Fréttablaðið - 28.07.2006, Side 74
28. júlí 2006 FÖSTUDAGUR26
Ný bók Andra Snæs Magnasonar,
Draumalandið - Sjálfshjálparbók
handa hræddri þjóð, hefur mikið
verið í umræðunni undanfarið og
höfundurinn og ritverkið hlaðin
lofi. Megininntak bókarinnar er að
stöðva beri áframhaldandi nýt-
ingu endurnýtanlegra orkulinda
landsins og gera eitthvað annað og
mikilfenglegra í staðinn.
Ættjarðarást og þjóðernishyggja?
Höfundur telur að hér sé lítið mál
að koma á hámenningarsamfélagi
án jafnoka. Ekki er þó allt sem
sýnist og innihald og framsetning
hugvekjunnar verða býsna kunn-
ugleg því í bókinni koma fyrir
margkveðin stef ættjarðarástar
og þjóðernishyggju. Einangrunar-
stefna og einlægur ótti við erlend
áhrif er oftar en ekki fylgifiskur
slíkrar þráhyggju ásamt staðfastri
vissu um að innlendir samverka-
menn - sannkallaðir landráðamenn
- vinni að því öllum árum að selja
land og þjóð á vald hinna illu og
eyðandi afla - oftast ímyndaðra og
lítt áþreifanlegra.
Þjóðernishyggjan styður sig
oftar en ekki við vel skilgreinda
aðsteðjandi hættu og er raunveru-
legur eða ímyndaður óvinur kjarni
slíks málflutnings. Vangaveltur
um yfirburði Íslendinga á sviði
vísinda og menningar, verði
Draumalandið að veruleika, minna
á hugmyndir Þjóðverja um Þriðja
ríkið og yfirburði þýsks samfé-
lags og menningar – Þúsund ára
ríkið (Großdeutschland). Oftar en
ekki nærir málflutningur af þessu
tagi vanmetakennd og stórveldis-
drauma þeirra sem telja sig hand-
hafa hins æðsta sannleiks og virk-
ar sem herkvaðning til baráttu
fyrir hinum óvéfengjanlega og
réttsýna málstað - hinu nýja mikil-
fenglega Íslandi Draumalandsins.
Svokallaðri stóriðjustefnu og
þeirri lágmenningu sem henni
fylgi beri að víkja til hliðar strax.
Engu skipti að atvinnustefna und-
anfarinna áratuga byggi á vilja
mikils meirihluta kjörinna þing-
fulltrúa og þar með kjósenda.
Einangrunarstefna
og hræðsluhyggja
Tortryggni í garð útlendinga og sú
skoðun að þeir eigi helst ekki að
vera virkir þátttakendur í íslensku
atvinnulífi er eitt þjóðernis-
hyggjustefið sem ákaft er spilað.
Jafnvel standi til að beita varnar-
liðinu gegn náttúruverndarfólki,
sjálfum útlendingunum til varnar
öðrum útlendingum. „Stjórnmála-
maður hefur hugsað sér að verja
aðgang stórfyrirtækis á borð við
Rio Tinto að óspilltu og jafnvel
vernduðu landi á Lowest Prices
með vopnavaldi.“ Ómögulegt er að
átta sig á því hvort höfundurinn sé
að bulla eitthvað út í loftið eða tala
í alvöru – í bókinni virðast skilin
milli draums og veruleika afar
óljós vægast sagt. Þrátt fyrir þetta
taka margir boðskapnum án gagn-
rýni og leggjast á árar með þeim
sem hæst láta - Ísland fyrir Íslend-
inga.
Höfundur skilgreinir þá sem
unnið hafa að uppbyggingu raf-
orkuiðnaðar á Íslandi sem flugu-
menn erlendra stórfyrirtækja og
af óskýrðri illmennsku og sjálfs-
eyðingarhvöt steypi þessir aðilar
sjálfum sér og landinu í glötun.
Það er segin saga að þegar ídeó-
lógían hittir fyrir ídealistann og sá
skilgreinir og vísar á meinta söku-
dólga fer gamanið að kárna. Opin-
berar sakbendingar og ráðlegg-
ingar um hæfilegar refsingar til
handa þeim er luma á skaðlegum
skoðunum setja hroll að manni –
DREKKJUM VALGERÐI.
Hernaðurinn gegn landinu
– hernaðurinn í sálinni!
