Fréttablaðið - 28.07.2006, Síða 78
28. júlí 2006 FÖSTUDAGUR30
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkis-
atburði, stórafmæli og
útfarir í smáletursdálkinn
hér til hliðar má
senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma
550 5000.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Guðrún Jóhannesdóttir
frá Húsavík, Laxalind 9, Kópavogi,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju í dag, 28. júlí kl.
13.00. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á
Krabbameinsfélagið.
Jón Guðgeirsson
Ása Jónsdóttir Björn Halblaub
Guðgeir Jónsson
Guðrún Jónsdóttir Ingvar Stefánsson
Jóhannes Heimir Jónsson Agnes Benediktsdóttir
og barnabörn.
MERKISATBURÐIR
1540 Henry VIII Englandskonung-
ur kvænist sinni fimmtu eig-
inkonu, Catherine Howard.
1750 Tónskáldið Johann Sebastian
Bach deyr í Leipzig í Þýska-
landi.
1821 Perú lýsir yfir sjálfstæði frá
Spáni.
1943 Bretar sprengja Hamborg
í seinni heimsstyrjöldinni
með þeim afleiðingum að
eldstormur myndast sem
verður 42.000 þýskum
borgurum að bana.
1974 Þjóðhátíð er haldin á
Þingvöllum í tilefni 1.100
ára afmæli Íslandsbyggðar,
um fjórðungur þjóðarinnar
mætti.
2005 Írski lýðveldisherinn (IRA)
bindur enda á þrjátíu ára
langa vopnaða baráttu á
Norður-Írlandi.
JACQUELINE KENNEDY ONASSIS
(1929-1994) FÆDDIST ÞENNAN DAG
„Fyrsta hjónabandið snýst
um ást, næsta um peninga
og það þriðja um félags-
skap.“
Jacqueline Kennedy var eiginkona
John F. Kennedy og forsetafrú
Bandaríkjanna á árunum 1961-1963.
Austurríki-Ungverjaland lýsti stríði
á hendur Serbum á þessum degi
árið 1914 en mánuði áður hafði
Bosníu-Serbinn Gavrilo Princip
myrt austurríska hertogann
Francis Ferdinand og konu hans í
höfuðborg Bosníu, Sarajevo.
Morðið setti af stað keðjuverk-
andi atburðarás sem að lokum
leiddi til fyrri heimsstyrjaldarinnar
en raunverulegar ástæður hennar
eru samt flóknar og enn þann dag í dag rífast sagn-
fræðingar um þær.
Daginn eftir stríðsyfirlýsinguna hóf Austurríki-Ung-
verjaland að sprengja í Belgrad í Serbíu og Þjóðverjar
réðust inn í Belgíu í byrjun ágúst en Austurríki-Ung-
verjaland reiddi sig á stuðning Þjóðverja ef til stríðs
kæmi. Austurríki-Ungverjaland var í bandalagi með
Þjóðverjum og Tyrkjum en Rússar, Frakkar, Bretar,
Ítalir, Japanar og síðar Banda-
ríkjamenn mynduðu bandalag
gegn þeim. Eftir fjögurra ára
stríð var orðið ljóst að Austurríki-
Ungverjaland og bandamenn
þeirra höfðu tapað stríðinu og
þann ellefta nóvember klukkan
ellefu árið 1918 gekk vopnahlé í
gildi. Stríðinu lauk formlega með
undirritun Versalasamningsins í
lok júní árið 1919.
Segja má að fyrri heimsstyrjöldin hafi verið fyrsta
nútímastríðið, það breiddist út víðar en áður hafði
þekkst og eyðileggingin og mannfallið var áður
óþekkt. Talið er að um níu milljónir hermanna hafi
látist í stríðinu og að tíu milljónir óbreyttra borgara
hafi látist bæði af beinum og óbeinum völdum
stríðsins þar sem hungursneyð og sjúkdómar fylgdu í
kjölfar átakanna.
