Tíminn - 22.03.1978, Blaðsíða 11
Miövikudagur 22. marz 1978.
n
Þannig eru trimm-böndin notuö
til likamsræktar
Selja
trimm-
tæki til
styrktar
fötluðnm
FI — Komiðer á markaöinn ein-
falt og ódýrt æfingatæki til að
trimma með i heimahúsum.
Lionsklúbburinn Pýjörðar i
Ueykjavik annast sdfuna, en
ágóðanum hyggjast klúbbfélag-
ar verja til styrktar iþróttum
fyrir fatlaða. Þarna er um að
ræða svokölluð trimm-bönd,
sent má t.d. tengja við hurðar-
hún eða snaga, en æfingarnar
eru fólgnar i þvi að beitt er afli
handa og fóta á vixl tii likams-
þjálfunar mgð hjálp
trimm-bandanna, seni leika á
trissum.
Leiðarvisir fylgir hverjum
pakka, og er þar með skýring-
um og teikningum gerð grein
fyrir hinum ýmsu æfinga-
möguleikum. Þar er m.a. haft
eftir frægum hjartasérfræðingi,
aðlikamsrækt sé jafn þýðingar-
mikill þáttur i lifinu og matur,
vinna og svefn.
Trimm-böndin kosta 1500
krónurogeruseld i öllum helztu
sportvöruverzlunum höfuð-
borgarinnar og stórmörkuðum.
Ef salangengur vel i Reykavik,
j^yggjast Njarðarmenn útvega
Lions-klúbbum úti um land
trimm-bönd til sölu i þeirra
byggðarlögum.
SKIPAUTGCRB RIKISINS
M.s. Hekla
fer frá Reykjavik miðviku-
daginn 29. þ.m. vestur um
land til Akureyrar og tekur
vörur á eftirtaldar hafnir:
Patreksfjörð, (Tálknafjörð
um Patreksfjörð) Þingeyri,
(Bolungarvik um tsafjörð),
Isafjörð, Noröurfjörð, Siglu-
fjörð og Akureyri.
Móttaka
alla virka daga nema
laugardag til 28. þ.m.
M.s. Esja
fer frá Reykjavik föstudag-
inn 31. þ.m. vestur um land
til ísafjaröar og tekur vörur
á eftirtaldar hafnir:
Bfldudal, Þingeyri; Flateyri,
Súgandaf jörð, Bolungarvik
og isafjörð.
Móttaka
alla virka daga nema
laugardag til 31. þ.nt.
Wl
9 1 m
Hluti félagsmanna IFélagi islenzkra áhugamanna um harmonikuleik.
Áhugamenn um harmoníkuleik stofna félag
Nýlega var stofnað i Reykjavik
Félag islenzkra áhugamanna um
harmonikuleik.
Aðalmarkmið félagsins er að
safna saman sem flestum
harmonikuáhugamönnum innan
sinna vébanda og efna til kynn-
ingar félagsmanna innbyrðis.
Siðan er ætlunin i krafti samein-
ingar að stuðla að aukinni kynn-
ingu á harmonikutónlist um land
allt. Einnig hefur komið mjög til
umræðu skilningsleysi yfirvalda
menntamála gagnvart
harmonikukennslu i tónlistar-
skólum landsins Að lokum er
stefnt að rekstri nótna- og plötu-
safns til afnota fyrir félagsmenn.
Rúmlega 60 manns hafa þegar
skráð sig i félagið og hittist hóp-
urinn nú mánaðarlega, þar sem
lagið er óspart tekið og fólk kynn-
ist innbyrðis.
Eitt skemmtikvöld hefur farið
fram til styrktar félaginu. Er ætl-
unin að skapa félaginu fjárhags-
grundvöll með slikum hætti i
framtiðinni.
I stjórn sitja nú:
Bjarni Marteinsson, formaður
Guðmundur Guðmundsson, rit-
ari.
Elsa Kristjánsdóttir, gjaldkeri.
Guðmar Hauksson, meðstj.
Karl Jónatansson, meðstj.
Lyftur eru opnar alla páskadagana (frá
Skírdag - 2. páskadags) frá kl. 10.00
— 18.00
Aðgangskort eru seld við lyfturnar.
Göngubraut 5 km. er merkt fyrir þá
sem iðka skíðagöngu.
Sætaferðir eru farnar frá Umferðarmið-
stöðinni alla dagana kl.10.00 og13.30.
Frekari upplýsingar eru hjá B.S.Í. í síma
22300.
Upplýsingar um ástand og verður í
Bláfjöllum er í símsvara 85568
-r-
ATH:
Snyrtiaðstaða er í Bláfjöllum, en engar
veitingar. Verið vel klædd og takið með
ykkur gott nesti og eitthvað heitt að
drekka.
Sýnið tillitssemi við lyfturnar og í skíða-
brekkunum, og gætið að eigin öryggi
og annarra.
HVERADALIR:
Lyfturnar verða opnar alla páska-
dagana frá kl. 10.00—18.00.
Veitingasala er í Skíðaskálanum alla
hátíðardagana.
Sætaferöir frá B.S.Í.
f f Bláfjöllum
er útivistarsvæði
fjölskyldunnar
um páskana ...