Tíminn - 22.03.1978, Page 12
12
Ll'Jllliíltlillt!
Mi&vikudagur 22. marz 1978.
Myndlist á
f östu og
páskum
A pálm asunnudag opnar
Jakob Hafstein málverkasýn-
ingu i félagsheimilinu Festi i
Grindavik, en sýningin mun
standa framyfir páska, nánar til
tekiö lýkur henni klukkan 22.00
á annan dag páska.
Jakob Hafstein sýnir aö þessu
sinni 47 myndir, 20 oliumálverk,
16 vatnslitamyndir, en af-
gangurinn er pastelmyndir og
tússmyndir, en mótivin eru frá
tslandi og Mallorca, mest-
megnis landslag.
Um Jakob Hafstein þarf ekki
að fjölyrða til kynningar. Hann
er stórfrægur maður i myndlist-
inni, og þá einkum fyrir það að
hann varð hér á árunum til þess
að til friðslita kom milli félags-
bundinna myndlistarmanna og
Reykjavikurborgar Utaf Kjar-
valsstöðum — en sættir náðust
um siðir og Jakob Hafstein var
kominn á vergang með
myndirnar sinar, og hefur siðan
verið fremur hljótt um mynd-
listarstörf hans og málverk.
Hann fær ekki inni i sýningar-
sölun heimabæjar sins, þótt
vafasamar sýningar séu nú
haldnar þar, ef gæðin eiga á-
vallt að sitja i fyrirrúmi, en nóg
um það.
Sýning skoðuð á
Kirkjusandi
A dögunum kom Jakob Haf-
stein að máli við undirritaðan
og kvaðst ætla að halda sýningu
i Grindavik, en þar er ágæt að-
staöa til myndlistarsýninga i
félagsheimilinu Festi, sem er
Höröur Agústsson opnaöi
sýningu á nýjum
opnunartíma.
mjög vel búið til allra hluta.
Kvaðst Jakob vera búinn að
ganga frá myndunum til suður-
reiðar, og bauð mér að skoða,
sem ég að sjálfsögðu þáði með
þökkum, þvi það er orðið æði
Íangt siðan stór sýning á mynd-
um Jakobshefur verið i Reykja-
vik.
bað varð úr einn morguninn,
þegar vor var i lofti, að við héld-
um inn á Kirkjusand til þess að
skoða sýninguna, en þar voru
staflar af fullgerðum myndum.
Fyrirferðarmest eru oliumál-
verkin, sem eru 20 að tölu.
Jakob heldur sig þar við sin
fyrri viðfangsefni, Snæfells-
jökul, úr Staðarsveit, gæsir við
Fróðárvaðal, Herðubreið,
sumarmorgun i Ásbyrgi.
Þessar myndir lýsa ást á
landinu, en oliumálverkin eru
þó ekki sterkasta hlið Jakobs
Hafsteins sem málara. Þó eru
þarna athy glisveröar smá-
myndir, málaðar með spaða.
Þar koma fram sterkari tök en i
Jakob Hafstein
stóru myndunum. Blómamynd-
ir eru sér á parti.
Þá eru á sýningunni 16 vatns-
litamyndir og nokkrar pastel-
myndir, og eru sumar þeirra
furðu góðar innan síns ramma.
bað er ánægjulegt að geta
skýrt frá framförum manna og
það gerum viö hiklaust hér.
A sýningu, sem Jakob Haf-
stein hélt i Bogasalnum fyrir
nokkrum árum, voru m.a.
nokkrar vatnslitamyndir, sem
báru af öðruá þeirri sýningu að
voru mati, og það gera vatns-
litamyndirnar einnig nú að
vorri hyggju. Vil ég sérstaklega
tilnefna þessi verk:
20. Viö Fróðárvaöal
23. Jónsmessunótt við Laxárós
31.Hrafnabjörg
38. A Holtavörðuheiði
39. Fuglar i fjörunni
40. Dimmuborgir
41. Septembersól, og að lokum
Rauð blóm no. 47.
Þessi verk eru þau beztu, sem
sézt hafa eftir Jakob Hafstein i
seinni tið.
Jakob Hafstein er kannski
ekki í hópi stórmálara þessarar
þjóðar, en ást hans á landinu,
ásamt hæfileikum og einhverju
myndlistarnámi, hafa skilað
honum á rekspöl. Við skynjum
djúpa tilfinningu og viröingu
fyrir eldri kynslóðum málara,
sem máluðu ættjarðaróö, fjöll
og dali, læki og fossa þessa
lands, sem þeir elskuðu heitar
en nokkuð annaö.
