Fréttablaðið - 28.07.2006, Page 91
FÖSTUDAGUR 28. júlí 2006 43
Dagur Tími Lið Völlur
19:15 KR – Valur KR-völlur
19:15 HK/Víkingur – Fjölnir Víkingsvöllur
19:15 Breiðablik – Kefl avík Kópavogsvöllur
19:15 Stjarnan – ÍR Stjörnuvöllur
8 LIÐA ÚRSLIT KVENNA
Föstudagur
28. júlí 2006
FÓTBOLTI Enn er óvíst um þátt-
töku AC Milan í Meistaradeild-
inni á næstu leiktíð. Eftir Ítalíu-
skandalinn var sætið tekið af AC
Milan þar sem 44 stig voru tekin
af Mílanóliðinu fyrir síðasta
tímabil. Félagið áfrýjaði dómn-
um og eftir jákvæða niðurstöðu
fékk það sæti sitt í deildinni á
nýjan leik.
UEFA er aftur á móti ekki
ánægt með ákvörðunina og ætlar
að kryfja málið til mergjar. Búist
var við ákvörðuninni í gær en
henni hefur verið frestað þar til í
næstu viku en sérstök nefnd
skoðar nú málið frá öllum hlið-
um. Líklegast þykir að AC Milan
haldi sæti sínu í Meistaradeild-
inni en það þarf að taka þátt í
þriðju umferð forkeppninnar.
„Hvað stöðu AC Milan varðar
er nefndin að skoða málið og
mun ákveða hvort það sé
viðeigandi að félagið taki þátt í
Meistaradeildinni á tímabilinu
2006/2007. Eftir að nefndin hefur
gert skýrsluna mun UEFA greina
frá niðurstöðu sinni,“ sagði í
yfirlýsingu frá UEFA. - hþh
UEFA hefur enn ekki tekið ákvörðun:
Milan í Meistaradeildina?
FAGNA ÞEIR Í MEISTARADEILDINNI? Carlo Ancelotti og Gennaro Ivan Gattuso fagna
sigri en óvíst er hvort þeir verði í Meistaradeildinni á næsta tímabili. NORDICPHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Sagan endalausa um
Ruud Van Nistelrooy tók óvænta
beygju í gærkvöldi þegar Real
Madrid lýsti því yfir á heimasíðu
sinni að félagið væri búið að
kaupa Hollendinginn og að hann
myndi skrifa undir þriggja ára
samning við félagið í dag. Þessar
fréttir fengust ekki staðfestar hjá
Manchester United áður en Frétta-
blaðið fór í prentun.
Ruud van Nistelrooy æfir enn
með Manchester United og Sir
Alex Ferguson, stjóri Man. Utd,
hafnaði tilboði frá Real fyrri-
partinn í gær og því kom yfirlýs-
ing Real nokkuð á óvart enda kom
hún aðeins nokkrum klukkustund-
um síðar.
„Þeir hækkuðu tilboð sitt örlít-
ið en það tók því varla, þeir hækk-
uðu það um einhverja smáaura.
Við vitum hvað við viljum fá. Ef
við ætlum að selja Ruud þá þurf-
um við að fá góðan pening fyrir
hann,“ sagði Sir Alex Ferguson,
stjóri United, eftir að hann hafði
hafnað tilboðinu en félagið vonast
til að fá um fimmtán milljónir
punda fyrir Nistelrooy.
„Hann er einn af bestu fram-
herjum landsins og í Evrópu. Ef þú
hugsar um að Andriy Shevchenko
kostaði Chelsea 35 milljónir punda
og að þeir eru á sama aldri, þá er
málið einfalt,“ bætti Sir Alex
Ferguson við. - hþh
Sagan endalausa um Nistelrooy að enda?
Fer Nistelrooy til
Real Madrid í dag?
NISTELROOY Er verðlagður á um fimmtán
milljónir punda. NORDICPHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Fyrri leik liðanna Randers
og ÍA í Danmörku lyktaði með 1-0
sigri Randers og því var ljóst að
það yrði á brattann að sækja hjá
ÍA. Það voru ágætar knattspyrnu-
aðstæður á Akranesi í gær, þolan-
lega hvasst og fagurgrænn völlur.
Áhorfendur voru reyndar af
skornum skammti og þeir létu
vægast sagt lítið í sér heyra.
Leikurinn fór rólega af stað og
bæði lið höfðu varann á og tóku
engar áhættur. Miðjumenn danska
liðsins tóku þó fljótt völdin af
slöppum miðjumönnum Skaga-
manna. Danirnir stýrðu algerlega
umferðinni og hinn fljóti fram-
herji, Djiby Fall, gerði varnar-
mönnum ÍA lífið leitt oft á tíðum.
