Tíminn - 25.04.1978, Qupperneq 8
8
Þriðjudagur 25. april 1978
Á fundi sameinaðs Al-
þingis á föstudagskvöld
mælti Halldór E. Sig-
urðsson samgönguráð-
herra fyrir þingsálykt-
unartillögu um mark-
mið og leiðir i flug-
öryggismáluin. Tillögu-
greinin er svohljóðandi:
„Alþingi ályktar, að
stefnt skuli að þvi við
skiptingu þess fjár, sem
árlega er veitt til fram-
kvæmda i flugmálum,
að hliðsjón verði höfð í
öllum meginatriðum af
tillögum flugvalla-
nefndar frá nóvember
197(>, og að viö mat á for-
gangsröö slikra fram-
kvæmda verði eftirfar-
andi einkum haft i huga:
a) Öryggisbúnaður flug-
vallarins b) Aðbúnaður
flugfarþega c) Fjöldi
flughreyfinga og magn
flugflutninga d) Ástand
núverandi flugbrauta
og/eða búnaðar e)
Mikilvægi flugs fyrir
viðkomandi byggðarlag
f) Þarfir millilanda-
flugs”.
í framsögu fyrir
þingsályktunartillögu
þessari fjallaði ráðherra
nánar um flugvalla-
nefnd, skýrslu hennar,
og flugmál yfirleitt. Fer
ræða hans hér á eftir.
Flugvallanefnd
„„Nefnd sú sem visað er til i
þingsályktunartillögu- flugvalla-
nefnd — var skipuð hinn 23.
janúar 1976 til „að^gera úttekt á
islenzkum flugvalla- og flug-
öryggismálum i heild” auk til-
lagna um nauðsynlegar úrbætur,
svo og áætlun um á hve löngum
tima sé raunhæft að stefna að þvi
að ljúka slikum úrbótum og i
hvaða röð.
1 upphafi starfs sins óskaði
nefndin eftir nánari skilgreiningu
á verkefni sinu og voru þá m.a.
eftirfarandi atriði staðfest:
a) Meginverkefni nefndarinnar
væriúttekt og tillögugerð varð-
andi þá flugvelli sem þjóna
áætlunarflugi og reglubundnu
póstflugi.
b) Málefni varðandi Keflavikur-
flugvöll væru ekki á verksmiði
nefndarinnar.
c) Aö nefndin veitti einnig um-
sögnum þörf fyrir varaflugvöll
norðan eða austan lands, sem
ætiaður sé til afnota fyrir stór-
ar millilandaflugvélar.
Nefndin lauk störfum sinum i
nóvember 1976 og skilaði þá
skýrslu þeirri sem er fylgiskjal
þessarar þingsályktunartillögu.
Ennfremur hafði nefndin látið
vinna sérstakt myndskreytt yfir-
litsrit i nokkrum eintökum þar
sem fjallað var um hvern ein-
stakan flugvöll sérstaklega.
Skýrslu nefndarinnar var þá
strax dreift til háttvirtra þing-
manna og skrifstofu þingsins fal-
in umsjá eins eintaks af áminnztu
yfirlitsriti.
Hinn 4. mai 1977 var skýrslan
siðan á dagskrá sameinaös þings,
sem þskj. 594, en umræöu varð
ekki lokið.
Aminnzt skýrsla hefúr verið
höfð til hliðsjónar hjá flugráði og
samgönguráðuneyti viö gerð f jár-
lagatillagna fyrir árin 1977 og
1978.
Nú er þaö svo að i flugmálum
eru ekki lagaákvæði um áætlana-
gerð likt og gildir t.d. um vegi og
hafnir, en i starfsreglum fyrir
flugráð nr. 253/1976 segir m.a. að
flugráð geri heildaráætlun um
nauðsynlegar framkvæmdir flug-
mála í 4 ár i senn og siðan, er ráð-
herra hefur fallizt á slikt sem
eöiilega stefnu, sérlegar tillögur
um framkvæmdir i samræmi við
heildaráætlunina svo og aðrar
fjárlagatillögur flugmála, innan
þess frests sem ráðuneytið setur.
Áætlunarbúskap-
ur í flugmála-
framkvæmdum
Með ákvæði þessu er reynt að
færa flugmálaframkvæmdir nær
alþingi
um að vetrarlagi þegar fjallvegir
lokast. A sumum þessara flug-
valla eru aðflugsaðstæður þröng-
ar, og rými fyrir flugvöllinn tak-
markað. Þrátt fyrir þessa ann-
marka verður aö leggja sérstaka
áherzlu á að ibúar þessara og
svipaðra byggðarlaga njóti reglu-
bundinna og öruggra flugsam-
gangna, sérstaklega yfir vetrar-
mánuðina.
Þarfir millilandaflugs
beir flugvellir, sem auk hlut-
Halldór E. Sigurdsson:
Áætlunarbúskapur í
flugmálaframkvæmd-
um eins og á öðrum
sviðum samgöngumála
þeim áætlunarbúskap sem gefizt
hefur vel á öðrum sviðum sam-
göngumála, en þá er sá megin-
munurá, að áætlanir um vega- og
hafnargerðir eru ræddar hér i
þingingu og afgreiddar i formi
þingsályktunar.
Tilgangurinn með skipun flug-
vallanetndar var að afla sem
viðræktastrar og jafnframt sem
traustastrar undirstöðu fram-
tiðaruppbyggingar flugmála
landmanna, og þegar hún var
fengin, sem ég tel vera með téðri
skýrslu, þá taldi ég rétt og skylt,
með hliðsjón af þvi sem sagt var
um vega- og hafnaráætlanir, að
leita með tillögu þeirri, sem hér
er til umræðu, eftir vilja Alþingis
um alhliða stefnumörkun innan
málaflokks þessa.
bvi miður er þess ekki að vænta
að unnt reynist að lyfta þvi
Grettistaki sem úrbætur flugmál-
anna eru á skömmum ti'ma þvi i
þeim efnum setja ýmsar ytri að-
stæður okkur stólinn fyrir dyrnar,
en þótt það takist ekki þá getum
við markaðstefnuna, varðað leið-
ina að þvi takmarki sem að hlýtur
að vera stefnt.
Um skýrslu flugvallanefndar
get ég i sjálfu sér verið stuttorður
þvi hún skýrir sig að flestu leyti
sjálf, en þó skulu eftirtalin aðal-
atriði tekin fram:
Viö ákvöröun á búnaði ein-
stakra flugvalla er lagt til að ráð
sérstök flokkun vallanna, sem
skýrð er í 5, kafla skýrslunnar,
þ.e. i aðalflugvelli og STOL —
flugvelli, og byggt alfarið á flug-
brautarlengd og flugflutningum
en með þvi er átt við heildar-
þyngd flutninga um flugvöllinn,
þ.á.m. farþega, frakt og póst.
Hugmyndir nefndarinnar um
búnað f lugvallanna i hinum ýmsu
atriðum eru siðan settar fram i
formi framkvæmdastaðals i .7.
kafla skýrslunnar þar sem eink-
um eru höfð i huga tilmæli og
staðlar Alþjóðaflugmálastofn-
unarinnar i þessu efni.
Þegar ákveðinn hefur veriö
búnaöur flugvallar er komið að
hinuerfiða og oftast matskennda
vali, þ.e. röðun framkvæmda, og
eru í þingsályktunartillögunni
sett fram likt og i skýrslunni ýmis
þau atriði, sem áhrif geta haft á
þessa röðun, en auk þess gerir
nefndin í greinum 7.5.9. tillögur
um forgangsröð tiltekinna verk-
efna. Skulu þessi atriöi rædd
nokkuð nánar:
Öryggisbúnaður flug-
vallar:
Framkvæmdir, sem tengdar
eru kröfum um .lágmarksöryggis-
búnað ílugvallar, t.d. girðingar
um athafnasvæðin, simasam-
band, veðurmælitæki, fjarskipta-
tæki, svo og slökkvibúnaður
hljóta að njóta forgangs umfram
aliar aðrar framkvæmdir. Sama
gildir um tilskilda og nauðsyn-
lega lágmarkslengd flugbrauta,
þar sem hún er enn ófullnægj-
andi. Verkefnum af þessu tagi
ætti að ljúka áður en ráðizt er i
aðrar framkvæmdir.
Halldór E. Sigurðsson.
Aðbúnaður flugfarþega:
Þegar fullnægt hefur verið lág-
markskröfum um öryggi flugsins,
þarf einnig að sinna lágmarks-
kröfum i sambandi við aðbúnað
flugfarþega á flugvelli svo sem
með upphituðu farþegaskýli með
salernisaðstöðu. A flestum áætl-
unarflugvöllum er ástand á þessu
sviði bágborið og þarfnast úrbóta.
Fjöldi flughreyfinga og
magn flugflutninga:
Magn flugflutninga flugvallar
er veigamikill þáttur i mati á for-
gangsröð framkvæmda og var á
það drepið hér áðan. Augljóst er,
að þurfi t.d. að velja á milli
tveggja flugvalia varðandi upp-
setningu tækjabúnaðar, sem
lækkað gæti blindaðflugsmörk
um helming, myndi sá flugvöllur
að öðru jöfnu ganga fyrir er hefði
meiri flugflutninga. Þá myndu
tekjumöguleikar sliks flugvallar
vera meiri, og þvi eðlilegt að þar
yrði fyrst ráöizt i framkvæmdir,
er kalla á umtalsverða fjárfest-
ingu.
Ástand núverandi
flugbrauta og/eða bún-
aðar
Öfullnægjandi flugbrautalengd
veldur þvi viða að takmarka
verður hleðslu þeirra véla, sem
nota brautirnar. Á þeim flugvöll-
um þar sem nauðsynleg lenging
yrði tiltölulega ódýr i fram-
kvæmd, ætti að setja slikt verk-
efni ofarlega i forgangsröðina.
Sama máli gegnir um ljósabúnað
tiltekinna flugvalla, sem nú eru
eingöngu notaðir af minni flugfé-
lögum. Eins og nú er háttað er að-
eins heimaflugvöllur þessara
flugfélaga búinn ljósum, en það
veldur þvi aö flugfloti þeirra nýt-
ist ekki nægjanlega vel, einkum
að vetrarlagi.
Mikilvægi flugs fyrir
viðkomandi byggðarlag.
Sum byggðarlög eru sérstak-
lega háð flugsamgöngum, eink-
verks sins fyrir innanlandsflugið
hafa sérstaka þýðingu fyrir milli-
landaflug, þurfa að fúllnægja
vissum kröfum, sem það flug ger-
ir. Á tslandi eru nú skráðir milli-
landavellir i Reykjavik á Akur-
eyri, Egilsstöðum, Hornafirði og
Sauðárkróki.
Hvað varðar hina eiginlegu for-
gangsrööun koma einkum tvær
aðalleiðir til greina, þ.e. að taka
fyrst fyrir tiltekna flokka brýnna
verkefna, t.d. slökkvibúnað eða
fjarskiptatæki, og koma þeim i
tilætlað horf á öllum flugvöllum,
eða að megin áherzlan verði lögð
á að fullgera ákveðna flúgvelli
þannig að þeir fullnægi öllum
settum kröfum varðandi gerð og
búnað. í framkvæmd er þó senni-
legast raunhæfast að beita að-
ferð, sem væri sambland af þessu
tvennu, og hafa við forgangsröð-
unina hliðsjón af þeim atriðum,
sem ég drap á hér að framan.
Fyrst og fremst þarf að full-
nægja tilteknum kröfum um lág-
marksöryggisbúnað, og verða
þau verkefni óhjákvæmilega að
ganga fýrir öllu.
1 8. kafla skýrslunnar á bls.
44-52i þáltill. setur ne&idin fram i
samræmi við þau meginsjónar-
mið sem hér hafa verið rakin
hugmyndir sinar að fram-
kvæmdaáætlun ásamt áætluðum
framkvæmdakostnaði.
Nú er það auðvitað svo, að
breytingar á verðlagi hafa að
verulegu marki sett allar kostn-
aðartölur úr jafnvægi, en það ætti
ekki að hafa riðlað hinum al-
mennu meginlinum sem þar
koma fram. Nefndin bendir rétti-
lega á að hér sé aðeins um tiltölu-
lega grófa rammaáætlun að
ræða, sem ætluð er til hliðsjónar.
Hvað um það, þá má segja að hún
gefi allgóða visbendingu hverrar
niðurstöðu má vænta þegar tillög-
um nefndarinnar er beitt i raun.
Hér að framan hef ég einkum
tekið mið af þörfum áætlunar-
flugvalla.en vert eraðbenda á að
auk þeirra eru á opinberri skrá 59
aðrir flugvellir, svo nefndir
sjúkraflugvellir. Þótt þeir heyrðu
ekki almennt undir verks.við
nefndarinnar þá gerir hún þá að
umtalsefni i grein 5.5. og bendir
réttilega á nauðsyn eðlilegs fjár-
streymis til endurbóta á þessum
flugvöllum og/eða nýbyggingu
eftir þvi sem við á, auk þess sem
þar er getið helztu úrbótatillagna
nefiidarinnar i þeim efnum.
Tekið skal undir með nefndinni,
að sérstaka áherzlu þarf að
leggja á trausta gerð og búnað
flugvalla, sem þýðingu hefðu á
hugsanlegum hamfarasvæðum
eða við flugflutninga af þeim.
Ég hef hér að framan drepið á
nokkra meginþættina i skýrslu
flugvallanefndar og læt nægja að
sinni þóttbrotakennt sé að visa að
öðru leyti til hinnar itarlegu
skýrslu, en þó verður þessum
málflutningi ekki lokið án nokk-
urra hugleiðinga um fjármögnun.
Aukin
afnotagjöld
Fé til flugmála kemur i eðli
sinu aðeins eftir tveimur leiðum,
þ.e. frá skattgreiðendum almennt
i formi framlags rikissjóðs, eða
frá flugfarþegum og öðrum not-
endum loftrýmisins, farþega-
skattar, lendingargjöld o.fl. A
undanförnum árum hefur sú þró-
un oröið viðast hvar i heiminum,
að tekna til að standa straum af
útgjöldum við rekstur flugvalla
og þjónustu fyrir flugið er i vax-
andi mæli aflað i formi afnota-
gjalda-Hefur Alþjóðaflugmála-
stofnunin gert viðamikla úttekt á
þessum málum, og beinast tillög-
ur hennar einmitt i þá átt.
1 sumum löndum, t.d. Sviþjóð,
hefur sú stefna verið mörkuð, að
afnotagjöld i einu eða öðru formi
standi undir öllum kostnaði hins
opinbera við flugmál, og þvi verði
ekki um nein framlög úr rikis-
sjóði að ræða til þessa mála-
flokks. Til þess að unnt sé að ná
þessu markmiði þurfa flugflutn-
ingar að vera töluvert miklir
þannig að nýting hlutaðeigandi
mannvirkja verðigóð. Hér á landi
er þjóðhagslegt gildi flugflutn-
inga það mikið, að eðlilegt er að
hlutdeild rikissjóðs i kostnaði við
flugvelli og þjónustu sé tiltölulega
mikil. Viða um land eru tryggar
flugsamgöngur forsenda fyrir bú-
setu, auk þess sem t.d. takmarka
mætti kostnaðarsama þjónustu
svo sem sjúkrahús við tiltölulega
fáa staði, en efla i þess stað sam-
gönguþættina, t.d. flugið.*
1 tillögum sinum um þetta at-
riði bendir nefndin á að rétt sé að
stefna að auknu hlutfalli afnota-
gjalda ogannarra beinna tekna af
flugumferð þannig að það verði
100% af útgjöldum i sambandi við
millilandaflug, og ekki hærra en
50% af útgjöldum i sambandi við
innanlandsflug. Vangaveltur um
þetta atriði koma fram i 9. kafla
skýrslunnar,oghlýtégað telja að
um rétta stefnu sé að ræða þó
auðvitað verði að gæta ákveðinn-
ar varfærni með tilliti til eðlis is-
lenzkrar flugumferðar og þess að
flugrekendum gefist nægilegur
aðlögunartimi vegna þessa.
Sveitarfélag
annast rekstur
Hér ereinnig vert að benda á til
umhugsunar leiðir þær sem farn-
ar hafa verið i Noregi en þar er
hluti rikisins i f járfestingarkostn-
aði flugvalla 90% en hlutaðeig-
andi sveitarfélags 10%. Sveitar-
félagið annast siðan rekstur flug-
vallarins, þ.e. áthafnasvæða,
bygginga, ljósabúnaðar, slökkvi-
þjónustu og snjóruðningstækja
samkvæmt leyfi flugmálastjórn-
arinnar, en fær i þess stað lend-
ingargjöldin. Flugmálastjórnin
norska annast hins vegar flugum-
ferðarþjónustu og starfrækslú
blindaðflugs- og fjarskiptakerfa.
Að lokum skal undir það tekið
með nefndinni, að til litils er að
byggjaupp gott kerfiflugvalla og
annars búnaðar ef ekki er jafn-
framt reynt að tryggja og treysta
starfelið flugmálastjórnar þannig
að sem bezt eftirlit fáist með öll-
um flugrekstri, t.d. gerö og bún-
aði flugvéla og menntun þeirra
sem með þær eiga, enda hefur
verið gert verulegt átak i þessum
efnum af ráðuneytisins hálfu, og
má segja aðþegarhafiverið tekið
mið af öllum tillögum nefndar-
innar hvað þetta atriði varðar.
Ég tel að ég hafi hér að framan
gert þá grein fyrir þingsályktun-
artillögunni sem eðlilegt er á
þessu stigi og mun þvi, herra for-
seti, láta máli minu lokið þar um
að sinni.