Tíminn - 25.04.1978, Síða 17
Þriöjudagur 25. april 1978
17
ENSKA KNATTSPYRNAN:
Jafntefli á Highfield Road tryggði
Notting’ham titilinn
Fyrsti Englandsmeistaratitill i 113 ára sögn félagsins
Leikmenn Nottingham komu til
Coventry með það i huga að ná
sér a.m.k. i eitt stig, stig sem
myndi gera félagið að Englands-
meisturum i fyrstaskipti i 113ára
sögu félagsins. Og það tókst þeim
i hörkuleik við lið Coventry, sem
keppir að þátttöku i Evrópu-
keppniað ári. Peter Shilton sýndi
i þessum leik hve dýrmætur hann
er fyrir félagið, þau voru ófá
skiptin, sem hann varði meist-
aralega og markvarzla hans i
vetur er örugglega búin að færa
liði Nottingham allmörg stig.
Leikur liðanna var mjög fjörugur
og vel leikinn og bæði liðin áttu
mýgrút af tækifærum, en eins og
Shilton i marki Nottingham, varði
Blyth í marki Coventry lika eins
og berserkur. Lokastaðan varð
þvi 0—0 og fögnuður leikmanna
og áhangenda Nottinghamliðsins
var mikill eftir leikinn. Brian
Clough framkvæmdastjóri
Nottingham er annar maðurinn i
sögu ensku knattspyrnunnar, sem
gerir tvö lið að meisturum, Derby
og Nottingham.
En frá glaum og gleði i herbúð-
um Nottingham er bezt að snúa
sér beint að harðskeyttri fallbar-
áttunni. Eftir úrslit helgarinnar
versnaði staða West Ham mikið,
þarsem öll önnur lið, sem berjast
um að lenda ekki i 20. sæti, unnu
eitt eða fleiri stig. West Ham
keppti á Old Trafford i Manchest-
er og aðeins frábær markvarzla
Ferguson i marki West Ham hélt
þeim á floti i fyrri hálfleik, hann
varði meðal annars vitaspyrnu
frá Stuart Pearson. En sókn
Manchester liðsins var linnulaus
og mörkin hlutu að koma, og i
seinni hálfelik urðu þau þrjú tals-
ips. Ashley Grimes skoraði um
miðjan seinni hálfelik, og tvö
mörkin á sömu minútunni frá
Pearson og Sammy Mcllroy
gerðu vonir West Ham um stig á
Old Trafford að engu.
A meðan þessu fór fram bætti
QP.R. stöðusina i deildinni mikið
með þvi að sigra Newcastle
örugglega á St. James’Park i
Newcastle, 3—0. I fyrri hálfleik
skoraði Q.P.R. tvivegis, og voru
þar að verki þeir Givens ög
McGee, og Hollins innsiglaði stór-
sigur þeirra i seinni hálfleik með
glæsilegu marki.
A Stamford Brigde i London
mættust tveir af fallkandidötun-
um, Chelsea og Wolves. Tommy
Langley skoraði fyrrir Chelsea i
fyrri hálfleik mikið á móti gangi
leiksins, þar sem leikmenn
Wolves höfðu ráðið lögum og lof-
um á leikvellinum fram til þess
tima. Þetta mark virtist ætla að
duga Chelsea til sigurs allt þar til
á siðustu minútu leiksins að Eves
tókst að jafna metin fyrir Wolves,
og bætti þar með stöðu liðsins i
deildinni mikið.
Nú er staða neðstu liða i fýrstu
deild þannig: Leicester hefur 20
stig og Newcastle 21 stig, og eru
þessi lið bæði fallin i 2. deild.
Siðan er staðan sú, að West Ham
er með 30 stig eftir 40 leiki á eftir
Middlesbrough á útivelli i kvöld
og Liverpool heima n.k. laugar-
dag. Wolves hefur einnig 30 stig,
eneftir 39 leiki, á eftir Manchest-
er United heima á laugardaginn,
Aston Villa heima 2. mai, og
Ipswich úti 9. mai. Chelsea hefur
31 stig eftir 38 leiki, á eftir
Leicester úti á morgun, Everton
úti álaugardaginn, Q.P.R.hefur
einnig 31 stig, en eftir 39 leiki, á
eftir Birmingham heima i kvöld,
Leeds heima á laugardaginn og
Chelsea úti 2. mai. Staða West
Ham er þannig greinilega verst
og fallið i' 2. deild blasir við þeim.
Derby vann öruggan sigur á
Leicester á Baseball Ground,
4—1, eftir markalausan fyrri
hálfleik. Mörk Derby gerðu þeir
Bruce Rioch, Charlie George (2)
og Gerry Daly, en Roger Davies
skoraði fyrir Leicester.
