Tíminn - 09.04.1978, Page 7

Tíminn - 09.04.1978, Page 7
Sunnudagur 9. april 1978 7 Wwmm Útgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm.), og Jón Helgason. Rit- stjórnarfulltrúi: Jón Sigurösson. Auglýsingastjóri: Stein- grímur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmda- stjórn og auglýsingar Sibumúla 15. Simi 86300. Kvöldsimar blaöamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00:. 86387. Verö i lausasölu kr. 90.00 Askriftargjald kr. 1700 á mánuði. Biaöaprenth.f. Má hjálpa málfötluöum? Maðurinn er að mörgu leyti verr úr garði gerður en önnur dýr. Hann er ekki loðin sér til skjóls eins og hestur eða sauðkind, hann er ekki syndur eins og selur,hann getur ekki lagzti dá á köldum árstimum eins og björninn, honum nægir ekki greni i urð eins og refnum og ungviðið ris ekki jafnskjótt á legg og það er fætt eins og kálfarnir. En eitt hefur hann: Mál og minni, og hvort tveggja yfirgripsmeira en aðrir flokkar dýra, þótt þeir hafi þetta einnig i nokkrum eða jafnvel veru- legum mæli og kannski meiri en kunnugt var til skamms tima. Og það, sem ekki siður hefur riðið baggamuninn i þekkingarleit og færni hans til þess að tileinka sér kunnáttu: Hann hefur á valdi sinu kerfi tákna, sem hann getur lesið úr hugsanir, ályktanir og vitneskju annarra manna, hvort heldur þeir eru i mikilli fjarlægð eða fyrir löngu gengnir fyrir ætternisstapann. Þetta er ávöxtur þeirrar greindar, sem manninum er gefin, og þetta er það, sem hefur skilað honum lengst fram á veginn. Þessi staðreynd ætti að vera ærin hvöt til þess, að menn vönduðu hugsun sina og mál, jafnt talað sem skrifað, gættu nákvæmni i orðafari og leituðust við að brjála ekki merkingu þess, sem þeir segja eða festa á pappir. öllum ætti að vera annt um, að ann- að fólk skilji þá, og skilji þá rétt. Jafnskjótt og með íslendingum kviknaði von um betri tið en þeir höfðu notið um raðir alda, var mál- hreinsun og málfegrun i fylgd með þeirri von. Aðeins fáir áttu þá að skólum að hverfa sér til halds og trausts og leiðsagnar i þeirri viðleitni. öll alþýða manna varð þar við sjálfsnám og sjálfsögun að styðjast. Nú eru hér á landi hundruð skóla, þúsundir kenn- ara og tugþúsundir nemenda. Þá bregður svo við, að rækt við málfar hefur farið forgörðum á áber- andi hátt, málskyni hnignar, ambögur vaða uppi, merking brengslast, orðaforði gerist fátæklegri,á súðum veður um fallbeygingar, útlent orðalag sæk- ir á og illtyrfið og torskiljanlegt stofnanamál riður húsum. Ekki svo fáir virðast vera það, sem ekki verður annað nefnt en málfatlaðir, og i þeim hópi ekki sið- ur, en aðrir, langskólagengnir menn, sem sjálfir lita vafalaust svo á,að þeir séu hámenntaðir.Og eru það sjálfsagt að vissu leyti, þó að fyrir þeim vefjist að orða hugsanir sinar á móðurmálinu. Andspænis þessu mætti ætla, að flestum sýndist ráð að spyrna við fótum og leitast að minnsta kosti við að hjálpa þeim, sem i þessum ófamaði hafa lent, ekki sizt þar sem tungan er eitt af þvi, sem helgar tilverurétt okkar meðal þjóða. En ekki eru allir á þeim buxunum. úr ýmsum horaum heyrast þær raddir, að þessi málfötlun sé eins konar helgur dómur, sem ekki megi hrófla við, nokkurs konar réttur einstaklingsins til þess að hasla sér völl á lág- um stað i samfélaginu og enga tilburði megi hafa til að bæta úr slikum vanmætti i svokallaðri tjáningu. Það er ekki aðeins, að reiðingsrista innan veggja stofnananna þyki góð og gild, hrá enskan sjálfsögð og merkingabrenglið fullboðlegt, heldur predika þessir forsvarsmenn upplausnarinnar einnig, að latmæli, tæpitunga