Fréttablaðið - 28.07.2006, Side 60
■■■■ {ferðahelgin} ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■28
– Mest lesið
Þetta gæti tekið tíma
Er fasteignin þín ekki í mest lesna fasteignablaðinu?
Þegar hægist um á fasteignamarkaði er mikilvægara en nokkru sinni að auglýsa
á besta staðnum. Samkvæmt nýjustu könnun Gallup* lesa 40% fleiri Íslendingar á
aldrinum 25–49 ára Allt-fasteignir en Fasteignablað Morgunblaðsins. Vertu viss
um að eignin þín nái athygli sem flestra!
*Samkvæmt könnun Gallup, maí 2006
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Vegamyndir eiga það sameiginlegt að gerast á ferða-
lagi. Stundum er ferðalagið burðarás í sögunni, í öðrum
tilfellum aðeins daufur bakgrunnur. Söguhetjurnar eru
æði oft litskrúðugar og á ferðalagi sínu hitta þær fyrir
enn skrautlegra fólk.
Vegurinn sjálfur getur verið táknrænn fyrir frelsi,
flótta eða, sem algengara er, innra ferðalag persón-
anna að ákveðnu lokamarki, frá einum stað lífsins til
annars. Hvort áfangastaðir standa undir væntingum er
jafn óvíst og í lífinu sjálfu og þess vegna er alltaf jafn
spennandi að setjast fyrir framan sjónvarpið með popp
í skál og horfa á góða vegamynd.
Fyrir þá sem heima sitja
Hvort sem það er til að koma sér í stuð áður en lagt er út á þjóðveginn eða sem sára-
bót fyrir þá sem þurfa að sitja heima, eru vegamyndir hin besta skemmtun.
Dumb & Dumber (1994)
Þó svo að Dumb & Dumber sé ekki vegamynd sam-
kvæmt ströngustu skilgreiningu þá eru mörg atriði
í myndinni sem gerast á þjóðvegum Bandaríkjanna
á leið þeirra félaga til Aspen í Colorado. Í upphafi
leggja þeir af stað á hundabílnum fræga en komast
loksins á leiðarenda á örlitlu mótorhjóli, blautir og
kaldir. Jim Carrey og Jeff Daniels leika þá félaga
Harry & Lloyd sem leggja land undir fót til þess að
koma skjalatösku í hendur réttmæts eiganda. Auk
þess að gerast á þjóðvegunum er myndin alveg
óborganlega fyndin.
Nokkrar vegamyndir sem vert er að gefa gaum: Foxtrot (1988)
Íslenskur spennutryllir sem hefur
alla kosti góðra vegamynda. Á
einum degi lenda sögupersón-
urnar í raunum sem fæstir þurfa
að kljást við á heilli ævi. Valdi-
mar Örn Flygenring og Steinar
Ólafsson leika hálfbræður sem
taka puttaferðalang, leikinn af
Maríu Ellingsen, upp í bílinn
sinn og við það hefst atburða-
rás sem er allt í senn; spennandi,
skeflileg og trúverðug.
Easy Rider (1969)
Það er ekki hægt að fjalla um ferða-
myndir án þess að minnast á hina
frábæru mótorhjólamynd Easy Rider.
Jack Nicholson, Peter Fonda og Dennis
Hopper fara á kostum í þessari klassík
sem vafalaust hefur fengið marga til
að langa að þeysast um á mótorfákum.
Kvikmyndin fjallar um síðhærða mót-
orhjólatöffara á ferðalagi þeirra frá Los
Angeles til Mardi Gras hátíðarinnar í
New Orleans. Á ferð sinni komast þeir í kynni við marga skrautlega ein-
staklinga. Easy Rider er kvikmynd sem sendir hugann af stað í ferðalag,
jafnvel þó svo að líkaminn sitji sem fastast á sófanum heima.
Diarios de motocicleta (2004)
Myndin segir frá mótorhjólaferðalagi Ernesto
Che Guevara sem þá var nýútskrifaður læknir og
Alberto Granado félaga hans. Á nokkrum mán-
uðum ferðuðust þeir félagar um heila heimsálfu
og mynduðu sér um leið sterkar pólitískar skoð-
anir eftir að hafa orðið vitni af ömurlegu ástandi
víða. Stórbrotið landslag Suður-Ameríku spilar
stóra rullu í þessari áhrifaríku mynd og mynda-
takan er frábær. Gael García Bernal leikur Gue-
vara listavel í myndinni.
Með allt á hreinu (1982)
Ein vinsælasta mynd Íslandssögunnar og skorar 8,3 á imdb.com. Ósætti
innan hljómsveitar klífur hana í tvennt rétt áður en sveitaballasumar
gengur í garð. Úr verður barátta milli tveggja hljómsveita, Stuðmanna
og Grýlanna, sem þeysast um landið og keppast um hylli landans. Í
anda vegamynda eru viðkomustaðirnir margir og lókallinn oft á annarri
bylgjulengd en ferðalangarnir. Bráðskemmtileg mynd, fyndin og hug-
ljúf auk þess sem tónlistin er sígild. Líklega eina vegamyndin í heimi þar
sem leikurinn færist til Vestmannaeyja.