Tíminn - 25.04.1978, Qupperneq 3
Þriðjudagur 25. apríl 1978
3
Nýtt gufuraforkuver gangsett í Svartsengi
Verða Suðumesjamenn
sjáJfum sér nógir um
rafmagn?
Næstu daga verður sett i gang
ný rafstöð i Svartsengi á vegum
Hitaveitu Suðurnesja. Er þetta
gufutúrbina sem framleiðir eitt
megavatt af rafmagni, en alls
hefur hitaveitan leyfi til þess að
framleiða tvö megavött með
þessum hætti.
Að sögn Jóhanns Einvarðs-
sonar, bæjarstjóra i Keflavik,
verður túrbinan sett i gang i
næstu viku, og önnur sams kon-
ar verður tengd við holurnar
siðar. Við erum þarna með
mjög ódýra gufuvirkjun, sagði
Jóhann,envið tvinotum gufuna,
fyrst til raforkuvinnslu og siðan
til hitaveitunnar. Ennfremur
hafði Jóhann þetta að segja,
efnislega:
Spara 800 þúsund
á mánuði i rafmagni
— Við notum þessa nýju raf-
orku til þess að knýja dælur og
fyrir hitaskiptistöð, en alls er
talið að raforkuþörfin veröi um
1.7 megavött, þegar hitaveitan
heur öll komizt i gagnið.
Mjög mikil raforkunotkun er
samfara hitaveitunni og var
rafmagnsreikningurinn fyrir
siðasta mánuð frá Landsvirkjun
um 800 þúsund krónur.
— Hvað kostar raforkuverið?
— Túrbinan með tilheyrandi
kostar um 50 milljónir króna
uppsett.og mér er ekki kunnugt
um ódýrari rafstöð en þessa.
— Ætla Suðurnes jamenn
kannski aö hætta að fá raforku
frá Landsvirkjun?
— Það er nú ekki þar með
sagt, en auðvitað munu þessar
gufuvirkjanr auka hagkvæmni
hitaveitunnar. Við höfum mögu-
leika til þess að vinna 6-7 mega-
vött af raforku við þær aðstæð-
ur, sem nú eru fyrir hendi, sagði
Jóhann, og það hafa komið fram
hugmyndir um að virkja sér-
staklega á þessu svæði til raf-
orkuvinnslu. Engar ákvarðanir
hafa þó verið teknar, en raflinan
til Suðurnesja er orðin léleg,
enda er hún komin til ára sinna.
Þaðmun kosta um einn milljarð
króna að endurnyja hana, þann-
ig að þaö verður að skoöa stöð-
una vel, þegar þar að kemur.
Hitaveita Suðurnesja
ódýrari en ætlað var
— Nú er hitaveitan smám
saman að komast i gagnið.
Hvernig er Utkoman hjá fólki
sem fengið hefur hitaveitu?
— Hitaveitan hefur reynzt
sérlega hagkvæm, hagkvæmari
en við gerðum ráð fyrir, ’ og
veldur þar mestu að olian hefur
enn haldið áfram að hækka i
Orkuverið við Svartsengi.
verði. Flestir sem ég hef talað
við, og fengið hafa hitaveitu,
telja sig spara a.m.k. helming
frá þvisem var, meðan þeir not-
uðu oliu.
Éghef sjálfur fengið hitaveit-
una inn til min og eru það mikil
viðbrigöi, þvi ég greiddi þúsund
krónur á aag fyrir oliu siðustu
vikurnar, en þá var vetur og
kuldi hér. Ég geri ráð fyrir að
nú muni hitareikningurinn
lækka um að minnsta kosti
helming.
— Hver er gjaldeyrissparn-
aðurinn af Hitaveitu Suður-
nes ja?
— Éghef nú ekki séð tölur um
þetta nýverið, en ég geri þó ráð
fyrir að gjaldeyrissparnaðurinn
sé um það bil einn milljarður á
ári, þegar Keflavikurflugvöllur
hefur fengið hitaveitu.
— Þetta eru miklar fjárhæð-
ir?
— Já, þetta leynir á sér. Mikl-
ar umræður eru um orkumál i
landinu.Þærumræður snúastá-
vallt að mestu um raforkumál-
in. Hitaveiturnar eru lika orku-
ver og ósmá i sniðum. Til dæmis
er Hitaveita Reykjavikur
stærsta orkuver landsins.
— Hvernig hefur heita vatnið
reynzt?
— Vel. Menn eru ánægöir
með þetta vatn og gallar hafa
ekki komið fram. Hitaveitan
hefur lika dregið úr vatnsnotkun
hjá vatnsveitunni, þannig að
menn nota mikið af þessu vatni,
sagði Jóhann Einvarðsson að
lokum.
JG
Heildarvelta KRON
jókst um 35%
— á siðasta ári
Aðalfundur Kron var haldinn
16. april siðastliðinn og sóttu hann
um hundrað félagar, en félags-
menn i Kron eru nú um 14.590.
