Fréttablaðið - 28.07.2006, Side 61
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ { ferðahelgin } ■■■■ 29
Fjallgöngur eru holl hreyfing og
gefandi tómstundaiðkun. Það jafn-
ast ekkert á við tilfinninguna sem
því fylgir að standa á fjallstindi
með sveitt bak, vindinn í andlit-
ið og dást að útsýninu, vitandi að
þú hefur háð baráttu við fjall og
unnið.
Þar sem veður getur brugðist til
fjalla, allan ársins hring, er rétt að
vera við öllu búinn. Til að auðvelda
undirbúning og tryggja skynsam-
lega ferðamennsku styðst fjallafólk
oft við neðangreindar reglur, stund-
um kallaðar fjallareglurnar níu.
1. Farðu ekki í langferð án þjálfun-
ar.
2. Láttu vita hvenær og hvaðan þið
haldið af stað og hvenær þið áætlið
að koma til baka.
3. Taktu mið af veðri og veðurút-
liti.
4. Hlustaðu á reynt fjallafólk.
5. Vertu viðbúin(n) slæmu veðri og
óhöppum, jafnvel í stuttum ferð-
um.
6. Hafðu alltaf kort og áttavita og
jafnvel hæðarmæli með í ferðum.
7. Ferðastu ekki ein(n) þíns liðs.
8. Snúðu við í tæka tíð – það er
engin skömm að fara til baka.
9. Sparaðu kraftana og leitaðu
skjóls í tæka tíð. - elí
Fjallareglur
fyrir fjallafólk
Hvort sem um lengri eða styttri fjallgöngur
er að ræða getur margborgað sig að vanda
til við undirbúninginn.
Slysin gera ekki boð á undan sér. Verði þau á ferðalagi
getur verið langt í læknisaðstoð og því mikilvægt að sem
flestir séu undir það búnir að bregðast rétt við og veita
skyndihjálp.
Rétt fyrstu viðbrögð við alvarlegu slysi eru, samkvæmt
Rauða krossi Íslands:
1) Tryggja öryggi.
2) Hringja í 112.
3) Beittu strax endurlífgun ef engin viðbrögð eru við
áreiti og öndun er óeðlileg.
4) Stöðvaðu blæðingu með því að þrýsta á blæðingar-
stað.
Ef komið er að bílslysi er öryggi tryggt á eftirfarandi
hátt:
1) Stöðvaðu umferð að slysstað.
2) Settu öryggisþríhyrning í 200 metra fjarlægð.
3) Slökktu eld.
4) Skorðaðu bílflak ef hætta er á að það velti.
5) Aftengdu rafmagn ef um rafmangsslys er að ræða.
Eftir hátt fall, harðan árekstur eða bílveltu skaltu hringja
í 112 og láta flytja viðkomandi til læknisskoðunar - án
tillits til þess hvort áverkar sjáist eða ekki.
Skyndihjálparkunnátta getur bjargað mannslífum. Hafir
þú áhuga á að sækja námskeið í skyndihjálp getur þú
hringt í Rauða kross Íslands í síma 570 4000.
Aðkoma að slysi
Rétt viðbrögð skipta höfuðmáli.
Sjónvarpskokkurinn og bakar-
inn Jói Fel hikaði ekki neitt þegar
blaðamaður spurði hann hvað væri
alveg ómissandi í útileguna að hans
mati. „Ég myndi taka grillsteikina
mína,“ segir Jói brattur og legg-
ur áherslu að þetta sé sérstaklega
steikin hans. „Steikin mín er 600
gramma feit rib-eye steik. Hún er
alveg ómissandi á grillið í ferðalag-
ið,“ segir hann og útskýrir að það sé
ekkert mál að grilla hana. „Það þarf
bara að elda þetta lítið, við háan
hita og láta kjötið brenna aðeins.
Þegar steikin er svona þykk og góð
þá verður hún alltaf blóðug. Þetta
er sko steikin mín.“
Grillsteikin mín
Ferðafélag Íslands á 34 sæluhús
víðs vegar um landið. Skálarn-
ir eru þægilegir áningarstaðir
fyrir ferðalanga á ferðum um
óbyggðir. Aðbúnaður í skálun-
um er góður. Hægt er að gista
í skálunum eða skjótast þangað
inn til að borða nestið sitt. Allir
geta nýtt sér sæluhúsin og yfir
sumartímann starfar í flestum
þeirra skálavörður sem tekur
á móti ferðamönnum og veitir
upplýsingar um svæðið.
Sæluhús í
óbyggðum
Nýr skáli Ferða-
félags Akureyrar
við Drekagil.
Það geta allir lent í því að koma að slysi. Rétt viðbrögð geta skilið á
milli lífs og dauða. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Ómissandi í ferðalagið