Fréttablaðið - 28.07.2006, Síða 56

Fréttablaðið - 28.07.2006, Síða 56
■■■■ { ferðahelgin } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■24 „Ég er að grilla smjörfyllt nauta- innlæri með kaldri franskri sveppasósu, bakaðri kartöflu, grill- uðu grænmeti og fersku salati. Það sem er þægilegt við þennan mat er að þú kaupir kjötið tilbúið hjá okkur og þarft ekkert að krydda það. Það er gott að láta vita að þú sért að fara með kjötið í útileg- una því að ef ferðagrillið er ekki fyrsta flokks þá skerum við kjötið í þynnri sneiðar og pökkum hverri steik fyrir sig ef þess er óskað. Hjá okkur geturðu líka keypt tilbúnar bakaðar kartöflur sem aðeins þarf að hita og við höfum ellefu teg- undir af köldum sósum til sölu,“ segir Ómar. Til að matreiða þennan mat þarf því aðeins að skella kjötinu, kart- öflunni og grænmetinu á grillið án alls undirbúnings eða tilstands. Það er þó ekki alveg sama hvernig maður grillar kjötið en Ómar vill meina að allir hafi grillfílinginn í sér. „Um leið og þú heldur að kjötið sé tilbúið þá er það í flest- um tilfellum tilbúið. Þú byrjar á því að kynda grillið í botn í svona korter. Á meðan hitarðu græn- metið og leyfir því að mýkjast vel enda er paprikan bara betri ef hún brennur aðeins. Þegar grillið er orðið vel heitt þá brúnarðu kjöt- ið báðum megin og ristar það vel. Þegar kjötið er ristað þá lækkarðu hitann og leyfir kjötinu að malla þangað til safapollur myndast ofan á því. Þegar kjötið hitnar fléttast í því prótínþræðirnir sem þrýsta safanum, og í þessu tilfelli smjör- inu líka, upp á yfirborðið. Þegar þú sérð þessa safapolla tekurðu kjötið af og leyfir því að jafna sig í svona tíu mínútur.“ Ómar segir innlærið hafa orðið mjög vinsælt í sumar eftir að hann byrjaði að setja smjör í kjötið. „Áður fyrr var þessi vöðvi ekkert sérstaklega vinsæll en nú er kjöt- ið mun mýkra og safameira með smjörinu. Þegar þú ert með svona gott kjöt þá getur grillveislan ekki klúðrast,“ segir Ómar að lokum. erlabjorg@frettabladid.is Ekki hægt að klúðra góðu kjöti Ómar Grétarsson hjá Gallerý kjöti segir sumarsmellinn í ár vera smjörfyllt nautainnlæri enda þykir það afar hentugt í útileguna. „Það er best að vera búinn að undirbúa ka r tö f lu sk í fu rna r og paprikuna heima áður en lagt er af stað í útileguna,“ segir Þráinn. „Maður sker kartöflurnar í þunn- ar skífur, um það bil eins sentimetra þykk- ar, og veltir þeim upp úr olíu með hvítlauk og til dæmis basilikku og timjan. Paprikuna penslar maður með sömu olíu og grillar síðan í eina mínútu á hvorri hlið, setur síðan á efri grind- ina og leyfir henni að malla í svona tvær til þrjár mínútur á hvorri hlið. Kartöflurnar eru grillaðar þar til þær brúnast og eru komnar með grillrend- ur og þá eru þær settar ásamt papr- ikunni á efri grindina þar sem þeim er snúið reglulega við þar til þær eru grillaðar í gegn,“ segir Þráinn. Eftir að grænmetið er komið á efri grindina er komið að því að grilla entrecôte nautasteikurnar góðu. Þær fær maður niðurskornar og tilbún- ar á grillið í kjötborðum í flestum verslunum. „Kjötið er bara kryddað með salti og pipar og svo fer það eftir þykktinni á steikinni og smekk manna hversu lengi maður grillar það. Kjötið sem ég gerði er í rauninni hrátt og ég grillaði það í tvær til þrjár mínútur. Það er best að nota kjötmæli og stinga honum í miðj- una á kjötinu til þess að meta hvort kjötið sé tilbúið. Kjötið hjá mér var 50-55 gráðu heitt, miðlungshrátt kjöt er 55-60 gráður, miðlungs er 60-65 og yfir miðlungs er 65-70 gráðu heitt. Svo set ég kjötið á efri grindina og leyfi því að jafna sig þar í tvær til þrjár mínút- ur,“ segir Þráinn og bætir við að þetta kjöt sé gott fitu- sprengt kjöt sem standi alltaf fyrir sínu. „Gott meðlæti er til dæmis tilbún- ar hvítlauks-, gráðosta-, eða pipar- sósur og ferskt grænmeti. Gott er að setja extra virgin olíu og balsamike- dik út á salatið, örlítið salt og pipar, sérrítómata og ef til vill fetaost. Það er fljótlegt að grilla þennan mat ef það er búið að skera og undirbúa