ÞETTA GERÐIST 28. JÚLÍ 1914
Fyrri heimsstyrjöldin hefst
AFMÆLIÐ ÚTFARIR
11.00 Brynhildur Hjördís
Jóhannesdóttir verður
jarðsungin í Dómkirkunni.
11.00 Gísli Þorbergsson, Auga-
stöðum, verður jarðsunginn
frá Stóra-Áskirkju.
13.00 Agnes Ingimundardóttir,
Dvergholti 3, Hafnarfirði,
verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju.
13.00 Guðrún Jóhannesdóttir,
frá Húsavík, Laxalind 9,
Kópavogi, verður jarðsungin
frá Bústaðakirkju.
13.00 Guðveig Ingibjörg Kon-
ráðsdóttir (Imma), frá
Garðhúsum, Skagaströnd,
A-Hún., til heimilis á Grund,
Hringbraut 50, Reykjavík,
verður jarðsungin frá
Grafarvogskirkju.
13.00 Halldóra Guðmundsdóttir,
hjúkrunarfræðingur, Kjarr-
hólma 10, Kópavogi, verður
jarðsungin frá Digranes-
kirkju.
14.00 Guðni Guðnason (Ninni),
Kirkjulækjarkoti, Fljóts-
hlíð, verður jarðsunginn
frá Hvítasunnukirkjunni
Fíladelfíu.
14.00 Kristján Valdimarsson,
vélstjóri, Ásabraut 11, Kefla-
vík, verður jarðsunginn frá
Keflavíkurkirkju.
14.00 Þórunn Sigurborg Jóhann-
esdóttir, Hjarðartúni 3,
Ólafsvík, verður jarðsungin
frá Ólafsvíkurkirkju.
Ragnheiður Davíðs-
dóttir er 52 ára.
Birgitta Haukdal,
söngkona er 27 ára.
Í dag hefst hátíð í einu
minnsta bæjarfélagi
landsins, Borðeyri í
Hrútafirði, og stendur
hún alla helgina. Borð-
eyrarhátíðin er skipu-
lögð af gömlum nem-
endum úr barnaskóla
staðarins og eigendum
Lækjargarðs sem er nýr
verslunar- og veitinga-
staður sem var opnaður
í gamla kaupfélagshús-
inu um síðustu helgi.
Á laugardeginum
verður dagskrá fyrir
alla aldurshópa og
meðal annars boðið upp
á söguferð, leiki og tónlist-
aratriði. Einnig verður sýn-
ing á gömlu handverki og
ljósmyndum þar sem gestir
geta lifað sig inn í sögu
Borðeyrar. Um kvöld-
ið verður síðan haldin
heljarinnar grillveisla
þar sem fólk ætlar að
syngja, dansa og
skemmta sér.
Allir þeir sem bera
taugar til Borðeyrar
og þekkja þar til eru
boðnir velkomnir og
má búast við miklu
fjöri. Gestir geta bæði
gist á tjaldstæði stað-
arins og á Gistiheim-
ilinu Tanga. Einnig er
boðið upp á gistingu á
Brú og við Staðar-
skála sem er í nokkurra kíló-
metra fjarlægð.
Borðeyringar halda hátíð
Borðeyri í Hrútarfirði TÖFRAR Bill Martin sleppur úr
spennitreyju á meðan hann hangir
úr loftinu á Harry Houdini-kynningu
í Bandaríkjunum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Ágústa Eva Erlends-
dóttir söngkona er
24 ára.
„Ég var í fríi þarna og varð svo hrifin
af því sem þar er að gerast og fannst
svo spennandi verkefni blasa við að
þegar mér var bent á það að bæjar-
stjórastarfið væri laust til umsóknar
þá ákvað ég bara að prófa,“ segir
Helga Jónsdóttir, nýráðinn bæjar-
stjóri Fjarðabyggðar.
Helga segir að það sé ekki tíma-
bært að segja til um hver verði henn-
ar fyrstu verk en hún fari með þann
ásetning að leggja sitt af mörkum.
„Það sem við blasir sem verkefni
núna er að styrkja byggðakjarnana,
sem áður voru sjálfstæðir, sem nýtt
samfélag í sameinaðri Fjarðabyggð,“
segir Helga.
Miklar breytingar eiga sér stað
fyrir austan um þessar mundir en
Fjarðabyggð samanstendur af Mjóa-
firði, Neskaupstað, Eskifirði, Reyðar-
firði, Fáskrúðsfirði, Stöðvarfirði og
Fáskrúðsfjarðarhreppi. „Þarna er
náttúrulega uppbygging sem á sér
ekki hliðstæðu og gefur mjög mörg
tækifæri til þess að gera hluti með
nýjum og öðrum hætti.“
Þegar Helga er spurð um hvað hafi
heillað hana mest við Austfirðina
segir hún það hafa verið mannlífið og
aflið sem búi í fólkinu og að sjálf-
sögðu mikla náttúrufegurð. Hún segir
fjölskyldu sína hafa tekið vel í það að
flytjast austur enda hefði hún ekki
tekið við starfinu ef hennar nánustu
hefðu verði mótfallnir flutningunum.
Helga starfaði sem borgarritari frá
árinu 1995 og í fyrra tók hún við starfi
sviðsstjóra stjórnsýslu- og starfs-
mannasviðs borgarinnar. „Ég kveð
Ráðhúsið með söknuði og sérstaklega
alveg einstakt samstarfsfólk hjá
Reykjavíkurborg, ekki bara í Ráðhús-
inu, því það nær miklu víðar, og auð-
vitað kveð ég það með söknuði en aðal-
lega bara með þakklæti,“ segir Helga.
Helga segir að starf sitt felist í því
að vera leiðtogi starfsmanna bæjar-
ins og að vinna með bæjarstjórninni
að verkefnum til skemmri og lengri
tíma. „Það er mikilvægt að horfa á
þetta sveitarfélag og sjá fyrir sér
hvernig menn vonast til þess að það
þróist fram á við, ekki bara í núinu.
Ég sé í þessu sveitarfélagi nánast
óendanleg tækifæri, þessi nýi vinnu-
staður, álverið, er fyrir fjögur hundr-
uð manns þar sem gert er ráð fyrir að
mjög stór hluti sé iðnmenntaður eða
háskólamenntaður og það er mikil
viðbót við mannauðinn í sveitarfélag-
inu og það þarf þjónustu við þetta á
nánast öllum sviðum,“ segir Helga og
bætir við að aðrar atvinnugreinar
eins og sjávarútvegur og ferðaþjón-
usta gangi vel.
Austfirðirnir eru Helgu ekki ókunnir
þar sem amma hennar og afi bjuggu á
Seyðisfirði þegar hún var barn og móðir
hennar ólst þar upp en ljóst er að hún á
eftir að kynnast fjölmörgu nýju í starfi
sínu fyrir austan. gudrun@frettabladid.is
HELGA JÓNSDÓTTIR: NÝR BÆJARSTJÓRI Í FJARÐABYGGÐ
Opin fyrir nýjum tækifærum
HELGA JÓNSDÓTTIR Helga stendur hér hjá sinni nýju heimabyggð við landakortið í Ráðhúsinu í Reykjavík en hún tekur við bæjarstjórastólnum í Fjarða-
byggð um miðjan september. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Elskulegi faðir minn, afi og langafi,
Björn Lárusson
fyrrverandi bóndi að Auðunnarstöðum,
Sléttuvegi 15, Reykjavík,
lést á Landakoti þriðjudaginn 25. júlí. Útför fer fram
frá Bústaðakirkju mánudaginn 31. júlí kl. 13.
Fyrir hönd aðstandenda,
Kristín Björnsdóttir.