Svo svæsinn er höfundurinn í
samsæriskenningunum að lesa
þarf aftur og aftur heila kaflahluta
til þess að átta sig á samhenginu
og því hvort rétt sé skilið. Ef skipt
er út orðunum Iðnaðarráðuneyti,
Orkustofnun, Landsvirkjun og
stóriðjufyrirtæki og sett inn í stað-
in orðin Al-Kaída, Afganistan,
Sómalía og Írak og George W. Bush
skipt inná í stað höfundar, verður
samsuðan íronísk. Reyndar tvinn-
ar höfundur svo hressilega saman
bölmóði og sakfellingum við súr-
realískar vangaveltur og eigin
spunafrasa að það tekur hressi-
lega í að lesa herlegheitin. Ein-
hvers staðar bakvið sveimar svo
fyrrum orkumálastjóri í líki Osama
bin Laden - höfuðpaurinn og hug-
myndafræðingurinn - HRYÐJU-
VERKAMAÐURINN.
Eru núverandi forseti Banda-
ríkjanna og höfundur Drauma-
landsins að grafa í sama díki
óttahyggju? Bush hræðist hryðju-
verkamenn en Andri snær íslenska
ráðamenn og ameríska herinn.
„Íslandssagan væri auðvitað
önnur og betri ef hryðjuverkafólk-
ið sem sprengdi stífluna við
Mývatn og bjargaði Laxárdal árið
1970 hefði verið „teppalagt“ með
B-52 vélum. Hernaðurinn gegn
landinu fær alveg nýja merkingu í
þessu ljósi. Hver veit nema
orrustuþoturnar fjórar verði
búnar GoreTex-skynjara í fram-
tíðinni. Það á ekki að gera grín að
þessu, þetta er ömurlegt.“
Súrrandi áróður ritverksins gerist
harla geggjaður og fylgjendum
málflutningsins fjölgar dag frá
degi. Upphrópanir landsþekktra
Íslendinga um dásemdir kenninga
Draumalandsins glymja í eyrum
hvar sem farið er.
TERROR ALERT – WE HAVE
GOD ON OUR SIDE!
Að njóta og nýta
Flest álitamál eiga sér margar
hliðar og virða þarf öndverðar
skoðanir séu þær settar fram af
sanngirni og án ofstopa og upp-
hrópana. Þegar deilt var um hval-
veiðar við Ísland fyrir áratug eða
svo og ýmsir, þ.á.m. undirritaður,
töldu óskynsamlegt að stunda
hvalveiðar samhliða hvalaskoðun,
sagði hrokkinkollur, núverandi
seðlabankastjóri; „njótum og
nýtum.“ Það voru gáfuleg ummæli
og öðrum til eftirbreytni.
Svo að lokum sé vitnað í höfund
bókarinnar:
„Ég var alveg sannfærður um
að það kæmi til kjarnorkustyrj-
aldar áður en ég næði unglings-
aldri. Mig dreymdi það þegar ég
var tíu, ellefu og tólf ára, ég las
greinar í Mogganum, sá The Day
After í sjónvarpinu, skoðaði öft-
ustu síður símaskrárinnar um við-
brögð við geislavirku úrfelli.“
Ætlar hinum hugumstóra rit-
höfundi Draumalandsins að ganga
illa að hrista af sér martraða-
skelfingu bernskuáranna? Hefur
óttanum tekist að persónugera
kjarnorkusprengjuna í orkumála-
stjóranum fyrrverandi og eru hin
nýju kjarnorkuveldi martraðanna
Iðnaðarráðuneytið, Orkustofnun
og Landsvirkjun? Hríslast ótta-
blandið svartnætti um sálartetur
höfundar og annarra fylgjenda
kenninganna?
Hernaðurinn í sálinni
Það er eitthvað sérstakt við geitur.
Fyrir utan það að þær eru stór-
skemmtilegar verur sem leika sér
eins og hvolpar, þá hafa þær þann
fallega eiginleika að geta bjargað
mannslífum! Geitur eru mjög gef-
andi dýr, þær gefa mjólk, tað, hita,
kið, kjöt og skinn. Þær eru líka
sérstaklega auðveldar í meðhöndl-
un, nema að maður verður að
passa að þær éti ekki sængurfötin
úti á þvottasnúru. Það eru fá dýr í
heiminum með eins góða meltingu
og geitur og það er í raun ekkert
sem þær láta ekki í sig!
Takmarkalaus neyð
Það er engum ókunnugt um að stór
fjöldi fólks í heiminum býr við
örbirgð, svo stór fjöldi að fyrir
mörg okkar er tilhugsunin um það
of mikil að meðtaka. Neyðin er svo
takmarkalaus að við vitum ekki
hvar við eigum að byrja, hvað við
getum gert til þess að hjálpa og
mörg okkar spyrja hvort hjálpin
virkilega nái fram. Við hjá Hjálpar-
starfi kirkjunnar könnumst vel við
slíkar hugleiðingar, með takmörk-
uðum möguleikum til að aðstoða þá
þarf að hugsa vel um hvar og hvern-
ig við getum aðstoðað.