og hálfsögð orð séu jafngott tungutak og skýr framburður, og flámæli vel boð- legt, ef ekki lofsvert. Sumir breiða þá skikkju yfir þennan boðskap að þeim gangi til elska á verkalýð og alþýðufólki, sem að sjálfsögðu út af fyrir sig er móðgun, þar eð engin rök verða að þvi færð að van- máttur um málfar flokkist eftir stéttum. Hitt sýna dæmin, að háskagripanna, sem telja málspjöll bhrai góð, er annars staðar að leita. JH ERLENT YFIRLIT Oleystu deilumálin á hafréttarráðstefnuiuii Sum þeirra snerta Island Amarsinghe hefur veri1' endurkosinn forseti hafréttar- ráðstefnunnar. A HAFRÉTTARRAÐ- STEFNUNNI, sem nýlega hefur hafið sjöunda fund sinn i Genf, mun aðalathyglin bein- ast að störfum fyrstu nefndar hennar, en hún fjallar um nýtingu á auðæfum hafsbotns- ins utan efnahagslögsögu strandrikja. í nefndinni hefur náðst samkomulag um viss grundvallaratriði, sem mikið ósamkomulag er um, hvernig þau skuli framkvæmd. I grein, sem Gunnar G. Schram hefur nýlega ritað um þessi mál, lýsir hann i stuttu máli þvi, sem um er deilt, á þennan hátt: „Samkomulag hefur náðst um aðný alþjóðastofnun, Haf- botnsstofnun S.Þ., skuli fara með stjórnun á svæðinu. En þróunarlöndin vilja flest að hin fyrirhugaða hafsbotns- stofnun fari þar með öll yfir- ráð varðandi oliu, gas og námavinnslu og aðarðurinn af vinnslunni renni að mestu til stofnunarinnar sjálfrar og til þróunarlandanna. Iðnrikin hafa mörg hver verið mjög treg til þess að leggja öll völd i hendur slikri alþjóðastofnun, sem ljóst er að þau munu hafa minnihlutavöld i. Þeirra tíl- lögur hafa verið þess efnis, að hafsbotnssvæðið verði opnað til vinnslu fyrir einkafyrirtæki og rikisfyrirtæki, auk hinnar alþjóðlegu hafsbotnsstofnun- ar. Ýmsar málamiðlunarleið- ir hafa verið ræddar i þaula i þessum efnum, m.a. á hvern hátt arður af vinnslunni skuli renna til stofnunarinnar, vald hennar til leyfisveitinga einkafyrirtækja til vinnslunn- ar og á hvern hátt unnt væri að heimila báðum þessum aðil- um aðang að auðlindunúm ákveðið timabil (20-25 ár) og taka siðan málið allt upp til endurskoðunar. Þá vilja þróunarlöndin að hluti auð- lindasvæðanna verði tekinn frá til vinnslu siðar, svo fram- boð hráefna af hafsbotni, sér- staklega málma, valdi ekki markaðshruni á þeirra eigin hráefnisútflutning næstu ár- in.” A fundinum i Genf mun verða reynt að jafna þessi ágreiningsmál, en takist það ekki, munu sennilega Banda- rikin og fleiri iðnaðarriki hefja vinnslu á umræddu hafsvæði, þvi að engin núgildandi lög banna það. Þvi mun sennilega verða meiri áhugi á þvi nú en áður að leysa þennan ágrein- ing. ÖNNUR nefnd hafréttarráð- stefnunnar fjallar um land- grunnið, auðlindalögsögu og siglingafrelsi. Þar eru enn tvö stórmál óleyst. Hið fyrra er réttur erlendra rikja til að veiða i 200 milna auðlindalög- sögustrandrikis. Hið siðara er afmörkun landgrunnsins. Um þetta segir svo i grein Gunnars G. Schram: „Tvö hundruð milna auð- lindalögsagan nýtur nú al- menns fylgis á ráðstefnunni sem kunnugt er, enda hafa um fimm tugir rikja þegar lýst yf- ir slikri lögsögu undan strönd- um sinum. En kálið er ekki sopið, þótt i ausuna sé komið. Enn er það óútkljáð hver vera skuli réttindi erlenda rikja tíl fiskveiða i auðlindalögsög- unni. Landlukt riki og þróunarlönd, sem byggja efnahagsafkomu sina á fisk- veiðum i auðlindalögsögu ná- grannarikja, gera kröfu til þess að fá að veiða á sann- girnisgrundvelli i lögsögu ná- grannarikja sinna. Svo sem samningsuppkastið hljóðar nú, sem fyrir ráðstefnunni liggur, er slikum kröfum veitt viðurkenning. Andvig þessum