Tíminn - 22.03.1978, Blaðsíða 24

Tíminn - 22.03.1978, Blaðsíða 24
 ± ' Ökukennsla Greiðslukjör Wtwmm V18-300 Miðvikudagur 22. marz 1978. Auglýsingadeild Tímans. Gunnar ^/0 JO pð Jónasson 1 (m Sími 40-694 TRÉSMIDJAN MÉIDUR SÍÐUMÚLA 30 ■ SÍMI: 86822 Sýrö. eik er sígild eign Hér sjást „slökkvilibsmenn” Arnarholts gera upp brunaslöngur sinar, en þær eru nýjar af nálinni og viröast svo sannarlega ætla aö standa fyrir sfnu. Tlmamyndir G.E. Arnarholt: Loðnuleitarleiöangri á r/s Árna Friðrikssyni lokið: „Hræddur um að vertið sé að ljúka” GV — Ég er hræddur um aö allt útlit sé fyrir að loðnuvertiöinni sé að ljúka, þó að menn stundi veiðarnar trúlega eitthvað áfram. Við urðum varir viö mjög litiö af loðnu skammt suð- austur og austur af Eystra-Horni, og ef taka má mark á þvi er ekki von á miklu i viðbót, sagði Hjálmar Vilhjálmsson fiskifræðingur og leiðangursstjóri á r/s Arna Friðrikssyni. Rannsóknarskipið er væntanlegt til Reykjavikur i dag. Hjálmar sagði þó, að ekki væri alveg loku fyrir það skotið að von væri á smágöngum i viðbót, þar sem loðnan væri slæm meðaö breiða yfir sig SSA af landinu. Leiðangursmenn urðu varir við smáloðnu Ut af Vestfjörðum, en ekki er von á göngum þaðan suður fyrir land- ið. Loðnan er nú farin að hrygna og heldur sig á svæðinu frá Hornafirði og vestur undir Vest- mannaeyjar, aðallega i Meöal- landsbugt og Mýrarbugt. Starfsfólkið af- stýrði eldsvoða ESE —Um kl. 11.50 i gærmorgun var slökkvilið Reykjavikur kvatt aö vistheimilinu að Arnarholti i Mosfellssveit, en þar hafði komiö upp eldur i einu herbergi i elztu álmu hússins. Þegar slökkviliðiö kom á vettvang laust upp úr há- degi, þá hafði starfsfólkið á vist- heimilinu ráöið niðurlögum eids- ins og með þvi trúlega bjargaö byggingunni frá stórtjóni ef ekki eyöileggingu. Aö sögn varöstjóra hjá slökkvi- liðinu, þá var æfing I brunavörn- um haldin með starfsfólkinu á Arnarholti fyrir u.þ.b. mánuöi þar sem þvi var kennd meöferö slökkvitækja, auk þess sem allt slökkvikerfið var endurnýjaö. Aö þessari kunnáttu bjó starfsfóikiö nú, og brást þvi hárrétt við háskanum. Litlar skemmdir urðu á húsa- kynnum, nema i þvi eina herbergi þar sem eldurinn kom upp, en þaö er enn hulin ráðgáta hvernig kviknaði þar i, þar sem herbergi þetta hefur staöiðmtrtt eg-var ný- búið að rýma þaö. Svo vel vildi til að munir, sem fara áttu á væntanlegan bazar vistheimilis- ins, sluppu alveg við skemmdir af völdum elds og reyks, en munirn- ir munu þó hafa verið geymdir nálægt herberginu, þar sem elds- ins varð vart. Starfsfólk heimilisins aö Arnarholti eftir aö tekizt haföi aö ráöa niöur- lögum eldsins. Borinn Narfi finnur enn viðbótarvatn að Y tri-Tj ör num FI — Borhola Hitaveitu Akureyrar aö Ytri-Tjörnum i Eyjafiröi gefur nú af sér heimingi meira vatnsmagn en áöur, aö sögn Ingólfs Árnasonar, raf- magnsveitustjóra á Akureyri. Sjöunda þessa mánaðar fundust 20 sek.-litrar i þessari holu á 475 m dýpi, en borinn Narfi er nú kominn niður á 1000 m dýpi og hafa komiö alls um 38—40 sek.-litrar af sjálfrennandi vatni úr holunni. Þessi nýju tiöindi hafa mikiö aukið á bjartsýni manna á vatnsöflun á svæðinu, sem ekki hefur veriö kannað nema aö litl- um hluta.og er búiö aö gera „bor- Sala dilkakjöts hefur dregizt saman — vart næg framleiðsla á nautakjöti SKJ — Sala Búvörudeildar Sam- bandsins á dilkakjöti innanlands dróst nokkuð saman frá fyrra ári en samtals seldi hún á heima- markaði 2.448 lestir árið 1977 á móú 2.650 lestum 1976. Aftur á móú jókstsala á ær- og geldfjár- kjöti hér innanlands úr 256 lestum 1976 