Tíminn - 22.03.1978, Blaðsíða 3

Tíminn - 22.03.1978, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 22. marz 1978. 3: Alþýðubandalagsmenn í Hveragerði hafna öllirni viðræðum um vinstrasamstarf Fundur var haldinn i Fram- sóknarfélagi Hveragerðis, þriðju- daginn 28. febrúar til undirbún- ings framboðs, við næstu sveita- stjórnakosningar. Kom þar fram mikill áhugi á að núverandi sam- starf við Alþýðubandalagsfélag Hveragerðis mætti haldast og jafnframt yrði Alþýðuflokksfé- laginu boðið aðild að þvi sam- starfi. Og i framhaldi af því gerði fundurinn, sem var fjölsóttur, eftirfarandi samþykkt: Fundurinn felur stjórn félagsins og framboðsnefnd, að kanna grundvöll að sem viðtækustu samstarfi um framboð við næstu sveitarstjórnarkosningar. Verði Alþýðubandalagsfélagi Hvera- gerðis og Alþýðuflokksfélagi Hveragerðis boðið til viðræðna á þeim grundvelli, sem fyrst. Daginn eftir, eða 1. marz, reit formaður félagsins bréf til for- manna Alþýðubandalags- og Al- þýðuflokksfélags Hveragerðis og gerði þar grein fyrir vilja Fram- sóknarmanna og óskaði eftir við- ræðum um þessi mál, á grund- velli þessarar samþykktar. Fljótlega barst jákvætt svar frá Alþýðuflokksmönnum, og eru viðræður við þá þegar hafnar. Frá Alþýðubandalagsfélaginu barst siðan formanninum eftir- farandi svarbréf i hendur þann 14. marz: Til Framsóknarfélags Hvera- gerðis og nágrennis. c/o Garðar Hannesson formaður. Á fundi i Alþýðubandaiagsfé- lagi Hveragerðis 12. marz var bréf frá Framsóknarfélagi Hveragerðis og nágrennis tekið til afgreiðslu. Fundurinn samþykkti að hafna öllum viðræðum við Fram- sóknarfélag Hveragerðis og ná- grennis um samstarf i sveitar- stjórnarkosningunum 28. mai 1978. Hveragerði 12. marz 1978 Auður Guðbrandsdóttir formaður I þeirri viðleitni vinstrimanna, að fella núverandi hreppsnefndar- meirihluta Sjálfstæðisflokksins i Hveragerði, með þvi að bjóða fram einn sameiginlegan lista, hafa „kommar” óneitanlega gerzt liðsmenn „ihaldsins” með þessari afstöðu sinni. Er það kannski þetta sem koma skal að loknum Alþingiskosningum i vor? Vinnsla oliurafstöðva jókst á siðasta ári. Vinnsla olíu- rafstöðva jókst um 25% 1977 — var 35% af heildarorku vinnslu á Austurlandi KEj — Hlutur oliurafstöðva i heildarraforkuvinnslu landsins jókst á siðasta ári um 0,3% en hlutur vatnsafls- og jarðvarma- stöðva minnkaði að sama skapi. Raforkuvinnsla vatnsaflstöðva jókst þó um 7,2% en orkuvinnsla jarðvarmastöðva dróst hins veg- ar saman um 15,2%. Vinnsla oliu- rafstöðva minnkaði á árinu 1976 um heil 26% en jókst aftur á siðastaári um 24,7%. Þessar upp- lýsingar er að finna I nýútkominni skýrslu Orkustofnunar. Þar segir ennfremur að tals- verður vatnsskortur á árinu 1977 hafi orsakað mikinn samdrátt i raforkuvinnslu vatnsaflsstöðva og þvi hafi orðið mikil aukning á raforkuvinnslu disilstöðva sér- lega á Vestfjörðum og Austur- landi. A Austurlandi t.d. var 35% orkuvinnslunnar framleidd i disilrafstöðvum. Að sögn Rúts Halldórssonar rit- stjóra Orkumála vænkast ekki hagur Austfirðinga fyrr en með tilkomu Austurlinu frá Kröflu en ráðgert er að ljúka lagningu hennar fyrir næstu áramót. Þá er jafnframt áætlað að taka i gagnið þriðja rafal Sigölduvirkjunar fyrir næstu áramót en hann kem- ur til með að framleiða 50 þús. kilówött. Færeyingar byrjaðir kolmunnaveiðar Tveir færeyskir togarar, Sig- inundur Brestisson og Leifur össurarson, hófu kolmunnaveið- ar nú i vikunni. Þriðja skipið fer á kolmunnaveiðar þegar' eftir páska. Nokkuð af kolmunna hefur þeg- ar verið sett á land i Færeyjum, og hefur fengizt fyrir hann jafn- virði sautján Islenzkra króna á kflógramm, en fast verð hefur ekki verið ákveðiö enn. Rannsóknarskip á vegum haf- rannsóknarstofnunar Færeyinga leitar að kolmunna á miðunum. En veður hefur verið slæmt og minna fundizt af þessum fiski en venjulega. Henri prins rlkisarfi Luxemborgar hafði stutta viðdvöl I Keflavlk s.l. sunnudag. t fylgd með rlkisarfan- um voru Gaston Thorn, forsætisráöherra, Greth, yfirmaður hirðarinnar og Helminger, ráðgjafi