Framtíðarvon
Eitt sem við höfum uppgötvað í
verkefnum okkar er að fátt bætir
aðstöðu og gefur eins mikla fram-
tíðarvon eins og að eignast geit.
Fyrir allslausa fjölskyldu, munað-
arlaus börn eða aldraða ekkju sem
aldrei hafa haft möguleika á að
stofna til skepnuhalds, getur ein
geit verið happdrættismiðinn sem
breytir lífinu. Með því að vinna
með öðrum í nærsamfélaginu
tekur ekki langan tíma að safna
sér geitahjörð. Þá er hægt að selja
afurðina og fjárfesta í frekari
betrumbótum fyrir fjölskylduna
og fyrir samfélagið. Taðið er notað
sem áburður á ræktun sem gefur
betri uppskeru og með því verður
afkoman öruggari og fæðan fjöl-
breyttari. Hlátur og gleði kemur
af því að horfa upp á prakkara-
strikin sem kiðin taka upp á. Allt
þetta með einni lítilli geit...
Gjöfin sem heldur áfram að gefa
Ef þú eins og við vilt nýta þér
þennan möguleika, að fá á áþreif-
anlegan hátt að upplifa þá blessun
að vera til aðstoðar annarri mann-
eskju, að upplifa þá gleði að gefa
náunganum happdrættismiða með
vinning, að gefa gjöf sem heldur
áfram að gefa, þá gefðu geit. Þú
getur með því að kaupa gjafabréf
hjá okkur gefið geit í afmælisgjöf,
brúðkaupsgjöf, í raun hvaða gjöf
sem er. Það mikilvæga er að með
þessari gjöf ert þú að gefa líf,
skapa von og þú getur verið örugg
um að við sjáum til þess að hjálpin
nái fram. Skoðaðu vefsíðu Hjálp-
arstarfs kirkjunnar og lestu meira
um geitur á www.help.is.
Ein lítil geit...
UMRÆÐAN
HJÁLPARSTARF
KIRKJUNNAR
LYDÍA GEIRSDÓTTIR
VERKEFNISSTJÓRI
Fyrir allslausa fjölskyldu,
munaðarlaus börn eða aldr-
aða ekkju sem aldrei hafa
haft möguleika á að stofna
til skepnuhalds getur ein geit
verið happdrættismiðinn sem
breytir lífinu.
UMRÆÐAN
DRAUMALAND
ANDRA SNÆS
MAGNASONAR
ÓSKAR VALTÝSSON
FJARSKIPTASTJÓRI LANDSVIRKJUNAR
Höfundur skilgreinir þá sem
unnið hafa að uppbyggingu
raforkuiðnaðar á Íslandi sem
flugumenn erlendra stórfyrir-
tækja og af óskýrðri illmennsku
og sjálfseyðingarhvöt steypi
þessir aðilar sjálfum sér og
landinu í glötun.
SENDIÐ OKKUR LÍNU
Við hvetjum lesendur til að senda okk-
ur línu og leggja orð í belg um málefni
líðandi stundar. Greinar og bréf skulu
vera stutt og gagnorð. Eingöngu er
tekið á móti efni sem sent er frá Skoð-
anasíðunni á visir.is. Þar eru nánari
leiðbeiningar. Ritstjórn ákveður hvort
efni birtist í Fréttablaðinu eða Vísi eða í
báðum miðlunum að hluta eða í heild.
Áskilinn er réttur til leiðréttinga og til
að stytta efni.
1 dálkur 9.9.2005 15:17 Page 2
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
FERÐAFRELSI
Taktu Frelsið með í ferðina.
Ferðafrelsið virkar alveg eins og
Frelsið þitt hér heima!
Símtölin eru gjaldfærð samstundis og því færðu enga bakreikninga
eftir heimkomuna. Núna þarftu ekki að skrá þig sérstaklega í
Ferðafrelsi Og Vodafone og þú getur notað það í flestum löndum.
Kynntu þér málið á ogvodafone.is áður en þú leggur af stað.
Góða ferð.
Smelltu þér á www.ogvodafone.is, komdu í næstu verslun Og Vodafone
eða hringdu í 1414 og fáðu nánari upplýsingar.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
G
V
3
29
08
06
/2
00
6