i 480 lestir 1977. Aö sögn Agnars Tryggvasonar fram- kvæmdastjóra Búvörudeildarinn- ar á hækkandi verrð og áróður gegn neyzlu landbúnaðarafurða mestan þátt i samdrætti á dilka- kjötssölu. Hins vegar kvað hann erfitt að segja nokkuð um litlar sölusveiflur eins og átt hafa sér stað i sölu ær- og geldfjárkjöts. Litilsháttar aukning varð i sölu hangikjöts milli áranna en sala á nauta- og kálfakjöti og á kýrkjöti jókst verulega. Sagði Agnar, að helzta vandamálið væri nú, að fá bændur til að framleiða nægt nautakjöt til að anna eftir- spurn eftir þvi. Bændur hafa dregið mjög úr framleiðslu nautakjöts að undanförnu vegna þess að þeir telja hana vart eins arðbæra og aðrar greinar land- búnaðar. Arið 1977 seldi Búvöru- deildin samtals 346 lestir af nauta- og kálfskjöti og 263 lestir af kýrkjöti. útflutningur á frystu dilkakjöti var svipaður árin 1976 og 1977 4.628 fyrra áriö en 4.733 hið siðara. plan” eða undirstöðu undir Narfa annars staðar á svæðinu. Hita- veita Akureyrar hefur nú úr rúmiega 200 sek.-IItrum að spila. Tenging hitaveitunnar gengur meinhægt eins og við er að búast, þegar tekið er tillit úl skorts á pipulangingamönnum. Búið er aö tengja 250 hús af 550, sem fengið hafa heimaæðar. Áætlað er að teng ja eit t þúsund hús á þessu ári, eða helming bæjarins. Mun teng- ing hins helmingsins taka a.m.k. tvö ár til viö bótar. Boranir að Laugalandi og aö Ytri-Tjörnum hafa úl þessakost- aö milli 5—600 milljónir króna. Borinn Narfi gerir það gott I Eyjafirðinum. Holan aö Ytri-Tjörnum gefur nú 38—40 sek.-litra sjálfrennandi vatns á 1000 m dýpi. Þess má geta, að Narfi kemst niöur á 1500 m dýpi, svo að það er aldrei að vita, hvað finnst við frekari boranir. Tímamynd: A.Þ. Hjalteyri verður Arneshrepps JB — Á laugardaginn mun væntanlega verða undirritaður á Akureyri, samningur um sölu Hjalteyrar i Arneshreppi. Seljandi i þessu sambandi er Landsbankinn, en kaupandi er Arneshreppur. Kom þetta fram i samtali við Helga Bergs bankastjóra Landsbankans i gær. Ekki vildi Helgi greina frá kaupveröi né innihaldi samn- ingsins að sinni. Að undanförnu hafa staöið yfir umræður milli Landsbank- ans og hreppsins um sölu þessa, og mun þriðji aðili einnig hafa lýst áhuga sinum á kaupunum. Það sem um er að ræöa i þess- um viðskiptum, eru eignir Kveld- úlfs á Hjalteyri, þ.e. land og mannvirki. Þarna er gömul sildarverksmiðja, hafnar- mannvirki og tiu ibúðir auk annarra eigna Kveldúlfs á staðnum. Þessar eignir Kveldúlfs komust i hendur Landsbankans þegar fyrii'tæk- ið geröi upp skuldir sina við bankann fyrir nokkrum árum. Til viðbótar við þetta er verið að ganga frá sölu á þrem bújörð- um i Arneshreppi og verða þær seldar núverandi ábúendum. Eru þetta jarðirnar Ytri Bakki, Dragholt og Skriðuland. Blaðið hafði samband við hreppstjóra Arneshrepps Magnús Stefánsson vegna þessa máls i gær og innti hann eftir þvi hvaöfyrir þeim vekti meö kaup- um þessum. Sagði hann að þeir vildu efla staðinn, sem byði upp á ýmsa möguleika. „Þaö er nú ekki endanlega búið að ákveða hvað verður gert, en húsin verða seld, reiknað er með að útgerð haldist áfram og ætli við Hjalteyri viö Eyjafjörö mun veröa eign Arneshrepps viö undirskrift samnings á laugardaginn. reynúm ekki aö koma upp ein- hverjum iðnaöi. Þó er ekki ákveðið hvers konar iðnaður verður fyrir val- inu. Timinn mun bara skera úr um þetta,” sagði nann. Ekki taldi hann þetta hafa nein áhrif á ibúa staöarins, sem myndu að öllum likindum kaupa húsin og halda áfram að búa þarna. (

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.