heima. Kartöfluskífurnar og paprik- an endast jafnvel í heila viku í olí- unni ef þær eru í loftþéttum umbúð- um, eins og tuppeware-boxi. Maður getur jafnvel skorið niður kartöflur fyrir allar máltíðir í útilegunni og þá þarf maður ekki að hugsa um það meir,“ segir Þráinn að lokum. erlabjorg@frettabladid.is Úrvals nautasteik Þráinn Júlíusson, matreiðslumaður hjá Hereford steik- húsi, grillar entrecôte-steikur með kartöfluskífum og grillaðri papriku. Það er toppurinn á tilverunni að sitja úti í guðsgrænni náttúrunni, í kyrrð og ró, með veislumat á borðum. Það er sérstaklega ljúft ef mat- reiðslan tekur ekki hálfan daginn þannig að maður sofni ofan í diskinn sinn loksins þegar það kemur að því að borða. Grillmeistararnir gefa lesendum ráð og uppskriftir til að hafa veislumat í útilegunni sem kostar ekki mikla fyrirhöfn og sem er svo einfaldur að ekki þurfi meistaratign til að geta útbúið hann. erlabjorg@frettabladid.is Einfalt og gott á grillið Grillmeistararnir hjá Kokkunum, Gallerý kjöti og Here- ford steikhúsi grilla ljúffengan og hentugan mat fyrir útileguna. Rúnar Gíslason, mat- reiðslumaður hjá Kokkunum, gefur lesendum uppskrift að grilluðum stein- bít með hollu kart- öflusalati og grilluðu grænmeti. „Það sem er svo gott við þennan rétt er að þú getur klárað allan undirbúning heima áður en lagt er af stað í ferðalagið. Undirbúningurinn tekur bara tíu til tut- tugu mínútur og þú ert með gómsætan mat í útileguna sem tekur enga stund að grilla. Fiskur- inn er maríneraður kvöldið áður og látinn liggja yfir nóttina. Kartöflusal- atið er líka búið til kvöldið áður enda er það bara betra daginn eftir. Það er eins með græn- metið, paprikan er skorin í stóra bita og lögð, ásamt ferskum aspas, í olíu, salt og pipar. Áður en það er lagt í hann er maturinn allur sett- ur í poka eða box og tekinn með í útileg- una,“ segir Rúnar. Það tekur held- ur ekki langan tíma að grilla þennan einfalda mat. „Þú skerð fiskinn í 200 gr. steikur og skellir á sjóðandi heitt grillið. Eftir að fiskurinn er kominn á grillið má ekkert hreyfa við honum því að þá fer hann í sundur og á milli járn- anna. Eftir um það bil fimm mínútur fer fiskurinn að losna frá járninu og þá snýrðu honum við. Svo saltarðu fiskinn á grillinu,“ segir Rúnar. Það tekur sem sagt tíu mínútur að grilla fiskinn og þegar hann er tilbúinn þá er bara grænmetið eftir. Undirbúningurinn kláraður heima Grillaður steinbítur með grilluðum ferskum aspas og papriku ásamt kartöflusalati. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Steinbíturinn er grillaður í fimm mínútur á hvorri hlið eða þar til fiskurinn skilur sig frá grillinu. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Rúnar, hjá Kokkunum, við grillið. Á GRILLINU: Maríneraðar steinbíts- lundir Marínering: Chilli, engifer, hvítlaukur og olía. Látið marínerast yfir nótt. Kartöflusalat: Nýtt íslenskt kartöflu- smelki, rauðlaukur, hind- berja- eða rauðvínsedik. Paprika og ferskur aspas. Lagt í olíu, salt og pipar. Þráinn Júlíusson, matreiðslumaður hjá Hereford steikhúsi, sýnir snilldartakta við grillið. Entrecôte-nautasteik með kartöfluskífum, grillaðri papriku, fersku salati og kaldri hvítlaukssósu. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Þráinn með grillréttinn góða. Grillaða papr- ikan, ofan á kjötinu, gerir gæfumuninn. Á GRILLINU: Entrecôte-nautasteikur kryddaðar með salti og pipar. Kartöfluskífur og paprika í olíu, hvítlauk, basilikku og timjan. Köld sósa. Með hvít- lauks-, gráðosta- eða piparbragði. Salat, sérrítómatar og fetaostur með olíu, balsamikediki og salti og pipar. Á GRILLINU: Smjörfyllt nauta-innralæri að hætti Gallerý kjöts Bakaðar kartöflur með hvít- laukssósu Grillaðar paprikur og rauðlauk- ur Ferskt salat Galdurinn við að steikja kjötið er að hafa grillið nógu heitt og treysta á sjálfan sig hversu lengi á að grilla það. FRÉTTABLAÐIÐ/HRÖNN Smjörfyllt nautainnlæri, bökuð kart- afla, grillað og ferskt grænmeti ásamt franskri kaldri sósu.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.