Fréttablaðið - 28.07.2006, Blaðsíða 90
42 28. júlí 2006 FÖSTUDAGUR
sport@frettabladid.is
STAÐAN Í LANDSBANKADEILDINNI:
1. FH 11 8 2 1 20-7 26
2. FYLKIR 11 5 2 4 14-13 17
3. VALUR 11 4 4 3 15-13 16
4. BREIÐABLIK 12 5 2 5 19-23 16
5. KEFLAVÍK 11 4 3 4 20-12 15
6. VÍKINGUR 12 4 3 5 14-11 15
7. GRINDAVÍK 11 3 5 3 16-13 14
8. KR 11 4 1 6 10-22 13
9. ÍA 11 4 0 7 15-20 12
10. ÍBV 11 3 2 6 11-20 11
Kópavogsvöllur, áhorf.: 612
Breiðablik Víkingur
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 7–10 (6–6)
Varin skot Hjörvar 6 – Ingvar 4
Horn 5–5
Aukaspyrnur fengnar 12–15
Rangstöður 2–5
VÍKINGUR 4–3–3
Ingvar Kale 7
Höskuldur Eir. 4
Grétar 5
Valur Adolf 4
(83. Rannver -)
Hörður Bjarna 5
Daníel Hjalta 5
(80. Andri Tómas -)
Jökull 5
Jón Guðbrands. 3
(76. Stefán Kári -)
Arnar Jón 5
Viktor Bjarki 6
Davíð Rúnars. 5
*Maður leiksins
BREIÐB. 4–4–2
*Hjörvar 8
Árni Kristinn 6
Gasic 7
Kári Ársælsson 7
Stig Haaland 6
Podzemsky 8
Olgeir Sig. 6
(77. Arnór Sveinn -)
Zivanovic 6
(89. Magnús Páll -)
Arnar Grétars. 7
Viktor Illugason 6
(70. Kristján Óli 6)
Marel Jóhann 7
1-0 Marel Jóhann Baldvinsson (8)
1-0
Erlendur Eiríksson (4)
HJÓLREIÐAR Hjólreiðagarpurinn
Floyd Landis frá Bandaríkjunum
féll á lyfjaprófi eftir sautjándu
dagleið Tour de France hjólreiða-
keppninnar sem lauk um síðustu
helgi. Landis bar þar sigur úr
býtum en í sýni sem var tekið úr
honum kom í ljós óvenjulega hátt
magn testósteróns. Umboðsmaður
hjólreiðakappans sagði í gær að
þessi niðurstaða kæmi verulega á
óvart en beðið er eftir niðurstöð-
um úr B-sýni. Ef niðurstaðan þar
verður sú sama á hann von á að
verða sviptur titli sínum.
Hjólreiðaíþróttin hefur um
langt skeið þurft að standa af sér
ásakanir um lyfjamisnotkun og
hefur Landis verið rekinn úr
Phonak-hjólreiðaliðinu þangað til
niðurstaða fæst í málinu. Spán-
verjinn Oscar Pereiro hafnaði í
öðru sæti í Tour de France og fær
gullverðlaunin ef Landis verður
fundinn sekur. - egm
Sigurvegari Tour de France:
Féll á lyfjaprófi
BROSIR EKKI LENGUR Landis verður líklega
sviptur gullinu. NORDICPHOTOS/AFP
Birgir neðarlega á blaði
Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson
náði sér ekki almennilega á strik á móti
í Wales sem er hluti af áskorendamóta-
röðinni. Birgir Leifur lék fyrsta hringinn
í gær á tveimur höggum yfir pari, en
hann er í sæti númer 106 eftir daginn.
Efsti maður er á sjö höggum undir pari.
> Jakob Örn til Spánar
Körfuknattleiksmaðurinn Jakob Örn
Sigurðsson hefur komist að samkomu-
lagi við spænska liðið Ciudad de Vigo
Basket. Liðið er nýstofnað og leikur í
þriðju deildinni þar í
landi. Jakob kemur
úr röðum þýska
félagsins Bayern
Leverkusen þar
sem hann lék
í fyrra en hann
er í landsliðs-
hópnum sem fer
á Norðurlandamótið
í Finnlandi. Jakob er fjórði
íslenski landsliðsmaðurinn á Spáni en
þar spila einnig Hörður Axel Vilhjálms-
son, Pavel Ermolinskij og Jón Arnór
Stefánsson.
