Fréttablaðið - 28.07.2006, Síða 84
28. júlí 2006 FÖSTUDAGUR36
tonlist@frettabladid.is
> Í SPILARANUM
Motion Boys: Waiting to Happen
Midlake: The Trials of Van Occupanther
The Telepathetics: Ambulance
Beirut: Gulag Orkestar
Thom Yorke: The Eraser
MOTION BOYS THOM YORKE
> Plata vikunnar
Eberg: Voff voff
„Eberg stimplar sig inn með
flottri plötu sem gefur góð
fyrirheit um framhaldið. Love
Your Bum er án efa eitt af
lögum ársins.“ HDM
Sumarið er tími tónlistar-
hátíða í Evrópu eins og
Steinþór Helgi Arnsteinsson
hefur komist að síðasta einn
og hálfan mánuð. Hann hef-
ur heimsótt sex hátíðir og
sagt frá upplifun sinni hér í
Fréttablaðinu. Nú er komið
að ferðalokum og Steinþór
gerir upp sumarið.
Síðasta hátíðin að baki, Benicass-
im á Spáni. Hún var án efa ein sú
skemmtilegasta. Reyndar fullmik-
ið af Bretum á svæðinu fyrir minn
smekk. Pirrandi gaurar í þröngum
gallabuxum, með sígarettu, berir
að ofan og með stráhatt að reyna
að líta út eins og Pete Doherty,
sem er án efa mesti ræfill rokk-
sögunnar. Ekki misskilja mig
samt, ég er ekki að dæma heila
þjóð út frá nokkrum lúðum. Kynnt-
ist meira að segja fullt af Bretum
sem voru hressir, sætir og góðir.
Benicassim setti því flottan punkt
yfir i-ið á þessari tónleikahátíða-
yfirreið minni um Evrópu, sem nú
er loksins, loksins á enda. Einn og
hálfur mánuður, dvöl í níu löndum,
vel yfir 100 klukkustundir í lest-
um og sex tónleikahátíðir sem
voru samtals um 20 dagar er eitt-
hvað sem maður leggur ekki á
hvern sem er.
Sigur Rós og Hot Chip í verðlauna-
sætum
En hvað var skemmtilegt, brot-
lentu einhverjir og hverjir komu á
óvart? Ég þori alveg að leyfa mér
að segja að Bob Dylan, Guns N’
Roses og Ms. John Soda á Hróars-
keldu, Placebo og Babyshambles á
Benicassim, flest allar austur-evr-
ópsku sveitirnar á Pohoda, Digable
Planets á Sonar, We are Scientist á
Quart og The Hives á Southside
hafi verið jafn óspennandi og leið-
inlegt og Spaugstofan í endursýn-
ingu á þriðjudagskvöldi. Aftur á
móti voru Pretty Girls Make
Graves og The Strokes á South-
side, Spank Rock og Animal Coll-
ective á Hróarskeldu, Dizzee
Rascal á Pohoda, The Knife og Dj
Krush á Sonar, Depeche Mode og
Vashti Bunyan á Quart og Coldcut,
Morrisey og Art Brut á Benicass-
im jafn skemmtilegt og upplífg-
andi og Fóstbræður og/eða The
Office í sunnudagsþynnku. Verð-
launasætin skipa þó Sigur Rós,
Serena Maneesh og Hot Chip, frá-
bærar tónleikasveitir þar á ferð.
Hátíðarnar sjálfar voru líka eins
mismunandi og þær voru margar,
sem er gott en gerir það hins vegar
að verkum að nær ógjörningur er
að bera þær allar saman, svo vel
fari.
Nokkur góð ráð til skipuleggjenda
Hér eru reyndar nokkur atriði
sem skipuleggjendur tónleikahá-
tíða ættu að hafa sér til hliðsjónar:
Ekki hafa aðalpartítónleikatjaldið/
sviðið (þar sem stundum er dag-
skrá til 8 á morgnana) alveg upp
við tjaldsvæðið, banna öllum
bandarískum bjórframleiðendum
að vera aðalstyrktaraðilinn, hafa
veðrið skýjað og milt í allavega
um tvo tíma síðdegis, bjóða upp á
fjölbreyttan skyndibita, tæma
kamrana nógu oft þannig að það sé
allavega hægt að pissa þar, ekki fá
hljómsveitina hans Petes Doherty
til þess að spila og svona mætti
lengi telja.
En hvað stóð þá upp úr?
