Tíminn - 07.05.1978, Blaðsíða 9

Tíminn - 07.05.1978, Blaðsíða 9
T. f Mikið um ref í Austurdal AS-Mælifelli. Allmjög hefur orðið vart við ref siðari hluta vetrar i Skagafjarðardölum að sögn Helga Jónssonar bónda i Merkigili i Austurdal og fleiri. Undanfarnar vikur hefur Helgi hreinsað töluvert til umhverfis sig að ekki sé meira sagt, þvi aö hann sýndi fréttaritara Timans er kom nýlega að Merkigili 6 refi sem hann hefur banað i april og að auki einn mink. Bera menn sem von er kviöboga fyrir sauðburðinum, þegar svo mikið er um refinn og hann kemur jafnvel heim undir bæi um ljósan dag. A Skátastöðum munu hafa veiðzt tveir refir ekki alls fyrir löngu að sögn Helga. Mjög litill snjór er frammi i Austurdal en göngufæri vont vegna bleytu. Þurrt er þó i hinu nafnfræga Merkigili en mikið hefur runnið þar i reið- götur enda ekki búiö að hreinsa sneiðingana svo snemma vors. Vegna þeirra fjölmörgu um land allt sem þekkja Moniku i Merkigili skal þess getið aö hún er hin hressasta,ungleg og glöð i sinni þótt hún hálfnaöi áttunda áratuginn i vetur. HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS Hæsta vinningshlutfall i heimi! OTRULEGT VERÐ! Frábært tæki á aðeins kr. Verð aðeins kr 28.000 58.000 SANYO FT-4306 bilútvarp með kassettuspilara, lang-, mið- og FM-bylgju. • Tóngæði 6 W útgangur á rás. • Tónstillir með stýringu á rásum. • Hröð áfram-spólun á segulbandi. SML.----------zmak - SANYO FT-8088 bílútvarp með 4 bylgjum og forvali á 6 stöðvar. • Lang-, mið-, stutt- og FM-bylgjur. • Forval á allar bylgjur. 3 möguleikar á FM. • Tónstillir. • Tóngæði 6 W útgangur. Vegna magninnkaupa getum við boðið tæki á geysi pv hagstæðu verði ' k > í Nú er ein vika til tónleikahaldsins i Akureyri og æfingar hafnar af kappi. Hér sjáum við Passiukórinn á æfingu. vandaðasta og umfangsmesta kirkjukantata Bachs og yrði flutningurinn á Akureyri frum- flutningur verksins hér á landi. Sálumessa Mozarts er eitt vin- sælasta ogfegursta kirkjutónverk allra tima og hefur hún einu sinni áður verið flutt hérlendis, árið 1950. Við spurðum Jón Hlöðver, hvernig þessi mikla hátið yrði fjármögnuð, og kvað hann fjár- magni náð inn aö stórum hluta með sölu áskriftarskirteina og miðum að einstökum tónleikum. Einnig væri verið að safna f rjáls- um framlögum. Heildar- kostnaður hátiðarinnar verður um þrjár milljónir og gerði Jón Hlöðver ráð fyrir, að inn kæmi um ein milljðn frá opinberum aðilum. — Þetta er miklu meira fyrirtæki en menn grunar kannski i fljótu bragði, sagði Jón Hlööver aðlokum, og treystum við þvi að- eins að Norðlendingar kunni að meta tónlistarviðburð á við þenn- an. Framkvæmdastjóri Tónlistar- daga i mai 1978 er Jón Helgi Þórarinsson. „Tónlistardag'ar í maí 1978” á Akureyri um hvítasunnuhelgina — Mörg fögur verk flutt i fyrsta sinn á Islandi á þessari hátið FI — Tónlistarfélag Akureyrar, Passiukórinn og Lúðrasveit Akureyrar munu gangast fyrir tónlistarhátið dagana 12., 13. og 14. nk. og hefur hátiðin hlotið nafnið „Tónlistardagar i mai 1978”. Er hér á ferðinni mikil hátið, þar sem fram munu koma um 250 manns, þ.á m. Sinfóniu- hljómsveit tslands, Passiukórinn á Akureyri, Lúðrasveit Akureyr- ar og allir kórar bæjarins.sex að tölu. Tónlistarhátiðin fer fram i fþróttaskemmu bæjarbúa og verður reynt að útbúa hana sem bezt undir tónleikahaldið, en norðanlands skortir tilfinnanlega almennilegt tónleikahús. Að sögn Jóns Hlöðvers Askelssonar, for- manns stjórnar „Tónlistardag- anna ”, má búast við mikilli að- sókn, sé miðað viðsvipaða hátið i fyrra. Þá sóttu hljómleikana um 1700 manns. Jón Hlöðver sagði ennfremur, aðmarkmið hátiðarinnar væri að flytja tónlist, sem bragð væri að fyrir Norðlendinga og ekki heyrð- ist venjulega á þessum slóöum. Má nefna, að á fyrstu tónleikun- um leikur Sinfóniuhljómsveit Is- lands ásamt Unni Sveinbjörns- dóttur lágfiðluleikara konsert’ fyrir lágfiðlu og hljómsveit eftir Béla Bartok. önnur verk á efnisskrá Sinfóni- unnar fyrsta daginn þann 12. mai verða forleikur að óperunni Hol- lendingurinn fljúgandi eftir Ric- hard Wagner og Furutré Róma- borgar eftir Ottorino Respighi. Laugardaginn 13. mai kemur röðin að blásurum. Lúðrasveit Akureyrar leikur ásamt blásurunum úr Sinfóniuhljóm- sveit Islands og u.þ.b. 160 manna kór undir stjórn Roars Kvam. Einleikarar verða Sigurður I. Snorrason og Ole Christian Han- sen. Þessa tónleika verður að telja merkan viðburð, þvi að öll verkin á efnisskránni fjögur að tölu verða þarna flutt i fyrsta sinn á íslandi. Þar á meðal er „Sym- phonie Funebre og Triomphale” eða Sorgar- og sigursinfónian eft- ir H. Berlioz, sem verður loka- verkið á tónleikunum. Þar verða flytjendur auk blásaranna um 200 manna kór, sem verða mun stærsti kór norðan heiða og myndaður er af félögum allra Akurey rarkóranna. Siðasta daginn sunnudaginn 14. maisyngur Passiukórinn á Akur- eyri ásamt kammersveit félaga úr Sinfóniuhljómsveit Islands. Einsöngvarar verða Ólöf K. Harðardóttir, Ruth Magnússon, Jón Þorsteinsson og Halldór Vil- helmsson. A efnisskrá eru verk eftir Bach ogMozart. Fyrsta Kantatan „Ich hatte viel Bekummernis” nr. 21 eftir Bach og þá Requiem eða Sálumessa eftir Mozart. Jón Hlöðvar sagði, að Kantata nr. 21 væri af mörgum talin ein Erroðin komin að þér? Það er ekki ólíklegt, að þú hljótir vinning í Happdrætti Háskólans. Hátt vinningshlutfall gerir möguleikana mikla, ef þú bara manst að endurnýja í tæka tíð! Mundu, að það er mögulegt að endurnýja fleiri flokka í senn. 5. flokkur 18 @ 1.000.000,- 18.000.000,- 18 -- 500.000,- 9.000.000,- 207 — 100.000.- 20.700.000,- 504 — 50.000- 25.200.000,- 8.316 — 15.000.- 124.740.000,- 9.063 197.640.000,- 36 — 75.000,- 2.700.000,- 9.099 200.340.000,- Dregið verður miðvikudaginn 10. maí

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.