Íris Björk Eysteinsdóttir og Marína Ósk
Þórólfsdóttir voru aðstoðardómarar á sitt
hvorum leiknum í síðustu umferð Lands-
bankadeildar kvenna. Sárafáar konur
hafa staðið í dómgæslu á Íslandi og því
telst það til tíðinda þegar tvær konur
dæma í sömu umferðinni.
„Ég eignaðist barn í ágúst í fyrra og
ákvað að komast aftur inn í boltann
á þennan hátt. Þjálfunin er í fyrirrúmi
hjá mér en ég hef alltaf verið eitthvað
viðriðin dómgæsluna. Ég vildi kynnast
fótboltanum frá öllum hliðum og þetta
er enn einn vinkillinn hjá mér,“ sagði
Íris við Fréttablaðið í gær en hún hefur
lengi verið í þjálfun, auk þess sem hún
spilaði sjálf.
„Það vantar klárlega konur í þetta.
Það er erfitt að segja til um af hverju
við erum
svona fáar.
Þær eru
kannski
smeykar
við að
prófa þetta. Það
er hundleiðinlegt að
fá á sig leiðinleg komment, þetta er
vanþakklátt starf og sérstaklega fyrstu
árin þegar þetta er sjálfboðavinna.
Strákarnir eru kannski ekki eins við-
kvæmir en því miður virðist vera sem
stelpur detti meira út úr fótboltanum
eftir að þær hætta að spila, annað en
kannski strákarnir,“ sagði Íris.
„Mér finnst þetta mjög gaman. Ég er
þannig þjálfari að ég er alltaf brjáluð ef
svo má segja á hliðarlínunni og ég skil
því vel þegar þjálfarar og leikmenn
missa sig aðeins. Ég hef bara
gaman af þessu og tek engu
persónulega en minn helsti
metnaður er í þjálfuninni.
Það er gott fyrir þjálfara að
kunna fótboltann á alla kanta,
sérstaklega frá dómarahliðinni,“
sagði Íris sem er ánægð með
viðtökurnar.
„Ég hef fengið mjög góð
viðbrögð. Margar hafa hrósað
mér og segja að það sé frábært
að konur séu að dæma. Það er
hvetjandi og vonandi fylgja fleiri
konur í kjölfarið,“ sagði Íris Björk
Eysteinsdóttir að lokum og hvatti
allar stelpur til að íhuga það að
leggja dómgæsluna fyrir sig.
ÍRIS BJÖRK EYSTEINSDÓTTIR: EIN AF FÁUM KONUM SEM STANDA Í DÓMGÆSLU
Vildi kynnast boltanum frá öllum hliðum
Evrópukeppni félagsliða:
ÍA-RANDERS 2-1
1-0 Hjörtur Júlíus Hjartarson (27.), 1-1 Todór
Yancev (29.), 2-1 Bjarni Guðjónsson (90.+2).
VALUR-BRÖNDBY 0-0
ÚRSLIT GÆRDAGSINS
FÓTBOLTI Það var fín stemning á
pöllunum á Laugardalsvelli í gær-
kvöldi þegar Bröndy heimsótti
Valsmenn í síðari leik liðanna í
Evrópukeppni bikarhafa en 1.672
áhorfendur sáu liðin gera marka-
laust jafntefli. Eftir 3-1 tap í fyrri
leiknum þurftu Valsarar að sýna
allar sínar bestu hliðar en þeir
þurftu í það minnsta að skora tvö
mörk ætluðu þeir sér að komast
áfram.
Greinilegt var að Valsmenn
ætluðu sér að skora snemma en
þeir voru betri aðilinn í fyrri hálf-
leiknum. Þeir áttu nokkrar góðar
sóknir og boltinn gekk vel á milli
leikmanna sem voru hársbreidd
frá því að koma sér í almennileg
færi. Það gekk þó illa og til marks
um það þurfti markmaður gest-
anna aldrei að taka á honum stóra
sínum.