Ragnar ólafsson, formaður fé-
lagsins, og Ingólfur ólafsson
kaupfélagsstjóri, fluttu skýrslur
um starfsemi félagsins á liðnu
ári. t skýrslum þeirra kom m.a.
fram, að verzlunarárferði 1977
hefði verið óhagstætt, einkum sið-
ari hluta ársins. Lögð var fram
nýgerð athugun á arðsemi vöru-
flokka, sem sýndi, að álagning
landbúnaðarafurða stendur að-
eins undir hluta af kostnaði við
sölu þeirra.
Heildarvelta félagsins árið 1977
varð 1.777 milljónir króna og
rekstrarafgangur 758 þús. Er
veltuaukning 35% miöað við árið
áður. Rekstrarafgangur er ekki
mikill og sýnir glögglega, hvað
smásöluverzlun með nauðsynja-
vörur er þröngur stakkur skorinn,
og á það þó sérstaklega við um
verzlun með landbúnaðarafurðir.
Heildareignir félagsins i árslok
voru940 milljónirkróna, þar af er
eigið fé að meötöldum stofnsjóði
félagsmanna 551 milljón eða 58%,
sem er góð fjárhagsstaða miðað
við islenzkar aðstæður.
Heildarfjárfestingar á árinu
vorurúmlega lOOmilljónir króna,
Frá aðalfundi Kron.
en stærstur hlutiþeirra var vegna
nýbyggingarinnar við Skemmu-
veg 4a i Kópavogi. Bygging þessi
er á tveimur hæðum og er gólf-
flötur beggja hæða rúmlega fjög-
ur þús. fm. Áætlað er að annar
helmingur húsnæðisins verði tek-
inn i notkun i júni n.k., en hinn
helmingurinn i nóvember n.k.
Á fundinum flutti nýráðinn
fræðslufúlltrúi félagsins, Elfar
Loftsson, stjórnmálafræðingur,
erindi um félagsmál. Rakti hann
ýtarlega vandkvæöi félagsstarfs-
ins og benti á ýmsar leiðir til úr-
bóta.
Á aðalfundi voru endurkjörin i
stjórn: Adda Bára Sigfúsdóttir,
Böðvar Pétursson og Ólafur Jóns-
son, en kjörnir endurskoðendur
voru Gunnar Grimsson og Björn
Jónsson. Þá voru einnig kosnir
fulltrúar og varafulltrúar á aðal-
fund Sambandsins, sem haldinn
verður 29.-30. júni nk.
(Fréttatilky nning)
15 sálir á stórfundi
Vilmundar í Keflavík
Blaðinu var frá þvi skýrt að
fámennt hafi veið á opinberum
fundi, sem Vilmundur Gylfason
og Kjartan Jóhannsson, efsti
maður á lista Alþýðuflokksins i
Reykjaneskjördæmi, efndu til i
Keflavik um helgina.
Þetta er einn verst sótti póli-
tiski fundur, sem menn muna á
þessum slóðum, en þarna búa
um 9000 manns i næsta ná-
grenni.
Velta menn þvi nú fyrir sér
hvort hér sé um undantekningu
að ræða, eða hvort hinir' raun-
verulegu Alþýðuflokksmenn séu
allir á bandi Jóns Armanns
Héðinssonar, sem hrökklaðist
úr fyrsta sætinu i prófkjöri
flokksins.
JG
Bílasýningin
framlengd
um viku
— tæplega 60 þúsund manns hafa
séð sýninguna
ESE — Vegna fjölda áskorana
hefur bilasýningin AUTO 78 verið
framlengd um eina viku.
Sýningarstjórn AUTO 78 tók
þessa ákvörðun i samráöi við
sýnendur eftiraö henni höfðu bor-
izt fjöldi áskorana frá fólki utan
af landi og af Reykjavikursvæð-
inu um það að framlengja sýning-
una. Til marks um vinsældir sýn-
ingarinnar hefur sýningarstjórn
fengið það staöfest hjá Flugleið-
um, að ekki hafi verið hægt að
anna farpöntunum i innanlands-
flugi og hjá hótelum i Reykjavik
hafi allt verið yfirfullt. auk þess
sem aðsókn að sýningunni hafi
verið mjög góð og mun betri en
búizt var við.
Sýningin verður opin virka
daga kl. 17-22 og siðustu sýning-
arhelgina verður opið frá kl.
14-22.
AUTO 78 — Um slðustu helgi kom 50 þúsundasti gesturinn á bflasýning-
una og að þessu sinni var það Brandur Sigurðsson sem hlaut Pioneer
hljomflutningstæki frá Karnabæ aö gjöf. A myndinni er starfsmaöur
Karnabæjar rétt nýbúinn að afhenda Brandi tækið.
Timamynd Gunnar.