Fréttablaðið - 28.07.2006, Page 72
28. júlí 2006 FÖSTUDAGUR16
Dögg Hjaltalín, forstöðumaður fjárfestatengsla hjá
Avion Group, lætur sig dreyma um að komast í
helgarferð til stórborgarinnar New York.
„Í borginni er allt sem hugurinn girnist,“ útskýrir
Dögg. „Ég hæfi laugardaginn á sólbaði í Central
Park, sem er fallegur garður og uppfullur af afþrey-
ingu. Þar er meðal annars hægt að fara í skemmti-
legt barnatívolí og dýragarð.“
Förinni væri næst heitið niður í Village í New
York, sem er að sögn Daggar fullt af skemmtileg-
um verslunum og veitingahúsum. „Eftir að hafa
eytt góðum degi í Village, Soho, Kínahverfinu og
nágrenni færi ég út að borða í litlu Ítalíu,“ segir
hún. „Ég á mér nú engan uppáhaldsstað, enda eru
þeir margir góðir, og léti því stemninguna einfald-
lega ráða því hver yrði fyrir valinu. Þar pantaði ég
mozarella buffala og gott rauðvín, en limoncello ís
í eftirrétt.“
Eftir mat færi Dögg að sjá söngkonuna Earthu
Kitt syngja á djassklúbbi. „Hún er að vísu orðin svo
gömul að það fer hver að verða síðastur að sjá hana
koma fram,“ segir hún. „Ég hef þó heyrt að hún sé
enn í feiknagóðu formi miðað við aldur.“
Afgangi helgarinnar myndi Dögg eyða á
ströndinni á Long Island og sötra kokteil við söng
og gítarleik Jacks Johnson. „Ég yrði að slappa af
eftir búðarráp, en bókabúðir borgarinnar standa
upp úr. Eins og heyrist dugar varla ein helgi til að
heimsækja borgina og því væri nær að tala um
draumaviku, en svona yrði mín draumahelgi fengi
ég að ráða,“ segir hún og hlær.
DRAUMAHELGIN:
Með Earthu Kitt í New York
Dögg langar til að slappa af á ströndinni á
Long Island.
FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
VISSIR ÞÚ...
... að árið 1999 sýndi könnun að ef
25.000 orða enskri orðabók er flett
er þegar búið að skrá 93 prósent af
orðunum sem veflén sem endar á
.com?
...að sundlaugin á Biltmore-hótelinu
í Flórída er sú stærsta í Bandaríkj-
unum? Flatarmál hennar er yfir tvö
þúsund fermetrar.
...að það eru 318.979.564.000 mis-
munandi leiðir til þess að leika fjóra
fyrstu leikina í skák?
...að tveir í það minnsta deyja á
hverju ári við að fá sjálfsala yfir sig?
...að um 0,7 prósent einstaklinga í
heiminum eru núna undir áhrifum
áfengis?
...að ef þú reyndir að telja stjörn-
urnar og myndir ná að telja eina
stjörnu á sekúndu myndi taka þig
í kringum þrjú þúsund ár að telja
þær allar?
...að fimmtíu þúsund frumur í
líkamanum þínum munu deyja og
aðrar myndast í þeirra stað á þeim
tíma sem tekur þig að lesa þessa
setningu?
...að flestir blikka augunum tuttugu
og fimm sinnum á mínútu?
...að magi þinn framleiðir nýja innri
húð á tveggja vikna fresti og að ef
hann gerði það ekki myndi hann
melta sjálfan sig?
...að vinstra lunga þitt er minna en
hægra lungað til að hjartað komist
fyrir?
...að tvö þúsund grettur gera eina
hrukku?
...að meðalmanneskja blikkar aug-
unum yfir sex milljón sinnum á ári?
...að hver einstaklingur er með
sérstakt tungufar, það er að segja
engar tvær tungur eru nákvæmlega
eins?
...að þú brennir 26 kaloríum við að
kyssa einhvern í eina mínútu?
...að í meðallíkama er nógu mikil
fita til þess að búa til sjö sápu-
stykki?
...að ef þú drekkur mjólk með kjöti
tekur líkami þinn ekki upp neitt af
kalkinu í mjólkinni og æskilegast er
að láta líða tvo tíma á milli þess að
drekka mjólk og borða kjöt til að fá
kalkið?
...að tennur eru einu líffærin sem
geta ekki endurnýjað sig?
...að fyrsta hálftímann var hver
mannvera bara ein fruma?
��������������
�������
����������
����
����
�������
������
��������
�����
��������
����������
��� ��
��������������
��������������
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
�����
������������������������������������������������������������
�����������������������������������������������������������
����������
��������������������
������������������
��
���
��
��
��
��
�
�
�� ������������� ��������������������������� �����������
���� ������������
G L Æ S I L E G S Ý N I N G
28. - 30. júlí
um helgina milli kl. 12 og 17
Gengið inn um aðalinngang
Á sýningunni verða einnig til sýnis:
Mercedes Bens CLS 500
Mercedes Bens SLK 280
Mercedes Bens ML 350
Mercedes Bens S550
Master er komin með þessa frábæru bíla í sölu
og munum af því tilefni halda sölusýningu dagana