Ef til vill hefði Jakob ekki átt
svona örðugt uppdráttar, svona
hrikalega sambúð við hin
myndlistarlegu yfirvöld lands-
ins, ef hann heföi lagt annars
konar myndlist fyrir sig, en
hann er þó a.m.k. hreinn og
beinn og fer sinu fram, — hvaö
sem hver segir.
Galleri Sólon Islandus
Frá þvi hefur veriö skýrt i
fjölmiðlum að Galleri Sólon Is-
landus sé búið aö loka, en það
Fyllingarefni
Húsbyggjendur
Verktakar
Húseigendur
Höfum til afgreiðslu alla virka
daga fyrsta flokks sjávarefni til
fyllingar i grunna, brautir og
skurði, bæði harpað og óharpað.
Efnið er ófrosið, hreint og
þjöppunareiginleikar hinir
ákjósanlegustu.
Efnið, sem engan
svíkur
BJÖRGUN H/F
Sævarhöfða 13, simi 81833.
Gallerl Sólon Islandus.
hafði húsnæði á leigu i Aðal-
stræti, þar sem áður var Langi-
bar en svo nefnist steinbygging
við hliðina á Fjalakettinum.
Galleriinu var lokað vegna þess
aðeigendurhækkuðu leiguna úr
kr. 50.000 i kr. 100.000.
Það er í sjálfu sér hryggilegt
að þetta skyldi þurfa að fara
svona, að ekki skuli vera unnt
að standa undir einu myndverði
á meðalmynd á mánuði, til þess
að borga húsaleigu á bezta stað i
bænum.
bað er ekkert nýmæli að
húsaleiga sé hækkuð um helm-
ing á sýningarhúsnæði — hvað
sem allri veröstöðvun liður.
Reykjavikurborg hækkaði t.d.
i fyrravor leiguna fyrir Kjar-
valsstaði, vestursal, um helm-
ing úr kr. 80 þús i 160 þús. — og
enginn sagði múkk. Svona
hrikaleg stökk eru auðvitað
erfið, og það er von að það fari
um myndlistarmenn þegar þær
dynja yfir.
Eftir þvi sem mér hefur skil-
izt, þá voru sýningar yfirleitt i
þrjár vikur i Galleri Sólon Is-
landus. Þar af um það bil tvær
vikur, sem galleriiö var opið al-
menningi.
Mikill timi fór i vangaveltur
og upphengingar.
Sú venja hefur — illu heilli —
skapazt hér, að listamenn eru
þennan langa tima að koma
verkum sinum fyrir. Kjarvals-
staðir eru þannig yfirleitt af-
hentir myndlistarmönnum á
miðvikudegi, og siðan er horft á
naflann á sér í tvo, þrja' daga, en
siðan er opnaö á laugardegi.
Hörður Agústsson reyndi þó að
brjóta þessa hefð með þvi að
opna sýningu á Kjarvalsstöðum
á fimmtudegi (ef ég man rétt).
Þetta var ágæt tilbreyting, en
það skal viöurkennt að aðsókn
var ekki mikil að opnuninni,
hvað sem siðar kann að hafa
verið.
Ungir myndlistarmenn taka
mikið mark á Herði og þeir
mættu gjarnan taka til athugun-
ar að opna fyrr en hefðin segir,
eins og Hörður Agústsson gerði
seinast.
Annað, sem Galleri Sólon
Islandus má lika hafa til at-
hugunar, er, hvort galleriið hafi
ekki verið of oft lokað til þess að
menn legðu þangað leið sina
ótilkvaddir.
Það voru ýmsar góðar sýn-
ingarhaldnar i Aðalstrætinu hjá
þeim, — en lika nokkrar slæm-
ar, en mestur timinn fór þó i það
aðhafa lokað, —fannstsumum.
Viö höfum haft af þvi spurnir
að eigendur Galleris Sólon Is-
landus séu nú að svipastum eft-
ir hentugu húsnæði, og er þaö
svosannarlega fagnaðarefni, og
vonandi eiga borgarbúar eftir
að koma á margar, fróðlegar og
góðar sýningar hjá þeim i fram-
tiðinni.
Jónas Guðmundsson
fólk í listum