Tíminn - 22.03.1978, Page 19
19
Miðvikudagur 22. marz 1978.
,Skrúfudagurinn’
fjölsóttur
FI - „Skrúfudagur" Vél-
skóla íslands sl. laugardag
var mjög fjölsóttur að
venju og voru mættir á
staðinn foreldrar, nem-
endur og kennarar auk
áhugafólks um skólann.
Menntamálaráðherra/ Vil-
hjálmur Hjálmarsson kom
og i heimsókn. Kaffi-
veitingar voru á vegum
Kvenfélagsins Keðjunnar
en i þvi félagi eru eingöngu
eiginkonur vélstjóra.
Dagskrá „Skrúfudagsins” hófst
kl. 13:30 og stóð til kl. 17:00. Gátu
menn á þessum tima kynnt sér
nám og starf i vélasölum skólans,
stýritæknistofu, kælitæknistofu,
raftækjasölum smiðastofum og
efnafræðistofu. Bókasýningar
voru tvær og samfelldar kvik-
myndasýningar i hátiðarsal.
1 samtali við skólastjórann
\ndrés Guöjónsson skólastjóri.
Andrés Guðjónsson kom fram að
nemendur við Vélskóla Islands
eru nú 400 talsins, þar af ein
stúlka sem lýkur skólanum i vor
eftir fjögurra vetra nám. Andrés
sagði að árlega þyrfti að neita
um 20-30 nemendum um skólavist
vegna húsnæðisskorts og tækja-
leysis en Vélskólinn hefur eina
hæð i Sjómannaskólanum til um-
ráða auk vélasala.
Vélskóli Islands teygir anga
sina út um landið og eru nokkrar
deildir skólans starfræktar á
Akureyri, Isafirði og i Vest-
mannaeyjum. Vélstjórabraut er i
fjölbrautaskólunum i Keflavik og
á Akranesi.
Formaður skólanefndar Vél-
skóla Islands er Valdimar K.
Jónsson próféssor en varaform.
er Óttar Karlsson skipaverk-
fræðingur hjá Sambandinu. Aðrir
i stjórn eru Viggó Maack skipa-
verkfræðingur hjá Eimskip,
Ingólfur Ingólfsson form. FFSt,
Emil Ragnarsson verkfræðingur
hjá Fiskifélaginu og Sveinn Jóns-
son vélstjóri.
Sjómannaskólinn, en þar er Vélskóli tslands til húsa ásamt Stýri-
mannaskólanum og Hótel- og veitingaskólanum.
Hlaðiðborð og kaffiveitingar voru á „Skrúfudeginum” f umsjá Kvenfélagsins Keðjunnar.
Tímamyndir Róbert.
Gömul glóðarhausvéi(forngripur frá 1912, var til sýnis á þessum degi.
Slfkar véiar voru hér i fyrstu bátunum.
Úr vélasal.
Nemendur gera hér tiiraun með disilvél.