Einveran, skemmtilegt fólk, hland-
fýla, óstjórnlegur hiti í tjaldinu,
ónýtu skórnir en umfram allt, tón-
list, stuð og gaman. Jafnframt
komst ég að því að tónleikar snú-
ast ekki bara um sjálfa listamenn-
ina sem þar spila, þvert á móti.
Hvernig maður sjálfur er stemmd-
ur, með hverjum maður er og fullt
af öðrum smáatriðum skipta
eiginlega mestu máli. Komst líka
að því að þó að maður missi af
einum og einum tónleikum þá
þýðir það ekki endalok heimsins.
Engin tónlistarhátíð er ómissandi.
Feginn að komast í rúmið aftur
Eftir svona langt og mikið ferða-
lag, þar sem maður kynnist sjálf-
um sér betur en maður hefur
nokkru sinni fengið tækifæri til,
er líka varla hægt annað en að
þroskast, þó að það sé ekki nema
bara til að hafa uppgötvað aukinn
hárvöxt á bringunni. Nýr og
breyttur ég, ásamt öllum sautján
bringuhárunum mínum, verð því
ferskur þegar ég held austur á
land þar sem Belle & Sebastian
ætla að leika og spila á morgun.
Get ekki sagt annað en að ferða-
lagið hafi verið meira en lítið
skemmtilegt en ég er feginn að
vera kominn aftur í rúmið mitt og
15 stiga hitann.
Tónlistarsumarið mikla
GOTT ÚTSÝNI Hér sést yfir sviðið á einni þeirra sex tónlistarhátíða sem greinarhöfundur fór á í sumar. Upplifunin var ólýsanleg.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEINÞÓR
VASHTI BUNYAN Einn þeirra listamanna
sem standa upp úr eftir sumarið.
ANIMAL COLLECTIVE Frábær hljómsveit á
sviði. Áhorfendur á Hróarskeldu klöppuðu í
tíu mínútur eftir að sveitin fór af sviðinu. HÁTÍÐARSVÆÐI Flugbrautir eru af einhverjum ástæðum vinsælar til að halda tónlistarhátíðir á.
Ærslabelgirnir í hljómsveitinni The Go!
Team hafa bæst við fríðan flokk þátttak-
enda á Iceland Airwaves í ár. Er koma
þeirra mikill fengur fyrir hátíðina enda
þykir bandið með eindæmum skemmtilegt
á sviði og hefur tónlist þess fengið glimr-
andi viðtökur hlustenda beggja vegna
Atlantsálanna. Fyrsta plata þeirra, Thunder,
Lighting, Strike, var tilefnd til Mercury-
verðlaunanna á sínum tíma en nú er von á
nýrri skífu frá sveitinni og því líklegt að
hún muni flytja glænýtt efni á tónleikunum
í október.
Hljómsveitina skipa fjölhæfar stúlkur
og drengir sem splæsa saman allar mögu-
legar og ómögulegar tónlistargreinar svo
úr verður poppskotinn og drífandi rapp- og
hip-hop bræðingur með viðkomu í Bolly-
wood og elektróník, blanda sem fær flesta
út á gólfin. Söngkonan Ninja er kunn fyrir
galsafengna framkomu sem hinir fjölhæfu
félagar hennar styðja í einu og öllu með til-
heyrandi brambolti og örum hljóðfæra-
skiptingum.
The Go! Team á Airwaves
EITT LÍFLEGASTA SVIÐSBAND NORÐAN ALPAFJALLA
Hljómsveitin The Go! Team fær fólk út á gólf.
FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
1 WOLFMOTHERWOMAN
2 ARLS BARKLEYSMILEY FACES
3. JOHNNY CASHGOD’S GONNA CUT YOU DOWN
4 PANIC! AT THE DISCOI WRITE SINS NOT TRAGEDIES
5 BIGGITHE HARDWAY
6 SYSTEM OF A DOWNKILL ROCK N‘ ROLL
7 HOT CHIPBOY FROM SCHOOL
8 THE RACONTEURSHANDS
9 THE AUTOMATICMONSTER
10 PRIMAL SCREAMCOUNTRY GIRL
X-LISTINN
VINSÆLUSTU LÖGIN Á X-INU 97,7
WOLFMOTHER Á vinsælasta lagið á X-inu
þessa vikuna.
Bavaria, hollenskur gæðabjór:
Kom best út
í blindprófun
Bavaria bjórinn kom best út í könnun sem hollenska
dagblaðið De Telegraaf gerði á dögunum.
10 vinsælar tegundir af bjór voru prófaðar með
blindprófi og fékk Bavaria bjórinn hæstu einkunn.
LÉTTÖL
1 dálkur 9.9.2005 15:18 Page 4