Matthías Guðmundsson og
Guðmundur Benediktsson leiddu
sóknarlínu Vals sem saknaði
Garðars Gunnlaugssonar sárlega
en hann er genginn í raðir
Norrköping. Þeir sköpuðu mestu
hætturnar auk Birkis Más
Sævarssonar sem átti lipra spretti
fyrir Valsmenn. Hvorugt liðið var
ýkja nálægt því að skora í fyrri
hálfleiknum þrátt fyrir að Vals-
menn fengju betri færi en leik-
menn Bröndby komust lítt áfram
gegn þéttri Valsvörninni með Atla
Svein Þórarinsson í fararbroddi
en hann átti frábæran leik.
Danirnir sóttu í sig veðrið í síð-
ari hálfleik og fengu þá sínu fleiri
og betri færi en Valsmenn. Kjart-
an Sturluson varði vel í þrígang
auk þess sem gestirnir klúðruðu
dauðafæri af markteignum. Vals-
menn svöruðu fyrir sig og áttu
nokkrar góðar sóknir en sem fyrr
reyndi lítið sem ekkert á danska
markmanninn. Á lokamínútu leiks-
ins kom besta færi Valsmanna
þegar Birkir Már skallaði fyrir-
gjöf Guðmundar Benediktssonar í
þverslána.
Valsmenn hefðu vel getað unnið
leikinn gegn Bröndby í gær en
herslumuninn vantaði. „Við erum
stoltir Valsmenn í kvöld en auðvit-
að er þetta svekkjandi þar sem við
erum fallnir út úr keppninni. Mér
fannst við eiga meira skilið út úr
þessum leik og það hefði verið
gaman að sjá Birki setja boltann
inn en ekki í slána undir lokin og
eiga smá möguleika á að pressa þá
síðustu mínúturnar,“ sagði Willum
Þór Þórsson, þjálfari Vals, eftir
leikinn. Hann var samþykkur því
að mörkin þrjú sem liðið fékk á sig
ytra hefðu borið þá ofurliði.
„Það er það sem varð okkur að
falli og við vorum ekki alveg með
trúna í lagi í fyrri leiknum þar
sem taugaveiklun gerði líka vart
við sig. Við lærum þó bara af
þessu,“ sagði Willum
„Við vissum að þeir kæmu með
minni hraða í sóknarleik sínum í
þessum leik en þeir gerðu á sínum
heimavelli. Bröndy er ógnarstekrt
lið og ef við horfum til þess þá var
frammistaða okkar í þessum leik
mjög góð og við vorum betri aðil-
inn heilt yfir,“ sagði þjálfarinn.
„Við lögðum upp með það að
spila þétt en reyna að skapa færi,
við sköpuðum nógu mörg færi til
að skora þetta eina mark sem við
vildum virkilega skora til að
breyta gangi leiksins. Ef það hefði
tekist hefði það ef til vill sett þá út
af laginu en ég er mjög ánægður
með leikinn og finn til með þeim
þar sem mér fannst við eiga meira
skilið miðað við frammistöðuna.
Þetta fer beint í reynslubankann
og vissulega læra menn vel af
þessu,“ sagði Willum sem vill
meina að munurinn á milli danska
og íslenska boltans sé lítill.
„Það er mjög stutt á milli
íslenska og danska boltans og það
sama má segja um þann sænska
og norska. Það er fyrst og fremst
aðstöðumunur sem felst í tíma
sem þeir geta spilað á ári. Okkar
leikmenn eru ekkert síðri og ef
þeir fengju meiri tíma og aðbúnað
til að sinna fótboltanum þá stæð-
um við þeim jafnfætis,“ sagði
Willum Þór. hjalti@frettabladid.is
Við getum gengið stoltir frá borði
Valsmenn eru úr leik í Evrópukeppni bikarhafa en liðið gerði markalaust jafntefli við Bröndby á Laugardals-
velli í gær. Valsmenn töpuðu fyrri leiknum 3-1 og þar með er Evrópudraumur Hlíðarendapilta úr sögunni.