Það var fátt sem benti til þess
að ÍA myndi gera nokkuð í leikn-
um þegar Hjörtur Júlíus Hjartar-
son batt endahnútinn á laglega
sókn heimamanna með hnitmið-
uðu skoti í teignum eftir skalla-
sendingu Heimis Einarssonar.
Fram að markinu hafði ÍA átt eitt
skot og það fór um 23 metra yfir
markið.
Skagamenn eru því í ágætum
málum en þeir voru fljótir að
glopra niður forskotinu því aðeins
tveim mínútum síðar jafnaði Búlg-
arinn Todor Yancev fyrir danska
liðið með skalla eftir hornspyrnu.
Reyndar voru Skagamenn í
miklum vandræðum gegn föstum
leikatriðum danska liðsins. 1-1 í
leikhléi og Danirnir í vænlegri
stöðu og þar að auki mun betri.
Skagamenn gerðu eina breyt-
ingu á liði sínu í leikhléi, tóku bak-
vörðinn Pálma Haraldsson af velli
og í hans stað kom Hafþór Ægir
Vilhjálmsson. Hann fór út á kant-
inn og ÍA um leið í þriggja manna
vörn enda engu að tapa lengur.
Þessi breyting skilaði ekki til-
ætluðum árangri því sóknartil-
raunir Skagamanna voru stein-
geldar, rétt eins og í fyrri hálfleik,
og leikmenn á borð við Þórð Guð-
jónsson og Bjarka Gunnlaugsson
voru lítið annað en farþegar í
leiknum.
Vörnin opnaðist að sama skapi
meira hjá ÍA og virtist aðeins
tímaspursmál hvenær gestirnir
tækju forystuna. Þrátt fyrir ákjós-
anleg færi vildi boltinn ekki inn
hjá Dönunum og vó þar þungt
frammistaða besta leikmanns ÍA,
markvarðarins Bjarka Guðmunds-
sonar, sem varði oft á tíðum vel.
Næst komust Danirnir að skora
þegar þeir skutu í þverslána.
ÍA tók síðan forystuna þvert
gegn gangi leiksins í uppbótar-
tíma er Bjarni Guðjónsson skoraði
úr víti. Of lítið og of seint. Hafþór
Ægir fauk svo af velli með rautt
skömmu síðar.
„Þetta var dapurt og einhver
leiðinlegasti leikur sem ég hef séð í
langan tíma,“ sagði Arnar Gunn-
laugsson, þjálfari ÍA, sem var í
smart jakkafötum þar sem hann
gat ekki leikið vegna meiðsla. „Töl-
urnar gefa ekki rétta mynd af leikn-
um því þeir voru vissulega betri.
Við reyndum hvað við gátum en því
miður gekk það ekki í dag.“ - hbg
Randers-liðið var mikið betra en ÍA tókst samt að landa sigri sem dugði ekki til:
ÍA úr leik þrátt fyrir sigur
gegn danska liðinu Randers
DANSKIR KLAUFAR Leikmann Randers fengu fjölda færa á Akranesi í gær og hér er það
besta. Bjarki markvörður víðs fjarri en boltinn hafnaði í slánni. FRÉTTABLAÐIÐ/EIRÍKUR
GOLF Sigmundur Einar Másson úr
GKG hefur þriggja högga for-
ystu eftir fyrsta daginn á Íslands-
mótinu í golfi sem hófst á Urriða-
velli í gær.
Sigmundur kom í hús á 70
höggum, eða einu undir pari, en
hann var sá eini sem lék undir
pari vallarins.
Gömlu kempurnar Úlfar Jóns-
son og Tryggvi Valtýr Tryggva-
son koma næstir á tveim höggum
yfir pari eftir að hafa komið í hús
á 73 höggum. Fjórir kylfingar eru
síðan jafnir þar á eftir en það eru
þeir Magnús Lárusson, Ólafur
Þór Ágústsson, Auðunn Einars-
son og Ómar Halldórsson.
Slæmt gengi sumra af öflug-
ustu kylfingum landsins á borð
við Ólaf Má Sigurðsson og Sigur-
páls Geirs Sveinssonar vakti
athygli en Ólafur var á 79 högg-
um en Sigurpáll á 80.
Hjá konunum er Helena Árna-
dóttir úr GR efst en hún kom í
hús á 77 höggum eða sex yfir
pari. Þær Ragnhildur Sigurðar-
dóttir og Þórdís Geirsdóttir eru
höggi á eftir Helenu. - hbg
Sigmundur Másson efstur á Íslandsmótinu í golfi:
Gömlu kempurnar
minna á sig