sjónarmiðum eru þó mörg fiskveiðiriki, svo sem gefur að skilja, enda myndi það þýða t.d. i framkvæmd, að Austur- riki, Sviss og Tékkóslóvakia fengju aðgang að miðunum i Norðursjó og hluta Norður-At- lantshafs sem lúta strandrikj- um þar. Landluktu rikin og önnur riki, sem afskipt eru af landfræðilegum ástæðum um fiskimið, sækja mál þetta af miklu harðfylgi og hefur það valdið langvinnum deilum á fyrri fúndum ráðstefnunnar. Flokk þennan fylla um 50 þjóðir og hér hefur það þýð- ingu að sá hópur getur komið i veg fyrir samþykkt tillagna, sem hann er andvigur, þar sem aukinn meirihluta, 2/3, þarf i lokaatkvæðagreiðslum á ráðstefnunni. Auk þessa er almennt ákvæði að finna i 62. gr. upp- kastsins að hafréttarsátt- málanum, þar sem ákveðið er, að ef strandrikið hefur ekki sjálftbolmagn til að veiða a 11- an þann afla, sem taka má i auðlindalögsögu þess, skuli það heimila öðrum þjóðum þar veiðar. Hér er með öörum orðum ekki gert ráð fyrir að strandrikið fari eitt með ráð- stöfunarrétt yfir fiskistofnun- um i lögsögu sinni. Sem að lik- um lætur er þetta ákvæði mörgum fiskveiðiþjóöum þyrnir i augum, jafnvel þótt strandrikið hafi heimild til þess að ákveða heildarafla- magn sitt upp á eigin spýtur. öttast ýmis riki að hér sé er- lendum rikjum opnuð greiðfær leið inn i landhelgi þeirra — með ófyrirsjáanlegum af- leiðingum. Hvort sá ótti er á rökum reistureða ekki verður reynslanað leiða i ljós. Rétt er að minna á i þessu sambandi, að deilur um réttmæti ákvörðunar strandrikis varð- andi þann aflahlut, sem það sjálft telur nauðsynlegt að veiða i lögsögu sinni, verða ekki lagðar fyrir hinn væntan- lega Hafréttardómstól. Annað deiluefni, sem enn er óútkljáð, varðar skiptingu landgrunnsins og þá auðlinda- lögsögunnar milli rikja. Þar hefur m.a. verið um það deilt hvort klettaeyjar eða sker skuli eiga rétt til 200 milna auðlindalögsögu, sbr. kröfu Breta um slika lögsögu út frá drangnum Rockall. Réttur tíl auðlindalögsögu út frá óbyggðum eyjum varðar is- lenzka hagsmuni að þvi er lýt- ur að mörkum linunnar miili íslands og Jan Mayen. Fram er tekiö i 1. gr. reglugerðar- innar um 200 mi'lna fiskveiði- landhelgi íslands frá 1975, að reglugerðinni skuli ekki fram- fylgt að svo stöddu utan miö- linu milli grunnlina Jan May- en annars vegar og Islands hins vegar. Biður það þar til niðurstaða fæst um það hvort eyjar, sem ekki hafa fasta byggð, svo sem Jan Mayen, skuli njóta fullrar auðlinda- lögsögu. Er hér um aö tefla svæði, sem er 25.000 ferkiló- metrar að stærð, og sem Is- lendingar geta hugsanlega gert fullt tilkall til og nýtt þá tii veiða. Er svæði þetta jafn stórt og öll 3 milna landhelgin við Island. Enn annað álitaefni er hér það, hvortriki, sem eiga land- grunn, sem gengur lengra en 200 milur út fráströndinni, s vo sem Astralia og Kanada, getí krafizt yfirráða yfir þvi, og þá með hvaða skilyrðum.” ÞRIÐJA nefnd ráðstefnunn- ar fjallar um mengun hafsins og frelsi tíl visindarannsókna. Þar eru enn mörg ágreinings- efni óleyst og hafa sum þeirra verulega þýðingu fyrir Island. Yfirleitter álitið, aö skriöur geti komizt á ráðstefnuna, ef samkomulag næst i fyrstu nefnd. Þá verður lagt kapp á aðleysa ágreiningsefnin i hin- um nefndunum. Nokkurhætta er á, að þá geti orðið breyting á textanum, sem nú er lagður til grundvallar, og Islendingar telja sér viðunandi. Kappsmál okkar er þvi, aö þessar breytingar verði sem minnst- ar, en sumar þeirra gætu reynzt til óhags frá islenzku sjónarmiði. Þvi þarf að vera hér á verði. Þ.Þ.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.