Arsenal vann góðan sigur á
Leeds á Elland Road i Leeds,
3—I, og komu öll mörkin þar i
fyrri hálfleik. Stapleton, Young
og MacDonald skoruðu fyrir
Arsenal, en Tony Currie skoraði
fyrir Leeds, Við þennan sigur fór
lið Arsenal i þriðja sætið i deild-
inni, og sæti i UEFA keppninni er
tryggt ef bikarúrslitaleikurinn á
móti Ipswich tapast.
Aston Villa vann óvæntan stór-
sigur á WBA á The Hawthorns i
West Bromwich, 3—0. Deehan,
Cowans og Mortimer skoruðu
mörk Villa i' stórskemmtilegum
leik tveggja léttleikandi liða.
Liverpool vann öruggan sigur á
Norwich á Anfield i Liverpool,
3—0. Johan Ryan skoraði stór-
glæsilegt sjálfsmark snemma i
leiknum, og með þvi marki náði
JJverpool forystunni. David Fair-
clough skoraði siðan tvivegis og
sigur Liverpool var allt of litill
miðað við mikla yfirburði liðsins i
leiknum. ó.O.
Stuárt Pearson misnotaði vitaspyrnu á máti West Ham.
Allt getur enn gerzt
á toppi 2. deildar
Southampton á eftir að keppa
við Orient úti i kvöld og
Tottenham heima á laugardag-
inn Bolton á eftir Blackburn úti
annað kvöld og Fulham heima á
laugardaginn. Tottenham á að
leika við Hull heima annað kvöld
og Southampton úti á laugardag-
inn. Brighton á eftir Charlton
heima f kvöld og Blackpool heima
á -laugardaginn. Þannig virðist
allt geta gerzt ennþá, ekkert
þessara liða er ennþá öruggt með
að komast upp, og greinilegt er,
aðTottenham þarf að gera a.m.k.
jafntefli i Southampton á laugar-
daginn til að komast örugglega
upp.
Það sem gerði þessa skemmti-
legu stöðu voru töp Bolton og
Tottenham á laugardaginn.
Tottenham tapaði sinum fyrsta
heimaleik á keppnistimabilinu
fyrir Sunderland, 2-3 og var lið
Tottenham langt frá þvi að vera
1. deild
Úrslitin i ensku knattspyrnunni
s.l. laugardag urðu þessi:
1. deild.
Birmingham — Manchester
City 1—4
Chelsea — Wolves 1—1
Coventry — Nottingham 0—0
Derby — Leicester 4—i
Ipswich — Bristol C i—o
Lee ds — Ar sena 1 1—3
Liverpool — Norwich 3—0
Manchester Utd — West Ha m 3—0 •
Middlesbrough — Everton 0—0
Newcastle—Q.P.R. 0—3
WBA — Aston Willa 0-3
2. Deild
Blackburn —Sheffield Ut. 1—1
Blackpool — Mansfield 1—2
sannfærandi. Taylor náði að visu
forystunni fyrir þá snemma i
leiknum, en Sunderland svaraði
fyrir sig með þremur mörkum,
frá Rowell og Lee (2). Er um
fimm minútur boru til leiksloka
skoraði Duncan fyrir Tottenham,
en þeim tókstekki að skora þriðja
markið til að n4 öðru stiginu úr
leiknum.
Bolton tapaði.0-1 i Cardiff, og
skoraði Bishopeina mark leiksins
fyrir Cardiff á siðustu minútu. Nú
þarf lið Bolton tvö stig úr siðustu
tveimur leikjum sinum til að
komast örugglega i 1. deild, en
tvö siðustu keppnistimabil hefur
Bolton ha fnað i 4. sæti, liðið missti
af strætisvagninum i 1. deild i sið-
ustu leikjum sinum eins og frægt
er orðið.
Southampton vann góðan sigur
yfir Luton á Kenilworth Road i
Luton, 2-1. Peach skoraði fyrir
BristolR — Stoke 4—1,
Cardiff—Bolton 1—0
Charlton —Burnley 3—2
Fulham — Millwall 0—1
Luton — Southampton 1—2
Notts —C.Palace 2—0
Oldham — Brighton 1—1
Orient — Hull 2—1
Tottenham — Sunderland 2—3
Skotland, aðaldeild.
Aberdeen —St. Mirren 4—2
Ayr —Hibernian 2—0
Celtic —Partick 5—2
Motherwell — Clydebank 0—1
Rangers—Dundee Utd 3—0
Þegar ein umferð er eftir i
Skotlandi er staða Rangers bezt,
þeir eru stigi á undan Aberdeen
og eiga eftir heimaleik á móti
Motherwell, meðan Aberdeen
þarf að ferðast til Edinborgar og
keppa þar við Hibernian.