rlkis- stjórnar Luxemborgar. Hörður Helgason tók á móti hinum tignu gestum fyrir hönd rikisstjórnarinnar en einnig voru mættir á flugvellinum Pétur Pétursson ræðismaður Luxemborgar á tslandi, Þorgeir Þorsteinsson lögreglustjóri Keflavlkurflugvallar og Jón Óskarsson og Sveinn Sæmundsson frá Flug- leiðum. Prinsinn ferðaðist með flugi Loftleiða frá Luxemborg til Keflavlkur og áfram til New York. Markaðsöflun Ferðaskrifstofu rikisins: Samkeppni um hylli ferðamanna fer vaxandi JB —I byr jun þessa mánaðar tók Ferðaskrifstofa rikisins þátt i ferðasölusýningu ITB (Inter- national Tourismus Börse) i Berh’n, með hlutdeild Ferðamála- ráðs. Þessi sýning er mikilvæg- asti vettvangur ferðamála i Evrópu og viðurkenndur alþjóða- vettvangur. Er þetta i tólfta sinn sem þessi sýning er haldin, og tóku islenzkir aðilar nú þátt i henni i fyrsta skipti. Á fundi með blaðamönnum fyr- ir siðustu helgi sagði Kjartan Lárusson, forstjóri Ferðaskrif- stofu rikisins, að þátttaka ferða- skrifstofunnar hefði einkum beinzt að öflun nýrra viðskipta- sambanda til fjölgunar ferða- mönnum til íslands, en skrifstof- an hefur um árabil verið einn stærsti fyrirgreiðsluaðili þeirra ferðamanna, er fara i langferðir um landið. ,,A meðan ferðaskrif- stofur hér á landi miða að þvi að flytja ferðafólk út héðan, er okkar markmið að fá hingað til lands sem flesta erienda ferðamenn”, sagði Kjartan. Þátttakan i sýn- ingunni er einn þáttur i beinni viðleitni Ferðaskrifstofunnar til markvissrar markaðsöflunar, og e.t.v. ekki siður til að halda hlut sinum og landsins i aukinni sam- keppni og kynningarstarfsemi margra landa til að ná hylli ferðamannsins. En skrifstofan hefur einnig gefiðút mikið af upp- lýsingabæklingum um landið og dreift þeim i sama tilgangi. Arið 1973 var að sögn Kjartans metár hvað varðar fjölda ferða- manna hingað, en þeir voru þá um 74000. Stefnt er að þvi i ár, að Frá sýningunni I Berlln. ná þessum fjölda og auka hann ef kostur er, en það hefur hingað til ekki tekizt. Mikilvægasti markaðurinn fyrir tsland eru þýzkumælandi lönd i Evrópu en að þvi er fram kom á fundinum virðist eitthvað vera á Islandi sem skirskotar sérstaklega til þess fólks er þau lönd byggir. Áhugi á ferðalögum til tslands virðist þó fara vaxandi v.oa og var sérstaklega minnzt á ttaliu i , þvi sambandi. Ferðaskrifstofa rikisins er nú rekin með hagnaði ásamt með Edduhótelunum, en hún átti á sin- um tima i miklum fjárhagskrögg- um. Mun breyttur rekstur hafa bætt þar um og að þvi er Kjartan Lárussonsagði, er ekki fjarri lagi að álita að veltan hafi á siðasta ári numið þrem til fimm hundruð milljónum. Kjartan Lárusson, forstjöri Ferðaskrifstofu rikisins með einn af þeiin bæklingum, sem þeir hafa gefið út i sambandi við land- kynninguna. Timamynd Gunnar Eftirlegunet dregin úr sjó GV— Eftir að þorskveiðibannið hófst á hádegi i gær lágu enn nokkur net i sjó við Suðvestur- landið. Erfiðlega hafði gengið að ná netunum úr sjó vegna veðurs siðustu dagana fyrir þorskveiðibannið. En i hæg- viðrinu i gær fór að ganga betur og að sögn Þrastar Sigtryggs- sonar hjá Landhelgisgæzlunni var nokkuð um báta á Faxaflóa og austur með Suðurlandi sem voru að draga netin úr sjó. — Sjórinn ætti þvi að vera hreinn af netum i dag, sagði Þröstur. Landhelgisgæzlan mun haga eftirliti sinu á venjulegan hátt i þorskveiðibanninu og að sögn Þrastar láta þeir sjávarútvegs- ráðuneytið vita ef þeir sjá skip á veiðum þar sem eingöngu er þorskað hafa. En það er ihönd- um eftirlitsmanna i landi að fylgjast með prósentu þorsks i aflanum. A Breiðafjarðarmiðum voru engir netabátar á veiðum i gær og Vestfjarðatogarar voru flest- ir á leið til hafna. Togarar fara flestir á karfaveiöar4en Þröstur taldi óliklegt að togarar kæmust að á ufsaslóðunum sunnan af landinu vegna neta. Tveir belgiskir togarar voru á veiðum suðvesturaf Eldey i gær en þar er litil þroskveiði aðsögn Þrastar en Landhelgisgæzlan mun fylgjast með þeim sem öðrum úr lofti og af sjó.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.