msk. söxuð steinselja
Hrærið saman majónesið og bætið hráefn-
inu við. Penslið brauðsneiðarnar með hvít-
lauksolíu og setjið aðeins á grillið. Setjið
salatblað á sneiðina og raðið því sem eftir
er af kjúklingabringunni í sneiðum ofan á
og þar á eftir kjúklingasalatið.
FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN
Í Húsasmiðjunni fást tvenns
konar tegundir af ferðagrill-
um frá Weber. Grillgrindin
er glerungshúðuð og úr
pottastáli. Með grillinu fylgir
slanga í tengi fyrir einnota
kút og er brennarinn ryðfrír.