Southampton i upphafi seinni
hálfleiks, en Ricky Hill jafnaði
fyrir Luton. Er stutt var til
leiksloka skoraði MacDougall
sigurmark Southampton, og þarf
liðiðnú, einsog Bolton, tvö stig út
úr siðustu tveimur leikjum sinum
til að gulltryggja veru sina i 1.
deild næsta keppnistimabil.
Brighton gerði jafntefli við
Oldham á útivelli, 1-1, og mega
vel við una, þar sem lið Oldham
er erfitt heim að sækja. Brighton
á eftir að leika tvo heimaleiki, og
ef liðið vinnur þá báða kemst það
i 56 stig, og setur það óneitanlega
pressu á hin liðin að vita af
Brighton svo skammt á eftir sér.
Baráttan á botni 2. deildar er
harövitug eins og i 1. deild.
Millwall og Mansfield unnu bæði
góða' sigra á útivelli, Millwall
vann Fulham með marki frá Lee,
en Mansfield vann Blackpool, 2-1
með mörkum frá Miller og
Syrrett, en Bob Hatton skoraði
fyrir Blackpool. Hull er hins veg-
ar þegar failið i 3. deild eftir tap
fyrir Orient, 1—2.Kitchen og
Clark skoruðu fyrir Orient, en
Warboys fyrir Hull.
Notts vann C. Palace með
mörkum frá Vinter og Bradd, og
mörk Bristol Rovers á móti Stoke
gerðu þeir Williams, Randell (2)
og White.
ó.o.
2. deild
Eftir leiki helgarinnar er staöa
efstu liða i 2. deild þessi:
l.Southampton
1. Southampton 40 69-38 55 st.
2. Bolton . 40 62-33 55 st.
3. Tottenham 40 82-49 53 st.
4. Brighton 40 60-37 52 st.
Valur sló Þrótt úr
Bikarkeppninni
— að viðstöddum 14 áhorfendum
— Valur fær Viking en FH fær
Hauka i undanúrslitum
Valur sigraði Þrótt i átta liða
úrslitum bikarkeppninnar i gær-
kvöldi með 26 mörkum gegn 25.
Leikurinn var mjög jafn og skipt-
ust liðin á um forustu. Þróttarar
leiddu i byrjun, en Valsmönnum
tókst að jafna og komust yfir 7-5
um miðjan fyrri hálfleik, en þá
kom lélegur kafli hjá Val, tviveg-
is skutu þeir friir á linu i stöng, og
Þróttarar minnkuðu muninn nið-
ur i eitt mark, en staðan i hálfleik
var 15-14 fyrir Val.
Jafnræði hélzt með liðunum i
seinni hálfleik og oft mátti sjá töl-
ur einsog 18-18, 20-20 og 25-25. Er
2 mfnútur voru til leiksloka, og
Þróttarar með boltann og héldu
honum, ætluðu sér ekki að skjóta
nema i góðu færi, en það mistókst
er 10 sek. voru til leiksloka og
Valsmenn brunuðu upp og Stein-
dór Gunnarsson skoraði sigur-
mark Vals.
Valsmenn spiluðu þennan leik
illa, hafa haldið að Þróttararnir
væru auöunnir, en svo var ekki,
Sigurinn hefði þess vegna getaS
verið Þróttara oghefði ekki verio
ósanngjarnt.
KR -
Fylkir
0-0
KR og Fylkir kepptu i gær-
kvöldi i Reykjavikurmótinu i
knattspyrnu og lauk leiknum með
markalausu jafntefli. Einn leikur
verður i kvöld og keppa þá Ar-
mann og Valur og hefst hann kl.
20.
Jón Karlsson var markhæstur
Valsmanna með 5 mörk, en Kon-
ráð Jónsson skoraði 9 af mörkum
Þróttar. I gærkvöldi var dregið i
4-liða úrslitin og spiia þar FH og
Haukar og Vikingur — Valur.
Leikur FH og Hauka verður i
Hafnarfirði á miðvikudagskvöld-
ið og Vikingur — Valur keppa á
fimmtudagskvöldið, i Lauga-
rdalshöll.
—RP.
Litla
bikar-
keppnin
IBK sigraði Hauka með tveim-
ur mörkum gegn engu i Litlu
bikarkeppninni á laugardaginn.
FH og Breiðablik léku einnig á
laugardaginn og lauk leiknum
meö markalausu jafntefli.
Einni umferð
ólokið i
Belgiu
Einni umferð er ólokiö i 1.
deildinni i Belgiu.Standard fékk
Courtrai i heimsókn og sigraði
3—2.FC Brugge sigraði LA
Louviere 2—1 og Anderlecht
sigraði Beveren á útivelli 2—1. FC
Bruf>ge hefur 50 stig en
Anderlecht ogStandardhafa bæði
hlotið 48 stig.
—KP.