STÁL Í STÁL Það var ekkert gefið eftir á Laugardalsvelli í gær. Valsmaðurinn Matthías Guð-
mundsson er hér í harðri baráttu við einn leikmanna Bröndby. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÓTBOLTI Það er ótrúlegt að aðeins
eitt mark hafi verið skorað þegar
nýliðar Breiðabliks og Víkings
áttust við í fyrsta leik tólftu
umferðar Landsbankadeildarinn-
ar í gær. Eina markið kom strax á
áttundu mínútu en þrátt fyrir það
var leikurinn nokkuð opinn og
fjörlegur. Báðir markverðirnir
áttu góðan leik, þá sérstaklega
Hjörvar Hafliðason hjá Breiða-
bliki sem varði tvívegis úr sann-
kölluðum dauðafærum.
Fyrstu mínútur leiksins voru
heldur rólegar og Marel Jóhann
Baldvinsson skoraði eina mark
hans úr fyrsta alvöru færinu.
Hann átti flottan einleik og náði
góðu skoti að markinu sem Ingv-
ar Kale, markvörður Víkinga,
náði ekki að verja. Nokkrum mín-
útum síðar fékk Viktor Bjarki
Arnarsson sannkallað dauðafæri
til að jafna metin en Hjörvar
varði vel í marki heimamanna.
Örstuttu síðar vildu síðan Vík-
ingar fá dæmda vítaspyrnu þegar
boltinn virtist fara í höndina á
varnarmanni Blika en varð þeim
ekki að ósk sinni. Vörn Víkinga
virkaði mjög óörugg í fyrri hálf-
leiknum og Valur Úlfarsson skor-
aði næstum sjálfsmark um miðj-
an fyrri hálfleik.
Blikar voru mun hættulegri og
hefðu vel getað skorað fleiri mörk
fyrir hálfleik, hinn efnilegi Vikt-
or Unnar Illugason fékk sann-
kallað dauðafæri og var kominn
framhjá Ingvari í markinu en
Hörður Bjarnason, uppalinn leik-
maður Breiðabliks, bjargaði á
marklínu eftir laust skot Viktors.
Þá fékk Arnar Grétarsson einnig
mjög gott færi undir blálok fyrri
hálfleiksins en Ingvar varði
örugglega. Bakvörðurinn Árni
Kristinn Gunnarsson átti síðan
óvænt hörkuskot í upphafi síðari
hálfleiks en enn og aftur varði
Ingvar.
Eftir þetta hresstust gestirnir
talsvert og átti Arnar Jón Sigur-
geirsson sannkallað dauðafæri
eftir frábæran undirbúning
Davíðs Rúnarssonar, en Hjörvar,
sem átti stórleik í marki Breiða-
bliks, varði glæsilega. Stuttu
áður voru Blikar þó næstum
búnir að bæta við marki en þá
átti Marel fínt skot sem fór í
stöngina og þaðan aftur fyrir
endamörk. Blikar lögðu áherslu
á varnarleikinn á lokakafla leiks-
ins og drógu sig vel til baka og
það skilaði tilætluðum árangri,
því ekki náðu Víkingar að finna
leiðina framhjá Hjörvari. Vík-
ingar unnu fyrri viðureign lið-
anna með þriggja marka mun en
allt annað var að sjá til Breiða-
bliks í þessum leik og sigur liðs-
ins verðskuldaður.
„Það er alltaf ákveðin stemning
þegar við mætum Víkingi og þá er
auðvelt að fá menn til að berjast.
Það er einhver rígur á milli liðanna
sem ég kann ekki nánari skýringar
á. Við höfum bætt varnarleikinn
frá því í upphafi tímabils,“ sagði
Hjörvar Hafliðason eftir leikinn.
Eins og fyrr sagði náði hann tví-
vegis að verja frá Víkingum úr
ótrúlegum færum. „Markvörður
þarf að vinna fleiri stig en hann
tapar og það var gaman að ná loks-
ins að vinna stig. En við erum
ekkert að fagna því að hafa komist
í þriðja sæti því stöðutaflan er
mjög furðuleg.“ - egm
Breiðablik vann sér inn þrjú dýrmæt stig með sigri gegn Víkingum í gærkvöldi:
Eitt Blikamark úr heilum haug af færum
SVEKKTUR Marel Jóhann hefði getað
skorað fleiri mörk en markið eina dugði til
sigurs. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL