Fréttablaðið - 28.07.2006, Síða 83

Fréttablaðið - 28.07.2006, Síða 83
FÖSTUDAGUR 28. júlí 2006 35 Afgangar er nýtt leikrit um ást og tælingu eftir leikskáldið og leikstjórann Agnar Jón Egilsson. Persónur verksins eru par um þrítugt sem hittist á hótelher- bergi en það á sér leyndarmál sem brátt koma upp á yfirborð- ið. Í verkinu er tekist á um ást- ina og birtingarmyndir hennar og hugmyndum velt upp um hug- rekkið sem þarft til þess að þora að gangast við ástinni. Leikendur er Elma Lísa Gunn- arsdóttir og Stefán Hallur Stef- ánsson, leikmynd og búninga hanna Arnheiður Vala Magnús- dóttir og Ólafur Stefánsson, um lýsingu sér Halldór Örn Óskars- son, tónlist er í umsjá Halls Ing- ólfssonar og leikstjóri er höf- undurinn Agnar Jón Egilsson. Verkið verður frumsýnt á nýju sviði í Austurbæ í byrjun september en sérstök hátíðar- sýning verður á verkinu á Menn- ingarnótt þann 19. ágúst. - khh Nýtt íslenskt leikrit AÐSTANDENDUR LEIKRITSINS AFGANGAR Nýtt verk eftir Agnar Jón Egilsson verður forsýnt á Menningarnótt. Sópransöngkonan Margret H. Ponzi heldur þrenna tónleika ásamt orgel- og píanóleikaranum Marco Belluzzi á næstunni. Þeir fyrstu fara fram í Fríkirkjunni í Reykjavík í kvöld kl. 20.30. Á efn- isskrá tónleikanna eru sönglög og Maríukvæði, meðal annars eftir Schubert, Verdi, Bizet og Liszt auk laga eftir Sigvalda Kaldalóns og Eyþór Stefánsson. Margret Ponzi hefur haldið tón- leika í Bandaríkjunum, Þýskalandi og á Ítalíu þar sem hún hefur verið búsett undanfarin tíu ár. Þar starf- ar hún sem einsöngvari, kórstjóri og organisti en hún er einnig eini Suzuki-söngkennarinn þar í landi. Marco Belluzzi hefur unnið með fjöldamörgum hljómsveitum, kórum og einsöngvurum. Hann hefur einnig getið sér gott orð sem tónskáld. Ponzi og Belluzzi halda síðan tónleika í Akraneskirkju á sunnu- daginn kl. 20.30 og á sama tíma í Keflavíkurkirkju næstkomandi þriðjudag. - khh Sópranrödd og orgel MARGRET PONZI OG MARCO BELLUZZI Á söngferðalagi sem hefst í Fríkirkjunni í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA HVAÐ? HVENÆR? HVAR? JÚLÍ 25 26 27 28 29 30 31 Föstudagur ■ ■ TÓNLEIKAR  12.00 Jóna Fanney Svavarsdóttir og Erlendur Þór Elvarsson flytja óperu- aríur og klassískar söngperlur við undir- leik Helgu Bryndísar Magnúsdóttur í Ketilhúsinu á Akureyri.  17.00 Raftónlistarpoppgoðið Johnny Sexual spilar í 12 Tónum ásamt mynd- listarmanninum Sigga Eggertssyni.  20.00 Tónlistarhátíð í Reykholti. Sigrún Hjálmtýsdóttir syngur með hljómsveitinni Virtuosi di Praga. Auður Hafsteinsdóttir fiðluleikari og Þórunn Ósk Marinósdóttir víóluleik- ari koma fram auk Steinunnar Birnu Ragnarsdóttur píanóleikara.  20.30 Margret Ponzi sópransöng- kona og Marco Belluzzi orgelleikari halda tónleika Ì Fríkirkjunni Ì ReykjavÌk.  Djasstónleikar í Hótel Framnesi á Grundarfjarðarhátíð. Póstberarnir leika af fingrum fram úr amerísku djass- söngbókinni. ■ ■ LEIKLIST  16.00 Einleikurinn Úti bíður and- lit á glugga eftir Halldóru Malín Pétursdóttir er sýndur í gamla póst- húsinu á Borgarfirði eystri. Önnur sýning kl. 21.  20.30 Einleikurinn um Gísla Súrsson verður fluttur á ensku í Byggðasafni Vestfjarða á Ísafirði. Leikari og höfundur er Elvar Logi Hannesson. ■ ■ OPNANIR  19.00 Anne Törma opnar sýninguna THE DAY í gallerí BOXi í Kaupvangstræti á Akureyri. Anne mun sýna textaverk og teikningar sem hún hefur unnið að seinustu vikur. ■ ■ SKEMMTANIR  14.00 Lokapartí sumarsins í verslun- inni Spúútnik. DJ Ta! Ta! Ta! mun halda uppi stuðinu til hálf sjö.  Dúettinn Sessý og Sjonni spilar á Paddy’s í Reykjanesbæ. ■ ■ SÝNINGAR  Nína Gautadóttir sýnir í Galdrasafninu á Hólmavík. Sýningin stendur til 15. september. hvar@frettabladid.is Bandaríska myndlistarkonan Bec Stupak er stödd hér á landi í boði Samtaka íslenskra mynd- listarmanna en hún opnar einka- sýningu í Gallerí Dvergi um helgina. „Ég kom hingað lands fyrir hálfum mánuði og dvel hér í tvær vikur til viðbótar. Frá því ég kom hingað hef ég verið að vinna að vídeóverki sem ber þann langa titil, „no, no, no, no, no, no, no, no, no, no, no, no ther- e´s no limit“. Þetta er í raun titill á lagi sem ég sá mjög skemmti- legt myndaband gert eftir. Þegar ég fór að skoða mig um í Reykja- vík þóttist ég merkja orð úti um allt sem höfðu vísun í þennan titil. Fyrir nokkrum dögum tók ég meira að segja eftir mann- eskju sem gekk í stuttermabol sem áletraður var með sama titli og verkið mitt. Öll nei-in voru meira að segja á sínum stað,“ segir Bec hlæjandi. „Fyrir mér er þessi titill áminning um að allir vegir eru fólki færir ef það er opið fyrir takmarkaleysinu. Engin takmörk eru fyrir því hvað lífið býður upp á marga mögu- leika.“ Aðspurð um hvort engin tak- mörk séu fyrir því hvað vídeó- verk hennar muni sýna, segir hún tímann einan setja takmörk- in. „Alltaf þegar ég vinn að nýju verki reyni ég að ganga eins og langt og ímyndunaraflið ber mig. Í þessum skilningi er ég að reyna að útbúa vídeóverk hér landi sem er óheflað og brjálað.“ Bec segist hafa komið hingað með hugmynd að öðru verki í farteskinu, en þegar á hólminn var komið ákvað hún að leggja það til hliðar og byrja á nýju. Hún segir nýja verkið aðallega vera mótað af því sem drifið hefur á daga hennar að undan- förnu. „Ég upplifi mikla orku allt í kringum mig hér á landi og stór hluti af vídeóverki gengur út á að mynda það sem fyrir augun ber og leggja líka orku sína í það. Þetta er gífurlega spennandi verkefni en ég vinn það að mestu jöfnum höndum.“ Bec segist fyrst hafa komið hingað til lands í janúar, en þá hafði hún haft spurnir af þeirri fegurð og þeim krafti sem Snæ- fellsjökull býr yfir. „Ég ákvað því að láta það verða mitt fyrsta verk að skoða jökulinn þegar ég kom og heillaðist svo að mér varð orða vant. Myndir af veru minni þarna munu án efa koma fyrir í vídeóverkinu. Ég tók líka myndir af sjálfri mér sem ég vinn síðan áfram með, þannig að áhorfand- inn mun vart geta merkt að þetta sé ég á myndunum heldur verður þetta á endanum orðin einhvers konar ímynd af mér.“ Sýning Bec Stupak verður opnuð í Gallerí Dvergi kl. 18 á morgun og verður opin föstu- daga og laugardaga frá 18-19, fram til 19. ágúst. - brb Engin takmörk nema tíminn ORKAN ER ALLT Í KRING Myndlistarkonan Bec Stupak þekkir engin takmörk. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.