Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.07.2006, Qupperneq 73

Fréttablaðið - 28.07.2006, Qupperneq 73
FÖSTUDAGUR 28. júlí 2006 25 Í flestum fjölmiðlum er nú nær daglega rætt um matvælaverð og hugmyndir um að fella niður tolla til að auka enn frekar aðgengi og innflutning á landbúnaðarvörum sem alla daga flæða til landsins í gífurlegu magni, svo sem hveiti, matarolíur, epli, kaffi og hrísgrjón. Svokallaðir verndartollar á ákveðnar tegundir innfluttra land- búnaðarvara eru ekki gripnir úr lausu lofti enda eru Íslendingar sannarlega alls ekki eina þjóðin sem kýs að nýta þá sem leið til að tryggja neytendum sínum aðgang að heimafengnum mat. Eigin mat- vælaframleiðsla og matarmenn- ing er ein stoða sjálfstæðis í heimi þjóðanna og hluti af þjóðarstolti og menningu. Við búum á eyju í Atlantshafi og þrátt fyrir nútíma- tækni í samgöngum hlýtur öryggi þjóðarinnar og sjálfstæði m.a. að hvíla á því að við verðum ekki algjörlega ofurseld öðrum þjóðum varðandi þá frumþörf mannsins að afla sér matar. Verndartollarn- ir standa vörð um þann sjálfsagða rétt og öryggi íslenskra neytenda að geta boðið sjálfum sér, börnum sínum og gestum erlendum sem innlendum upp á íslenskan mat á íslenskri grund. Æ ofan í æ, síðast nú í fréttum af matvörumarkaði í Bandaríkj- unum, segja erlendir neytendur okkur þær fréttir að íslenskar landbúnaðarvörur séu eftirsókn- arverðar en finnst okkur íslenskri þjóð verðugt að vernda þær? Ef breytt viðskiptaumhverfi, t.d. nið- urfelling eða veruleg niðurfærsla tolla á þær matvörur sem við getum framleitt hér á eyjunni í úthafinu, verður til þess að fram- leiðsluvörur bænda, mjólkurfræð- inga, kjötiðnaðarmanna og fjölda starfsfólks í matvælavinnslu verða verðfelldar og sviptar launa- greiðslugetu og mögulegum rekstrargrundvelli, hverfa ísl- enskar landbúnaðarvörur og þar með íslenskur matur, ef fiskur er undanskilinn. Þá hafa íslenskir neytendur ekkert val um íslenska vöru eða erlenda heldur verða að éta það sem heimsmarkaður býður hvað sem tautar eða raular. Hver verður íslensk matarmenning þá? Hvenær þykir fínt að vernda það sem íslenskt er? Á það aðeins við urð og grjót, kletta, klungur og íslenskt tungutak eða kjósum við líka að venda og varðveita mögu- leika Íslands og þjóðarinnar til að skapa mat úr mold? Matvæla- öryggi og þjóðarstolt UMRÆÐAN ÍSLENSK MATVÆLI KRISTÍN LINDA JÓNSDÓTTIR KÚABÓNDI Hæstiréttur hefur úrskurðað að vísa frá fyrsta, og jafnframt viðamesta, ákæruliðnum í Baugsmálinu. Úrskurðurinn hlýtur að vera gríðarlegt áfall fyrir dómsmálaráð- herrann Björn Bjarnason en það er ekkert launungarmál að hann hefur haft horn í síðu sakborninga. Í þessu samhengi er rétt að minn- ast þess að Björn Bjarnason setti fréttir af sýknudómi í Baugsmáli sem féll í héraðsdómi í mars sl. í samhengi við drápið á Júlíusi Sesar með þeim orðum að þó svo að Júlíus hefði fallið sama dag og dómur hér- aðsdóms hefði saga Rómar haldið áfram. Björn hefur svo sannarlega reynst sannspár um að Baugsmálið héldi áfram þrátt fyrir frávísanir og sýknudóma og má reikna með að svo verði svo lengi sem Sjálfstæðis- flokkurinn situr í ríkisstjórn. Upp- haf málsins má rekja beint inn í innsta kjarna Sjálfstæðisflokksins þar sem m.a. framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins og ritstjóri Morgunblaðsins lögðu á ráðin um hvernig ætti að leggja til atlögu við sakborninga. Baugsmálið hefur verið rekið eins og hvert annað einkamál Björns Bjarnasonar og kom það skýrt fram í svari við fyrirspurn sem ég beindi til hans á Alþingi um kostnað við rannsókn málsins sem hófst með húsrannsókn þann 28. ágúst 2002. Frá því er skemmst að segja að Björn Bjarnason upplýsti í engu um kostnaðinn rétt eins og fulltrúa almennings varðaði ekki nokkurn skapaðan hlut um hver kostnaðurinn væri af dómsmáli sem farið var í á þeim forsendum að verið væri að gæta almannahagsmuna. Það er vert að bera saman gríðar- lega áherslu Sjálfstæðisflokksins annars vegar á að velta við hverjum steini til þess að kanna hvort stjórn- endur Baugs hafi gengið á hlut almenningshlutafélagsins sem þeir stýrðu og hins vegar hvernig sami flokkur hefur gengið sóðalega um sölu á eignum almennings. Við sölu eigna almennings hafa sjálfstæðismenn tekið þátt í að ráð- stafa þeim milli velunnara stjórnar- flokkanna og alls ekki haft í huga að fá sem hæst verð fyrir eignirnar. Óhagstæðari tilboðum en buðust var t.d. tekið í Síldarverksmiðju ríkisins og Landsbanka Íslands. Hið sama má segja um Framsóknarflokkinn þar sem formaður flokksins hefur sópað til sín og sinna eigum almenn- ings fyrir lítið. Ekki verður heldur séð að nokkur áhersla sé lögð á að rannsaka olíu- samráðssvikamálið sem tengir sig langt inn í innsta kjarna stjórnar- flokkanna. Öll teikn eru á lofti um að hagsmunir almennings verði áfram bornir fyrir borð í kaupum ríkisins á olíu. Fréttir berast af því að forstjóri Ríkiskaupa sem situr í skjóli Sjálf- stæðisflokksins hafi ekki nokkurn áhuga á að ná sem hagstæðustum innkaupum á eldsneyti heldur hafi framlengt án útboðs bróðurlega skiptingu á milli olíufélaganna sem svindluðu á ríkissjóði. Það er ljóst að Sjálfstæðisflokk- urinn þjónar alls ekki hagsmunum almennings heldur mjög þröngum flokkspólitískum hagsmunum. Það er orðið löngu tímabært að skipta um landsstjórn og veita Frjálslynda flokknum umboð til þess að setja hagsmuni almennings í öndvegi. Einkamál Björns Bjarnasonar UMRÆÐAN HAGSMUNIR SJÁLFSTÆÐIS- FLOKKSINS SIGURJÓN ÞÓRÐARSON ALÞINGISMAÐUR 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.